Lífið

Verðlaunum rignir á meginlandinu

Doris Lessing „Ekki trufla mig við vinnu.“
Doris Lessing „Ekki trufla mig við vinnu.“
Þegar tími lægðanna hefst hér í norðrinu er kominn tími á bókmenntaverðlaun á meginlandinu: Nóbelinn er rétt afstaðinn og Doris Lessing hló þegar hún fékk tíðindin: hún væri búin að fá öll verðlaun Evrópu og þessi breyttu engu um hennar hagi, hún væri upptekin við skriftir.

Svo komu Booker-verðlaunin eins og greint var frá hér í blaðinu fyrir fáum dögum. Þá komu verðlaun fyrir bestu skáldsöguna frá þýskumælandi löndum Evrópu en þau voru fyrst veitt við upphaf messunnar í Frankfurt 2005. Þá fékk þau austurríski rithöfundurinn Arno Geiger fyrir sína stóru fjölskyldusögu „Es geht uns gut“. Árið eftir var það skáldkonan Katharina Hacker fyrir söguna „Die Habenichtse“. Það eru samtök bóksala og bókaútgefenda sem standa fyrir þessum verðlaunum með tilstyrk Frankfurt og messunnar þar, Spiegel og einkaaðila. Tilgangurinn er að vekja athygli á þýskum bókmenntum án landamæra.

Í ár var það önnur skáldkona, Julia Franck, sem fékk verðlaunin fyrir skáldsöguna „Die Mittagsfrau“. Með tvær styrjaldir í baki sögunnar er sagt frá konu sem yfirgefur son sinn í leit að tilgangi í lífinu. Sagan er sögð „sannfærandi og á lifandi tungutaki, sterkri frásögn og sálfræðilegum ákafa“. Sjö menn velja verðlaunasöguna og þora þar í landi að koma fram undir nafni. Þeir sem vilja kynna sér efni tilnefndra verka og lesa úrdrætti þeirra geta litið á vefinn www.signandsight.com en þar eru slík góss í boði. Valið stóð milli 112 skáldsagna.

Innan skamms verða fleiri verðlaun veitt rithöfundum í Evrópu: Goncourt-verðlaunin eru í nánd. Þegar er búið að birta annan vallistann og sá þriðji verður gerður heyrinkunnur á fimmtudag en verðlaunin sem eru þau eftir­sóttustu í Frakklandi verða veitt þann 5. nóvember. Og þá verður búið að veita Medicis-verðlaunin og Femina-verðlaunin í ofanálag.

- pbb





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.