Svífur um loftin blá 13. júlí 2006 10:00 Lex Luthor snýr aftur eftir langa dvöl í fangelsi og hyggst klekkja á erkióvini sínum.
Nítján ár eru liðin síðan að Christopher Reeve flaug um himininn og bjargaði heiminum frá Lex Luthor sem hafði þá komist yfir kjarnorkusprengju. Nú snýr Brandon Routh aftur í hlutverki Ofurmennsins en þessarar endurkomu hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. í Superman Returns er Ofurmennið horfið eftir að hafa verndað borgina sína Metrópolis og Lois Lane frá óþjóðalýð heimsins. Það leitar að öðrum sem hugsanlega gætu hafa lifað af tortímingu Krypton en kemst í raun um að hann er sá eini. Þegar Ofurmennið snýr aftur hefur borgin og ástin í lífi hans lært að lifa án hans. Heimurinn þarf ekki á ofurhetju að halda fyrr en Lex Luthor og gengi hans snýr aftur og hyggst láta til sína taka í borginni. Ofurmennið verður því enn og aftur að sýna hvað í því býr.Erfið fæðingOfurmennið svífur yfir jörðinni Hvort Clark Kent sé ofur - gyðingur eða venjuleg ofurhetja skal ósagt látið en vinsældir Ofurmennisins eru ótvíræðarEftir að Christopher Reeve hafði gert þessari þekktustu persónu teiknimyndabókanna nánast ódauðleg skil efuðust menn um að hægt væri að gera mynd um Ofurmennið aftur. Vafalítið hefur velgengni ofurhetja að undanförnu heillað Warner - kvikmyndaverið auk þess sem tæknibrellunum hefur fleygt svo mikið fram að þeim hefur fundist tími til komin að heimsbyggðin fengi að sjá hina bláklæddu hetju fljúga á ný. Fæðingin var þó langt frá því að vera auðveld. Í fyrstu leitaði Warner kvikmyndaverið til Kevin Smith sem ætlaði að sýna Ofurmennið deyja fyrir hendi Doomsday. Það myndi síðan lifna aftur við og þá mun öflugra en nokkru sinni áður. Tim Burton hafði lýst yfir miklum áhuga á að leikstýra myndinni eftir handriti Smith og hefði verið fróðlegt að sjá þá útkomu. Warner leist mjög vel á þetta til að byrja með og lét prenta plaköt með silfurlituðu "S" en þá var myndin sögð væntanleg árið 1998. Sögusagnir um að Nicholas Cage hefði samþykkt að taka að sér hlutverkið fóru af stað en þegar ljóst varð að Burton ætlaði að klæða Ofurmennið uppí svart sögðu jakkafataklæddu mennirnir stopp og verkefninu ýtt til hliðar. Í kjölfarið var JJ Abrams fengin til að skrifa handrit sem væri í stíl við upphaflegu myndirnar en hann er að góðu kunnur fyrir sjónvarpsþættina Lost og Alias. Nokkuð góð mynd komst á handritið og var Brett Ratner orðaður við leikstjórastólinn. Abrams var síðan rekinn og Bryan Singer ráðinn í leikstjórastólinn. Hann kom í kjölfarið með allt gengið sitt frá X - Men myndunum og þeirra á meðal voru handritshöfundarnir Dan Harris og Michael Dougherty sem réðust strax í að gera handritið sem Superman Returns er gerð eftir. Tíu ár og þrjá leikstjóra þurfti því til að koma myndinni loksins á koppinn. Singer ákvað síðan að taka þann pólinn í hæðina að leita eftir ungum leikara sem engin þekkti enda hafði slíkt hið sama verið árið 1978 en Christopher Reeve hafði eingöngu leikið í einni mynd áður en hann fékk að klæðast búninginum bláa. Brandon Routh hreppti hlutverkið en meðal annarra leikara má nefna Kate Bosworth og Kevin Spacey sem bregður sér í hlutverk Lex Luthor. Sviknir af útgáfunni"Einkenni ofurhetja er að þú hefur ofurhetjuna og síðan þann aðila sem birtist dags daglega meðal fólksins. Leðurblökumaðurinn er Bruce Wayne og Köngulóarmaðurinn er Peter Parker þegar hann vaknar á morgnanna. Hann þarf að fara í búning til að verða Köngulóarmaðurinn. Hvað þetta varðar er Ofurmennið ólíkt þeim báðum. Ofurmennið fæddist sem Ofurmennið. Þegar Clark Kent vaknar á morgnanna er hann í raun Ofurmennið. Búningurinn með stóra rauða S - inu sem Kent - fjölskyldan fann hann í eru föt Ofurmennisins. Þegar Ofurmennið fer í búning, setur hann upp gleraugu og fer í jakkaföt. Það er búningur Ofurmennisins og þannig sér Clark Kent jarðarbúa. Og hver er Clark Kent? Hann er veiklulegur og ósjálfsöruggur... í raun heigull. Clark Kent er gagnrýni Ofurmennisins á mannkynið sjálft." Þannig útskýrir leigumorðinginn Bill hugmyndir sínar um hvað Ofurmennið er í hans huga fyrir Beatrix Kiddo, rétt áður en hún drepur hann. Ofurmennið er eitt stærsta popp - tákn allra tíma og er á sama stalli og Coka Cola og Elvis Presley. Það birtist fyrst árið 1938 á síðum Action Comics sem gefið var út á vegum Detective Comics en þá höfðu höfundarnir tveir, þeir Jerry Siegel og Joe Schuster, gengið með þessa persónu í kollinum í átta ár. Reyndar var Ofurmennið fyrst hugsað illmenni sem ætlaði að koma til jarðar og ná þar yfirtökum en Siegel umbreytti henni til góðs. Ofurmennið var selt til Detective Comics fyrir 130 dali árið 1938 en fljótlega kom í ljós að útgáfan sveik þá félaga um höfundarlaun og birtist meðal annars frétt um málið í Saturday Evening Post árið 1941. Siegel og Schuster fór í mál við fyrirtækið en það var leyst áður en það fór fyrir dómstóla. Siegel og Schuster græddu aldrei mikið Ofurmenninu og þeir uppskáru ekki laun erfiði síns fyrr en fyrsta kvikmyndin var gerð árið 1978 en þá greiddi Warner fyrirtækið þeim 35 þúsund dollara hvor auk þess að sjá um heilbrigðistryggingar þeirra. Ofurgyðingurinn Clark Kent?Mikið hefur verið skrifað um persónuna Ofurmennið sem margir vilja líkja við Jesú Krist enda var Ofurmennið sent til jarðar af föður sínum. Í DVD - hátíðarútgáfu af fyrstu myndinni kemur fram að handritshöfundarnir hafi hugsað Krypton sem biblíulegan stað þar sem allir hafi talað fágaða ensku. "Líkingin er augljós þegar Jor-El sendir Superman til jarðar, rétt eins og Guð sendi Krist til að bjarga mannkyninu," segir Tom Mankiewicz í heimildarmyndinni. Reyndar má þess geta að bæði Siegel og Schuster voru gyðingar og segir sagan að þeir hafi hugsað Ofurmennið sem svar við gyðingahatri Hitlers. Þorkell Ágúst Óttarsson skrifar um fyrstu myndina á vef Deus ex Cinema og segir þar að höfundarnir tveir hafi viljað sýna hann sem Messías sjálfan sem kæmi til jarðar og gerði hana að réttlátum og kærleiksríkum stað. Vissulega má túlka Ofurmennið sem Krist. Þeir eru báðir sendir til jarðar og er ætlað að vernda íbúa plánetunnar frá hinu illa. Þorkell Ágúst bendir reyndar á að Ofurmennið sé mun meira í ætt við Messíasar - hugmyndir gyðinga. "Þetta sést hvað best í því að hjálpræðisverk Ofurmennisins svipar mjög til messíasarvæntingar gyðinga. Hann er sterkur og útsjónasamur og leysir vandann með því að yfirbuga kúgarana og illþýðið. Hvað þetta varðar minnir hann lítið á Krist guðspjallanna, sem beitti aðeins einu sinni ofbeldi," skrifar Þorkell Ágúst og útskýrir jafnframt að gyðingar til forna hafi átt mjög erfitt með skilja hvernig herkonungurinn Messías gat dáið á drápstóli kúgaranna án þess að lyfta sverði. -fgg
Menning Mest lesið 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Áskorun Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Lífið Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Lífið Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Lífið 90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki - það er þó hægt Lífið samstarf Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat Lífið Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Tónlist Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu Lífið Óbarinn, með smjörklípu eða tabasco sósu: Alls konar harðfiskur fyrir útileguna Matur Fleiri fréttir Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar „Fullkomin viðbót“ hjá Selmu og Sölva Uppáhalds sumardrykkur Gerðar: „Ég fæ ekki nóg“ Sjá meira