Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Besta miðvarðapar Evrópu? John O'Shea, leikmaður Manchester United, segir að Rio Ferdinand og Nemanja Vidic myndi sterkasta miðvarðapar í Evrópuboltanum. United hefur haldið marki sínu hreinu í sex deildarleikjum í röð. 8.10.2007 20:00
Hammarby tapaði fyrir Helsingborg Þrír leikir voru í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Hammarby tapaði á heimavelli 0-2 gegn Helsingborg. Gunnar Þór Gunnarsson lék allan leikinn fyrir Hammarby en Heiðar Geir Júlíusson sat á bekknum og kom ekkert við sögu. 8.10.2007 19:20
Bikarinn til Brann Nánast ekkert getur komið í veg fyrir að Íslendingaliðið Brann hampi norska meistaratitlinum í ár. Brann vann Lyn 3-1 í kvöld og er með níu stiga forskot á toppi deildarinnar þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir. 8.10.2007 18:57
Molde aftur upp í úrvalsdeildina Með 3-1 sigri á Haugasundi í kvöld er ljóst að Molde er komið aftur upp í norsku úrvalsdeildina eftir árs fjarveru. Liðið er ellefu stigum frá þriðja sæti 1. deildarinnar en tvö efstu liðin komast beint upp. 8.10.2007 18:45
Þétt dagskrá hjá Owen Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Newcastle, segist hafa áhyggjur af þéttri dagskrá sóknarmannsins Michael Owen. Leikmaðurinn fór fyrir skömmu í aðgerð vegna kviðslits. 8.10.2007 18:30
Kekic áfram hjá Víkingi Sinisa Valdimar Kekic verður áfram í herbúðum Víkings en hann hefur skrifað undir nýjan samning til eins árs. Auk þess að spila mun Kekic taka að sér þjálfun hjá félaginu og verður annar af tveimur þjálfurum 2. flokks karla. 8.10.2007 17:52
Næsti markvörður Arsenal norskur? Norskir fjölmiðlar segja að Arsenal vilji fá markvörðinn Rune Almenning Jarstein til æfinga með félaginu. Jarstein er 23 ára og hefur lengi verið talin ein bjartasta von Norðmanna í markmannsmálum. 8.10.2007 17:15
Stoichkov rekinn frá Celta Vigo Búlgarski þjálfarinn Hristo Stoichkov var í dag rekinn frá spænska félaginu Celta Vigo eftir sex mánuði í starfi. Spænska pressan er þegar farin að orða Juan Ramon Lopez Caro við starfið. Celta er í 11. sæti spænsku q. deildarinnar með 10 stig eftir 7 leiki. 8.10.2007 17:00
Ég kæmist ekki í nokkurt lið í dag Þeir sem fylgst hafa með enska boltanum í nokkra áratugi muna eflaust flestir eftir hinum magnaða Matt Le Tissier sem gerði garðinn frægan með Southampton fyrir um 15 árum síðan. Le Tissier skoraði 209 mörk fyrir Southampton á sínum tíma en segir að hann væri að hefja ferilinn í dag myndi hann líklega ekki komast í neitt af liðunum í ensku úrvalsdeildinni. 8.10.2007 16:51
Ég hefði geta spilað um helgina Varnarmaðurinn William Gallas hjá Arsenal er í leikmannahópi Frakka sem mæta Færeyingum á laugardaginn í undankeppni EM. Hann segist nú vera orðinn góður af meiðslum sem hafa haldið honum frá keppni í nálægt tvo mánuði. 8.10.2007 16:30
Hvítahúsmellur valda fjaðrafoki Fjórðudeildarliðið Trentino 1921 á Ítalíu hefur vakið gremju stjórnmálamanna þar í landi eftir að það seldi fylgdarþjónustu í Austurríki auglýsingu á heimasíðu sinni. Þar geta lesendur komist í kynni við viljugar meyjar með einum músarsmelli. 8.10.2007 16:03
Tottenham nær ekki í efsta styrkleikaflokk Á morgun verður dregið í riðla í Evrópukeppni félagsliða og þar verða ensku liðin Tottenham og Everton að sætta sig við að sitja í 2. og 3. styrleikaflokki og lenda því með mjög sterkum liðum í riðlum. 8.10.2007 15:11
Diouf hættur með landsliðinu Senegalinn El Hadji Diouf tilkynnti í dag að hann væri hættur að leika með landsliði sínu. Diouf leikur með Bolton í ensku úrvalsdeildinni og var fyrirliði Senegal. Hann er aðeins 26 ára gamall en segist ekki geta leikið lengur fyrir hönd þjóðar sinnar. 8.10.2007 15:02
Taylor rekinn frá Palace Peter Taylor var í dag rekinn úr starfi knattspyrnustjóra Crystal Palace í ensku Championship deildinni. Þetta var tilkynnt á heimasíðu félagsins í stuttri tilkynningu í dag. Palace hefur aðeins náð í 10 stig í fyrstu 10 leikjunum í deildinni og þar af aðeins einn sigur í síðustu 10 leikjum í öllum keppnum. 8.10.2007 14:09
Ten Cate fer til Chelsea Hollenska knattspyrnufélagið Ajax hefur nú komist að samkomulagi við Chelsea á Englandi um að þjálfarinn Ten Cate gangi í raðir enska félagsins. Ajax mun fá greiddar bætur og í yfirlýsingu frá félaginu segir að Cate muni væntanlega hefja störf á Englandi fljótlega. 8.10.2007 14:04
Uefa tekur Dida inn á teppi Knattspyrnusamband Evrópu hefur nú tekið til rannsóknar meint agabrot markvarðarins Dida hjá AC Milan eftir að honum var skipt af velli í leik liðsins gegn Glasgow Celtic í síðustu viku. 8.10.2007 13:53
Valdes er auðmjúkur Victor Valdez, markvörður Barcelona, segist ekki kippa sér upp við það þó hann sé ekki valinn í spænska landsliðshópinn þrátt fyrir góða frammistöðu. Hann segir að þeir sem gagnrýni valið á landsliðinu séu um leið að kasta rýrð á markverðina sem séu í landsliðinu. 8.10.2007 13:45
Þjálfari Levante rekinn Spænska knattspyrnufélagið Levante rak í dag þjálfarann Abel Resino eftir enn eitt tapið um helgina. Levanta tapaði 3-0 fyrir Zaragoza og er liðið á botninum í deildinni með aðeins eitt stig úr sjö leikjum. Resino var ráðinn í janúar sl. og stýrði liðinu upp af fallsvæðinu í í 15. sætið í vor. 8.10.2007 13:34
Kvenmannslaust í Kænugarði Josef Sabo, þjálfari Úkraínumeistara Dynamo í Kænugarði, kennir eiginkonum og kærustum leikmanna um skelfilega byrjun liðsins í titilvörninni. Dynamo var í botnbaráttu í fyrstu umferðunum en hefur nú unnið sig aftur upp í þriðja sætið. 8.10.2007 13:14
Hugarfarið er lykillinn að velgengni Messi Hollenska knattspyrnugoðsögnin Johan Cruyff segir að einstakt hugarfar sé lykillinn að frábærri frammistöðu miðjumannsins Leo Messi hjá Barcelona í haust. 8.10.2007 12:52
Elano er leikmaður 9. umferðar Brasilíumaðurinn Elano fór hamförum með Manchester City aðra vikuna í röð þegar hann skoraði tvö marka liðsins í 3-1 sigri á Middlesbrough. Fyrir viku síðan héldu breskir fjölmiðlar ekki vatni yfir frammistöðu Elano gegn Newcastle United, en hann var enn betri nú um helgina. 8.10.2007 11:38
Ashton verður ekki með Englendingum Dean Ashton hjá West Ham er nýjasti framherjinn á sjúkralista enska landsliðsins í knattspyrnu, en hann hefur þurft að hætta við að gefa kost á sér í leikina gegn Eistum og Rússum vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir í leiknum gegn Aston Villa um helgina. 8.10.2007 11:15
Gunnar Heiðar skoraði fyrir Valerenga Gunnar Heiðar Þorvaldsson var aftur á skotskónum fyrir Valerenga í norska boltanum í gærkvöld en það dugði skammt þegar liðið tapaði 1-3 heima fyrir Lilleström. Honum var skipt af velli á 83. mínútu en Viktor Bjarki Arnarsson sat allan tímann á bekknum hjá Lilleström. Árni Gautur Arason stóð vaktina í marki Valerenga. 8.10.2007 11:10
Defoe hélt framhjá með tvífara kærustunnar Helgarblaðið News of the World birti í gær safaríka frétt af framherjanum Jermain Defoe hjá Tottenham þar sem segir að hann hafi notað frumlegar aðferðir við að halda framhjá kærustu sinni. 8.10.2007 09:53
Wright-Phillips fjárfestir í klámi Breska blaðið The Sun segist hafa heimildir fyrir því að kantmaðurinn knái Shaun Wright-Phillips hjá Chelsea sé orðinn helsti styrktaraðili klámstöðvarinnar Babe Central. Heimildir blaðsins herma að hann hafi sett allt að 2,5 milljónir króna í framleiðslusjóð stöðvarinnar. 8.10.2007 09:39
Jol ver Paul Robinson Martin Jol, stjóri Tottenham, hefur komið markverði sínum Paul Robinson til varnar eftir að hann gerði enn ein mistökin í jafntefli liðsins við Liverpool í gær. Fjögur af þeim sex mörkum sem Tottenham hefur fengið á sig í síðustu tveimur leikjum skrifast að hluta á enska landsliðsmarkvörðinn. 8.10.2007 09:17
Bruce óttast að missa starfið Steve Bruce, knattspyrnustjóri Birmingham í ensku úrvalsdeildinni, segist óttast að missa starfið ef viðskiptajöfurinn Carson Yeung nær að klára fyrirhugaða yfirtöku sína í félaginu. 8.10.2007 09:11
Maradona handtekinn Fótboltastjarnan fyrrverandi, Diego Maradona, var handtekinn af flugvallarlögreglunni í Buenos Aires er hann kom þangað frá Ítalíu um helgina. Maradona hafði ekki sinnt kalli um að mæta í réttarhald um hálfsannarsárs gamalt umferðarslys. 8.10.2007 08:54
Liverpool slapp með skrekkinn Liverpool mátti þakka kærlega fyrir að tapa ekki tveimur leikjum á Anfield í sömu vikunni eftir 2-2 jafntefli við Tottenham. 7.10.2007 15:34
Wenger: Misstum einbeitinguna Arsene Wenger segir að sínir menn hafi misst einbeitinguna eftir að Arsenal náði snemma 2-0 forskoti gegn Sunderland. 7.10.2007 18:18
Benitez og Jol báðir vonsviknir Rafa Benitez var vonsvikinn vegna jafnteflis Liverpool og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag. 7.10.2007 18:13
Veigar með tvö fyrir Stabæk Veigar Páll Gunnarsson lét gagnrýnendur sína heyra það með því að skora tvívegis í 4-2 sigri Stabæk á Álasundi í dag. 7.10.2007 17:50
Malmö tapaði dýrmætum stigum Malmö tapaði í dag mikilvægum leik fyrir Djurgården í sænsku úrvalsdeild kvenna. Dóra Stefánsdóttir var í byrjunarliði Malmö. 7.10.2007 17:18
Símun og Allan skoruðu Símun Samuelsen skoraði fyrir lið sitt, Notodden, í norsku 1. deildinni í dag. Það dugði þó skammt þar sem liðið tapaði fyrir Hönefoss, 4-1. 7.10.2007 17:09
Eiður enn á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen kom ekkert við sögu í 3-0 sigri Barcelona á Atletico Madrid í dag. 7.10.2007 16:54
Skoraði sjö í einum leik Brasilíumaðurinn Afonso Alves gerði sér lítið fyrir og skoraði sjö mörk í 9-0 stórsigri Heerenveen á Herakles í hollensku úrvalsdeildinni í dag. 7.10.2007 16:43
Hermann skoraði í sigri Portsmouth Hermann Hreiðarsson skoraði sitt annað mark í jafn mörgum leikjum í ensku úrvalsdeildinni í dag er Portsmouth vann Fulham, 2-0. 7.10.2007 16:26
Jafntefli hjá Emil og félögum Emil Hallfreðsson lék allan leikinn fyrir Reggina sem gerði 1-1 jafntefli við Palermo á útivelli í dag. 7.10.2007 15:22
Djurgården stóðst pressuna Spennan í sænsku úrvalsdeildinni heldur áfram en í dag vann Djurgården 2-0 sigur á Gefle. 7.10.2007 15:14
Reading vann Derby Kevin Doyle var hetja Reading er liðið vann dýrmætan 1-0 sigur á botnliði Derby. 7.10.2007 15:01
Arsenal marði Sunderland Arsenal vann í dag nauman sigur á Sunderland, 3-2. Það var Robin van Persie sem skoraði sigurmark leiksins undir lokin en Sunderland hafði þá jafnað metin eftir að hafa lent tveimur mörkum undir. 7.10.2007 12:55
Burnley tapaði án Jóa Kalla Burnley tapaði í gær fyrir Cardiff í ensku B-deildinni en Jóhannes Karl Guðjónsson var ekki í leikmannahópi liðsins. 7.10.2007 10:04
Garðar skoraði í tapleik Garðar Jóhannsson skoraði eina mark Fredrikstad í 3-1 tapleik liðsins gegn Start í Noregi í gær. 7.10.2007 09:49
Loksins vann Bröndby á Jótlandi Stefán Gíslason og félagar í Bröndby unnu í gær sinn fyrsta sigur á Jótlandi í um tvö ár. 7.10.2007 09:37
Gautaborg á toppinn IFK Gautaborg komst í gær á topp sænsku úrvalsdeildarinnar með 2-0 sigri á Malmö. 7.10.2007 09:26