Lífið

"Opinn skógur" í Tröð við Hellissand

Laugardaginn 15. júlí nk. verður Tröð, við Hellissand á Snæfellsnesi, svæði Skógræktar- og landverndarfélagsins undir Jökli, opnað formlega undir merkjum "Opins skógar" skógræktarfélaganna.

Tröðin er einstök gróðurvin í alfaraleið við utanverðan Snæfellsjökul, skammt frá Sjóminjasafninu, íþrótta- og tjaldsvæðunum og í auðveldu göngufæri frá Hellissandi. Árið 1950 hóf Kristjón Jónsson ræktun í Tröð og náði hann undraverðum árangri á þessum fallega stað í hrauninu og varð svæðið í kjölfarið vel þekkt á meðal áhugafólks um skóg- og trjárækt.

Síðustu mánuðina hefur verið unnið ötullega að því að gera alla aðstöðu í Tröð sem besta. Í Tröðinni eru fjölmargar trjátegundir, sem hafa verið merktar, gerðir hafa verið göngustígar, sett upp borð og bekkir og grillaðstaða. Alltaf er skjólgott í Tröðinni og hún því kjörinn staður til að heimsækja og njóta lífsins í fögru umhverfi.

Hátíðin hefst í Tröð klukkan 15.00.

Skúli Alexandersson, formaður Skógræktar- og landverndarfélagsins undir Jökli, setur hátíðina. Jóhann Hjálmarsson skáld les ljóð. Brynjólfur Jónsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands og Kristinn Jónasson sveitarstjóri Snæfellsbæjar flytja ávörp. Einnig samstarfs- og styrktaraðilar verkefnisins, Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjóvá-fjármögnunar hf og fulltrúi frá Pokasjóði.

Einar K. Guðfinnson sjávarútvegsráðherra opnar "Opinn skóg" í Tröð á Hellissandi með táknrænum hætti. Þá verður gengið um Tröðina og aðstaðan og skógurinn skoðaður.

Boðið verður upp á léttar veitingar í lokin og eru allir velkomnir.

Markmiðið með verkefninu "Opinn skógur" er að opna fjölmörg skógræktarsvæði í eigu og umsjón skógræktarfélaga. Áhersla er lögð á að aðstaða og aðgengi sé til fyrirmyndar og á að miðla upplýsingum og fræðslu um lífríki, náttúru og sögu.

Sjö svæði hafa áður verið opnuð með formlegum hætti. Svæðin eru: Daníelslundur (2002), Hrútey (2003), Snæfoksstaðir, Tungudalur, Eyjólfsstaðaskógur, Sólbrekkur (2004), Hofsstaðaskógur (2005).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×