Gögnum stolið frá framleiðendum Indiana Jones 3. október 2007 10:03 Þetta er annað áfallið sem Spielberg verður fyrir á skömmum tíma MYND/Getty
Tölvubúnaði og myndum, sem tengjast framleiðslu nýjustu myndarinnar um Indiana Jones í leikstjórn Stevens Spielberg, hefur verið stolið. The Los Angeles Times greinir frá því í dag að forsvarsmenn DreamWorks Pictures hafi falið lögreglu að rannsaka málið. Martin Levy, talsmaður Spielbergs, segir menn hafa áhyggjur af því að þjófarnir muni reyna að selja efnið sem þeir komust yfir. „Við viljum vara fólk við því að allt efni úr myndinni sem kann að vera í boði er tekið ófrjálsri hendi." Hann sagði þjófnaðinn hafa átt sér stað nýlega en gaf ekki upp nákvæma tímasetningu. Myndin er sú fjórða í röðinni um ævintýramanninn Indiana Jones og ber nafnið Kingdom of the Crystal Skull. Myndin verður frumsýnd næsta sumar, 19 árum eftir að síðasta myndin kom út. Harrison Ford snýr aftur sem Indiana Jones í félagi við Shia LaBeouf og Cate Blanchett. Þetta er ekki eina áfallið sem framleiðendur myndarinnar hafa orðið fyrir en Spielberg mun vera æfur út í leikarann Tyler Nelson sem kjaftaði frá söguþræði myndarinnar í nýlegu viðtali. Hann er nú sagður íhuga að klippa öll atriði með Nelson út úr myndinni.
Mest lesið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp Einar og Milla eiga von á dreng Lífið Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira