Fleiri fréttir

Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju

Lenka Mátéová, organisti Fella- og Hólakirkju, leikur á hádegistónleikum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju fimmtudaginn 13. júlí kl. 12. Lenka stundaði tónlistarnám sitt í Tékklandi, þar sem hún ólst upp en hún hefur starfað hér á Íslandi síðan 1990.

Verksmiðjuganga á Gleráreyrum

Fimmtudagskvöldið 13. júlí kl 20:00 býður Iðnaðarsafnið á Akureyri til gönguferðar umhverfis verksmiðjusvæðið á Gleráreyrum á Akureyri. Í haust verða þær byggingar sem þar standa fjarlægðar og því fer hver að verða síðastur að ganga þarna um þetta mikla iðnaðarsvæði.

DR. MISTER & MR. HANDSOME

Loksins, loksins, loksins, platan sem allir hafa beðið eftir er væntanleg í verslanir þann 20. júlí næstkomandi. Dirty Slutty Hooker Money er frumburður einnar ferskustu hljómsveitar sem komið hefur fram á sjónarsvið íslenska tónlistarmarkaðarins í mörg ár, Dr. Mister & Mr. Handsome.

Jim Carrey með Jenny McCarthy

Jim Carrey og leikkonan Jenny McCarthy hafa eitthvað verið að hittast undanfarna mánuði en síðustu vikurnar hafa þau sést mikið opinberlega og virðast mjög hamingjusöm saman. Jim og Jenny létu sjá sig á Radiohead-tónleikum í Los Angeles í lok júní. Þau virtust skemmta sér mjög vel. Þetta var eins og að horfa á rómantíska gamanmynd, sagði einn tónleikagesta.

Hin blíðu hraun í Hafnarborg

Yfirskrift sýningarinnar Hin blíðu hraun er tilvitnun í Jóhannes Kjarval, en með henni er sjónum beint að hrauninu sem er í Hafnarfirði allt um kring. Um síðustu helgi opnaði sýning tólf listamanna í Hafnarborg, en þeir sækja allir innblástur sinn í hraunið líkt og Kjarval forðum daga.

Robbie nýr tengdasonur Íslands

Breski söngvarinn Robbie Williams er nýjasti tengdasonur Íslands, ef marka má danska Ekstra blaðið. Söngvarinn heimsfrægi hélt tónleika í Parken í Kaupmannahöfn á fimmtudaginn var og lýsti þar yfir aðdáun sinni á rauðhærðri stúlku sem hann hafði kynnst á bar í Kaupmannahöfn.

Innfæddir og innflytjendur skemmta sér saman

Á fimmtudagskvöldum í sumar stendur Aljóðahúsið fyrir skemmtilegum ferðum í Reykjavík og nágrenni í þeim tilgangi að sporna gegn félagslegri einangrun innflytjenda og auka samskipti þeirra við innfædda.

Hannar sólgleraugu

Tískumógúllinn Victoria Beckham er búin að hanna sólgleraugnalínu undir sínu eigin nafni sem mun fara í sölu í lok júlí í verslunum Harrods í Bretlandi.

Eddie og Mel B nýtt par

Sögusagnir eru uppi í Hollywood þess efnis að fyrrverandi kryddstúlkan Melanie Brown og gamanleikarinn Eddie Murphy séu nýtt par. Murphy skildi á dögunum við eiginkonu sína Nicole Mitchell, en þau eiga saman sex börn. Munu skötuhjúin vera í leynilegu ástarsambandi og eru að sögn vina mjög hamingjusöm. Mel B hefur lítið verið í sviðsljósinu undanfarin ár og hefur sólóferill hennar ekki gengið sem skildi. Þessa dagana er hún að láta reyna á leikhæfileika sína í Bandaríkjunum og svo er fyrirhuguð endurkoma stallsystranna í hljómsveitinni Spice Girls á næstunni.

Sjóræningjarnir slá Kóngulóarmanni við

Framhaldsmynd Pirates of the Caribbean, Dead Man's Chest, sló öll met um opnunarhelgina í Bandaríkjunum. Myndin halaði inn 132 milljónum dollara um síðustu helgi og sló þar með metið sem Spider-Man setti árið 2002. Upphæð opnunarhelgarinnar er þrisvar sinnum hærri en sú sem fyrsta myndin í seríunni aflaði fyrir tveimur árum.

Bláir bossanova mánudagar

Uppáhalds bossanova hljómsveit allra kaffihúsaeigenda, Nouvelle Vague, snýr aftur með fleiri indí slagara í farteskinu. Þessar frönsku listaspírur velja lögin jafn vandlega og síðast og halda áfram að skella gömlum nýbylgjulögum í seiðandi bossanova búning. Ég held að það hljóti að vera gefið mál að þessi plata eigi eftir að hljóma á vel völdum kaffihúsum í bænum á næstunni.

Bestu ár Gisele búin

Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen segist vera orðin of gömul til að ná sér í karlmann. Bündchen lýsir því yfir að hún telji að besti tími ævi sinnar sé búinn og karlmenn hafi reynt meira við hana þegar hún var 15 og 16 ára. Gisele var trúlofuð leikaranum Leonardo DiCaprio en þau hættu saman fyrr á þessu ári og hefur hún ekki verið við karlmann kennd síðan. Þess má geta að stúlkan er 25 ára á árinu.

101 bekkur í póstnúmeri 101

Unnur Malin Sigurðardóttir er nýútskrifuð af myndlistarbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti, en í lokaverkefni sínu útbjó hún risastórt plakat sem sýnir myndir af 101 bekk á 101-svæðinu í Reykjavík.

Styttist í Innipúkann

Nú eru réttir 25 dagar í Innipúkann. Miðasala er hafin og hafa nú þegar selst um 200 miðar á hátíðina. Með þessu áframhaldi ætti að verða uppselt fljótlega. Miðasala fer fram á midi.is, í Skífubúðunum og í verslun Hive við Grensásveg.

Fjölskyldan stolt af Magna

Ég er auðvitað ótrúlega stolt af honum, segir Eyrún Huld Haraldsdóttir, unnusta Magna Ásgeirssonar, sem er kominn áfram í bandaríska raunveruleikaþættinum Rockstar: Supernova. Hann stóð sig náttúrlega eins og hetja. Það er áreiðanlega ekki auðvelt að standa fyrir framan tugi þúsunda áhorfenda og syngja.

Síldarævintýrið á Siglufirði 2006

Um verslunarmannahelgina verður Síldarævintýrið á Siglufirði haldið í sextánda sinn. Stefnt er að því að hátíðarhöldin í ár, gefi þeim fyrri ekki neitt eftir, en boðið verður upp á frábært úrval afþreyingar og skemmtiefnis fyrir alla aldurshópa.

Lenka Mátéová og Peter Máté í Reykholtskirkju

Laugardaginn 8. júlí kl. 17.00 verða haldnir aðrir tónleikar af sjö í orgeltónleikaröð Reykholtskirkju og FÍO 2006. Á tónleikunum leika Lenka Mátéová á orgelið og Peter Máté á flygilinn. Á efnisskránni eru verk eftir: J.S.Bach, F. Mendelssohn Bartholdy, F.Chopin, L. Janácek M. Reger

Sigur Rós á leið í tónleikaferð um Ísland

Hljómsveitin Sigur Rós er sú íslenska hljómsveit sem er hvað þekktust í heiminum um þessar mundir. Sigur Rós hefur verið á tónleikaferðalagi í um ár en hljómsveitarmeðlimir ætla að koma heim í lok mánaðarins og spila fyrir Íslendinga.

Snooze með nýtt lag

Eins og margir hafa tekið eftir hefur dúettinn SNOOZE, sem skipar þau Brynjar Má og Kristínu Ýr, verið mjög áberandi síðustu misseri. Fyrsta lag Snooze “Alla leið” sem kom út fyrir nokkrum mánuðum síðan hefur verið eitt allra stærsta lag sumarsins og fengið góða spilun í útvarpi.

Kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri

Kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri eru þriggja daga hátíð sem helguð er klassískri tónlist. Kammertónleikarnir hafa öðlast fastan sess í tónlistarlífi Íslands og þar hafa margir bestu tónlistarmenn landsins komið fram.

Fjölskylduhátíð í Hrísey

Hin árlega fjölskylduhátíð fullveldisins í Hrísey fer fram í 10. skipti helgina 21. - 23. júlí nk. Fjöldi skemmtikrafta skemmta gestum og ljóst að mikið fjör verður í Hrísey þessa helgi.

Björn spilar á Lincoln Center í New York

Birni Thoroddsen hefur, fyrstum íslenskra jazztónlistarmanna, verið boðið að leika á hinum virta tónleikastað Lincoln Center í New York. Birni hefur verið boðið að leika þar ásamt hljómsveit sinni Cold Front 2.október n.k.

Áfram Magni

Magni Ásgeirsson er einn af 15 þátttakendum í keppninni um söngvara hljómsveitarinnar Supernova sem er skipuð Tommy Lee úr Motley Crüe, Jason Newstead úr Metallica og Gilby Clarke úr Guns N’Roses.

Umsóknarfrestur að renna út

Aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves vilja minna á að umsóknarfrestur fyrir innlendar hljómsveitir og listamenn sem vilja koma fram á hátíðinni í ár rennur út næstkomandi mánudag, þann 10. júlí

Styttist í endalokin

Styttist í annan endan á þessu ævintýri. Sit hérna útí sólinni með fartölvuna. Frekar svekkt því að tónleikar sem ég var búin að hlakka til að sjá, var frestað rétt í þessu. Damian jr. Gong Marley sonur Bobs Marleys.

Britney berrössuð

Söngkonan Britney Spears sem hefur átt erfitt uppdráttar síðustu mánuði vegna vandræða í hjónabandi sínu. Britney, sem er ólétt öðru sinni eftir dansarann Kevin Federline, hefur látið mynda sig nakta í nýjasta tímaritinu af Haper"s Bazaar.

Jolie og Pitt vilja fleiri börn?

Aðeins nokkrum vikum eftir fæðingu dótturinnar Shiloh eru Angelina Jolie og Brad Pitt farin að huga að því að stækka fjölskylduna enn frekar og ættleiða annað barn. Tímaritið US Weekly vitnaði í heimildamann sem sagði að parið vildi ættleiða eldri strák „til að styðja við þá hugmynd að fólk ætti að ættleiða fleiri börn, ekki bara ungabörn.“ Brad og Angelina eiga fyrir tvö ættleidd börn, Maddox og Zahara.

Venni „páer“ á skjáinn í haust

Draumur júdókappans Vernharðs Þorleifsson rætist í haust þegar grínþættir sem hann skrifaði handrit að verða sýndir á Skjá einum. Fréttablaðið greindi frá þessu uppátæki Vernharðs fyrir nokkru en nú er allt að verða klappað og klárt.

Þrjár álfur á einu sumri

Söngvaskáldið Hera Hjartadóttir er mætt til Íslands með gítarinn og nýtt lag í farteskinu. Hún hefur búið í Nýja Sjálandi undanfarin tólf ár og kom óvænt til landsins fyrir að verða tveimur mánuðum.

Þvagagnir í lofti á Hróarskeldu

Já þið lásuð rétt, þvagagnir. Ég er ekkert að grínast með pissumálin hérna á Hróarskeldu. Piss og pissulykt allsstaðar. Sjúkrahúsið hérna er búið að senda frá sér aðvörun vegna pissuagna í loftinu.

Corrinne á tónleikaferð

Breska tónlistarkonan Corinne Bailey Rae hefur sína fyrstu stóru tónleikaferð um Bandaríkin þann 24. júlí næstkomandi.

Fyrsta lag Bigga

Fyrsta lagið af væntanlegri sólóplötu Bigga úr Maus er komið í spilun í útvarpi. Platan hefur hlotið nafnið "id" og kemur út í september á vegum 12 Tóna.

Gamla góða hlandfýla á Hróarskeldu

Eftir hina miðlungsgóðu Southside í Þýskalandi er maður loksins kominn í alvöruna og uppáhald Íslendinga, hina goðsagnakenndu Hróarskeldu. Eftir að hafa tekið sóðalest frá sjálfum bænum þá veit maður hvert maður er kominn um leið og maður stígur niður úr lestinni. Þegar maður síðan labbar um svæðið í leit að tjaldstæði tekur á móti manni gríðarlega sterk hlandfýla og þeir sem dirfast nálægt girðingunum (þar sem allir kasta af sér vatni) verða að vera búnir að fá sér allavega nokkra öllara.

Helgi Rafn gefur út Angelu

Helgi Rafn Ingvarsson, sem lenti í sjötta sæti í fyrstu Idol-keppninni árið 2004, sendir frá sér nýtt lag á mánudaginn. Nefnist það Angela og er að finna á fyrstu plötu hans sem er væntanleg í september.

Michael Jackson kærður á ný

Michael Jackson hefur verið kærður af fyrrum samstarfsmanni sínum fyrir ógreidd laun. Marc Schaffel vann að lagi með söngvaranum sem gert var í góðgerðarskyni en það var aldrei gefið út. Auk þess gerði Schaffel tvær heimildamyndir sem ætlað var að sýna Jackson í góðu ljósi í kjölfar hinnar umdeildu bresku myndar Living with Michael Jackson.

Músík við Mývatn

Sumartónleikar við Mývatn hefjast nú um helgina og verða fyrstu tónleikarnir haldnir í Reykjahlíðarkirkju í kvöld. Tónlistarhópurinn Katla ríður á vaðið og flytur íslensk þjóðlög, einsöngslög og kórtónlist og einnig útsetningar og frumsamda tónlist. Hópinn skipa söngkonurnar Svava K. Ingólfsdóttir og Jóhanna Valsdóttir og Magnús Ragnarsson og Bjartur Logi Guðnason sem báðir leika á orgel og syngja.

Nær bestu helgum sumarsins

"Ég kom á miðvikudagskvöldið og brunaði þá bara beint á Landsmót hestamanna. Þetta er stutt stopp fram á sunnudag þannig að ég verð fyrir norðan allan tímann," segir Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, Ungfrú heimur.

Gott skipulag er gulli betra

Hef aðeins verið að spá í allt skipulagið sem fylgir svona hátíð. Þetta er ekkert lítið batterí, 75.000 tónleikagestir, 180 hljómsveitir og hellingur af ýmiskonar uppákomum þar að auki.

Vatnslitað af listfengi

Sumarsýning Listasafns ASÍ er helguð vatnslitamyndum en verk fjögurra listamanna sem spanna þrjár kynslóðir íslenskrar listasögu verða til sýnis. Einnig er fengur í sjaldséðum vatnslitaverkum listamannins Svavars Guðnasonar sem gestir sýningarinnar fá einnig notið í sumar.

Þórdís ríður á vaðið í nýrri þáttaröð

Þáttaröðin "Á sumarvegi" hefur göngu sína á Rás 1 á mánudag. Í þessari nýju þáttaröð munu tuttugu og fimm þáttastjórnendur úr hinum ýmsu geirum samfélagsins stjórna jafnmörgum þáttum og segja hlustendum frá áhrifavöldum í sínu lífi, deila sínum hjartans málum með hlustendum, spila tónlist sem er í uppáhaldi og velja efni úr safnadeild útvarpsins.

Sjá næstu 50 fréttir