Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Umfjöllun: Ísland - Króatía 22-23 | Hetjuleg barátta en króatíska grýlan lifir enn Ísland tapaði fyrir Króatíu, 22-23, í þriðja leik sínum í milliriðli II á Evrópumótinu í handbolta í dag. 24.1.2022 16:25
John Stockton neitar að vera með grímu og gamli skólinn ógildir ársmiðana hans John Stockton, stoðsendingahæsti leikmaður í sögu NBA-deildarinnar, má ekki lengur mæta á leiki gamla háskólans síns því hann neitar að bera grímu. 24.1.2022 15:30
Verða með útileikmann í markinu í kvöld Kómoreyjar, sem nú upplifa Öskubuskuævintýri í Afríkukeppninni í fótbolta, verða án allra markvarða sinna í leiknum við Kamerún í kvöld. 24.1.2022 14:46
Nýliðarnir fá reggísveiflu í vörnina Afturelding hefur tryggt sér góðan liðsstyrk fyrir komandi leiktíð í úrvalsdeild kvenna í fótbolta. Félagið hefur samið við jamaísku landsliðskonuna Chyanne Dennis. 24.1.2022 14:01
Elvar og Ólafur ekki klárir og bara fjórtán á skýrslu þriðja leikinn í röð Aðeins fjórtán leikmenn verða á skýrslu þegar Ísland mætir Króatíu í milliriðli II á Evrópumótinu í handbolta. 24.1.2022 13:26
Stutt gaman hjá Vigni sem greindist með veiruna Vignir Stefánsson getur ekki tekið þátt í leiknum gegn Króatíu á Evrópumótinu í handbolta í dag. Hann greindist með kórónuveiruna. 24.1.2022 13:12
„Martröð“ fyrir Svía sem eru á leið í úrslitaleik við Norðmenn Svíar þurfa að berjast um sæti í undanúrslitum á EM í handbolta án markvarðarins frábæra Andreas Palicka og miðjumannsins Felix Claar sem er þriðji markahæstur í liðinu á mótinu. 24.1.2022 13:01
Pólverjar kvörtuðu til EHF vegna ólöglegs jöfnunarmarks Rússa Pólverjar hafa sent inn formlega kvörtun til Handknattleikssambands Evrópu (EHF) vegna jöfnunarmarks Rússa í leik liðanna í milliriðli II á EM í gær. 24.1.2022 12:30
Brady úr leik | Ein dramatískasta helgi í sögu NFL Átta liða úrslitin í NFL-deildinni um helgina verða lengi í minnum höfð. Þrír leikir réðust á lokasparki leikjanna og einn fór í framlengingu. 24.1.2022 12:00
EM-ævintýrið í Pallborðinu: „Handbolti er og verður þjóðaríþróttin“ Það dettur engum í hug að boða til fundar á milli klukkan 14 og 16 í dag. Ástæðan er einföld. Ísland mætir Króatíu á EM í handbolta klukkan 14:30 og stígur risaskref í átt að undanúrslitum með sigri. 24.1.2022 11:32
Teitur: Alls ekki orðnir saddir Selfyssingurinn Teitur Örn Einarsson hefur nýtt sínar mínútur á EM vel og kemur alltaf inn af miklum krafti. 24.1.2022 11:31
Elvar: Verðum að leggja Frakkaleikinn til hliðar Mosfellingurinn Elvar Ásgeirsson hefur komið inn af krafti í íslenska liðið í síðustu tveimur leikjum og skilað sínu heldur betur. 24.1.2022 10:31
Þurfa að aflétta króatísku bölvuninni Ef að Ísland ætlar að taka stórt skref í átt að undanúrslitum á EM í handbolta í dag þarf liðið að gera nokkuð sem Ísland hefur aldrei gert á stórmóti – vinna Króatíu. 24.1.2022 10:00
Frá Tene til Búdapest Vignir Stefánsson, hornamaður Vals, kom óvænt inn í íslenska liðið fyrir leikinn gegn Frökkum. Fékk að spila og stóð sig vel. 24.1.2022 09:31
Tveir Þjóðverjar til viðbótar smitaðir Enn syrtir í álinn hjá Alfreð Gíslasyni og þýska karlalandsliðinu í handbolta. Tveir leikmenn liðsins greindust með kórónuveiruna í morgun. 24.1.2022 09:28
Björgvin Páll laus úr einangrun Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, má spila gegn Króatíu á EM í dag. Hann er laus úr einangrun sem hann var skikkaður í eftir að hafa greinst með kórónuveirusmit í síðustu viku. 24.1.2022 08:54
Sigur í dag gæti dugað Íslandi í undanúrslit Ísland getur komið sér í dauðafæri á að spila um verðlaun með því að vinna Króatíu á Evrópumótinu í handbolta í dag, klukkan 14.30. Sigur í dag gæti mögulega dugað Íslandi til að komast í undanúrslit og tap yrði ekki dauðadómur. 24.1.2022 08:31
Gætum endurheimt smitaða leikmenn í dag Það hefur ekki alveg verið á hreinu hvernig reglurnar eru varðandi leikmenn sem smitast af Covid á EM. Það er að segja hvenær þeir mega koma til baka. 24.1.2022 08:00
Naumur sigur Warriors þrátt fyrir púðurskot frá svekktum Curry | Tatum með 51 stig Golden State Warriors unnu tveggja stiga sigur á Utah Jazz, 94-92, í stórleik kvöldsins í NBA-deildinni í körfubolta í gær. Jayson Tatum rauf 50 stiga múrinn í sigri Boston Celtics á Washington Wizards. 24.1.2022 07:31
„Þetta er hálfgerður sirkus á köflum“ Ágúst Þór Jóhannsson sá um að stýra æfingu landsliðsins í gær en hún var róleg. Fáir á æfingu og margir fengu að hvíla. 24.1.2022 07:01
„Ekki uppáhalds gæi sem ég hef spilað með“ Björn Kristjánsson, leikmaður KR, var til tals í hlaðvarpinu Undir Körfunni sem kom út núna í morgun. Björn fer um víðan völl í viðtalinu en kemur meðal annars inn á brotthvarf Shawn Glover frá KR en Glover yfirgaf félagið rétt fyrir áramót. 24.1.2022 07:01
Dagskráin í dag: Körfubolti, fótbolti og rafíþróttir Það eru þrjár beinar útsendingar í dag á Stöð 2 Sport. Íslenskur körfubolti, enskur fótbolti og íslenskar rafíþróttir. 24.1.2022 06:01
Karabatic fékk leyfi til að spila gegn Íslandi þrátt fyrir jákvætt covid próf Nikola Karabatic, leikmaður Frakka, spilaði leikinn gegn Íslandi í gær en það var aðeins tveimur dögum eftir að hann greindist jákvæður í kórónaveiru prófi. Það er danska sjónvarpsstöðin TV 2 SPORT sem greinir frá þessu í dag. 23.1.2022 23:14
Barcelona komið aftur á sigurbraut Frenkie De Jong bjargaði Barcelona á elleftu stundu þegar hann skoraði sigurmarkið á 87. mínútu leiksins í 0-1 sigri Barcelona á fallbaráttuliði Deportivo Alaves. 23.1.2022 22:39
Messi mættur aftur á völlinn PSG vann auðveldan 4-0 sigur á Reims í endurkomuleik Lionel Messi í frönsku Ligue 1 deildinni. 23.1.2022 22:09
Markalaust jafntefli í uppgjöri ítölsku risanna Stórliðin Juventus og AC Milan gerðu markalaust jafntefli í því sem átti að vera leikur umferðinnar í ítölsku Serie A deildinni í kvöld. 23.1.2022 21:46
Túnis sendir Nígeríu heim Túnis er komið í 8-liða úrslit Afríkukeppninnar með 1-0 sigri á Nígeríu í kvöld. 23.1.2022 21:28
Noregur sigraði Evrópumeistarana Noregur vann afar öflugan 5 marka sigur á tvöföldum Evrópumeisturum Spánverja í lokaleik kvöldsins í milliriðli tvö, 27-22. 23.1.2022 21:03
Þórir fékk hálftíma á meðan Davíð var ekki í hóp Þórir Jóhann Helgason lék rúman hálftíma í 2-1 sigri Lecce á Cremonese í ítölsku B deildinni í dag. Davíð Snær Jóhansson spilaði ekki. 23.1.2022 20:21
Svíar skrefi nær undanúrslitunum Svíþjóð sigraði vængbrotið lið Þýskalands, 25-21, í öðrum leik dagsins í milliriðli tvö dag. 23.1.2022 19:36
Búrkína Fasó áfram í 8-liða úrslit eftir maraþon vítaspyrnukeppni Búrkína Fasó er fyrsta liðið til að fara áfram í 8-lið úrslit Afríkukeppninnar eftir að liðið sigraði Gabon í 9 umferða vítaspyrnukeppni í kvöld. 23.1.2022 19:14
Titilvonir Chelsea lifa áfram eftir sigur á Tottenham Chelsea vann sanngjarnan 2-0 sigur á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag. 23.1.2022 18:50
Bayern Munich styrkir stöðu sína í efsta sætinu Bayern Munich heldur áfram að hala inn stigum í þýsku Bundesliga en liðið sigraði Hertha Berlin með fjórum mörkum gegn einu í dag. 23.1.2022 18:28
Real Madrid misstígur sig í toppbaráttunni á Spáni Real Madrid gerði 2-2 jafntefli við Elche í spænsku La Liga í dag. Elche var fyrir leikinn í 15. sæti spænsku deildarinnar. 23.1.2022 17:56
Elvar Már stigahæstur í sigri Antwerp Giants Elvar Már Friðriksson var stigahæsti leikmaður vallarins í 90-89 sigri Antwerp Giants á Mechelen Kangoeroes í átta liða úrslitum belgíska bikarsins í dag. 23.1.2022 17:33
Sverrir Ingi skoraði í þægilegum sigri PAOK Sverrir Ingi Ingason og félagar í gríska liðinu PAOK unnu lið Volos 0-4 í grísku úrvalsdeildinni í dag. Sverrir spilaði allan leikinn, hélt marki sínu hreinu og var á meðal markaskorara. 23.1.2022 17:32
Dagný skoraði í sigri West Ham Dagný Brynjarsdóttir skoraði annað mark West Ham í 2-0 sigri liðsins gegn Everton er liðin mættust í ensku Ofurdeildinn í fótbolta í dag. 23.1.2022 16:56
Arteta: Okkur skorti gæði Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, var svekktur með markalaust jafntefli sinna manna gegn Burnley í dag. Hann segir að leikmenn liðsins hafa virkað þreyttir og að liðinu hafi skort gæði á seinasta þriðjungi vallarins. 23.1.2022 16:32
Pólverjar sóttu sitt fyrsta stig Pólverjar og Rússar skiptu stigunum á milli sín er liðin mættust á EM í handbolta í dag. Loktölur urðu 29-29, en úrslitin þýða það að möguleikar Rússa á að fara upp úr milliriðli eru nánast orðnir að engu. 23.1.2022 16:17
Burnley sótti stig gegn Arsenal Arsenal og Burnley gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust á Emirates vellinum í London í dag. 23.1.2022 16:03
Welbeck bjargaði stigi fyrir Brighton Danny Welbeck sá til þess að Leicester og Brighton skiptu stigunum á milli sín þegar hann jafnaði metin í 1-1 á lokamínútum leiksins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 23.1.2022 15:54
Liverpool nálgast toppliðið Liverpool vann mikilvægan 3-1 sigur er liðið heimsótti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Sigurinn var ekki síst mikilvægur þar sem topplið Manchester City tapaði stigum í gær. 23.1.2022 15:54
Viggó skoraði fallegasta mark gærdagsins Í gær fóru fram þrír leiki á Evrópumótinu í handbolta og í þeim voru skoruð samtals 166 mörk. Viggó Kristjánsson, hægri skytta íslenska landsliðsins, skoraði þó það fallegasta af þeim öllum. 23.1.2022 15:31
María lék allan leikinn í öruggum sigri United María Þórisdóttir lék allan leikinn í hjarta varnarinnar er Manchester United vann öruggan 3-0 heimasigur gegn Tottenham Hotspur í ensku Ofurdeildinni í dag. 23.1.2022 13:54
EM-hlaðvarp Seinni bylgjunnar: Mikilvægt að vinna Frakka með svona miklum mun Stefán Árni Pálsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson fóru yfir ótrúlegan sigur á Frökkum í milliriðlinum á EM í Ungverjalandi í EM-hlaðvarpi Seinni bylgjunnar í dag. Strákarnir hringdu í fyrrverandi landsliðsmanninn Arnór Atlason sem fór yfir hversu mikilvægt það var að vinna leikinn svona stórt. 23.1.2022 13:21