Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ferguson segir að Scholes sé einn besti leikmaðurinn í sögu Man Utd Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United segir að Paul Scholes sé einn besti leikmaður félagsins frá upphafi en hann eigi einnig það til að missa algjörlega stjórn á skapi sínu líkt og í leiknum í gær gegn Manchester City. Scholes fékk rautt spjald í leiknum um miðjan síðari hálfleik eftir ruddalega tæklingu þegar Man Utd var marki undir og eftir það var á brattann að sækja. 17.4.2011 12:45
Bayern München rúllaði yfir Leverkusen - Dortmund í góðri stöðu Tveir leikur fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Borussia Dortmund var í engum vandræðum með Freiburg, en toppliðið vann 3-0. Bayern München valtaði yfir Leverkusen 5-1 og því breikkaði bilið milli Dortmund og Leverkusen. 17.4.2011 00:00
Messi og Ronaldo skoruðu báðir - Barcelona er enn með 8 stig forskot Stórliðin Real Madrid og Barcelona áttust við í hinum eina sanna El Clasíco á Bernabeu vellinum í Madrid. Barcelona í kvöld. Tveir af bestu leikmönnum heims, Lionel Messi og Cristiano Ronaldo, skoruðu mörkin en leikurinn endaði 1-1. Það gekk mikið á í síðari hálfleik þar sem að Real Madrid missti mann af velli með rautt spjald en lokakafli leiksins var frábær þar sem Real Madrid var síst lakari aðilinn - manni færri. Fylgst var með gangi mála á boltavakt Fréttablaðsins og visir.is. Barcelona er með 85 stig í efsta sæti deildarinnar en Real Madrid er í öðru sæti með 77 stig. 16.4.2011 19:45
Kolbeinn skoraði sitt 12. mark á tímabilinu fyrir AZ Alkmaar Kolbeinn Sigþórsson, sem er lykilmaður í U21 árs landsliði Íslands, skoraði fyrsta mark AZ Alkmaar í kvöld í 3-1 sigri liðsins gegn Den Haag í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Jóhann Berg Guðmundsson er meiddur og var hann því ekki í leikmannahópnum. 16.4.2011 22:30
FH varði titilinn með 3-0 sigri gegn Blikum í Meistarakeppni KSÍ Bikarmeistaralið FH sigraði Íslandsmeistaralið Breiðabliks, 3-0, í Meistarakeppni KSÍ í kvöld en leikurinn fór fram í Kórnum í Kópavogi. Pétur Viðarsson skoraði fyrsta mark leiksins rétt undir lok fyrri háfleiks. Matthías Vilhjálmsson bætti við öðru marki um miðja síðari hálfleik og þegar korter var eftir af leiknum skoraði Hannes Þ. Sigurðsson þriðja og síðasta mark FH-inga. 16.4.2011 20:21
Jóhannes Karl með þrumufleyg sem tryggði Huddersfield sigur Jóhannes Karl Guðjónsson skoraði sigurmark Huddersfield á útivelli gegn Charlton í ensku 2. deildinni í dag. Sigurinn var mikilvægur fyrir Huddersfield sem er í öðru sæti deildarinnar á eftir Brighton sem er með 77 stig en Huddersfield er með 67 stig. Markið skoraði Jóhannes með skoti beint úr aukaspyrnu á 83. mínútu af um 30 metra færi. 16.4.2011 17:32
Man City leikur til úrslita - Yaya Touré tryggði sigurinn Manchester City og Manchester United áttust við í dag í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar á Wembley og tryggði Yaya Touré Man City 1-0 sigur með marki á 52. mínútu. Paul Scholes var rekinn af leikvelli í liði Man Utd í síðari háfleik. Man City hefur ekki leikið til úrslita um enska bikarinn frá árinu 1981 og liðið hefur ekki unnið titil frá árinu 1976. Fylgst var með gangi mála í leiknum á boltavakt Fréttablaðsins og visir.is. 16.4.2011 16:00
Gylfi lék í 45 mínútur í 1-0 sigri Hoffenheim Gylfi Sigurðsson lék í 45 mínútur með Hoffenheim í 1-0 sigri liðsins gegn Frankfurt í dag í þýsku 1. deildinni. Gylfi kom inná sem varamaður í upphafi síðari hálfleiks en hann hefur aðeins fengið tækifæri í byrjunarliðinu hjá Hoffenheim í 6 leikjum það sem af er tímabilinu. 16.4.2011 15:23
Örebro tapaði á útivelli gegn Tyresö - Edda í byrjunarliðinu Landsliðskonan Edda Garðarsdóttir var í byrjunarliði Örebro sem tapaði 2-1 á útivelli gegn Tyresö í dag í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir var ekki í leikmannahóp Örebro í dag en liðið er með 1 stig að loknum tveimur leikjum. 16.4.2011 14:14
Jónas Guðni var í byrjunarliði Halmstad í tapleik Jónas Guðni Sævarsson fyrrum leikmaður KR og Keflavíkur var í byrjunarliði Halmstad í dag í 2-0 tapleik liðsins gegn GAIS frá Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Hallgrímur Jónasson var á varamannabekk GAIS og kom hann ekkert við sögu í leiknum. 16.4.2011 14:04
Chelsea er enn með í baráttunni eftir 3-1 sigur - spenna á botninum Chelsea er enn með í baráttunni um enska meistaratitilinn eftir 3-1 sigur liðsins gegn WBA á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Öll mörk leiksins voru skoruð í fyrri hálfleik og er Chelsea með 61 stig í þriðja sæti deildarinnar en Arsenal er þar fyrir ofan með 62 en liðið á leik til góða á morgun gegn Liverpool. Manchester United er efst með 69 stig. Baráttan á botni deildarinnar harðnar enn og Blackpool, West Ham og Wolves sitja nú í þremur neðstu sætum deildarinnar. 16.4.2011 13:45
Brady segir að Benni McCarthy séu feitustu mistök West Ham Karren Brady, sem er varastjórnarformaður enska liðsins West Ham, dregur ekkert undan í viðtali við Daily Mail þegar hann segir að Suður-Afríkumaðurinn Benni McCarthy, séu "feitustu“ mistök félagsins. 16.4.2011 13:00
Missa stuðningsmenn af bikarleiknum á Wembley vegna stórbruna? Viðureign Manchester United og Mancheste City í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í fótbolta í dag er einn stærsti íþróttaviðburður Englands á þessu ári. Gríðarlegur fjöldi stuðningsmanna beggja liða mun ferðast til London í dag til þess að sjá grannaliðin eigast við. Leikurinn hefst í dag kl. 16.15 að íslenskum tíma en lögreglan í London hefur lokað stærstu umferðaræðinni inn í borgina vegna stórbruna við M1-hraðbrautina í norður-hluta London. 16.4.2011 12:15
Hermann vill enda ferilinn hjá Portsmouth Hermann Hreiðarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, talar hlýlega um félag sitt Portsmouth í viðtalið við breska dagblaðið The Sun. Hermann tjáir sig einnig um hvernig Hótel KEX við Skúlagötu varð að veruleika, en knattspyrnumennirnir Eiður Smári Guðjohnsen, Pétur Marteinsson og Hermann Hreiðarsson eiga allir hlut í Hótelinu. 16.4.2011 11:15
Í hópi fjögurra bestu landsliða í Evrópu U-17 landslið kvenna í knattspyrnu sneri aftur heim til Íslands í gær eftir frækna för til Póllands. Þar sigraði Ísland í sínum riðli í undankeppni Evrópumeistaramótsins og tryggði sér þar með sæti í úrslitakeppninni í Sviss í sumar. Aðeins fjögur lið taka þátt í henni og er árangur liðsins því stórglæsilegur. 16.4.2011 09:00
KSÍ vill frekar fresta en fara með leiki inn í hús Veðurfarið á Íslandi síðustu daga er líklega ekki til þess að létta lund mótastjóra KSÍ. Það eru um tvær vikur í að Pepsi-deildin eigi að hefjast og enn snjóar reglulega og margir vellir eiga talsvert í land með að vera tilbúnir fyrir átökin. 16.4.2011 08:00
Messi hefur ekki enn skorað gegn Mourinho Þrátt fyrir að Lionel Messi sé markamaskína af bestu gerð hefur honum ekki enn tekist að skora mark í leik gegn liði sem hefur verið stýrt af Jose Mourinho. 16.4.2011 06:00
Puyol í hópi Barcelona á morgun Carles Pyol, fyrirliði Barcelona, verður í leikmannahópi liðsins fyrir leikinn gegn Real Madrid á morgun. Hann hefur verið frá í þrjá mánuði vegna meiðsla. 15.4.2011 23:45
Wenger setur Englendingum úrslitakosti vegna Wilshere Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að ef Jack Wilshere spili með enska U-21 landsliðinu í úrslitakeppni EM í sumar muni hann líklega missa af tveimur leikjum enska A-landsliðsins í haust. 15.4.2011 23:15
Mourinho þagði og blaðamenn gengu út Blaðamannafundur Real Madrid fyrir leikinn gegn Barcelona á morgun var ansi skrautlegur. Jose Mourinho, stjóri Real, sat fundinn en sagði ekki orð. 15.4.2011 22:30
Birkir spilaði í jafnteflisleik Birkir Már Sævarsson spilaði allan leikinn fyrir Brann sem gerði 3-3 jafntefli við Haugasund í norsku úrvalsdeildinni í kvöld. 15.4.2011 21:00
Zlatan verður ekki seldur frá Milan Þó svo Zlatan Ibrahimovic hafi verið til mikilla vandræða hjá AC Milan í vetur hefur félagið engan hug á því að losa sig við leikmanninn í sumar. 15.4.2011 20:15
Kuyt framlengir við Liverpool Hollendingurinn Dirk Kuyt framlengdi í dag samningi sínum við Liverpool um eitt ár. Hann verður því hjá félaginu til ársins 2013 hið minnsta. 15.4.2011 19:30
Wenger: Yfirtaka Kroenke breytir engu fyrir mig Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að yfirvofandi yfirtaka Bandaríkjamannsins Stan Kroenke á félaginu muni ekki breyta neinu fyrir sig. Hann muni halda áfram að gera hlutina á sinn hátt. 15.4.2011 18:45
Frazier Campbell gæti líka misst af næsta tímabili Frazier Campbell hefur ekki spilað með Sunderland síðan í ágúst á síðasta ári og nú segir Steve Bruce, stjóri liðsins, að hann muni mögulega missa einnig af stærstum hluta næsta tímabils. 15.4.2011 16:30
Redknapp sagður ætla að losa sig við Gomes Harry Redknapp, stjóri Tottenham, hefur endanlega misst þolinmæðina í garð brasilíska markvarðarins Heurelho Gomes. Klaufamarkið gegn Real Madrid er sagt hafa verið kornið sem fyllti mælinn hjá Redknapp. 15.4.2011 15:45
Boateng verður áfram hjá Milan Ferill Ganamannsins Kevin Prince-Boateng hefur verið afar sérstakur. Hann fór frá Portsmouth yfir til ítalska liðsins Genoa þar sem hann var lánaður til besta liðs Ítalíu, AC Milan. 15.4.2011 15:15
Ferguson reyndi að fá Raul til Man. Utd Cristoph Metzelder, félagi Spánverjans Raul hjá Schalke, segir að Man. Utd hafi reynt að fá Raul til sín frá Real Madrid síðasta sumar. 15.4.2011 14:30
Ancelotti: Mér er alveg sama þó Roman reki mig Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, segir að það sé í fínu lagi ef Roman Abramovich, eigandi félagsins, ákveði að sparka sér út starfi í lok tímabils. 15.4.2011 14:00
Vieira: Arsenal ekki með sama drápseðli og Man. Utd Patrick Vieira, fyrrum fyrirliði Arsenal og núverandi leikmaður Man. City, hugsar enn hlýlega til Arsenal en sér liðið ekki vinna neina titla á meðan það vanti drápseðliðið í liðið sem einkennir Man. Utd. 15.4.2011 13:15
Mancini: Heimskulegt ef leikmenn styðja mig ekki Roberto Mancini, stjóri Man. City, segist njóta fulls stuðnings leikmanna liðsins. Það sem meira er þá segir hann að það væri heimskulegt af leikmönnum að styðja hann ekki. 15.4.2011 12:45
Hargreaves fer líklega frá Man. Utd í sumar Ferill miðjumannsins Owen Hargreaves hefur verið ein samfelld sorgarsaga frá því hann gekk í raðir Man. Utd frá FC Bayern. Nú er ljóst að hann spilar ekki meira á þessari leiktíð. 15.4.2011 12:00
Ronaldo dreymir um að mæta Man. Utd í Meistaradeildinni Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, dreymir um að mæta sínu gamla félagi, Man. Utd, í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. 15.4.2011 10:45
Scholes: City er ekki einn af okkar aðalkeppinautum Það telst til nokkurra tíðinda þegar hinn hlédrægi Paul Scholes gefur viðtal. Hann hefur nú gert það fyrir bikarleik Man. Utd og Man. City um helgina og hefur eflaust kveikt reiði stuðningsmanna City með orðum sínum. 15.4.2011 10:15
Redknapp: Mourinho mun taka við af Sir Alex Harry Redknapp, stjóri Tottenham, býst við þvi að José Mourinho muni snúa aftur í enska boltann til þess að taka við Man. Utd er Sir Alex Ferguson hættir að þjálfa liðið. 15.4.2011 09:30
Hiddink fær ekki að fara til Chelsea Tyrkneska knattspyrnusambandið hefur sent Chelsea skýr skilaboð þess efnis að þjálfarinn Guus Hiddink sé ekki á lausu og félagið sé ekki klárt í neinar viðræður við félagið. 15.4.2011 09:04
Teitur og félagar mæta City í sumar Vancouver Whitecaps mun mæta Manchester City í sýningarleik í sumar en það var tilkynnt í dag. Teitur Þórðarson er þjálfari Whitecaps sem leikur í MLS-deildinni. 15.4.2011 06:00
Daily Mail fullyrðir að De Gea fari til United Enska dagblaðið Daily Mail fullyrðir á vefsíðu sinni í kvöld að Manchester United hafi komist að samkomulagi við Atletico Madrid um kaup á markverðinum David De Gea fyrir 17,8 milljónir punda. 14.4.2011 22:49
Iniesta var næstum því búinn að rota Guardiola Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, lenti óvænt í háska í leik Barcelona og Almeria um síðustu helgi. Þá var hans eigin leikmaður næstum búinn að rota hann. 14.4.2011 23:30
Þrjú lið frá Portúgal í undanúrslit Evrópudeildarinnar Fjórðungsúrslitum Evrópudeildar UEFA lauk í kvöld en þá tryggðu þrjú lið frá Portúgal sér sæti í undanúrslitunum. Það fjórða er frá Spáni. 14.4.2011 22:43
Giggs: Chicharito dregur í sundur varnir mótherjanna Ryan Giggs er ánægður með Mexíkóbúann Javier Hernandez sem hefur slegið í gegn hjá Manchester United á þessu tímabili. Hernandez skoraði fyrra mark United í 2-1 sigri á Chelsea í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar og kom það eftir glæsilega stoðsendingu frá Giggs. Það var 18 mark Hernandez á leiktíðinni. 14.4.2011 19:45
Miðinn á enska bikarúrslitaleikinn hækkar um 22 prósent Enska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að hækka miðaverðið á úrslitaleik enska bikarsins sem fer fram á Wembley 14. maí síðastliðinn. Dýrasti miðinn á leikinn kostar nú 115 pund eða rúmlega 21 þúsund íslenskar krónur. 14.4.2011 19:00
Japanir verða með í Suður-Ameríkukeppninni eftir allt saman Japanska fótboltalandsliðið verður með í Suður-Ameríkukeppninni sem fram fer í Argentínu í sumar en Japanir höfðu áður hætt við þátttöku vegna jarðskjálftans og flóðbylgjunnar heima fyrir sem kostuðu þúsundir manns lífið í síðasta mánuði. 14.4.2011 16:00
Sautján ára kvennalandslið Íslands: Sex leikir, sex sigrar og 37 mörk Íslenska 17 ára landsliðið í fótbolta hélt sigurgöngu sinni áfram í undankeppni EM með því að vinna 4-1 sigur á Svíum í lokaleik sínum í millirliði sínum í Póllandi í dag. Stelpurnar höfðu áður tryggt sér sæti úrslitakeppninni með sigri á Englandi og Póllandi í fyrstu tveimur leikjunum. 14.4.2011 15:40
De Gea: Ég er ekkert búinn að tala við United David De Gea, markvörður Atletico Madrid, segir ekkert vera til í þeim sögusögnum að hann sé búinn að vera í viðræðum við Manchester United um að taka við af Hollendingnum Edwin van der Sar sem er að leggja skóna á hilluna í vor. 14.4.2011 14:45