Lífið

Hryllingurinn heldur áfram í bíó

See No Evil Fjöldamorðingi gengur laus á yfirgefnum búgarði og þarf lögreglumaðurinn Jacob Goodnight að taka á öllu sínu til að hafa sigur.
See No Evil Fjöldamorðingi gengur laus á yfirgefnum búgarði og þarf lögreglumaðurinn Jacob Goodnight að taka á öllu sínu til að hafa sigur.

Hryllingsmyndasumarið heldur áfram á Íslandi en aðdáendur þeirra ganga væntanlega flestir ánægðir frá borði eftir árið, varla hefur liðið sú vika að ekki hefur verið frumsýnd ein hrollvekja til að hræða líftóruna úr kvikmyndahúsagestum.

Að þessu sinni er að See No Evil sem skartar fjölbragðaglímuhetjunni Glen Jacobs í aðalhlutverki. Vegur þeirra í kvikmyndum hefur oft verið þyrnum stráður en þessi sér - ameríska íþróttagrein nýtur mikilla vinsælda vestan hafs. Margir muna eflaust eftir Hulk Hogan sem lamdi mann og annan á árum áður að ógleymdum The Rock sem reyndar fór hamförum í Be Cool.

See No Evil segir frá átta ungmennum sem stytta fangelsisvist sína með því að gista á yfirgefnu sveitabýli ásamt einhenta lögreglumanninum Jacob Goodnight. Sá glataði hendinni í baráttu við stórhættulegan fjöldamorðingja sem Goodnight taldi sig hafa sigrað fyrir mörgum árum. Þegar unglingunum í hópnum fækkar óðfluga gerir Goodnight sér grein fyrir að enn og aftur þarf hann að taka á stóra sínum til að hafa sigur á hinu illa.

Leikstjórinn Gregory Dark er fæstum kunnur, en hann hefur lengi starfað með Dark Brothers - kvikmyndafyrirtækinu sem framleiðir klámmyndir. Hann var áður giftur klámmyndastjörnunni Star Chandler og hefur leikstýrt mörgum af stærstu nöfnunum í heimi klámsins. Dark hefur hins vegar verið að færa sig fjær þessum milljarðariðnaði og leikstýrði meðal annars myndbandi fyrir Britney Spears en það vakti mikla athygli á sínum tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×