50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Rakel Sveinsdóttir skrifar 23. júní 2025 07:01 Víða virðist sú þróun vera að börn búa í foreldrahúsum mun lengur en verið hefur síðustu kynslóðir. Sem auðvitað er jákvætt í ljósi þess að oft er þetta leið foreldranna til að styðja við til dæmis sparnað. Það er hins vegar eðlilegt að ræða ákveðin atriði til að tryggja að þessi fullorðins-sambúð gangi sem best fyrir sig. Vísir/Getty Flest okkar þekkjum til ungs fullorðins fólks sem velur að búa í foreldrahúsum til þess að leggja fyrir. Stundum fyrir sinni fyrstu eign, stundum fyrir ferðalögum um heiminn, stundum fyrir einhverju öðru; Ástæðurnar geta verið ýmsar.
Þessi þróun er ekki aðeins á Íslandi. Heldur virðist þetta vera þróunin víða. Sem þýðir nýr veruleiki; Því ekki fyrir svo löngu síðan, þótti það eðlilegt og sjálfsagt að krakkar væru að flytja að heiman um eða upp úr tvítugu. Og þar á undan var kynslóð sem flutti að heiman og fór að búa með maka sínum, töluvert fyrir tvítugt. En hvernig er foreldrunum að líða með þessa sambúð? Og hvernig virkar þessi fullorðins-sambúð? Eru mamma og pabbi enn að sjá um alla reikninga, almenna tiltekt og umhirðu á heimili, innkaup og eldamennsku? Allt í skjóli þess að börnin – og jafnvel kærastinn/kærastan líka – búa heima til að spara pening. Geta mamma og pabbi gert athugasemdir ef þeim finnst hlutirnir ganga frekar hægt? Eða að sonurinn/dóttirin eða unga parið sé nokkuð gjarnt á að eyða um efni fram miðað við það markmið að vera að spara: Eiga tvo bíla? Fara stundum til útlanda? Foreldrar víðs vegar um heiminn standa frammi fyrir þessum nýja veruleika. Vilja hjálpa en velta fyrir sér hvað sé eðlilegt að ganga langt í stuðningnum. Og oft virðist fólk feimið við að ræða ákveðna hluti. Eða finnst erfitt að fara að breyta einhverju sem lengst af hefur verið venja á heimilinu. Til dæmis hvað varðar það hverjir gera hvað eða borga hvað. Hér eru samt nokkur atriði sem mælt er með að ræða um, þegar börn eru orðin fullorðin en kjósa – í samráði við foreldra sína – að búa áfram í foreldrahúsum á meðan verið er að leggja fyrir. Heimilisverkin; Hverjir gera hvað? Það er ekkert nema eðlilegt og sjálfsagt að fullorðið ungt fólk taki þátt í heimilisverkum, þvotti, frágangi og svo framvegis. Það sem helst breytist frá táningsaldrinum og þrítugsaldrinum er að þegar fólk er komið á þrítugsaldur á það ekki lengur við að þurfa endurtekið að biðja um að eitthvað sé gert, svona eins og oft vill vera með unglinga. Gott er að ræða fyrirfram hvað fólk sér fyrir sér í þessu. Þótt það þýði breytingar á húsvenjum og heimilishaldi sem verið hafa til þessa. Heimilisreikningar: Er ekki í lagi að unga fólkið borgi eitthvað? Þótt markmiðið sé að búa í foreldrahúsum til að spara pening, er ekki þar með sagt að það geti ekki verið hollt og gott fyrir ungt fólk að taka þátt í einhverjum kostnaði. Því þótt eign verði keypt, er daglega lífið ekki ókeypis. Sumir velja að unga fólkið greiði ákveðna upphæð sem er væg en þó hlutdeild í til dæmis matarkostnaði mánaðarins. Aðrir velja að viðkomandi sjái um að greiða ákveðna reikninga, til dæmis internet og sjónvarpsáskriftir. Aðalmálið hér er að taka umræðuna. Tímamörkin: Hversu lengi ætla þau að búa heima? Sumir foreldrar veigra sér við því að gera athugasemdir eða skipta sér um of að því hversu mikið er verið að leggja fyrir á mánuði eða hvort unga fólkið eru nógu sparsöm í lífinu. Í raun á fólk á þrítugsaldri að taka þá ábyrgð á sig hvort eð er. Það sem er hins vegar eðlilegt fyrir báða aðila að ræða eru tímamörkin; Hversu lengi sjá þau fyrir sér að búa heima? Hvenær sjá þau fyrir sér að flytja að heiman? Því sem foreldrar, er alveg eðlilegt að setja einhver mörk á það, hversu lengi þessi búseta varir. Húsreglurnar: Mega þau hegða sér hvernig sem er? Að vera orðin fullorðin en búa hjá foreldrum sínum þýðir ekki að það sé eðlilegt að koma og fara eins og manni sýnist. Eðlilegt er að virða ákveðnar húsreglur; Til dæmis að láta alltaf vita af sér í mat og almennt um heimaveru eða fjarveru, vera þátttakandi í heimilishaldi og heimilislífi og svo framvegis. Með því að taka smá samtal um almennar húsreglur, er hægt að koma í veg fyrir samskiptavanda sem gæti skapast. Til dæmis vegna þess að unga fólkinu finnst mamma og pabbi vera að skipta sér of mikið af og/eða að foreldrunum finnst komið fram við þau af virðingarleysi. Fullorðins-sambúðin þarf að vera ákveðin í samráði allra og ræktuð í samvinnu allra.
50+ Húsnæðismál Tengdar fréttir 50+: Að eiga draumalista getur komið okkur skemmtilega á óvart Það er gott fyrir alla að eiga draumalista, eða bucket-lista eins og við segjum það upp á enskuna. Að eiga draumalista eftir fimmtugt er jafnvel enn mikilvægara en nokkru sinni. 10. júní 2025 07:00 50+: Að festast ekki í leiðinlegri rútínu Við kunnum oft ekki við að segja það upphátt ef okkur leiðist í einkalífinu. Því þá finnst okkur við hljóma eins og það sé eitthvað svo alvarlegt að. 26. maí 2025 07:02 50+: „Það þykir ekki töff að segjast vera einmana“ „Þú getur verið nístandi einmana heima hjá þér með fjölskyldu þinni eða í vinahóp ef það eru ekki traust og kærleiksrík tengsl,“ segir Sigríður Hulda Jónsdóttir eigandi SHJ ráðgjafar. 18. maí 2025 08:00 50+: Tómleikatilfinningin þegar börnin fljúga úr hreiðrinu Það er mun auðveldara fyrir okkur að takast á við vanlíðan ef við gerum okkur grein fyrir því hvað veldur henni, viðurkennum hana eða eigum yfir hana orð eða skýringu. Sumum foreldrum finnst til dæmis mjög erfitt þegar börnin flytja að heiman. 1. maí 2025 08:02 Kaupmálar 50+: „Mér finnst uppkomin börn oft ansi frek til fjárins“ „Því miður hef ég þó séð það of oft að uppkomin börn eru með slíka afskiptasemi fjármálum foreldra að eiginleg samskipti foreldra og barna verða óeðlileg, vegna peninga og væntra arfshluta. Hið rétta er þó að í lifanda lífi, eru peningamál foreldra almennt þeirra eigin mál,“ segir Pétur Steinn Guðmundsson, lögmaður hjá Deloitte Legal og sérfræðingur í skattamálum. 27. október 2024 08:02 Mest lesið 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Áskorun Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Lífið Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Lífið Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat Lífið 90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki - það er þó hægt Lífið samstarf Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Lífið Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Tónlist Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu Lífið Óbarinn, með smjörklípu eða tabasco sósu: Alls konar harðfiskur fyrir útileguna Matur Fleiri fréttir 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Þroskaþjófur á skjánum: Krakkar jafnvel í vandræðum með að tala íslensku 50+: Að eiga draumalista getur komið okkur skemmtilega á óvart Dekurbossinn Hjalti: „Mömmur eru einfaldlega bestar og mín var ein sú allra besta“ 50+: Að festast ekki í leiðinlegri rútínu 50+: „Það þykir ekki töff að segjast vera einmana“ „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ 50+: Tómleikatilfinningin þegar börnin fljúga úr hreiðrinu Sjá meira
50+: Að eiga draumalista getur komið okkur skemmtilega á óvart Það er gott fyrir alla að eiga draumalista, eða bucket-lista eins og við segjum það upp á enskuna. Að eiga draumalista eftir fimmtugt er jafnvel enn mikilvægara en nokkru sinni. 10. júní 2025 07:00
50+: Að festast ekki í leiðinlegri rútínu Við kunnum oft ekki við að segja það upphátt ef okkur leiðist í einkalífinu. Því þá finnst okkur við hljóma eins og það sé eitthvað svo alvarlegt að. 26. maí 2025 07:02
50+: „Það þykir ekki töff að segjast vera einmana“ „Þú getur verið nístandi einmana heima hjá þér með fjölskyldu þinni eða í vinahóp ef það eru ekki traust og kærleiksrík tengsl,“ segir Sigríður Hulda Jónsdóttir eigandi SHJ ráðgjafar. 18. maí 2025 08:00
50+: Tómleikatilfinningin þegar börnin fljúga úr hreiðrinu Það er mun auðveldara fyrir okkur að takast á við vanlíðan ef við gerum okkur grein fyrir því hvað veldur henni, viðurkennum hana eða eigum yfir hana orð eða skýringu. Sumum foreldrum finnst til dæmis mjög erfitt þegar börnin flytja að heiman. 1. maí 2025 08:02
Kaupmálar 50+: „Mér finnst uppkomin börn oft ansi frek til fjárins“ „Því miður hef ég þó séð það of oft að uppkomin börn eru með slíka afskiptasemi fjármálum foreldra að eiginleg samskipti foreldra og barna verða óeðlileg, vegna peninga og væntra arfshluta. Hið rétta er þó að í lifanda lífi, eru peningamál foreldra almennt þeirra eigin mál,“ segir Pétur Steinn Guðmundsson, lögmaður hjá Deloitte Legal og sérfræðingur í skattamálum. 27. október 2024 08:02