
Fleiri fréttir

Ódæll snýr aftur
Myndlistarmaðurinn Snorri Ásmundsson snýr aftur á heimaslóðir og opnar sýningu á Akureyri á morgun en sýningin er haldin í galleríi Jónasar Viðar í Kaupvangsstræti 12.

Prýðisskart
Norska listakonan Ingrid Larssen heldur sýninginu á hönnun sinni á Skriðklaustri um þessar mundir.

Síðasta yfirlýsing Johnny Cash
Platan American V: A Hundred Higways með bandarísku kántrí goðsögninni Johnny Cash er kominn út, þremur árum eftir dauða hans. Á plötunni er að finna nokkrar af hans allra síðustu upptökum sem meðal annars voru teknar upp á tímabilinu frá dauða eiginkonu hans June Carter og fram að dauða hans í október 2003.

Stefnt að ásættanlegu risi
Listasýningin Hugris verður opnuð í Kling & Bang galleríi við Laugaveg annað kvöld en þar sýnir fjöllistahópurinn Gelitin afrakstur vinnu sinnar hér á landi en meðlimir hafa ferðast um landið undanfarna daga og aflað sér gagna, orku og andlegrar reynslu.

Upplifir gamlan draum
Fegurðardrottningin Manuela Ósk Harðardóttir og vinkona hennar Karen ætla að videoblogga frá Miss Universe og verður afraksturinn sýndur á sjónvarpsstöðinni Sirkus en ennfremur verður hægt að nálgast efnið á minnsirkus.is/ungfrurnar. Miss Universe fer að þessu sinni fram í Los Angeles og tekur Sif Aradóttir þátt í keppninni fyrir hönd Íslands.

Yst í Suðsuðvestur
Listsýningu Heimis Björgúlfssonar "Yst glitrar" í galleríi Suðsuðvestur í Reykjanesbæ lýkur um helgina. Næstkomandi sunnudag, 16. júlí, lýkur sýningu Heimis Björgúlfssonar "Yst glitrar" í Suðsuðvestur. Heimir sýnir vídeóinnsetningu og klippimynd unna úr ljósmyndum.

Bölvun aflétt
Einkasýningu Sigtryggs Bergs Sigmarssonar The Curse of Sigtryggur Berg Sigmarsson lýkur á laugardaginn en hún hefur staðið yfir í sýningarýminu Gallerí Dvergur, í kjallara bakhúss að Grundarstíg 21 í Þingholtunum.

Hátíð harmonikunnar um helgina
Það verður hátíðarstemning í Árbæjarsafni um helgina. Í tilefni af Harmonikuhátíð í Reykjavík verður efnt til tónleika og samspils á sunnudaginn.

"Opinn skógur" í Tröð við Hellissand
Laugardaginn 15. júlí nk. verður Tröð, við Hellissand á Snæfellsnesi, svæði Skógræktar- og landverndarfélagsins undir Jökli, opnað formlega undir merkjum "Opins skógar" skógræktarfélaganna.

Hryllingurinn heldur áfram í bíó
Hryllingsmyndasumarið heldur áfram á Íslandi en aðdáendur þeirra ganga væntanlega flestir ánægðir frá borði eftir árið, varla hefur liðið sú vika að ekki hefur verið frumsýnd ein hrollvekja til að hræða líftóruna úr kvikmyndahúsagestum.

Videoblogg frá Los Angeles
Ungfru Ísland í ár, Sif Aradóttir, fer til Los Angeles í dag og keppir þar fyrir Íslands hönd í keppninni Miss Universe þann 23. júlí. Manuela Ósk, fyrrum ungfrú Ísland, og Karen vinkona hennar ætla fylgja Sif út og videoblogga á hverjum degi þar til keppninni lýkur.

Afrakstur sumarsins
Uppskeruhátíð Skapandi sumarhópa Hins hússins og Reykjavíkurborgar verður haldin í Ráðhúsinu í kvöld en þar gefst áhugasömum unnendum menningar kostur á að kynnast frumleika og krafti listamanna framtíðarinnar.

Íslensk barbiedúkka á e-bay
Dúkkan var framleidd árið 1986 og er hluti af Heimsdúkkusafni Mattel-framleiðandans. Dúkkan er í upprunalegum umbúðum sem hafa aldrei verið opnaðar.

Kennir þjóðinni að stunda kynlíf
Í nýjasta eintaki af Bleikt og blátt er ung blaðakona kynnt til leiks bæði í máli og myndum. Þessi frakka blaðakona, Eydís Eir Björnsdóttir, líkir sjálfri sér við sögupersónur hinnar vinsælu þáttaraðar Sex and the City og segist vera mjög lík Carrie í gerðum en Samönthu í hugsun.

Kynlífsbann
Nú hefur hótelerfinginn og partíljónið Paris Hilton sett sjálfa sig í eins árs kynlífsbann. Þetta ætlar hún að gera í þeim tilgangi að gera sig að sterkari persónu.

Kærkomin kvöldganga
Á fallegu sumarkvöldi er tilvalið að rölta um miðbæjarsvæðið og ekki er verra að hafa leiðsögn og góðan félagsskap. Í kvöld býður Borgarbókasafn Reykjavíkur til kvöldgöngu um gamla kirkjugarðinn við Suðurgötu.

Fjölbreyttur matseðillinn við þjóðveginn
Á Kirkjubæjarklaustri er að finna veitingarstaðinn Systrakaffi sem er tilvalinn áningarstaðar fyrir ferðalanga sem orðnir eru leiðir á hinu klassíska sjoppufæði. Matseðill staðarins er afar fjölbreyttur og freistandi og staðurinn býður líka upp á góða aðstöðu til setu utandyra og er einnig með leikhorn fyrir börnin.

Lúxushamborgari með sætum kartöflum
Brynja Baldursdóttir deildarstjóri hjá Símanum er þekkt fyrir góða takta í eldhúsinu meðal vina og vandamanna. Hér gefur hún uppskrift þar sem einfaldleikinn er í fyrirrúmi.

Zidane er niðurbrotinn maður
"Samkvæmt innanbúðarmanni okkar hjá Zidane er hann miður sín yfir þessu og niðurbrotin maður," segir Sigurjón Sighvatsson sem frumsýndi nýstárlega heimildarmynd um knattspyrnukappann fyrr á þessu ári.

Djassdívan Andrea á Q Bar
Djassinn heldur áfram að duna á Q Bar þar sem tónlistarmenn stíga á svið á hverju fimmtudagskvöldi í sumar. Í kvöld hefur djassdívan Andrea Gylfadóttir upp raust sína undir leik Gunnars Hrafnssonar bassaleikara og Björns Thoroddsen gítarleikara.

Slagur á tvíslá
Kvikmyndin Stick It segir frá Haley Graham er gömul fimleikadrottning sem yfirgaf liðsfélaga sína á ögurstundu og rústaði þar með orðspori sínu í íþróttinni. Hún er iðinn við að koma sér í klandur með hverskyns tilraunum í jaðaríþróttum sem ögra bæði þyngdarlögmálinu og hinum almennu lögum.

Stolin hugmynd?
Handritshöfundurinn Royce Mathew hefur kært Walt Disney og framleiðandann Jerry Bruckheimer fyrir að hafa stolið hugmyndinni sinni um sjóræningjana í Pirates Of The Caribbean.


Svífur um loftin blá
Nítján ár eru liðin síðan að Christopher Reeve flaug um himininn og bjargaði heiminum frá Lex Luthor sem hafði þá komist yfir kjarnorkusprengju. Nú snýr Brandon Routh aftur í hlutverki Ofurmennsins en þessarar endurkomu hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu.

Alþjóðlegt orgelsumar
Orgelleikarinn Lenka Mátéová leikur á hádegistónleikum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju í dag kl. 12. Lenka starfar sem organisti Fella- og Hólakirkju.

Tilfinningatónleikar hjá Láru
Lára Rúnarsdóttir heldur tónleika í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld í tilefni af útkomu plötu hennar Þögn. Við unnum að plötunni allt síðasta sumar. Svo fór hún í smá bið því það eru svo margir sumarsmellir á henni, segir Lára hlæjandi. Annars er þetta er svona lágstemmd melódísk tilfinningaplata svona tilfinningamúsík.

Tímaþjófur á Ölstofunni
Gestum á Ölstofu Kormáks og Skjaldar varð bylt við á dögunum þegar klukku staðarins var stolið. Veitingamennirnir Kormákur Geirharðsson og Skjöldur Sigurjónsson eiga hins vegar hauk í horni þar sem ítalski barþjónninn Fabio la Marca er, því hann gerði sér lítið fyrir og hafði upp á þjófnum og endurheimti klukkuna.

Penetreitor vel tekið
Leikritið Penetreitor var frumsýnt í Sjóminjasafni Reykjavíkur á þriðjudagskvöld. Leikendur í verkinu eru þrír af efnilegri leikurum yngri kynslóðarinnar og þykir Penetreitor bera gróskunni í leikhúsheiminum góðan vitnisburð. Penetreitor hefur verið lofað í hástert og virtust gestir sammála gagnrýnendum á frumsýningunni.

Æstir aðdáendur
Hin nýgiftu Nicole Kidman og Keith Urban hafa ákveðið að setjast að í heimabæ Urbans, Nashville í Bandaríkjunum vegna þess að þau telja sig fá meiri frið fyrir fjölmiðlum þar en annars staðar.

Magni er kominn áfram
Magni Ásgeirsson er kominn áfram í Rockstar Supernova veruleikaþættinum sem fram fer í Bandaríkjunum. Hann var ekki á meðal þeirra þriggja neðstu sem þurfa að sanna sig fyrir hljómsveitinni.

Menningarhátíð heyrnalausra haldin á Akureyri
Norræn menningarhátíð heyrnarlausra hófst formlega í gær, mánudaginn 10. júlí í Ketilhúsinu á Akureyri og stendur hátíðin til 16. júlí. Rúmlega 250 þátttakendur eru skráðir á menningarhátíðina.

Framkvæmdastjóri UNICEF í heimsókn á Íslandi
Framkvæmdastjóri UNICEF, Ann M. Veneman, mun heimsækja Ísland næstkomandi föstudag. Um þessar mundir eru rúm tvö ár frá því landsnefnd fyrir UNICEF á Íslandi hóf störf og mun UNICEF nú gera framtíðarsamning við landsnefndina.

Reykjavík! með nýja breiðskífu
Reykjavík! og 12 Tónar kynna með stolti nýja breiðskífu sveitarinnar sem heitir einfaldlega 'Glacial landscapes, religion, oppression and alcohol'. Hljómsveitin Reykjavík!, sem er að mestu ættuð frá Vestfjörðum, gerði útgáfusamning við 12 Tóna ekki alls fyrir löngu og nú er fyrsta plata sveitarinnar loksins komin út en hennar hefur verðið beðið með mikilli eftirvæntingu.

Leitar að ástinni
Robbie Williams hefur verið einn þekktasti popptónlistamaður Bretlands frá því að hann sagði skilið við strákasveitina Take That í upphafi tíunda áratugarins.

Snorri Ásmundsson á heimaslóðum
Snorri Ásmundsson opnar sýningu Laugardaginn 15 Júlí klukkan 16.00, hjá Jónas Viðar gallerí að Kaupvangstræti 12 Akureyri. Snorri hefur komið víða við í listsköpun sinni og á að baki sérkennilegan feril sem listamaður. Snorri hefur verið mjög umdeildur og hafa gjörningar hans oftar en ekki snert viðkvæma strengi hjá samborgurum.

Elladagur í Laufási
Minjasafnið á Akureyri stendur fyrir kvöldvöku fimmtudagskvöldið 13. júlí kl. 20:30 í Gamla bænum í Laufási.

Sýning í sögusetrinu á Hvolsvelli
Laugardaginn 15.júlí opnar Ragnar Sigrúnarson sýningu á verkum sínum í Galleríi Sögusetursins á Hvolsvelli. Ragnar er fæddur í Reykjavík 30. desember 1980. Hann lagði stund á ljósmyndun við “The National College of Photography” í Pretoriu í Suður-Afríku og lauk þar námi í nóvember 2005.

Pitt svíkur Jolie
Nýbakaði faðirinn Brad Pitt fór á bak við kærustu sína og barnsmóður, Angelinu Jolie, á dögunum þegar hann sendi föður Jolie, leikaranum Jon Voight, myndir af nýfæddri dóttur þeirra, Shiloh.

Sannfærði Robbie um að koma aftur til Íslands
Ég get staðfest að þetta er rétt en þetta er prívat mál milli mín og hans, segir Snædís Guðnadóttir, vinkona hins heimsfræga söngvara Robbie Williams. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær gerðu danskir fjölmiðlar mikið úr meintu sambandi Snædísar og Robbie en hann hélt tónleika í Parken í Kaupmannahöfn á fimmtudaginn var.

Fornir tónar að nýju
Gestum á Sumartónleikum í Skálholti gefst einstakt tækifæri að kynnast íslenskri tónlist fyrri alda því á morgun verður þar flutt fræðandi dagskrá sem byggir á rannsóknum á nótnahandiritinu Melódíu. Handrit þetta er stærsta og merkasta tónlistarhandrit sem varðveist hefur hérlendis en þar eru skráð 223 lög af fjölbreyttum toga, til dæmis þjóðlög, ástarsöngvar, sálmar, madrígalar og fleira.

Megrunarráð Nietzsches
Skrif bandaríska leikstjórans og háðfuglsins Woody Allen um meinta matreiðslubók þýska heimspekingsins Friedrich Nietzsche hafa vakið sterk viðbrögð lesenda en grein hans sem birtist í júlíhefti tímaritsins The New Yorker ferðast eins og eldur í sinu um óravíddir netsins.

Útrás Benna Hemm Hemm hafin
Fyrsta plata stórhljómsveitarinnar Benna Hemm Hemm kemur út í Evrópu þann 18. ágúst og í Bandaríkjunum 5. september en útgáfufyrirtækið Sound of Handshake sér um útgáfuna.

Rómantík í Hairdoctor
Hljómsveitin Hairdoctor sem að öllu jöfnu er skipuð þeim Jóni Atla Helgasyni og Árna +1 Hlöðverssyni fékk mikinn liðsstyrk á dögunum. Á nýafstöðnum tónleikum hljómsveitarinnar í Þýskalandi voru bakraddirnar í umsjá þeirra Lóu Hlínar Hjálmtýrsdóttur, kærustu Árna, og Gyðu Bergs, kærustu Jóns Atla.

Tröllakirkja á ensku
Skáldsagan Tröllakirkja eftir Ólaf Gunnarsson hefur verið endurútgefin í enskri þýðingu David McDuff og Jill Burrows. Bókin kom upphaflega út á íslensku 1992 og var síðan gefin út á ensku af breskum útgefenda í tveimur prentunum en er löngu uppseld.

Þögli stríðspabbinn
Í nýjustu bókinni um heimspekinginn spurula Einar Áskel eftir Gunillu Bergström er fjallað um kynni hans af nýrri fjölskyldu sem kemur langt að. Einar Áskell eignast nýjan vin en faðir vinarins er fyrrum hermaður sem ekki vill ræða um stríðið þrátt fyrir forvitni strákanna.