Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Við getum keppt við Chelsea Arsene Wenger hefur gefið það út að Arsenal-liðið geti veitt Chelsea harða keppni í vetur, en bendir á að meiðsli hafi sett strik í reikninginn í byrjun tímabils. 27.10.2005 16:00
Hugurinn liggur frá Highbury Bresk blöð greina frá því í dag að framherjinn Thierry Henry hafi viðurkennt fyrir vinum sínum að ef hann ætti að gera upp hug sinn í dag, myndi hann fara frá Arsenal. Hann hefur engu að síður sagt að hann muni ekki taka ákvörðun fyrr en næsta sumar. 27.10.2005 15:12
Magloire til Milwaukee Bucks Milwaukee Bucks var duglegt á leikmannamarkaði NBA í sumar og fékk meðal annars fyrsta valréttinn í nýliðavalinu. Í gærkvöldi nældi félagið svo í enn einn leikmanninn þegar það fékk til sín miðherjann Jamaal Magloire frá New Orleans, í skiptum fyrir framherjann Desmond Mason og valrétt í nýliðavalinu á næsta ári. 27.10.2005 12:15
Annað tap Real Madrid í röð Stjörnum prýtt lið Real Madrid steinlá fyrir Deportivo 3-1 í spænska boltanum í gærkvöldi og tapaði þar með öðrum leik sínum í röð í deildinni. Barcelona sigraði Malaga 2-0 með mörkum frá Ronaldinho og Larsson. 27.10.2005 11:00
Sigur Charlton var heppni og ekkert annað Jose Mourinho sagðist ekki geta kvartað yfir frammistöðu sinna manna í tapinu fyrir Charlton í gærkvöldi og sagði að heppnin hefði einfaldlega verið á bandi mótherjanna í það skiptið. 27.10.2005 08:00
Hrakaði mikið í gær og er í lífshættu Heilsu knattspyrnugoðsagnarinnar George Best hrakaði skyndilega mikið í gær og er hann að sögn fyrrum eiginkonu hans í lífshættu vegna innri blæðinga, sem læknar hafa enn ekki komist fyrir. Best hefur verið á spítala í nokkurn tíma, en um helgina var ekki annað að segja af Best en að hann væri á fínum batavegi. 27.10.2005 07:00
Juventus setti met Juventus hefur enn fimm stiga forystu á toppi ítölsku A-deildarinnar eftir 2-0 sigur á Sampdoria í gærkvöldi, sem var jafnframt níundi sigurleikur liðsins í röð í upphafi leiktíðar, sem er nýtt met í A-deildinni. 27.10.2005 06:00
Henry tæpur gegn Tottenham Nárameiðsli Thierry Henry hjá Arsenal hafa nú tekið sig upp að nýju og að sögn knattspyrnustjórans Arsene Wenger eru ekki nema 30% líkur á að hann geti verið með í grannaslagnum við Tottenham á morgun. 27.10.2005 06:00
Charlton lagði Chelsea í vítakeppni Hermann Hreiðarsson og félagar í Charlton gerðu sér lítið fyrir og slógu handhafa enska deildarbikarsins úr keppni í kvöld, þegar þeir lögðu Eið Smára og félaga í Chelsea í vítaspyrnukeppni á Stamford Bridge. Eiður og Hermann léku allan leikinn og skoruðu báðir af fádæma öryggi úr spyrnum sínum í vítakeppninni. 26.10.2005 21:30
Jafnt hjá Chelsea og Charlton Nú er kominn hálfleikur í flestum leikjunum í enska deildarbikarnum. Staðan í leik Chelsea og Charlton er 1-1, þar sem John Terry og Darren Bent skoruðu undir lok hálfleiksins. Eiður Smári er í byrjunarliði Chelsea í kvöld. 26.10.2005 19:30
Chelsea-Charlton í beinni á Sýn Nokkrir leikir verða á dagskrá í enska deildarbikarnum í kvöld og leikur Lundúnaliðanna Chelsea og Charlton verður í beinni útsendingu á Sýn nú klukkan 18:35. Þar á eftir verður á dagskrá leikur Real Madrid og Deportivo í spænska boltanum. 26.10.2005 18:15
Lárus Orri tekur við þjálfun Þórs Fyrrum atvinnumaðurinn Lárus Orri Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari fyrstu deildarliðs Þórs á Akureyri. Lárus hefur leikið með liðinu síðan hann sneri aftur heim úr atvinnumennsku og mun nú verða spilandi þjálfari liðsins. Samningurinn er til þriggja ára, en frá þessu er greint á heimasíðu félagsins í dag. 26.10.2005 18:00
Keflvíkingar töpuðu í Finnlandi Íslandsmeistarar Keflavíkur biðu lægri hlut fyrir finnska liðinu Lappeenranta í fyrsta leik sínum í Evrópukeppninni í dag, 92-77, eftir að hafa verið 17 stigum undir í hálfleik. 26.10.2005 17:45
Bjarni aðstoðar Eyjólf Bjarni Jóhannsson, þjálfari Blika í Landsbankadeildinni, mun verða aðstoðarmaður félaga síns Eyjólfs Sverrissonar hjá íslenska landsliðinu. Þetta var tilkynnt í dag og kemur kannski ekki mikið á óvart, því þeir félagar hafa starfað saman áður. 26.10.2005 17:30
Pardew skrifar undir nýjan samning Bresk blöð greina frá því í dag að Alan Pardew, stjóri West Ham, sé búinn að undirrita nýjan samning við félagið sem gildi til ársins 2010. 26.10.2005 16:30
Kýldi í vegg og handarbrotnaði Glen Johnson hjá Chelsea kýldi í vegg á heimili sínu og handarbrotnaði, samkvæmt fréttum í breskum blöðum í dag. Johnson hefur ekki verið í náðinni hjá Jose Mourinho knattspyrnustjóra liðsins og hefur átt í vandræðum með aga, bæði hjá Chelsea og enska landsliðinu. 26.10.2005 15:30
Getum ekki keppt við Chelsea Alex Ferguson segir að Manchester United eigi ekki möguleika á að keppa við Chelsea á leikmannamarkaðnum, því liðið hafi ótakmarkað fé og geti því fengið til sín hvaða leikmenn sem er, en Ferguson er þó með ákveðnar hugmyndir um hvernig á að byggja upp gott knattspyrnulið. 26.10.2005 14:00
Rómverjar sektaðir Knattspyrnulið Roma hefur verið sektað um 25.000 evrur eftir að stuðningsmenn liðsins köstuðu smápeningi í höfuðið á dómaranum í grannaslag Roma og Lazio um helgina. Því miður eru atburðir sem þessi tíðir á Ólympíuleikvanginum í Róm, en stuðningsmenn liðanna beggja eru þekktir fyrir að vera ansi heitir. 26.10.2005 11:00
Frankfurt burstaði Schalke Þýska úrvalsdeildarliðið Frankfurt er heldur betur í stuði þessa dagana, því eftir að hafa unnið Cologne 6-3 um helgina, burstaði Frankfurt lið Schalke í gærkvöldi 6-0. Schalke komst alla leið í úrslitin í fyrra, en voru niðurlægðir í gærkvöldi. 26.10.2005 09:00
Ánægður þrátt fyrir tapið Rafa Benitez var ánægður með leik sinna manna í Liverpool í gærkvöldi, þrátt fyrir að þeir létu 1. deildarlið Crystal Palace slá sig út úr deildarbikarnum. 26.10.2005 06:30
Heiðar og félagar úr leik Heiðar Helguson og félagar í Fulham biðu lægri hlut fyrir West Brom í framlengdum leik 3-2 í enska deildarbikarnum í kvöld og Wigan skoraði þrjú mörk í framlengingu gegn Watford og tryggði sér farseðilinn í 16-liða úrslitin. 25.10.2005 21:30
Liverpool úr leik, Heiðar skoraði Crystal Palace sló Evrópumeistara Liverpool út úr deildarbikarnum í kvöld og fullkomnaði slæma viku fyrir Rafael Benitez og hans mönnum. Dougie Freedman kom Palace yfir í leiknum, en Steven Gerrard jafnaði skömmu síðar. Það var svo Marco Reich sem gerði út um leikinn í síðari hálfleik og skaut Palace í 16-liða úrslitin. 25.10.2005 20:45
Jafnt í hálfleik hjá Palace og Liverpool Nú er hálfleikur í enska deildarbikarnum, en þar er fjöldi leikja á dagskrá í kvöld. Í sjónvarpsleiknum á Sýn er staðan hjá Crystal Palace og Liverpool jöfn 1-1. Dougie Freedman kom Palace yfir í leiknum, en Steven Gerrard jafnaði skömmu síðar. 25.10.2005 19:30
Gerði þriggja ára samning Eins og fram kom í Fréttablaðinu í morgun hefur Ásgeir Elíasson samþykkt að taka við þjálfun 1. deildar liðs Fram og hefur nú undirritað þriggja ára samning við sitt gamla félag, sem náði góðum árangri undir stjórn Ásgeirs á sínum tíma. 25.10.2005 18:15
Neitar ákæru knattspyrnusambandsins David O´Leary hefur neitað að gangast við ákæru enska knattspyrnusambandsins sem lagðar voru á hendur honum eftir leik Aston Villa og Birmingham á dögunum, þar sem O´Leary var sakaður um ósæmilega hegðun. 25.10.2005 18:00
Gleymum Chelsea Gary Neville hjá Manchester United hefur sagt samherjum sínum að gleyma því að reyna að ná Chelsea í toppslagnum í úrvalsdeildinni og einbeita sér frekar í að hinum liðunum þremur sem eru fyrir ofan United í dag. 25.10.2005 17:00
Spjald Beckham dregið til baka David Beckham verður klár í slaginn með Real Madrid í spænska boltanum annað kvöld eftir að rauða spjaldið sem hann fékk gegn Valencia um helgina var dregið til baka nú rétt áðan. 25.10.2005 16:30
Gerrard væntanlega með Liverpool Níu leikir verða á dagskrá í enska deildarbikarnum í kvöld og verður leikur Crystal Palace og Liverpool sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Gert er ráð fyrir að Steven Gerrard verði í leikmannahópi Liverpool í kvöld. 25.10.2005 16:00
Enn meiðist Louis Saha Endurkomu framherjans Louis Saha hjá Manchester United hefur enn eina ferðina seinkað, eftir að í ljós kom að hann er meiddur á læri. Saha hefur verið meira og minna meiddur síðan hann kom til liðsins í janúar á síðasta ári. 25.10.2005 15:00
Gæti þurft í aðgerð fljótlega Alan Shearer, fyrirliði Newcastle gæti þurft í aðgerð vegna kviðslits fljótlega, en meiðsli tengd því hafa verið að hrjá hann undanfarið. 25.10.2005 14:00
Félagar Beckham hissa á rauða spjaldinu Pablo Garcia hjá Real Madrid sagðist mjög hissa á dómaranum að reka David Beckham af leikvelli fyrir litlar sakir í tapleiknum gegn Valencia á sunnudagskvöldið. 25.10.2005 10:00
Flautukarfa Payton tryggði Miami sigur Fjórir æfingaleikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt og þar bar hæst að Gary Payton tryggði Miami Heat eins stigs sigur á Atlanta Hawks með körfu á síðustu sekúndu leiksins. 25.10.2005 05:47
ÍS lagði Breiðablik Einn leikur fór fram í kvennakörfunni í gærkvöldi. ÍS lagði Breiðablik með 68 stigum gegn 59. Jessalyn Deveny fór hamförum í liði Breiðabliks og skoraði 40 stig og hirti 13 fráköst. 25.10.2005 05:16
Fulham er ekki til sölu Chris Coleman, knattspyrnustjóri Fulham, segir að ekkert sé til í sögusögnum þess efnis að Mohamed al Fayed hafi rætt við annan auðjöfur um helgina með það fyrir augum að selja félagið. 24.10.2005 19:04
Róttækar breytingar á tímatökum Alþjóða bílasambandið samþykkti í gær að gera róttækar breytingar á tímatökum fyrir keppnir á næsta ári, þar sem keppt verður með útsláttarfyrirkomulagi. Nokkur lið eru vera mikið á móti þessum breytingum, sem eru gerðar með það fyrir augum að auka spennu og sjónvarpsáhorf. 24.10.2005 17:01
Önnur kæra lögð fram á Val Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ hefur staðfest að sambandinu hafi borist kæra frá forráðamönnum Víkings á hendur Knattspyrnufélaginu Val fyrir að eiga ólöglegar viðræður við tvo af leikmönnum félagsins. 24.10.2005 16:46
Þurfum að breyta hugarfarinu Knattspyrnustjóri Liverpool gaf leikmönnum sínum litla hvíld eftir tapið gegn Fulham um helgina og skipaði þeim á erfiða æfingu innan við sólarhring eftir leikinn. Hann segir að þeir þurfi að temja sér ný viðhorf ef þeir ætli sér að ná árangri og ætlar að tefla fram nánast sama liði gegn Crystal Palace annað kvöld til að reyna að slípa leik liðsins betur saman. 24.10.2005 15:22
Steve Bruce hefur fullan stuðning David Gold, stjórnarformaður Birmingham, segir að þrátt fyrir slakt gengi liðsins í undanförnum leikjum, sé staða Steve Bruce örugg hjá félaginu og segist ennfremur ekki geta hugsað sér betri mann til að koma liðinu aftur á beinu brautina. 24.10.2005 12:23
Dómarar fylgjandi nýrri tækni Dómarar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eru sagðir á einu máli um að taka í gagnið nýja tækni til að úrskurða um hvort boltinn fer yfir marklínu, eftir að enn eitt vafaatvikið leit dagsins ljós í leikjum helgarinnar. 24.10.2005 12:04
Mark Gunnars Heiðars eitt af þeim bestu Á vefsíðu sænska blaðsins Aftonbladet geta lesendur nú tekið þátt í að kjósa mark ársins í sænska boltanum og þar er mark Gunnars Heiðars Þorvaldssonar gegn Djurgarden þann 3. október sl. eitt af þeim tíu mörkum sem tilnefnd eru. Mark Gunnars var sérlega glæsilegt og því er um að gera fyrir áhugasama að gefa honum sitt atkvæði á síðunni, þar sem einnig er hægt að sjá myndband af markinu. 24.10.2005 11:24
Ekki hrifin af uppátækjum Beckham Íþróttasíður bresku blaðanna eru yfirfullar af myndum af David Beckham í dag, eftir að hann lét reka sig af leikvelli fyrir fíflagang í leik Real Madrid og Valencia í spænska boltanum í gærkvöldi og dálkahöfundar spyrja sig hvort Beckham sé í raun fyrirliðaefni enska landsliðsins eftir svona framkomu. 24.10.2005 11:05
Hearts hefur áhuga á Robson Yfirmaður skoska úrvalsdeildarfélagsins Hearts, sem er í efsta sæti deildarinnar, hefur viðurkennt að félagið hafi áhuga á að ráða Sir Bobby Robson sem næsta knattspyrnustjóra félagsins, en sá gamli hafði áður látið í veðri vaka að hann hefði áhuga á starfinu. 24.10.2005 10:17
Rétt að dæma Eið rangstæðan David Moyes, stjóri Everton, var ánægður með stigið gegn Chelsea í gær og vonar að það verði til þess að hleypa lífi í sína menn. Hann segir ákvörðun dómarans að dæma mark Didier Drogba af vegna rangstöðu hafa verið hárrétta. 24.10.2005 00:01
Allt eftir bókinni 16-liða úrslitunum í Hópbílabikar karla í körfubolta lauk í kvöld með átta leikjum og segja má að úrslitin hafi verið eftir bókinni í flestum tilfellum. 23.10.2005 22:33
Tveir leikir í kvöld Þór bar sigurorð af Víkingi/Fjölni á Akureyri í DHL deild karla í kvöld 31-26. Þá sigruðu Haukastúlkur Gróttu á Ásvöllum í hörkuleik 23-22 og lyftu sér í annað sæti deildarinnar. 23.10.2005 22:05
Sjáðu langt viðtal við Óskar eftir 6-1 tap: „Nauðsynlegt fyrir íslenskan fótbolta að KR verkefnið sé til“ Sport