Lífið

Yst í Suðsuðvestur

Myndlistarmaðurinn Heimir Björgúlfsson. Allir hlutir glitra, jafnvel hið hlaupkennda.
Myndlistarmaðurinn Heimir Björgúlfsson. Allir hlutir glitra, jafnvel hið hlaupkennda.

Listsýningu Heimis Björgúlfssonar "Yst glitrar" í galleríi Suðsuðvestur í Reykjanesbæ lýkur um helgina. Næstkomandi sunnudag, 16. júlí, lýkur sýningu Heimis Björgúlfssonar "Yst glitrar" í Suðsuðvestur. Heimir sýnir vídeóinnsetningu og klippimynd unna úr ljósmyndum.

Heimir býr og starfar bæði í Los Angeles og Amsterdam en hann var nýlega tilnefndur til Rembrandt-verðlaunanna í Hollandi.

Suðsuðvestur er opið fimmtudaga og föstudaga frá kl. 16-18 og um helgar frá kl. 14-17. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni www.sudsudvestur.is-khh






Fleiri fréttir

Sjá meira


×