Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tekur Eriksson við Marseille á morgun? Franskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Svíinn Sven-Göran Eriksson verði kynntur sem næsti knattspyrnustjóri Marseille á morgun. Talið er að arabískur prins sé nú að leggja lokahönd á að ganga frá yfirtökutilboði í félagið og herma fréttir að Eriksson verði ráðinn um leið og viðskiptin ganga í gegn. 11.1.2007 19:10
Ronaldo leikmaður mánaðarins Portúgalski vængmaðurinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United var í dag kjörinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni, annan mánuðinn í röð. Ronaldo er aðeins þriðji leikmaðurinn í sögu úrvalsdeildarinnar til að hljóta verðlaunin tvisvar í röð, en áður höfðu Robbie Fowler (´96) og Dennis Bergkamp (´97) hlotið þann heiður. 11.1.2007 19:06
Allardyce stjóri mánaðarins Sam Allardyce hjá Bolton var í dag kjörinn knattspyrnustjóri mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni. Undir stjórn Allardyce vann Bolton fimm leiki í röð í desember og er nú komið í hörkubaráttu um sæti í Evrópukeppninni eftir slaka byrjun. Þetta er í fjórða skipti sem Allardyce er kjörinn stjóri mánaðarins síðan hann tók við Bolton árið 1999. 11.1.2007 19:02
Koma David Beckham gríðarlega þýðingarmikil Don Garber, forseti bandarísku atvinnumannadeildarinnar í knattspyrnu, segir ekki hægt að mæla mikilvægi þess að David Beckham muni spila í deildinni á næstu leiktíð. Hann segir þetta stórt skref í framþróun deildarinnar og knattspyrnu í Bandaríkjunum í heild. 11.1.2007 17:41
Stuðningsmenn Getafe enn til vandræða Quique Sanchez Flores, þjálfari Valencia, er æfur yfir stuðningsmönnum Getafe eftir að hópur þeirra gerði sig sekan um kynþáttaníð í garð varnarmannsins Miguel í viðureign liðanna í bikarkeppninni á Spáni. Þetta er langt frá því að vera í fyrsta skipti sem stuðningsmenn Getafe eru gagnrýndir fyrir kynþáttaníð. 11.1.2007 17:24
Diawara og O´Brien skipta um félög Varnarmaðurinn Souleymane Diawara hjá Charlton var í dag sendur til Portsmouth í skiptum fyrir írska landsliðsmanninn Andy O´Brien. Hvorugur leikmaðurinn hefur náð að festa sig í sessi hjá félagi sínu til þessa og standa vonir manna til að vistaskiptin hjálpi þeim að hleypa lífi í ferilinn á ný. 11.1.2007 17:17
Los Angeles Galaxy Í dag varð ljóst að enski knattspyrnumaðurinn David Beckham mun ganga í raðir Los Angeles Galaxy í amerísku atvinnumannadeildinni næsta sumar. Það er því ekki úr vegi að skoða aðeins sögu félagsins, sem er eitt tíu upprunalegra atvinnumannaliðanna í MLS deildinni. 11.1.2007 16:20
Liverpool kaupir ungan Svía Liverpool hefur gengið frá kaupum á sænska unglingalandsliðsmanninum Astrit Ajdarevic frá Falkenberg í Svíþjóð. Leikmaðurinn er aðeins 16 ára gamall og talinn mikið efni. Kaupverðið er sagt á bilinu 1-2,5 milljónir punda, háð því hve vel honum gengur að sanna sig í herbúðum enska liðsins. 11.1.2007 16:05
Segja Beckham fá 18 milljarða fyrir fimm ára samning Reuters fréttastofan greinir frá því að samningurinn sem David Beckham gerir við LA Galaxy sé einn allra stærsti samningur sem sögur fara af í sögu atvinnuíþrótta, því hann muni fá meira en 18 milljarða króna fyrir samninginn. 11.1.2007 15:32
Beckham skrifar undir samning við LA Galaxy David Beckham hefur náð samkomulagi við forráðamenn bandaríska knattspyrnufélagsins LA Galaxy og gengur í raðir liðsins í vor. Beckham staðfesti við Reuters að hann væri búinn að skrifa undir fimm ára samning. 11.1.2007 14:57
LA Galaxy í viðræðum við Beckham Talsmaður amerísku atvinnumannadeildarinnar í knattspyrnu hefur greint frá því að forráðamenn Los Angeles Galaxy séu í viðræðum við David Beckham um að ganga í raðir liðsins. Beckham er enn í viðræðum við Real Madrid um nýjan samning, en ekki er talið að hann verði hjá Madrid lengur en fram á vor í mesta lagi. 11.1.2007 14:48
Charlton kaupir Thatcher Enska úrvalsdeildarliðið Manchester City samþykkti í dag kauptilboð Charlton í varnarmanninn Ben Thatcher og gengið verður frá kaupunum ef Thatcher samþykkir kaup og kjör. Thatcher er 31 árs gamall og má teljast góður að fá að ganga laus eftir grófa líkamsárás á knattspyrnuvellinum í byrjun leiktíðar. 11.1.2007 14:40
Portsmouth kaupir Traore Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth er duglegt á leikmannamarkaðnum þessa dagana og í morgun gekk það frá kaupum á Malímanninum Djimi Traore frá Charlton. Traore hefur ekki gert gott mót í veru sinni hjá Charlton en hann var áður hjá Liverpool. Kaupverðið er 1 milljón punda og hefur hann gert tveggja og hálfs árs samning. 11.1.2007 14:35
Mourinho fær ekki að kaupa leikmenn Jose Mourinho segist ekki ætla að selja einn einasta leikmann frá liði Chelsea í janúar því sér hafi verið bannað að styrkja hópinn. Hann hefði ætlað sér að kaupa sóknar- og varnarmann, en nú virðist vera komið upp vandamál í sambandi Mourinho og stjórnar félagsins. 11.1.2007 14:29
Fjórir menn ákveða laun formanns KSÍ en aðeins sex vita upphæðina Aðeins sex einstaklingar vita hversu há laun formaður Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, hefur hverju sinni og laun formannsins eru ákveðin af framkvæmdastjórn KSÍ en formaður þeirrar stjórnar er formaður KSÍ, Eggert Magnússon. 11.1.2007 11:30
Wycombe náði jöfnu gegn Chelsea Kraftaverkalið Wycombe heldur áfram að koma á óvart í enska deildarbikarnum og í kvöld náði liðið 1-1 jafntefli gegn Chelsea á heimavelli sínum. Wayne Bridge kom Chelsea yfir í fyrri hálfleik, en hinn magnaði Jermaine Easter jafnaði metin fyrir Wycombe, sem er þremur deildum neðar en Chelsea í töflunni. Easter hefur nú skorað í öllum leikjum liðsins í keppninni. Síðari leikur liðanna er svo á Stamford Bridge. 10.1.2007 21:58
Marcelo frá í sex vikur Bakvörðurinn ungi Marcelo hjá Real Madrid verður frá keppni í um sex vikur eftir að hann meiddist á ökkla í 2-0 tapi Real gegn Deportivo í spænsku deildinni um síðustu helgi. Marcelo gekk í raðir Real frá Fluminese í heimalandi sínu Brasilíu um leið og janúarglugginn opnaði. 10.1.2007 20:37
Mijatovic tekur orð sín til baka Yfirmaður knattspyrnumála hjá Real Madrid, Predrag Mijatovic, hefur dregið ummæli sín við Sky sjónvarpsstöðina í dag til baka og segir ekkert til í þeim fréttaflutningi að David Beckham sé á förum frá stórliðinu. 10.1.2007 19:29
Souness leggur fram formlegt tilboð í Wolves Hópur fjárfesta undir stjórn fyrrum knattspyrnustjórans Graeme Souness lagði í dag fram formlegt yfirtökutilboð í knattspyrnufélagið Woves. Tilboðið hljóðar upp á 20 milljónir punda og þykir áhugavert fyrir þær sakir að aðeins Englendingar koma að því, en mikið veður hefur verið gert á Englandi vegna mikilla umsvifa erlendra fjárfesta í knattspyrnunni þar í landi. 10.1.2007 19:24
Kári Árnason til Danmerkur Landsliðsmaðurinn Kári Árnason hjá Djurgarden í Svíþjóð gengur í raðir danska liðsins AGF í Árósum um helgina ef marka má fréttir frá Danmörku. Langt er síðan ljóst varð að Kári yrði ekki áfram í herbúðum sænska liðsins og nú er útlit fyrir að leikmaðurinn gangi í raðir hins fornfræga danska liðs á næstu dögum. 10.1.2007 19:14
Tveir leikir í beinni í kvöld Sjónvarpsstöðvar Sýnar verða með tvær beinar útsendingar í fótboltanum í kvöld og hefjast þær báðar klukkan 19:50. Fyrri leikur Wycombe og Chelsea í undanúrslitum enska deildarbikarsins verður sýndur á Sýn og á Sýn Extra verður fyrri leikur Alaves og Barcelona í spænska bikarnum, þar sem Eiður Smári Guðjohnsen verður væntanlega í byrjunarliði Katalóníuliðsins. 10.1.2007 19:02
Klose vill ekki fara hvert sem er Þýski landsliðsframherjinn Miroslav Klose segir aðeins fimm félög koma til greina fyrir sig ef hann ákveði að yfirgefa herbúðir Werder Bremen í sumar eins og flestir reikna með. Klose hefur verið orðaður við fjölda stórliða eftir að ljóst varð að hann ætlaði ekki að framlengja við Bremen. 10.1.2007 18:57
Portsmouth fær miðjumann að láni Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth hefur fengið miðjumanninn Arnold Mvuemba að láni frá franska liðinu Rennes út leiktíðina. Mvuemba þessi er 21 árs gamall og ef hann stendur sig vel á Englandi gæti farið svo að Portsmouth gengi frá kaupum á honum í sumar. 10.1.2007 18:52
Jákvæðar fréttir hjá Everton Lið Everton fékk þær góðu fréttir í dag að miðjumaðurinn Tim Cahill sé orðinn heill á ný eftir meiðsli og svo gæti farið að hann fengi strax sæti í byrjunarliðinu á ný eftir að Everton tapaði illa í síðasta leik. David Moyes hefur boðað breytingar í kjölfarið og þá fékk félagið þau tíðindi í dag að meiðsli bakvarðarins Nuno Valente væru ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu - svo gæti farið að hann missti aðeins úr tvo leiki. 10.1.2007 18:48
Mills frjálst að fara frá City Stuart Pearce, stjóri Manchester City, segir að varnarmanninum Danny Mills sé frjálst að fara frá félaginu. Mills missti sæti sitt í hendur hins unga og efnilega Micah Richards og hefur verið sem lánsmaður hjá Hull City í 1. deild í tvo mánuði. Þar hefur hann staðið sig vel og sagt er að félagið hafi áhuga á að ganga frá kaupum á leikmanninum. 10.1.2007 18:45
Pires að ná sér Franski miðjumaðurinn Robert Pires hjá Villarreal er nú óðum að ná sér af hnémeiðslum sínum, níu mánuðum eftir að hann gekk í raðir spænska liðsins frá Arsenal. Pires hefur enn ekki spilað alvöruleik með Villarreal eftir að hann meiddist á hné í æfingaleik í sumar en er nú búinn í endurhæfingu og fær væntanlega tækifæri með liðinu fljótlega. 10.1.2007 18:41
Benitez kvartar yfir peningaleysi Rafa Benitez, stjóri Liverpool, segir að félagið hafi ekki nógu mikla peninga úr að moða til að geta fjárfest í ungum og efnilegum leikmönnum. Leikmannakaup stjórans á liðnum árum voru gagnrýnd nokkuð í breskum blöðum í dag í kjölfar ófara liðsins í leikjunum tveimur gegn Arsenal. 10.1.2007 17:21
Stutt í endurkomu Petr Cech Nú styttist óðum í endurkomu markvarðarins Petr Cech hjá Chelsea, en hann hefur ekki spilað leik í þrjá mánuði eftir að hann höfuðkúpubrotnaði í leik gegn Reading í október. Markvörðurinn segist vera kominn í fínt form en bíður eftir að fá endanlega græna ljósið frá læknum til að fá að spila á ný. 10.1.2007 17:16
Luis Garcia spilar ekki meira í vetur Spánverjinn Luis Garcia hjá Liverpool verður ekki meira með liðinu á leiktíðinni eftir að hann sleit krossbönd í hné í leiknum gegn Arsenal í bikarnum í gær. Garcia getur ekki spilað fótbolta í amk 6 mánuði vegna þessa. Þá verður félagi hans Mark Gonzalez frá í um þrjár vikur vegna meiðsla sem hann hlaut í sama leik. 10.1.2007 16:38
Wenger og Ljungberg ósáttir Sænska dagblaðið Expressen hefur eftir vini Freddy Ljungberg hjá Arsenal að Arsene Wenger knattspyrnustjóri sé að bola honum frá félaginu. Wenger á að hafa gert Svíanum það ljóst að hann hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Arsenal. 10.1.2007 15:59
Nedved neitaði Tottenham Tékkneski miðjumaðurinn Pavel Nedved hjá Juventus segist hafa neitað tilboði um að ganga í raðir Tottenham og fleiri liða síðasta sumar. Hann segist hafa neitað tilboðinu því fjölskylda hans sé búin að koma sér svo vel fyrir í Tórínó og þar ætli hann að búa eftir að hann leggur skóna á hilluna. 10.1.2007 15:27
Beckham á förum frá Real Madrid David Beckham fer frá Real Madrid í sumar. Þetta fullyrðir yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu Predrag Mijatovic við Sky sjónvarpsstöðina í dag. Samningur Beckham við Real rennur út í sumar og hafa viðræður um framlengingu hans nú strandað. Beckham er frjálst að ræða við önnur félög nú þegar. 10.1.2007 14:39
Walter Smith tekur við Glasgow Rangers Walter Smith hefur sagt af sér sem landsliðsjálfari Skotlands og var í dag ráðinn knattspyrnustjóri Glasgow Rangers í annað sinn á ferlinum. Skoska knattspyrnusambandið ætlar að höfða mál á hendur Smith fyrir að svíkja samning sinn, en hann hefur þegar skrifað undir 3 ára samning við Rangers og tekur við liðinu í annað sinn á ferlinum. 10.1.2007 14:16
Benitez bað stuðningsmenn afsökunar Rafa Benitez bað stuðningsmenn Liverpool afsökunar á frammistöðu liðsins gegn Arsenal í deildarbikarnum eftir 6-3 tapið á Anfield. Þetta var annað stóra tapið í röð hjá Liverpool gegn Arsenal á heimavelli á nokkrum dögum. 10.1.2007 01:56
Arsenal valtaði yfir Liverpool í sögulegum leik Arsenal burstaði Liverpool 6-3 á Anfield í ótrúlegum knattspyrnuleik sem fer í sögubækurnar. Arsenal sló Liverpool út úr enska bikarnum um helgina og sló heimamenn út úr deildarbikarnum í kvöld. Julio Baptista skoraði fjögur mörk fyrir Arsenal og misnotaði þar að auki vítaspyrnu. 9.1.2007 21:44
Arsenal fer á kostum á Anfield Arsenal er svo sannarlega að gera Liverpool lífið leitt þessa dagana en liðið hefur 4-1 forystu á Anfield í hálfleik í leik liðanna í enska deildarbikarnum. Julio Baptista hefur skorað tvö marka Arsenal, Jeremie Aliadiere eitt og Alexandre Song eitt. Robbie Fowler skoraði mark Liverpool í þessum ótrúlega leik sem sýndur er beint á Sýn. 9.1.2007 21:00
Ronny Johnsen íhugar að hætta Norski varnarjaxlinn Ronny Johnsen er að íhuga að leggja skóna á hilluna ef marka má fréttir frá Svíþjóð í kvöld. Johnsen leikur með Árna Gauti Arasyni hjá Valerenga í Noregi, en fór ekki með liðinu í æfingabúðir á Kanaríeyjum sem standa nú yfir. Johnsen er 37 ára gamall og gerði garðinn frægan hjá Manchester United á árum áður. 9.1.2007 20:57
Gylfi gagnrýnir vinnubrögð KSÍ Gylfi Orrason knattspyrnudómari gefur lítið fyrir þær fullyrðingar knattspyrnusambands Íslands að sambandið hafi reynt til fullnustu að fá Kristin Jakobsson hækkaðan um styrkleikalista dómara hjá UEFA. Formaður KSÍ kveðst sár yfir fréttaflutningi þessa efnis. 9.1.2007 20:30
Formaður dómara bjartsýnn Rofað hefur til í kjaraviðræðum knattspyrnudómara og KSÍ en samningafundur síðdegis í dag gekk framar vonum. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2. 9.1.2007 20:30
Stjórnarformaður Bolton ósáttur við Benitez Phil Gartside, stjórnarformaður enska úrvalsdeildarfélagsins Bolton, hefur sent enska knattspyrnusambandinu athugasemdir sínar við ummæli Rafa Benitez fyrir leik Bolton og Liverpool á nýársdag. Knattspyrnustjóri Liverpool sagði þá að Bolton kæmist aldrei upp með að spila jafn fast og það gerir ef liðið væri í spænsku deildinni. 9.1.2007 19:14
Terry sektaður John Terry, fyrirliði Chelsea og enska landsliðsins, var í dag sektaður um 10.000 pund af aganefnd enska knattspyrnusambandsins fyrir ummæli sín í garð Graham Poll dómara eftir að hann var rekinn af velli í leik Tottenham og Chelsea fyrir áramót. Terry þarf ekki að taka út leikbann. 9.1.2007 18:03
Liverpool - Arsenal í beinni á Sýn í kvöld Liverpool og Arsenal mætast öðru sinni á þremur dögum í kvöld þegar þau kljást í enska deildarbikarnum á Anfield. Arsenal vann góðan 3-1 sigur í fyrri leiknum í enska bikarnum um helgina og því vilja heimamenn eflaust hefna sín rækilega í kvöld. Bein útsending Sýnar frá leiknum hefst klukkan 19:35. 9.1.2007 17:25
Wilhelmson á leið til Roma Sænski miðjumaðurinn Christian Wilhelmsson er nú við það að ganga í raðir Roma á Ítalíu, en hann hefur leikið með Nantes í Frakklandi um nokkurt skeið. Wilhelmsson er sænskur landsliðsmaður og segja forráðamenn Roma að aðeins eigi eftir að ganga frá formsatriðum og læknisskoðun svo af kaupunum geti orðið. 9.1.2007 17:03
Juventus ekki lengur á eftir Mascherano Forráðamenn Juventus hafa gefist upp í að reyna að fá til sín argentínska miðjumanninn Javier Mascherano hjá West Ham, því staða hans og afskipti MSI séu of flókin til að hægt sé að kaupa hann. Þá lét einn forráðamanna Juventus hafa eftir sér að leikmaðurinn væri hvort sem er á leið í raðir Liverpool. 9.1.2007 15:32
PSV hefur áhuga á Albert Luque Sky sjónvarpsstöðin segist hafa öruggar heimildir fyrir því í dag að hollenska liðið PSV Eindhoven hafi gert fyrirspurn um spænska framherjann Albert Luque hjá Newcastle. Leikmaðurinn hefur verið algjörlega úti í kuldanum hjá Newcastle í vetur og er einhver mestu vonbrigði síðari ára í enska boltanum. 9.1.2007 15:25