Sport

Flautukarfa Payton tryggði Miami sigur

Dwayne Wade var stigahæstur hjá Miami í nótt með 21 stig
Dwayne Wade var stigahæstur hjá Miami í nótt með 21 stig

Fjórir æfingaleikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt og þar bar hæst að Gary Payton tryggði Miami Heat eins stigs sigur á Atlanta Hawks með körfu á síðustu sekúndu leiksins.

Miami hafði sigur 84-83, en það var Dwayne Wade sem var atkvæðamestur í liði Miami með 21 stig, en Donta Smith og Al Harrington skoruðu 19 stig hvor fyrir Atlanta. Shaquille O´Neal lék ekki með Miami vegna meiðsla.

Portland lagði Toronto 105-98 og Orlando lagði Memphis 67-65, þar sem Pat Garrity skoraði sigurkörfu Orlando um leið og lokaflautið gall. Loks rúlluðu LA Clippers yfir Golden State, 112-82.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×