Lífið

Hátíð harmonikunnar um helgina

Harmonikutónar úr hverju skúmaskoti Félagar úr Harmonikufélaginu Hljómi halda uppi fjörinu á Árbæjarsafni.
Harmonikutónar úr hverju skúmaskoti Félagar úr Harmonikufélaginu Hljómi halda uppi fjörinu á Árbæjarsafni. mynd/ingi karlsson

Það verður hátíðarstemning í Árbæjarsafni um helgina. Í tilefni af Harmonikuhátíð í Reykjavík verður efnt til tónleika og samspils á sunnudaginn.

Dagskráin í Árbæjarsafni er miðpunktur hátíðarinnar, útskýrir Jónatan Karlsson skipuleggjandi hennar. Venju samkvæmt verða margir hljóðfæraleikarar á hátíðinni bæði einstaklingar og hópar sem flestir koma úr Harmonikufélaginu Hljómi. Þetta er í áttunda skipti sem hátíðin er haldin og undanfarin sumur hefur þessi háttur verið hafður á og fallið vel í kramið hjá gestum á safninu þegar harmonikuleikaranir dúkka upp og leika um allt safnasvæðið. Þetta hefur verið með albestu dögum í safninu síðustu sumur.

Jónatan útskýrir að allskonar músík verði leikin og að gestir hátíðarinnar, harmonikusnillingurinn Ottar Johansen og Ivar Th. Dagenborg, útgefandi norska harmonikublaðsins Nygammalt, muni líka láta í sér heyra. Svo gæti jafnvel farið að hlustendur tækju sporið ef veðrið verður gott. Það hefur komið fyrir, segir hann sposkur.

Jónatan tekur undir að áhuginn á hljóðfærinu fari sífellt vaxandi. Sérstaklega hjá krökkum og ungu fólki sem hefur verið að bætast við. Fyrir nokkrum árum voru þetta eiginlega bara gamlir karlar nú er töluvert af ungum dömum sem spila með okkur af fullum krafti.

Á sunnudagskvöldið munu norsku gestirnir síðan halda tónleika í Norræna húsinu og leika af hjartans list en þess má geta að Ottar er líklega þekktasti nemandi hins víðfræga Toralfs Tollefsen, sem margir íslenskir harmonikuunnendur þekkja.

Skipuleggjandinn á ekki langt að sækja harmonikuáhugann því hann er sonur eins af ástsælustu harmonikuleikurum Íslands, Karls Jónatanssonar. Ég veiti Harmonikumiðstöðinni forstöðu og hef séð um þessa hátíð í nokkur ár. Ég hef erft þetta pínulítið þó ég spili ekki sjálfur, segir Jónatan sem kveðst þó spila á trommur því einhver þurfi jú að annast undirleikinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×