Lífið

Videoblogg frá Los Angeles

Manúela Ósk og Karen videoblogga frá Los Angeles
Manúela Ósk og Karen videoblogga frá Los Angeles

Ungfru Ísland í ár, Sif Aradóttir, fer til Los Angeles í dag og keppir þar fyrir Íslands hönd í keppninni Miss Universe þann 23. júlí. Manuela Ósk, fyrrum ungfrú Ísland, og Karen vinkona hennar ætla fylgja Sif út og videoblogga á hverjum degi þar til keppninni lýkur.

Sirkus TV mun svo sýna videobloggin á hverju kvöldi kl 21. ásamt því sem þau verða birt á vefsetrinu minnsirkus.is/ungfrurnar. Sjónvarpsáhorfendum og netverjum verður þannig gert kleift að skyggnast á bak við tjöldin í þessari keppni um fegurstu konu heims á nýjan hátt.

Bloggið byrjar í dag á Íslandi, stelpurnar halda svo út seinnipartinn í dag og koma heim aftur þann 26. júlí. Verkefnið er unnið í samvinnu við Ungfrú Ísland/Broadway.

 

 

 

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×