Stuðmenn vonast til að Ringo Starr renni á hljóðið 1. október 2007 19:08
Stuðmenn ætla að kalla saman Bítlagæslumennina og slá upp Bítlavöku á Nasa á laugardagskvöld. Þeir vonast til að Ringo Starr renni á hljóðið. Ringo verður gestur Yoko Ono á Íslandi um helgina. Bítlunum Paul McCartney og Ringo Starr hefur verið boðið að vera við tendrun á friðarsúlu Yoko Ono í Viðey, á afmælisdegi John Lennon þann 9. október. Talsmaður Yoko varðist í dag allra frétta af gestalista Yoko en samkvæmt heimildum Stöðvar 2 er nánast öruggt að bítlatrymbillinn Ringo komi hingað til að horfa á friðarljósið kvikna í Viðey. Ekki er jafn víst að Paul McCartney láti sjá sig undir friðarsúlunni. Ringo var hér sumarið 1984 og lamdi sem kunnugt er húðir í félagi við Stuðmenn í Hallormsstaðaskógi. Jakob Frímann Magnússon, Stuðmaður og liðsstjóri Bítlagæslumanna, segir að allir Bítlagæslumennirnir séu í góðu formi en Stuðmenn ætla að spila á Nasa um helgina. Hann vonast jafnvel til að Ringo renni á hljóðið eins og í Atlavík um árið. Rúmur aldarfjórðungur er nú liðinn frá því Lennon féll fyrir hendi morðingja. Hefði Lennon lifað ætti hann í vændum að verða 67 ára gamall þann 9. október. Fjórði bítillinn, og aðalgítarleikari sveitarinnar, George Harrisson, lést árið 2001. Miðað við meint gott form Bítlagæslumanna Stuðmanna, sem eru jafnmargir upprunalegu Bítlunum, ættu þeir að fara létt með að gæta þeirra tveggja sem eftir lifa. Bítlagæslumennirnir, sem getið er um í Stuðmannalaginu um Hringinn frá Lifrar í polli, eru Jónas R. Jónsson, Egill Eðvarðsson, Gunnar Þórðarson og Sigurjón Sighvatsson. Paul McCartney bassaleikari og tónskáld var hér aldamótaárið 2000 með fyrrverandi eiginkonu sinni Heather Mills. Ekki fer sögum af matarást McCartney hér en Ringo hefur einfaldan smekk. Jakob segir að Ringo hafi ekki litið við humri og álíka kræsingum í "den"; "hann vild bara fish and chips," eða ýsu og kartöflur.
Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes Menning „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Lífið Fleiri fréttir Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Sjá meira