Erfiðleikar Gnúps hækka skuldatryggingaálag ríkisins 10. janúar 2008 11:26
Skuldatryggingaálag á skuldbindingar íslenska ríkisins til fimm ára hækkaði mikið í gær og stendur nú í 126,7 punktum. Hæst fór álagið upp í 130 punkta í gær úr 75 punktum daginn áður. Til samanburðar má geta þess að álagið var innan við 20 punkta í október síðastliðnum og á bilinu 5-15 punktar í sumar. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu og þar segir að „Ástæða þessarar miklu hækkunar er að miklu leyti fréttir af fjármögnunarvandræðum fjárfestingafélagsins Gnúps, nú síðast tilkynning þess efnis að félagið hafi náð samkomulagi við lánardrottna um fjárhagslega endurskipulagningu félagsins." Álagið endurspeglar kostnaðinn við að verja sig gegn þeirri áhættu að ríkissjóður standi ekki við skuldbindingar sínar. Fyrir hvern punkt álags þarf kaupandi skuldatryggingar að greiða 100 kr. til að tryggja skuldabréf fyrir milljón að nafnvirði. Greining Glitnis segir að tíðindin um erfiðleika Gnúps virðast hafa hrundið af stað vangaveltum um hvernig önnur íslensk fjárfestinga-og fjármálafélög standa nú í kjölfarið á þeim óróa sem einkennt hefur fjármálamarkaði frá ágústbyrjun. „Óvissan varðandi fjármálafyrirtækin tengist stöðu ríkissjóðs sem að hefur það hlutverk að grípa inn í sem lánveitandi til þrautarvara til að verja stærstu fjármálafyrirtækin greiðslufalli. Greiðsluvandræði vegna óróans eru hins vegar enn sem komið er bundin við tiltölulega smáan hóp fjárfesta og fjárfestingafélaga, og eru ofangreindar vangaveltur til vitnis um hversu viðkvæmur markaðurinn er fyrir öllum tíðindum á óvissutímum líkt og þeim sem nú ríkja," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Viðskipti erlent Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Fleiri valkostir í Bónus með Salling Samstarf 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Samstarf Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum Samstarf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Sjá meira