Fleiri fréttir

Gerði tónlist fyrir humarsúpu

Tónlistarmaðurinn 7oi fékk óvænta kynningu á veitinga­húsum í Japan. Ný plata með tónlistarmanninum 7oi (Jóhann Friðgeir Jóhannsson), Don’t Push The Rocks In My Face, er komin út. Þetta er fimmta platan hans, en hinar voru heimabrugg sem vöktu athygli í ýmsum afkimum.

Gefa út fjóra diska

Plötusnúðarnir B-Ruff og Gísli Galdur hafa ákveðið að gefa út fjóra mix-diska með tveggja mánaða millibili. Veglegt partí fylgir hverri útgáfu sem verður haldið í höfuðstöðvum verslunarinnar Kronkron.

Fjölbreyttir tónleikar

Hljómsveitin Reykjavík! efnir til útgáfutónleika í Norræna húsinu í kvöld til að kynna plötuna The Blood sem kom út fyrir jólin. Áður en rokkararnir stíga á svið mun Bergur Ebbi Benediktsson úr Sprengjuhöllinni flytja prósakennda útleggingu á verkum Reykjavíkur! og eftir það spilar ástralski tónlistarmaðurinn Ben Frost. Í hléi flytur Mr. Silla verkið Æji, plís og listakonurnar Inga María Brynjarsdóttir og Hrund Atladóttir frumflytja vídeóverk sitt. Arnljótur Sigurðsson kemur einnig fram. Norræna húsið opnar klukkan 23.30 og lýkur tónleikunum klukkan tvö.

Á föstu með stærðfræðikennara

Hef lést um 9 kíló síðan 5. janúar. Nei ég er ekki að djóka," segir færeyski söngvarinn Jógvan Hansen, 30 ára, þegar Vísir spyr hvernig undirbúningurinn fyrir úrslitakeppni Júróvision sem fram fer næsta laugardag hefur gengið. Já ég var spikfeitur þegar ég var krakki. Ég er fæddur á bóndagarði og alinn upp við að borða vel. Fituna á kjötinu og allt þetta góða."

Jóhanna er frambærileg kona

„Nei ég hef ekki verið að þrýsta á hana. En það hafa ýmsir komið að máli við mig og ég hef bent þeim á að tala við hana sjálfa. Hún hefur ekki gefið eitt eða neitt upp í þeim efnum," svarar Vilhjálmur.

Barði gestur Betri stofunnar

Tónlistarmaðurinn Barði Jóhannsson verður gestur Ragnhildar Magnúsdóttur í „Betri stofu“ Bylgjunnar annað kvöld. Ragnhildur og Barði munu meðal annars ræða hlusta á lög af plötunum Bang Gang, Haxan og Lady and Bird.

Ívari Guðmunds rænt úr Smáralind - myndir

Athygli vekur að í Hagkaup Smáralind er pappaútgáfa af Arnari Grant líkamsræktarfrömuði en félagi hans Ívar Guðmundsson sem vanalega stendur honum við hlið er hvergi sjáanlegur. Félagarnir létu útbúa auglýsingaskilti þar sem þeir stilla sér upp hjá heilsudrykk sem þeir selja í eigin nafni. Ekkert hefur spurst til Ívars og enginn starfsmaður verslunarinnar kannast við að hafa séð fólk bera pabbaútgáfuna af Ívari út úr versluninni. Af hverju var þér rænt en ekki Arnari Grant? „Já þetta er góð spurning. Við höfum ekki alveg komist að neinni eðlilegri niðurstöðu í því efni en hefðum gaman af því að vita hver hún ef einhver þarna úti veit það," segir Ívar. Meðfylgjandi má sjá myndir af umræddum auglýsingaskiltum.

- verður &

Bókaforlagið Bjartur-Veröld hefur tekið ákvörðun um að skipta um nafn á forlaginu og heitir nú Bjartur & Veröld. Í tilkynningu frá forlaginu segir að breytingin hafi verið gerð til að „undirstrika að um sé að ræða tvö sjálfstæð bókaforlög, með mismunandi útgáfustefnu, sem þó starfi náið saman."

Andrea Róberts býr til hjörtu

Andrea Róberts er að framleiða hjörtu sem vakið hafa athygli. Þau hafa fengið nafnið Jórunn og eru virðingavottur við Jórunni Brynjólfsdóttur sem rak Jórunnarbúð á horni Skólavörðustígs og Klapparstígs þar til í fyrra. „Jórunn átti það til að láta hvítt lítið hjarta fylgja í kaupbæti í búðinni og í hennar huga var hjartað tákn kærleikans. Allir virðast muna eftir Jórunni og ég hef heyrt ófáar sögurnar. Hún gleymist ekki auðveldlega en mig langaði samt að minnast hennar með einhverjum hætti. Það er ekki eins og það sé allt löðrandi í minnisvörðum um konur þegar við lítum í kringum okkur," svarar Andrea aðspurð hvernig hugmyndin að Jórunnarhjörtunum kviknaði.

Upprennandi útvarpsstjarna

„Ég er búin að vera á föstudögum á Útvarpi Sögu með Eiriki og Reyni og leysi Siggu Lund af í morgunþættinum Zúúber með Svala og Gassa," svarar Tobba Marínósdóttir blaðamaður hjá Séð og heyrt og upprennandi útvarpsstjarna á Íslandi. „Eiríkur er búinn að skýra mig Tobbu Tjútt af óútskýranlegum ástæðum," segir hún og bætir við: Æii hann Eiríkur er svo spes." „Þá mæti ég klukkan hálfníu á Útvarp Sögu og tala um hvað er að gerast um helgina en á Zúúber hef ég verið að prufa mig áfram," segir Tobba sem er 24 ára gömul.

Byrjuð saman á ný

Leikkonan Kate Hudson, 29 ára, eyddi sunnudeginum ásamt syni sínum Ryder, 5 ára, á heimili Owen Wilson, 40 ára, á Malibu. Þau byrjuðu saman í annað sinn eftir erfið sambandsslit árið 2007 og sjálfsmorðstilraun Owen í kjölfarið. Kate byrjaði þá að vera með hjólakappanum Lance Armstrong og hætti með honum nokkrum mánuðum síðar.

EGÓ rokkar Davíð út úr Seðlabankanum

Hljómsveitin EGÓ kemur saman fyrir utan Seðlabankann klukkan níu í fyrramálið og hyggst „rokka Davíð Oddsson í burtu!“ EGÓ var ein ástsælasta hljómsveit landsins í upphafi níunda áratugarins.

Bale hraunar yfir ljósamann

Leikarinn Christian Bale er nú við upptökur á kvikmyndinni Terminator 4 og virðist ekki alveg vera í jafnvægi ef marka má nýjustu fréttir af setti. Í hljóðupptöku sem finna má á youtbe vefnum má heyra Bale hreinlega missa sig yfir ljósamann.

Hafnar ásökunum um nám í klækjafræði og siðleysi

„Það er leiðinlegt að Guðmundur Andri skuli vera með svona stórar yfirlýsingar gagnvart þrettánhundruð nemum Verslunarskólans sem kappkosta við að lesa til stúdents," segir forseti nemandafélags Verslunaskóla Íslands, Hafsteinn Gunnar Hauksson, en hann gagnrýnir Guðmund Andra Thorsson harðlega fyrir grein sem hann ritaði í Fréttablaðið í dag undir fyrirsögninni „Á Gnitaheiði".

Þorgerður Katrín setur húsið á sölu

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Kristján Arason hafa sett húsið sitt á sölu við Tjarnabraut í Hafnarfirði. Húsinu er lýst sem sérlega glæsilegu og virðulegu steinhúsi á þremur hæðum við Tjörnina í Hafnarfirði og í göngu færi við miðbæinn, skóla og þjónustu. Um er að ræða 5 herbergja 258 fermetra einbýlishús. Söluverðið er 74.500.000.- krónur en það hvíla 3.400.000.- á eigninni. Bæði Þorgerður og Kristján eru skráð fyrir húsinu.

Slumdog Millionaire með 11 verðlaun á BAFTA

Besta leikstjórn, besta handritið og besta myndin var meðal þess sem kvikmynd Dannys Boyle, Slumdog Millionaire, eða Viltu vinna milljarð, hlaut verðlaun fyrir á BAFTA-hátíðinni um helgina en þar velur breska kvikmynda- og sjónvarpsakademían þau stykki sem að hennar mati hafa skarað fram úr á skjá og tjaldi.

Kreppan laskar stórafmæli FM

„Kreppan hefur alveg svakaleg áhrif, en við verðum bara að halda sjoppunni gangandi og sníða stakk eftir vexti,“ segir Sigvaldi Kaldalóns, Svali á FM. Stöðin verður tuttugu ára í sumar og Svali er elsti starfsmaðurinn, hefur verið með í 18 ár. Þegar stöðin hélt upp á tíu ára afmælið árið 1999 var öllu tjaldað til, Garbage, East 17 og fleiri bönd spiluðu í Laugardalshöll, en fyrst áttu tónleikarnir að fara fram á þaki Faxaskálans.

Ráðherrar VG ætla að virkja fæturna

Þegar fjórir nýir Vinstri grænir ráðherrar settust í ylvolga stólana fylgdu ráðherrabílar og einkabílstjórar með. Ráðherrarnir ætla allir að nýta sér fríðindin en með mismunandi hætti þó. Göngutúrar eru þeim ofarlega í huga.

Semur dansa fyrir Eurovision

Danshöfundurinn Stella Rósenkranz er í óða önn að undirbúa upphafsatriðið í Eurovision um næstu helgi. Mikið verður lagt í það enda koma þar fram Eurovision-stjörnurnar Friðrik Ómar og Regína Ósk.

Claire Danes gengur í hnapphelduna

Claire Danes og kærastinn Hugh Dancy hafa ákveðið að ganga í hnapphelduna, eftir því sem tímaritið People fullyrðir. Hin 29 ára gamla Danes hitti Dancy, sem er fjórum árum eldri en hún, við tökur á myndinni Evening in Newport og er liðið eitt ár síðan að þau fóru að rugla reytum saman. Þau opinberuðu ást sína á dögunum.

Aniston verður ófrísk

Nýjasta kvikmynd Jennifer Aniston heitir The Baster og verður mótleikari hennar sjarmatröllið Jason Bateman. Í myndinni leikur Bateman óöruggan og taugastrekktann mann sem kemst að því að vinkona hans, sem Jennifer leikur, ætlar að nýta sér gjafasæði til þess að verða ófrísk.

Segir Prinsinn vera leggangasegul

Egill Einarsson betur þekktur sem Störe segist mjög glaður með þær fréttir að knattspyrnumaðurinn Prince Rajcomar sé búinn að skrifa undir hjá KR. Egill og Prince eru mjög góðir vinir eftir að sá síðarnefndi lék með Breiðabliki í Landsbankadeildinni. Egill sem er gallharður bliki er smá súr með að Prinsinn sé kominn í KR og varar eiginmenn í Vesturbænum við kappanum sem hann segir vera leggangasegul.

Guðjón Bergmann breytir um nafn

Fyrirtækið Hanuman ehf. var stofnað árið 2004 í kringum starfsemi Guðjóns Bergmann, rithöfundar, fyrirlesara og jógakennara og nefnt í höfuðið á goði úr indverski goðafræði sem táknar hreysti, útsjónarsemi, kraft og orku.

Ríkisstjórnin gæddi sér á köku ársins

Stefán Hrafn Sigfússon, verðlaunahafi í keppninni um Köku ársins 2009 afhenti Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, eintak af kökunni í morgun í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Jóhann Felixson, formaður Landssambands bakarameistara en betur þekktur sem bakarameistarinn Jói Fel, óskaði forsætisráðherra velfarnaðar í starfi. Kakan var síðan borin fram á ríkisstjórnarfundi.

Tók hvorki myntkörfu-, bílalán né yfirdrátt

„Hjá mér hefur lífið lítið breyst í kreppunni til allrar Guðslukku," svarar Helga Möller söngkona aðspurð hvernig hún tekst á við íslenskar aðstæður í dag. „Ég er ennþá flugfreyja hjá Icelandair og söngkona þess á milli ásamt því að vera fararstjóri í golfferðum fyrir Peter Salmon en að sjálfsögðu finnur maður fyrir hækkandi húsnæðislánum og hækkandi matarverði og öðrum hækkunum." „Ég var allavega mjög heppin að vera búin að venja mig af allskonar óráðsíu. Ég er ekki með bílalán, myntkörfulán eða yfirdrátt. Það eru nokkur ár síðan ég ákvað að snúa þessu við og hefur aldrei liðið betur." „Núna á ég bara fyrir því sem ég er að gera eða bíð þar til ég hef efni á því og svo er annað að maður hefur nú stundum gott af þvi að staldra við og spyrja sig hvort maður vikilega þurfi á þessu og hinu að halda. Svarið er venjulegast nei," segir Helga.

Þurfti að gefa Idol-drauminn upp á bátinn

„Ég átti ekki annarra kosta völ,“ segir Arnar Jónsson sem þurfti að gefa Idol-draum sinn upp á bátinn vegna þátttöku sinnar í Eurovision. „Þeir eru tæknilega séð að svíkja mig,“ bætir hann við og vandar framleiðendum Idol ekki kveðjurnar.

Stefán bakaði köku ársins

Stefán Hrafn Sigfússon, bakari hjá Mosfellsbakaríi, bakaði köku ársins 2009. Landssamband bakarameistara stendur bakvið þessa árlegu

Tengdapabbi Gwyneth sár - myndband

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá sjónvarpsviðtal þáttastjórnandans Jonathan Ross við leikkonuna Gwyneth Paltrow. Þar svarar Jonathan eftir að Gwyneth spyr hvort hann er að reyna við sig. Svarið fór fyrir brjóstið á tengdapabba leikkonunnar sem í kjölfarið sendi frá sér fréttatilkynningu um að Johathan hafi móðgað hana og tengdapabba.

Lyftuvörður fer með ljóð fyrir skíðagesti

„Þetta mælist svo vel fyrir að fólk er farið að rukka mig um ljóðin," segir Ísleifur Friðriksson, lyftuvörður í Bláfjöllum sem hefur tekið upp á þeirri nýlundu að lesa ljóð fyrir gesti í röðinni að stólalyftunni. Kveðskapurinn, sem er lesinn upp í frostinu, er jafn fjölbreyttur og hann er margur - Ísleifur les allt frá Passíusálmunum yfir í eigin kveðskap.

Skoðaði Playboy 10 ára - myndband

„Þetta er búið að vera draumur hjá mér síðan ég var pínulítil. Ég skoðaði Playboy þegar ég var tíu ára," segir Ornella meðal annars í viðtali við Ísland í dag. „Ég byrjaði bara í þessu þegar ég var 15 ára en ekkert alvarlega mikið. Árið 2007 byrjaði ég að fara út og vann í Bandaríkjunum og kynntist þessu liðið. Þar er alls konar lið að vinna í kringum þetta," segir Ornella.

Dóttir Geirs vonar að allt fari vel

„Þetta eru búnir að vera sérstakir tímar og mikið álag á fjölskyldunni og þessi veikindi pabba hafa bæst ofan á það," svarar Helga Lára Haarde þegar Vísir spyr hana út í lífið og tilveruna eftir að faðir hennar, Geir H. Haarde, greindist með illkynja æxli í vélinda.

Keppum ekki til að drulla á okkur

„Við tókum frí um helgina og erum að byrja að æfa atriðið á fullu því við ætlum að gera það flottara og betra," svarar Hildur Magnúsdóttir söngkona í stelpnahljómsveitinni Elektru sem komst í úrslit Júróvisjón með lagið Got no love eftir Örlyg Smára. „Ég og Rakel hringdum í stelpurnar í bandinu. Það voru ekki margar stelpur sem við vissum um á Íslandi sem væru að spila. Júróvisjón varð til þess. Við vorum alltaf með þessa hugmynd í kollinum. Og þær tóku allar vel í þetta," segir Hildur aðspurð hvernig bandið varð til.

Íslenskur fréttamaður yfirheyrður á SKY

Guðjón Helgason fréttamaður Stöðvar 2 birtist Bretum á sjónvarpsstöðinni SKY rétt í þessu. Vísir spurði Guðjón hvað breska sjónvarpsstöðin var að falast eftir. Um stöðuna hjá Baugi," svarar Guðjón og bætir við: Í ljósi greiðslustöðvunarinnar í dag og í framhaldinu spurðu þeir um stöðuna í íslensku efnahagslífi og nýja ríkisstjórn Íslands," segir Guðjón.

Ísland lendir í Stephen Colbert - myndband

Grínistinn Stephen Colbert sem er með þáttinn Colbert Nation á bandarísku sjónvarpsstöðinni Comedy Central stappaði stálinu í samlanda sína á dögunum með því að segja að ástandið gæti verið verra, eins og á Íslandi. Hann segir meðal annars að ástandið sé svo slæmt á Íslandi að eina leiðin til þess að að eiga góða stund sé að kaupa flugmiða til Noregs.

Britain´s Next Top Model í Bláa lóninu - myndband

Ljósmyndarinn Huggy Ragnarsson er einn af dómurum í sjónvarpsþættinum Britan´s Next Top Model. Meðfylgjandi má sjá þegar Ísland í dag hitti Huggy í Bláa lóninu í fyrradag sem hafði veg og vanda af því að því að mynda fyrir þáttinn hér á landi. Þrátt fyrir að mikil leynd hvílir yfir tökunum fékk Ísland í dag að ræða stuttlega við Huggy. Einnig má sjá Önnu Rún Frímannsdóttur sem sá um að farða fyrirsæturnar.

Sævari umhugað um námsmenn

Sævar Ciesielski tók til máls á blaðamannafundi á Hótel Borg á sunnudag þegar ný ríkisstjórn kynnti sig til sögunnar. Átti hann síðustu spurningu fundarins og vildi vita hvað hin nýja stjórn hygðist gera í málefnum íslenskra stúdenta erlendis.

Draugaslóð tilnefnd til Norrænu barnabókaverðlaunanna

Bókin Draugaslóð eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur hefur verið tilnefnd til Norrænu barnabókaverðlaunanna 2009. Norrænu barnabókaverðlaunin eru veitt af Nordisk skolebibliotekarforening, norrænum samtökum skólasafnskennara, sem Ísland er aðili að og var það Félag fagfólks á skólasöfnum sem tilnefndi Draugaslóð.

Ásdís Rán spurð út í Playboy-myndatökur

„Ef þú ert óþekkt er þér boðið að koma í prufutöku þar sem þú þarft að sitja fyrir nakinn. Þetta er oft tekið af sjálfstæðum ljósmyndurum sem eru að reyna að koma stelpum að í Playboy," segir Ásdís. „Eftir að myndirnar eru tilbúnar eru þær sendar fyrir stóra nefnd hjá Playboy og aðeins örfáar sem fá „já" og þeir taka yfirleitt bara inn stelpur frá Bandaríkjunum, nema þær séu stjörnur."

Áhyggjur Obama af þyngd Jessicu - myndband

Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru í gær af söngkonunni Jessicu Simpson, 28 ára, og myndbandsbút þar sem forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, gerir athugasemd við frétt um þyngdaraukningu Jessicu á forsíðu US Weekly. Á umræddri forsíðu er forsetinn látinn víkja fyrir mynd af Jessicu. Hér má sjá Obama koma með athugasemd um baráttu Jessicu við aukakílóin.

Mistök að klippa á Steingrím

„Það voru augljóslega gerð mistök, sem mér þykir miður og við biðjumst velvirðingar á. Það átti auðvitað ekki að rjúfa miðja ræðu, þótt handboltinn sé góður,“ segir Óðinn Jónsson, fréttastjóri hjá Ríkissjónvarpinu.

Lindsay óttaðist að láta lífið á fyrsta farrými

Hin 22 ára Lindsay Lohan ölli mikilli ringulreið þegar hún tók flug flug frá Tampa í Florída á laugardagsmorgun. Allt var upppantað á fyrsta farrými og ekkert pláss fyrir Lohan þar. Farþegum í fluginu var mjög brugðið við lætin í Lindsay, eftir því sem Fox fréttastofan segir frá. Þá þótti það nokkuð hjákátlegt þegar að Lohan bað vinkonu sína um að líta eftir sér ef hún dæi á almenna farrýminu.

Fljúgandi ráðherrar

„Ég veit ekki hvort starfið sé góður stökkpallur í pólitík en reynslan nýtist greinilega á fjölbreyttum vettvangi," segir Sigrún Jónsdóttir, forstýra Flugfreyjufélags Íslands, en sú einstaka staða hefur komið upp að það eru ekki bara ein, heldur tvær flugfreyjur sem gegna embætti ráðherra í nýstofnaðari ríkisstjórn.

Syngur eftir andlát móður og bróður - myndband

Leik- og söngkonan Jennifer Hudson hefur átt um sárt að binda síðan móðir hennar og bróðir voru skotin til bana á heimili þeirra í október á síðasta ári. Jennifer kom fram opinberlega í fyrsta sinn eftir hörmulegt atvikið í gær á Super Bowl á leik Arizona Cardinals og Pittsburgh Steelers á Raymond James leikvellinum í Tampa á Florída. Sjá og heyra Jennifer Hudson syngja bandaríska þjóðsönginn hér.

Sjá næstu 50 fréttir