Fleiri fréttir

Bítlavaka á NASA

Stuðmenn og Bítlagæslumennirnir efna til Bítlavöku á NASA á morgun. Tilefnið er koma Yoko Ono til landsins en hún mun tendra friðarsúlu í Viðey á fæðingardegi Bítilsins John Lennon næstkomandi þriðjudag.

Þjófur sem stal myndum frá Spielberg handtekinn

Leynilögregla í Los Angeles hafði hendur í hári þjófs sem hugðist selja myndir úr Indiana Jones myndinni sem nú er í vinnslu. Þjófurinn komst yfir tölvubúnað og myndir sem tengdust framleiðslu myndarinnar og mælti sér mót við lögreglu, sem hann taldi væntanlegan kaupanda, á Standard Hótelinu í Hollywood.

Birkhead með raunveruleikasjónvarpsþátt

Larry Birkhead, sem þekktastur er fyrir að vera barnsfaðir Önnu Nicole Smith heitinar, vinnur nú hörðum höndum að því að undirbúa nýjan sjónvarpsþátt sem verður byggður á hans eiginn daglega amstri.

Aniston og Bloom stinga saman nefjum

Einhleypu en eftirsóttu Hollywoodstjörnurnar Jennifer Aniston og Orlado Bloom hittust í brúðkaupi hjá sameiginlegum umboðsmanni í Mexico á dögunum og litu ekki af hvort öðru. Þar voru einnig Natalie Portman, Laura Linney og Kate Bosworth, fyrrum kærasta Bloom.

Pamela laug til um fósturlát

Kid Rock, fyrrum eiginmaður Pamelu Anderson, segir strandvarðarleikkonuna fyrrverandi hafa logið til um fósturlát. „Pamela vildi fá mig til sín til Vancouver þar sem hún var að leika í mynd,“ segir Rock í samtali við Rolling Stone tímaritið.

Góðir gestir með Gæðablóð

Hljómsveitin Gæðablóð stígur á stokk í kvöld á Sportbarnum við Hverfisgötu ásamt góðum gestum. Með sveitinni að þessu sinni syngja þau Eggert Jóhannsson kaupmaður, Andrea Gylfadóttir söngkona og Heiðrún Hallgrímsdóttir barþjónn.

Britney: Stjörnuhrapið mikla

Britney Spears er fædd í McComb í Mississippi í desember 1981 en var alin upp í Kentwood í Louisiana.

Siennu Miller bannað að fara í eftirpartý

Bresku leikkonunni Siennu Miller var í gær bannað að fara í eftirpartý eftir frumsýningu Stardust sem hún leikur í ásamt þeim Robert De Niro, Michelle Pfeiffer og Claire Danes. Hún lét sig því vanta í 250 manna glæsiveislu sem leikstjórinn Matthew Vaughn og kona hans Claudia Schiffer héldu á heimili þeirra í Notting Hill á eftir.

Aniston selur mest

Leikkonan Jennifer Aniston er það andlit sem selur mest samkvæmt nýútkomnum lista viðskiptatímaritsins Forbes. Niðurstaðan byggir á 6 mánaða könnun á sölutölum vikutímaritanna People, Us Weekly, In Touch Weekly, Life & Style, OK og Star.

Whoopi Goldberg hætt að leika

Leikkonan Whoopi Goldberg er hætt að leika í kvikmyndum og ætlar framvegis að einbeita sér að sjónvarpi. „Það er ekki pláss fyrir mig í Hollywood lengur. Það eru yngri og glæsilegri leikkonur sem fá öll hlutverkin,“ segir hún í samtali við spjallþáttarstjórnandann Larry King. „Handritin berast ekki inn um lúguna hjá mér lengur og af þeim sökum verð ég að snúa mér að öðru.“

Stefán Karl leikur Trölla eftir áramót á Broadway

"Við eigum enn eftir að ganga frá nokkrum lausum endum en ef þetta gengur allt saman upp þá verð ég Trölli á Broadway á næsta ári,“ upplýsir Stefán Karl Stefánsson en hann er nú kominn með annan fótinn á stóra sviðið í New York. Um er að ræða söngleik sem byggður er á bókinni Þegar Trölli stal jólunum eftir Dr. Seuss.

Leitar suðræns sjarmörs

Leikstjórinn Benedikt Erlingsson leitar nú logandi ljósi að suðrænu sjarmatrölli til að taka þátt í uppsetningu hans á Sólarferð eftir Guðmund Steinsson. Ekki spillir fyrir ef sjarmatröllið líkist Baltasar Kormáki.

Torfusamtökin þinga

Hundrað og eitt tækifæri er yfirskrift þings sem Torfusamtökin efna til á laugardag í gamla Iðnó. Samtökin hafa starfað af nokkrum krafti undir nýrri forystu eftir að hafa legið í dvala um árabil. Enda er nú tekist á um framtíð byggðar með ströndinni við Reykjavík og margt til umræðu í þeim áætlunum.

Fjölskylda Britney lifir í ótta

Skyldmenni Britney Spears óttast það að söngkonan sé gjörsamlega búin að missa stjórn á lífi sínu og það gæti dregið hana til dauða.

Ljósmyndir fjarlægðar að beiðni Elton John

Söngvarinn Elton John hefur beðið um að umdeildar myndir sem hann lagði til á listasýningu verði allar fjarlægðar. 4000 myndir í eigu söngvarans voru til sýnis í Center For Contemporary Art safninu í Gateshead en þær eru allar eftir ljósmyndarann Nan Goldin.

Stern höfðar mál gegn Cosby

Howard K. Stern, fyrrum lögfræðingur og ástmaður Önnu Nicole Smith höfðaði í dag mál gegn Ritu Cosby og útgefendum hennar fyrir þær sakir sem hún ber upp á hann í nýútkominni bók sinni Blonde Ambition: The Untold Story Behind Anna Nicole Smith’s Death.

Kynlífi með Keiru líkt við martröð

Skoski leikarinn James McAvoy sem leikur á móti Keiru Knightley í myndinni Atonement segir að honum hafi þótt erfitt og óþæginlegt að leika í kynlífssenum á móti Knightley.

Kynlífsmyndband með Britney í höndum huldumanns

Á mánudag missti Britney forræðið yfir börnum sínum og í dag kemur enn eitt áfallið. 28 ára gamall maður sem ekki vill ekki láta nafn síns getið sagði tímaritinu In Touch Weekly að hann hefði undir höndum kynlífsmyndband með honum og Britney.

Berry geymdi neikvæð þungunarpróf í náttborðsskúffunni

Óskarsverðlaunaleikkonan Halle Berry talaði opinskátt um getnað barnsins sem hún ber undir belti í spjalli hjá Opruh Winfrey í gær. Hin 41 árs gamla Berry og kærastinn Gabriel Aubry reyndu nokkuð lengi að koma barninu undir og voru þau af þeim sökum mikið heima við að gera það sem gera þarf sagði Berry.

Cameron og Cooper nýtt par?

Ofurskutlan Cameron Diaz er nú orðuð við leikarann Bradley Cooper og sjást þau æ oftar opinberlega saman. Í vikunni sáust þau snæða kvöldverð á Morgans hotelinu í New York og á sunnudag fóru þau saman á leik með New York Giants.

Britney talin í sjálfsmorðshættu

Chanda McGovern, frænka Britney Spears, segist óttast í hvert skipti sem hún kveiki á sjónvarpinu að fréttir berist af andláti Spears. Hún er miður sín yfir sjálfseyðingarhvöt söngkonunnar og óttast að næsta skref verði ofskammtur eiturlyfja.

Gögnum stolið frá framleiðendum Indiana Jones

Tölvubúnaði og myndum, sem tengjast framleiðslu nýjustu myndarinnar um Indiana Jones í leikstjórn Stevens Spielberg, hefur verið stolið. The Los Angeles Times greinir frá því í dag að forsvarsmenn DreamWorks Pictures hafi falið lögreglu að rannsaka málið.

Upphitunartónleikar fyrir Iceland Airwaves á NASA

Dagskrárbæklingur Iceland Airwaves kemur út á föstudag og af því tilefni verða haldnir upphitunartónleika föstudaginn 5. október á skemmtistaðnum NASA. Hljómsveitirnar Motion Boys, Jan Mayen, Ultra Mega Technobandið Stefán, Bloodgroup og Foreign Monkeys troða upp og opnar húsið 23:00.

Óboðinn gestur hjá Nicholas Cage

Fjörtíu og fimm ára gamall klæðskeri hefur verið ákærður fyrir innbrot á heimili Hollywood leikarans Nicholas Cage aðfararnótt síðastliðins þriðjudags.

Turtildúfur með eins tattú

Þrátt fyrir að breska leikkonan Sienna Miller neiti því staðfastlega að hún og Rhys Ifans séu saman þá virtist annað uppi á teningnum þegar þau sáust koma út af tattústofu í Dublin í gær. Ifans hafði fengið sér svölutattú á hægri úlnliðinn og er það nákvæmlega eins tattú og Miller ber á úlnliði vinstri handar.

Pitt hefur áhyggjur af börnum sínum

Ofurstjarnan Brad Pitt segir paparazzi-ljósmyndara, sem elta hann og fjölskyldu hans á röndum, valda honum hvað mestri gremju í lífinu. Pitt hefur miklar áhyggjur af því hvaða áhrif fjölmiðlaathyglin hafi á börnin hans fjögur og segist oft hugsa um hvað þetta hljóti að vera skrítið fyrir þau.

Affleck: Sambandið við Lopez hafði skaðleg áhrif á feril minn

Hollywoodleikarinn Ben Afflec segir í samtali við tímaritið Details að samband hans við Jennifer Lopez hafi haft skaðleg áhrif á kvikmyndaferil hans. Þau Afflec og Lopez voru saman frá árinu 2002 til 2004 og nutu gríðarlegrar fjölmiðlaathygli á meðan. Þau voru trúlofuð og hafa bæði kennt fjölmiðlum um sambandsslitin.

Moore hrukkótt þrátt fyrir lýtaaðgerðir

Nýjustu myndir af Demi Moore gefa til kynna að hún hafi ekki heimsótt lýtalækninn sinn nýlega. Hin 44 ára leikkona viðurkenndi á dögunum opinberlega að hún hafi eytt um 30 milljónum íslenskra króna í lýtaaðgerðir en eins og meðfylgjandi myndir bera með sér þá spretta hrukkur og augnpokar fram sem aldrei fyrr.

Doherty fær annað tækifæri

Héraðsdómarinn, Davinder Lachhar, ákvað í dag að fresta aðalmeðferð í máli Pete Doherty, söngvara hljómsveitarinnar Babyshambles, og gefa honum með því tækifæri til að vinna bug á eiturlyfjafíkn sinni. En Doherty á mögulega yfir höfði sér fangelsisvist fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot.

Björn seldi Benz-jeppann samstundis

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, er búinn að selja Benz ML 350 jeppann sinn sem var ein af þremur Benz bifreiðum sem hann átti í safninu. Björn er mjög hrifinn af Benz bílum og veitti Vísir því eftirtekt í lok sumars að hann var með þrjá slíka í heimreiðinni hjá sér. Þetta voru jeppi, fólksbíll og auk þess sjálf ráðherrabifreiðin.

Aðsókn á RIFF með besta móti

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík er nú hálfnuð og hefur aðsókn á verið með besta móti. Sætanýting er yfir 80% og ef áfram heldur sem horfir fer hún líklega yfir 20.000 manns sem gerir hátíðina að einum best sótta listviðburði ársins.

Fór í brúnkusprey eftir að hafa misst börnin

Eftir að Britney Spears missti forræðið yfir sonum sínum í gær höfðu fjölskylda hennar og vinir miklar áhyggjur af henni og voru jafnvel hrædd um að hún myndi fara sér að voða. Móðir hennar Lynne reyndi í ofboði að ná í hana til að sjá til þess að hún myndi ekki gera neitt vanhugsað. En Britney kom kannski engum á óvart með viðbrögðum sínum.

Kalli í Pelsinum kaupir eyju

Athafnamaðurinn Karl Steingrímsson, betur þekktur sem Kalli í Pelsinum, hefur fjárfest í eyju á Breiðafirði. Í samtali við Vísi vildi Karl ekki gefa upp nafnið á eyjunni en sagðist lengi hafa haft augastað á Breiðafirðinum.

Britney er í bobba

Dómstóll í Los Angeles úrskurðaði í gær að Kevin Federline, fyrrverandi unnusti Britney Spears, skyldi fá fullt forræði yfir tveimur ungum börnum þeirra. Lífið leikur ekki við Britney þessa dagana því hún var nýlega ákærð fyrir að keyra án ökuréttinda sem gæti kostað hana sex mánaða fangelsi. Þá missti hún fyrir skömmu samning við umboðsskrifstofuna sína.

Britney missir forræðið

Dómari í Los Angeles veitti í kvöld Kevin Federline fullt forræði yfir börnunum tveimur sem hann á með söngkonunni Britney Spears. Britney og Federline hafa allt síðan að þau skildu deilt forræði en stanslaus vandræðagangur á Spears undanfarin misseri leiddi til þess að Federline höfðaði mál til þess að fá fullt forræði yfir börnum sínum.

Stuðmenn vonast til að Ringo Starr renni á hljóðið

Stuðmenn ætla að kalla saman Bítlagæslumennina og slá upp Bítlavöku á Nasa á laugardagskvöld. Þeir vonast til að Ringo Starr renni á hljóðið. Ringo verður gestur Yoko Ono á Íslandi um helgina.

Britney vill vera elt á röndum

Í dagblaðinu Chigago Sun Times í dag er fullyrt að söngkonan Britney Spears sé í stöðugu sambandi við paparazzi ljósmyndara til þess að tryggja að hún sé á forsíðum slúðurblaða í hverri viku.

Bondstjarna fellur frá

Kanadíska leikkonan Lois Maxwell er látin, 80 ára að aldri. Maxwell lék Miss Moneypenny í James Bond myndunum um árabil. Hún lék á móti Sean Connery í fyrstu myndinni, Dr. No, árið 1962 og fór með hlutverk Miss Moneypenny allt til ársins 1985 þegar hún lék í A Wiew To A Kill á móti Roger Moore.

Lohan í frí með föður sínum

Hollywoodstjarnan Linsey Lohan hefur fengið leyfi frá Cirque Lodge meðferðarstofnuninni í Utah til að fara með föður sínum í fimm daga frí. Lohan og faðir hennar Michael Lohan höfðu ekki talað saman í tvö ár þegar hann kom og heimsótti hana í til Utah í lok júlí síðastliðinn.

Sveppatripp Baggalúts

Hljómsveitin Baggalútur mun halda til Skotlands til að taka þátt í árlegri fimm daga sveppahátíð í bænum Aberfoyle þann 18. október næstkomandi. Þessa sömu daga fer Iceland Airwaves hátíðin fram í Reykjavík þar sem allar helstu hljómsveitir Íslands koma fram.

Beyonce hættir við tónleika í Malasíu

Söngkonan Beyonce hefur hætt við fyrirhugaða tónleika í Malasíu einungis nokkrum vikum eftir að kollegi hennar Gwen Stefani féllst á að hylja líkama sinn nánast frá toppi til táar þegar hún hélt tónleika í landinu. Beyonce hefur í staðin ákveðið að halda tónleika í Jakarta í Indónesíu og munu þeir fara fram þann fyrsta nóvember næstkomandi.

Miðar á Spice Girls seldust upp á 38 sekúndum

Miðar á Spice Girls tónleika sem haldnir verða á O2 leikvanginum í London þann 15. desember næstkomandi seldust upp á 38 sekúndum. Tónleikaferð Kryddpíanna hefst í Kanada annan deseber næstkomandi og eru tónleikarnir í London hluti af henni. Vegna gífurlegrar eftirspurnar í Bretlandi hefur verið ákveðið að bæta tveimur tónleikum við þann 16. og 18. desember.

Björgvin Halldórsson með fimm stjörnu tónleika í Köben

Björgvin Halldórsson hefur verið fenginn til að halda tónleika í Cirkus í Kaupmannahöfn á vegum Hótelbókana í Kaupmannahöfn en það fyrirtæki stóð fyrir margrómuðum tónleikum með Stuðmönnum og Sálinni á sama stað í fyrra. Tónleikarnir verða haldnir þann 24. apríl næstkomandi eða á sumardaginn fyrsta.

Sjá næstu 50 fréttir