Sport

ÍS lagði Breiðablik

Einn leikur fór fram í kvennakörfunni í gærkvöldi. ÍS lagði Breiðablik með 68 stigum gegn 59. Jessalyn Deveny fór hamförum í liði Breiðabliks og skoraði 40 stig og hirti 13 fráköst.

Deveny skoraði því rúma 2/3 hluta stiga ÍS í leiknum, en fékk litla hjálp frá félögum sínum. Hjá ÍS var Signý Hermannsdóttir atkvæðamest með 20 stig og 10 fráköst og Hafdís Helgadóttir skoraði 14 stig og hirti einnig 10 fráköst. Stella Kristjánsdóttir skoraði einnig 14 stig fyrir Stúdínur í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×