Fleiri fréttir

Marijúana er vandamál fyrir George

Poppsöngvarinn George Michael hefur viðurkennt að notkun hans á marijúana geti verið vandamál og að hann sé stöðugt að reyna að reykja minna af efninu. "Algerlega, ég myndi vilja nota það minna, engin spurning," sagði hann í útvarpsviðtali við BBC. "Að því leiti er þetta vandamál."

Þroskandi að koma út úr skápnum

Grey´s Anatomy leikarinn T.R. Knight segist hafa þroskast heilmikið sem manneskja eftir að hann kom út úr skápnum fyrir tæpu ári síðan. Knight sem leikur George O´Malley lækni sagði í viðtali við Ellen DeGeneres að honum fyndist hann hafa lært mjög mikið.

Eriksson heldur enn framhjá

Sven Göran Eriksson er enn við sama heygarðshornið eftir því sem breska blaðið News of the World greinir frá. Hann er enn í sambandi við Nacy D'Olio en heldur áfram að halda framhjá henni. Nú hefur hann sést með Saima Ansari, 38 ára gamalli einstæðri móður, sem hefur dvalið löngum stundum á hótelherbergi Svíans.

Louis Maxwell - Miss Moneypenny deyr

Louis Maxwell sem lék Miss Moneypenny í 14 James Bond myndum er látin. Maxwell var kanadísk, en bjó í Ástralíu og var áttræð þegar hún lést. Hún lék aðalhlutverkið í Doktor No á móti Sean Connery árið 1962. Hún hélt áfram í hlutverki einkaritara M þar til árið 1985 þegar hún lék það í síðasta sinn í myndinni A View To A Kill með Roger Moore.

Jagger svaf hjá nýráðinni barnapíu

Það tók sjónvarpsbarnapíuna Claire Verity ekki nema nokkra tíma að sofa hjá rokkaranum Mick Jagger eftir að hún hafði verið ráðin til að gæta sonar hans. Þetta upplýsir hún í viðtali við breska blaðið News of the World í dag.

Kvikmyndin Börn fékk Gyllta Svaninn

Íslenska kvikmyndin Börn eftir Ragnar Bragason fékk í kvöld Gyllta Svaninn á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Kaupmannahöfn. „Ég var nú bara klökkur,“ sagði Ragnar þegar Vísir náði tali af honum við lok verðlaunaafhendingunnar í Scala kvikmyndahúsinu í gærkvöldi.

Ljósmyndaþjófur Cruise deyr

Maður sem viðurkenndi að eiga þátt í tilraun til að kúga um hundrað milljónir íslenskra króna út úr Tom Cruise, fannst látinn í gær. Maðurinn hafði stolið myndum úr brúðkaupi leikarans. Rannsókn lögreglunnar leiddi í ljós að svo virtist sem David Hans Schmidt hefði framið sjálfsmorð.

Sutherland gæti lent í fangelsi

Íslandsvinurinn Kiefer Sutherland gæti endað í fangelsi ef hann verður fundinn sekur um að hafa ekið undir áhrifum áfengis . Sutherland var formlega ákærður í gær fyrir að hafa í tvígang verið tekinn drukkinn undir stýri. Hann gæti átt von á að minnsta kosti fjögurra daga gæsluvarðhaldi

Þjófar stela nýjasta handriti Coppola

Þjófar í Argentínu stálu tölvu bandaríska kvikmyndaleikstjórans Francis Ford Coppola, en í henni var handrit af nýjustu kvikmyndinni sem Óskarsverðlaunahafinn vinnur að. Fimm vopnaðir menn réðust inn í hús leikstjórans í Palermo hverfinu í Buenos Aires, en þar býr efnameira fólk borgarinnar. Þeir létu greipar sópa og tóku meðal annars tölvur og myndavélar.

Viggo tók soninn með í Kristjaníu

Danski leikarinn Viggo Mortensen tók 19 ára gamlan son sinn með sér er hann heimsótti fríríkið Kristjaníu fyrr í sumar. Þetta kemur fram í viðtali blaðsins Nyhedsavisen í dag. Sjálfur var Viggo, að sögn, heimilisgestur í Kristjaníu á áttunda áratugnum.

Britney snýr vörn í sókn

Vandræðagemsinn Britney Spears hefur nú snúið vörn í sókn gegn paparazzi-ljósmyndurum sem elta hana á röndum. Síðastliðinn miðvikudag þegar þeir stóðu í hnapp límdir upp við rúðuna á mexíkóskum veitingastað í Los Angeles, þar sem Britney snæddi kvöldverð, kom hún þeim á óvart með því að taka upp eigin myndbandsupptökuvél og beina henni að þeim.

Kattarslagur í Sex and the City

Um þessar mundir er verið að taka upp Sex and the City: The Movie sem er byggð á samnefndum sjónvarpsþáttum um líf fjögurra vinkvenna á Manhattan í New York. Þættirnir hafa notið gríðarlegra vinsælda undanfarin ár en þrátt fyrir að allt viðrist með felldu á tökustað þá kraumar víst pirringur og óánægja undir niðri.

Jackson EKKI genginn út

Talsmaður Michael Jacksons hefur borið til baka sögusagnir um að söngvarinn sé genginn út. „Þrátt fyrir þrálátan orðróm um að Jackson hafi gengið að eiga barnfóstru barna sinna, Grace Rwaramba, get ég staðfest að hann er ekki á rökum reistur,“ segir Rayone Bain, talsmaður söngvarans, í samtali við Access Hollywood.

Beckham biður fyrir föður sínum

David Beckham er nú staddur í London til að vera við hlið föður síns sem liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að hafa fengið alvarlegt hjartaáfall á miðvikudag. Fjölskylduvinur segir David og systur hans miður sín og að þau hafi miklar áhygggjur af föður sínum, Ted Beckham. Þau vona og biðja til guðs að hann nái sér og David mun ætla að dvelja í London eins lengi og þörf er á.

Oprah launahæsta sjónvarpsstjarnan

Bandaríski spjallþáttastjórnandinn Oprah Winfrey er samkvæmt nýútkomnum lista Forbes tímaritsins launahæsta sjónvarpsstjarnan og þénar fjórfalt meira en sú næsta í röðinni. Á tímabilinu júní 2006 til júlí 2007 voru laun hennar samtals 260 milljónir Bandaríkjadala.

Madonna meðal tilnefndra í Hall of fame

Madonna, the Beastie Boys og Donna Summer eru meðal þeirra sem tilnefnd hafa verið í heiðurshöll tónlistarmanna (US Rock and Roll Hall of Fame), samkvæmt Billboard tímaritinu. Þá hafa Leonard Cohen, John Mellencamp, Chic, the Dave Clark Five og Afrika Bambaataa einnig verið tilnefnd.

Nýjasta handriti Coppola stolið

Fimm vopnaðir þjófar réðust inn á heimili bandardíska kvikmyndaleikstjórans Francis Ford Coppola í gær og rændu meðal annars fartölvu sem í var handrit að væntanlegri kvikmynd leikstjórans sem mun heita Tetro.

Magic Numbers til Íslands

Breska hljómsveitin The Magic Numbers er væntanleg til Íslands og heldur tónleika hér í næsta mánuði. Tónleikarnir verða í Fríkirkjunni sunnudagskvöldið 21. október. Samkvæmt heimasíðunni Gigwise.com eru tónleikarnir haldnir á vegum Coca Cola í Evrópu.

Eyþór tekur glæsieign í Þingholtsstræti í gegn

„Við sáum þarna einfaldlega kærkomið tækifæri og vildum taka þátt í því endurreisnarstarfi sem hefur verið í gangi í Þingholtunum,“ segir bæjarfulltrúinn Eyþór Arnalds en hann og eiginkonan Dagmar Una Ólafsdóttir keyptu í sumar hundrað ára gamalt timburhús við Þingholtsstræti 21.

Þrjú hundruð mættu á miðnætursölu Halo 3

Útgáfa skotleiksins Halo 3 fyrir Xbox 360 leikjatölvuna á miðvikudag fór ekki fram hjá neinum tölvuleikjaáhugamanni. Fjöldinn allur af fólki mætti á miðnæturopnun BT til að kaupa leikinn á þriðjudagskvöld, en tollurinn setti strik í reikninginn fyrir suma.

Pönkið aftur í sviðsljósið

"Ég bara treysti því að menn fari vel með þetta," segir tónlistarmaðurinn Einar Örn Benediktsson en annað kvöld, föstudag, verða tónleikar á Grand Rokk, Smiðjustíg 6, þar sem fram kemur hljómsveitin P.P. Um er að ræða svokallað "tribute"-band eða hljómsveit sem gagngert hefur verið sett saman til heiðurs hljómsveitinni Purrki Pillnikk en sú hljómsveit hélt lokatónleika sína fyrir réttum aldarfjórðungi.

Stjörnurnar og sléttujárnið

Hjá stjörnum sem daglega eru í sviðsljósinu getur skipt sköpum að hafa hárið í lagi. Sumar leyfa því að liðast frjálslega um andlitið á meðan aðrar virðast halda lykillinn að fullkomnu útliti felist í að ríghalda um sléttujárnið og stilla hitastigið í botn.

Michael Jackson genginn út?

Samkvæmt heimildum ameríska slúðurblaðsins National Enquirer mun konungur poppsins, Michael Jackson, vera genginn út, enn eina ferðina enn. Þrátt fyrir að menn úr herbúðum söngvarans neiti þeim sögusögnum þá hefur blaðið birt afrit af gögnum þar sem Jackson staðfestir að hann sé kvæntur.

Pamela og Denise Richards saman á forsíðu Playboy?

Vinkonunum Pamelu Anderson og Denise Richards hefur verið boðið að sitja fyrir naktar í Playboy fyrir eina milljón Bandaríkjadala eða um 62 milljónir íslenskra króna. Fréttir herma að þær stöllur, sem báðar hafa setið fyrir í blaðinu áður, íhugi alvarlega að taka tilboðinu.

Frægðarsól Moss dvínar

Síðastliðið haust var Kate Moss á hátindi frægðarinnar þrátt fyrir bakslag árið 2005 þegar myndir af henni við eiturlyfjaneyslu láku út. Í kjölfarið rifti fjöldi vöruframleiðenda samningum við hana en að ári liðnu var hún orðin eftirsóttari en nokkru sinni fyrr.

Victoria hannar fyrir Mel B

Það getur komið sér vel að eiga vinkonu sem er jafn vel að sér í tískunni og Victoria Beckham. Mel B hefur nú beðið stallsystur sína úr Spice girls að hann fyrir sig þá kjóla og búninga sem hún mun klæðast í Dancing with the Stars keppninni sem hún tekur þátt í. Þessi ameríska útgáfa af hinum geysivinsæla Strictly Come Dancing hófst í þessari viku og byrjaði kryddið vel á léttum Cha cha cha.

Scorsese gerir mynd um George Harrison

Kvikmyndaleikstjórinn Martin Scorsese hefur fallist á að gera mynd um Bítilinn George Harrison. Olivia, ekkja Harrison verður mun aðstoða við gerð handritsins. Þá munu þeir Paul McCartney og Ringo Starr einnig leggja sitt af mörkum.

Diddú: Stór stund fyrir Ísland

„Þetta var stór stund fyrir Ísland,“ segir Sigrún Hjálmtýsdóttir, betur þekkt sem Diddú um tónleika hennar og Garðars Thórs Cortes sem haldnir voru í Barbican Centre í London í gær. „Þetta var þvílíkt ævintýri. Það mætti okkur strax í upphafi heitur straumur frá fullum sal áhorfenda.

Hjónin Anthony og Lopez leggja upp í tónleikaferð

Leik- og söngkonan Jennifer Lopez og eiginmaður hennar Marc Anthony kynntu í vikunni tónleikaferð sem ber yfirskriftina Jennifer Lopez & Marc Anthony En Concierto tour og hefst á morgun. Hjónin munu þar leiða saman hesta sína en Anthony er þekktur söngvari og lagasmiður og Lopez hefur fyrir löngu sannað sönghæfileika sína.

Paris til Rúanda

Eftir að Paris Hilton losnaði úr fangelsi fyrr á þessu ári hét hún því að nýta frægð sína til góðs. Nú hefur hún ákveðið að heimsækja Rúanda og ætlar að freista þess að nýta frægð sína til að vekja athygli á kjörum fólks í landinu.

Halle Berry fær hótanir frá meintum kynþáttahatara

Óskarsverðlaunaleikkonan Halle Berry hefur ráðið til sín lífverði eftir að meintur kynþáttahatari hóf að senda henni ógeðfelld bréf þar sem hann hótar henni og ófæddu barni hennar öllu illu. Í einu bréfinu segist hann ætla að skera hana og barnið í þúsund bita.

Björk syngur á tröppum Óperuhússins í Sydney

Söngkonan Björk Guðmundsdóttir mun syngja á tröppum Óperuhússins í Sydney á borgarhátíð þann 23. janúar næstkomandi. Frá þessu er greint á vef ástralska dagblaðsins Sydney Morning Herald.

Rolling Stones í Heimsmetabók Guinness

Þrátt fyrir að meðlimir The Rolling Stones verði ekki yngri með árunum þá eru þeir enn að gera góða hluti og komust þeir síðast í Heimsmetabók Guinness fyrir best heppnaða tónleikaferðalag sögunnar.

Leitað að óperustjörnum

Íslenska óperan leitar þessa dagana að söngnemendum til að taka þátt í næsta Óperustúdíói Íslensku óperunnar sem nú er haldið í fimmta sinn. Prufusöngur verður haldinn dagana áttunda og níunda október milli 10:30 og 14 í Íslensku óperunni. Í prufunni eru þátttakendur beðnir um að syngja aríu eftir Mozart eða annað frá sama tímabili og til að bóka tíma þarf að hringja í síma 511-6400.

Clooney segir sambönd sín dauðadæmd

Hinn sykursæti Hollywoodleikari George Clooney hefur sagt nýju kærustu sinni Söruh Larson að hann muni aldrei giftast henni. „Sambönd mín eru dauðadæmd,“ hefur hann látið hafa eftir sér. Frá því að Clooney skildi við Taliu Balsam árið 1993 hefur hann verið í mörgum samböndum en ekkert þeirra hefur enst.

Draumur framsóknarmannsins að eignast Land Rover

Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi og formaður borgarráðs, hefur undanfarið sést þeysast um götur borgarinnar á glænýjum Land Rover Discovery jeppa. Aðspurður segir Björn það vera draum hvers framsóknarmanns að eignast slíkan bíl enda hafi Land Rover fylgt framsóknarmönnum til sjávar og sveita í áratugi.

Síðustu atriðin á Airwaves að tínast inn

Síðustu atriðin í dagskrá Iceldand Airwaves hátíðarinnar, sem hefst eftir þrjár vikur, eru þessa dagana að tínast inni. Þar má nefna breska dúettinn Prinzhorn Dance School, skosku sveitina Theatre Fall, elektró píuna Roxy Cottontail frá New York og svo helstu vonarstjörnur Norðmanna og Svía í rokkinu en þær eru Ungdomskulen frá Noregi og Radio LXMRG frá Svíþjóð.

Knightley þolir ekki sviðsljósið

Hollywoodleikkonan Keira Knightley segist í samtali við tímaritið Allure vera það meðvituð um sjálfan á rauða dreglinum og á öðrum samkomum að hún njóti sín ekki.

Kate Moss trúlofuð

Kate Moss tilkynnti vinum sínum á sunnudag að hún og Jamie Hince, kærasti hennar til nokkurra vikna væru trúlofuð. "Ég elska hann og við erum trúlofuð," sagði ofurmódelið.

Pavarotti minnst um heim allan

Röð minningarathafna um stórtenórinn Luciano Pavarotti hefst þann sjötta október næstkomandi en þá verður liðinn mánuður frá því að söngvarinn lést úr briskirtilskrabbameini. Sýningarnar fara fram í um 90 ítölskum menningarmiðstöðvum um heim allan og verða upptökur í eigu ítalska ríkissjónvarpsins meðal annars til sýnis.

Elton John flæktur í barnaklámsrannsókn

Poppstjarnan Elton John á yfir höfði sér lögreglurannsókn eftir að ljósmynd sem hann lagði til á listasýningu hefur verið gerð upptæk af lögreglu. Yfirmaður The Baltic Centre For Contemporary Art í Gateshead ákvað að fjarlægja myndina í gær, degi áður en sýningin opnaði.

Sex Pistols bæta við tónleikum

Breska pönkhljómsveitin The Sex Pistols sem halda mun þrjá tónleika í London í nóvember næstkomandi hefur ákveðið að bæta tveimur tónleikum við vegna mikillar eftirspurnar. Tónleikarnir þrír sem fara fram dagana 8-10 nóvember seldust upp á aðeins 15 mínútum.

Go Go Smear The Poison Ivy - múm

Múm fer á nýjar slóðir með nýrri mannaskipan á Go Go Smear The Poison Ivy. Margslungin og metnaðarfull plata með áhrifum víða að.

Hugleikur vinsæll í Finnlandi

Bók Hugleiks Dagssonar "Skould you be laughing at this?" hefur notið töluverðra vinsælda í Finnlandi eftir að hún kom þar út í síðasta mánuði. Fyrsta upplagið er uppselt en von er á öðru upplagi fyrir bókamessuna í Helsinki í næsta mánuði. Um tíma var bókin í efsta sæti á metsölulista Helsingin Sanomat stærsta dagblaðs í Finnlandi.

Sutherland tekinn fyrir ölvunarakstur

Hollywoodstjarnan Kiefer Sutherland var handtekinn í dag fyrir að keyra undir áhrifum áfengis. Hann var stöðvaður um hádegisbilið í Los Angeles eftir að lögregla veitti því athygli að hann tók ólöglega U-beygju.

Sjá næstu 50 fréttir