Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
West Ham lagði Middlesbrough West Ham sigraði Middlesbrough 2-1 í ensku úrvalsdeildinni nú áðan og Bolton sigraði West Brom 2-0, en öll mörkin í leikjunum tveimur komu í síðari hálfleik. Chelsea var rétt í þessu að jafna leikinn gegn Everton, eftir að hafa lent undir 1-0. 23.10.2005 16:00
Blackburn lagði Birmingham Blackburn Rovers bar sigurorð af Birmingham 2-0 í fyrsta leiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Paul Dickov skoraði fyrra markið úr vítaspyrnu og Craig Bellamy innsiglaði sigur heimamanna, en bæði mörkin komu í síðari hálfleik. Birmingham er nú komið í bullandi fallbaráttu og hefur aðeins fengið 6 stig í fyrstu 10 leikjum sínum. 22.10.2005 14:15
Burley farinn frá Hearts Knattspyrnustjórinn George Burley hefur hætt störfum hjá úrvalsdeildarliðinu Hearts í Skotlandi, eftir að hafa verið í starfi í aðeins fjóra mánuði. Talið er að ástæðan sé ágreiningur milli hans og eigandans Vladimir Romanov, sem keypti félagið í febrúar. 22.10.2005 00:01
Lítið skorað á Englandi Aðeins þrjú mörk eru komin í hálfleik í leikjunum fjórum sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni. Manchester United hefur yfir 1-0 gegn Tottenham, þar sem Mikael Silvestre skoraði eftir mistök Paul Robinson í marki Tottenham. 22.10.2005 00:01
Fulham vann Liverpool Leikjunum fjórum sem hófust klukkan 14 í enska boltanum er lokið. Þar ber hæst sigur Fulham á Liverpool, en mörk frá Collins John á 30. mínútu og Luis Boa Morte á þeirri 90. tryggðu Fulham góðan sigur á Evrópumeisturunum, sem hafa ekki riðið feitum hesti í úrvalsdeildinni í haust. 22.10.2005 00:01
Björgólfur á leið í KR Framherjinn Björgólfur Takefusa, sem leikið hefur með Fylki, er á leið í herbúðir KR og mun skrifa undir samning við félagið á næstu dögum. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Björgólfur gerði samkomulag við Fylki um að leika með liðinu í þrjú ár fyrir tveimur árum, en sagt er að hann hafi komist að samkomulagi um að fara til KR. 22.10.2005 00:01
Bayern á toppinn í Þýskalandi Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen skutust í toppsæti úrvalsdeildarinnar í dag þegar þeir tóku Duisburg í kennslustund 4-0 á heimavelli sínum. Michael Ballack, Ze Roberto, Claudio Pizarro og Roque Santa Cruz skoruðu mörk Bayern í leiknum. 22.10.2005 00:01
Pires var klaufi Robert Pires kann að hafa skorað sigurmark Arsenal gegn Manchester City í dag, en hann fór engu að síður mjög illa að ráði sínu í tvígang í leiknum. Í byrjun leiks lagði Thierry Henry upp sannkallað dauðafæri fyrir hann, en Pires tókst á óskiljanlegan hátt að skjóta boltanum yfir markið. En þar með var ekki öll sagan sögð. 22.10.2005 00:01
Wenger rólegur yfir klúðri Pires Arsene Wenger, stjóri Arsenal, sagðist í viðtali við BBC ekki hafa verið hrifinn af tilþrifum Robert Pires í dag, þegar hann klúðraði vítaspyrnu gegn Manchester City. Wenger á afmæli í dag og sagðist gjarnan hafa viljað eitthvað annað í afmælisgjöf en þetta. 22.10.2005 00:01
Haukar töpuðu fyrir Gorenje Haukar töpuðu fyrir slóvenska liðinu Gorenje Valenje 33-28 í Meistaradeild Evrópu á Ásvöllum í dag, eftir að hafa verið undir 20-11 í hálfleik. Árni Þór Sigtryggsson var markahæstur Haukanna með 8 mörk. Þetta var síðasti heimaleikur Hauka í riðlinum, en næsti leikur þeirra er gegn Arhus. 22.10.2005 00:01
Charlton í annað sætið Hermann Hreiðarsson og félagar í Charlton lyftu sér í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar áðan, þegar þeir báru sigurorð af lánlausu liði Portsmouth á útivelli, 2-1. 22.10.2005 00:01
Fjórir leikir í DHL-deild kvenna Fjórir leikir voru á dagskrá í DHL-deild kvenna í handknattleik í dag. Stjörnustúlkur eru í efsta sæti deildarinnar með 9 stig eftir fimm leiki, en þær báru sigurorð af Fram í dag 24-22. 22.10.2005 00:01
Valur vann nauman sigur Valsmenn unnu nauman sigur á Aftureldingu í DHL-deild karla í handknattleik í dag 27-26 og hleyptu spennu í leik sem þeir höfðu í hendi sér þangað til á lokamínútunum. Baldvin Þorsteinsson skoraði 8 mörk fyrir Val, en Einar Ingi Hrafnsson skoraði 10 mörk fyrir Mosfellinga. 22.10.2005 00:01
Þrír leikir í kvennakörfunni Þrír leikir voru á dagskrá í 1. deild kvenna í körfuknattleik í dag. Keflavíkurstúlkur héldu uppteknum hætti og völtuðu yfir Breiðablik 106-50 á útivelli. Haukar sigruðu KR 82-34 og Grindavíkurstúlkur lögðu ÍS í hörkuleik í Grindavík, 75-67. Keflavík og Grindavík eru því bæði með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir. 22.10.2005 00:01
Woods í vandræðum á heimavelli Tiger Woods náði sér ekki á strik á Funai mótinu í Orlando í dag og komst ekki í gegn um niðurskurðinn frekar en Vijay Singh og því þurftu þeir félagar að sætta sig við það að falla úr keppni á mótinu. Þetta var aðeins í fjórða sinn á ferlinum sem Woods kemst ekki í gegn um niðurskurð. 22.10.2005 00:01
Loeb í öruggri forystu Heimsmeistarinn Sebastien Loeb á Citroen hefur örugga forystu í Korsíkurallinu sem fram fer um helgina og hefur unnið allar fyrstu átta sérleiðirnar, fjórar í gær og fjórar í dag. Sigur Loeb virðist því óumflýjanlegur ef ekkert kemur fyrir bíl hans á lokadeginum á morgun, en hann hefur níutíu sekúndna forskot á næsta mann. 22.10.2005 00:01
100 ára veldi Abramovich Roman Abramovich, eigandi Chelsea segist ætla að byggja félagið upp svo það megi verða stórveldi í heimsknattspyrnunni næstu 100 árin og segir að sig hafi aldrei órað fyrir hvað væri gaman að byggja upp knattspyrnulið á Englandi. 21.10.2005 00:01
Svindlaði Björgólfur á kerfinu? Björgólfur Takefusa leikmaður Fylkis hefur leikið með félaginu undanfarin 2 ár, samningslaus hvað KSÍ varðar. Björgólfur sem kom frá Þrótti á sínum tíma skrifaði undir 3 ára samning við Árbæjarliðið sem hins vegar skilaði samningnum aldrei inn til KSÍ eins og reglur kveða á um. Öðrum félögum er því heimilt að tala beint við leikmanninn. 21.10.2005 00:01
Ronaldo verður með um helgina Cristiano Ronaldo, leikmaður Manchester United verður í liðinu um helgina, þrátt fyrir að hafa verið kærður fyrir nauðgun. Þetta staðfesti Sir Alex Ferguson í dag. "Cristiano mætti á æfingu í gær og ég held að verði allt í lagi með hann þó þetta séu erfiðir tímar fyrir hann," sagði Ferguson, en United mætir Tottenham um helgina. 21.10.2005 00:01
Richardson semur við United Kieran Richardson hélt upp á 21 árs afmæli sitt með því að skrifa undir nýjan samning við Manchester United og því er ljóst að hann verður hjá félaginu til ársins 2009. 21.10.2005 00:01
Sex æfingaleikir í NBA í nótt Sex æfingaleikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt og þar á meðal var leikur LA Lakers og Denver Nuggets, sem sýndur var beint á NBA TV á Digital Ísland. Leikurinn var hin besta skemmtun, en það voru gestirnir frá Denver sem voru sterkari og sigruðu 105-94. Þá háðu Allen Iverson og LeBron James mikið einvígi í nótt. 21.10.2005 00:01
Faldo hannar golfvöll á Íslandi Golfleikarinn frægi Nick Faldo er staddur hér á landi um þessar mundir í þeim tilgangi að hanna golfvöll í grennd við Þorlákshöfn. Sérstakt hlutafélag hefur verið stofnað um uppbyggingu vallarins, sem talið er að muni kosta um 800 milljónir króna. Stefnt er að því að völlurinn verði keppnishæfur fyrir alþjóðleg mót. 21.10.2005 00:01
Marel samdi við Blika Knattspyrnumaðurinn Marel Baldvinsson hefur gert þriggja ára samning við sitt gamla félag Breiðablik í Landsbankadeildinni. Marel hefur verið í atvinnumennsku síðustu ár, en hefur verið óheppinn með meiðsli og hefur nú ákveðið að snúa aftur heim til Íslands. 21.10.2005 00:01
Bað um að dómur sinn yrði þyngdur Menn ganga misjafnlega langt til að hylla íþróttastjörnur sem þeir hafa í uppáhaldi. Sennilega hafa fáir gengið jafn langt og Eric James Torpy sem var fundinn sekur um morð. 21.10.2005 00:01
A1 í opinni dagskrá um helgina Heimsbikarinn í kappakstri, A1, verður sýndur í opinni dagskrá á Sýn um helgina, þegar keppt verður í Portúgal. Þetta er þriðja keppnin á tímabilinu og útsendingar verða frá mótinu á laugardag klukkan 12:55 og á sunnudag hefst útsending klukkan 11:55. 21.10.2005 00:01
Davids tók Milan fram yfir United Edgar Davids hjá Tottenham Hotspur hefur viðurkennt að litlu hafi munað að hann gengi í raðir Manchester United árið 1996, en hann kaus þess í stað að fara til AC Milan á Ítalíu frá liðinu sem hann lék með þá, Ajax í Amsterdam. 21.10.2005 00:01
Henry segir Arsenal vanta menn Thierry Henry, framherji Arsenal, segir að liðið vanti fleiri leikmenn og þá sérstaklega einhvern til að fylla skarð Patrick Vieira, ef það á að ná einhverjum árangri í vetur. Þær raddir gerast nú æ háværari að hann sé á förum frá Arsenal vegna óánægju með leikmannamál. 21.10.2005 00:01
Carroll klaufalegur Markvörðurinn Roy Carroll hjá West Ham verður líklega ekki á milli stanganna hjá liði sínu um helgina eftir að hafa meitt sig á hné á æfingu í dag. Meiðslin eru í hæsta máta neyðarleg, því markvörðurinn flæktist í marknetinu þegar hann var að safna saman boltum eftir æfinguna. 21.10.2005 00:01
Enn ein meiðslin hjá Villa Wilfred Bouma, varnarmaður Aston Villa er meiddur á læri og verður frá í nokkrar vikur og eykur með því enn á meiðslavandann hjá mönnum David O´Leary, sem þegar hefur misst þá Jlloyd Samuel, Martin Laursen og Gary Cahill í erfið meiðsli. 21.10.2005 00:01
Fyrsta tap Fram staðreynd KA sigraði Fram í DHL-deild karla í handknattleik á Akureyri í kvöld, 23-21, en þetta var fyrsta tap Fram í deildinni í vetur. Þá vann ÍR auðveldan sigur á HK í Austurbergi 27-29. 21.10.2005 00:01
Auðvelt hjá Njarðvík og Fjölni Njarðvíkingar unnu sannfærandi sigur á Hetti í Hópbílabikarnum í körfubolta á Egilsstöðum í gærkvöldi 107-77 og Fjölnir gerði góða ferð á Ísafjörð og lagði KFÍ 90-61. 21.10.2005 00:01
Jordan viðurkennir mistök Körfuboltagoðsögnin Michael Jordan viðurkennir í viðtali við þáttinn "60 Minutes" á CBS sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum, að hann hafi gengið of langt í fjárhættuspilum á tíunda áratugnum, en segir að hann hafi náð að hætta að spila þegar honum þótti hann fara yfir strikið. 20.10.2005 00:01
Skrifar undir hjá Grindavík Sigurður Jónsson skrifaði undir þriggja ára samning í hádeginu um að þjálfa meistaraflokk Grindavíkur í knattspyrnu. Sigurður þjálfaði Víking í þrjú ár og þar áður FH í eitt ár. Milan Stefán Jankovic lætur af störfum en verður aðstoðarþjálfari Sigurðar og þjálfari 2. flokks félagsins. 20.10.2005 00:01
Fjöldi liða skoðar Gunnar í kvöld Útsendarar liða frá Englandi og Þýskalandi munu í kvöld fylgjast með Gunnari Heiðari Þorvaldssyni, markahæsta leikmanni sænsku deildarinnar, þegar lið hans Halmstad mætir Hertha Berlin í Evrópukeppninni. Birmingham og Everton eru á meðal áhugasamra liða samkvæmt fréttavef BBC. 20.10.2005 00:01
Ásgeir og Þorvaldur líklegastir Ásgeir Elíasson og Þorvaldur Örlyggsson eru helst inn í myndinni um þjálfarastöðuna hjá fyrstu deildar liði Fram en þó koma nokkrir aðrir þjálfarar til greina. Þetta sagði Brynjar Jóhannesson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Fram, í samtali við Bylgjuna í morgun. 20.10.2005 00:01
Ásakanirnar ósannar og ímyndun Umboðsmaður Christianos Ronaldo hjá Manchester United, Jorge Mendes, segir ásakanir gegn honum vegna gruns um að hafa nauðgað ungri konu á hótelherbergi í London 2. október síðastliðinn algerlega ósannar, ímyndun og hugarburður. 20.10.2005 00:01
Jol í vandræðum með Keane Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, viðurkennir fúslega að það sé óréttlátt að maður eins og Robbie Keane skuli þurfa að sitja á varamannabekk liðsins leik eftir leik, en segir að í sínum augum sé hann hluti af byrjunarliði sínu. 20.10.2005 00:01
Woodgate þakkaði sjúkraþjálfaranum Varnarmaðurinn Jonathan Woodgate fagnaði marki sínu fyrir Real Madrid í Meistaradeildinni í gær með því að stökkva í fangið á sjúkraþjálfaranum sínum sem stóð á hliðarlínunni og segir að hann sé maðurinn á bak við endurkomu sína úr meiðslum. 20.10.2005 00:01
Guðjón Valur með sjö mörk Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sjö mörk og Róbert Gunnarsson fimm þegar lið þeirra Gummersbach lagði Hamburg að velli, 31-27, í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöld. Guðjón Valur er því enn markahæstur í deildinni. 20.10.2005 00:01
Fyrsta Evrópuleikur kvennaliðs Haukar leika í kvöld fyrsta leik íslensks kvennaliðs í Evrópukeppni í körfubolta en bikarmeistararnir taka á móti spænska liðinu Caja Canarias. Þetta verður fyrsti leikur Hauka af sex í riðlinum en auk þess leika Haukar gegn ítölsku og frönsku liði. 20.10.2005 00:01
Laporta ætlar að ná í Henry Joan Laporta, forseti Barcelona, er sagður ætla að tryggja sér áframhaldandi setu í embætti með því að ná að lokka Thierry Henry til félagsins frá Arsenal, ef marka má frétt frá The Daily Star. Sú staðreynd að Henry hefur neitað að ræða nýjan samning við Arsenal, hefur nú ýtt frekar undir sögusagnir um að hann sé á förum frá félaginu. 20.10.2005 00:01
Torres orðaður við Arsenal Breska dagblaðið Daily Mirror greinir frá því í dag að Arsenal sé á höttunum eftir spænska landsliðsmanninum Fernando Torres hjá Atletico Madrid, en talið er að hann myndi kosta enska liðið um 15 milljónir punda. 20.10.2005 00:01
Fjöldi leikja í UEFA bikarnum Margir leikir verða á dagskrá í riðlakeppni Evrópukeppni félagsliða í kvöld og nokkrir eru þegar hafnir. Kristinn Jakobsson dæmir leik CSKA Moskvu og Marseille, sem er nýhafinn og er í beinni útsendingu á Eurosport. Þá eru Gunnar Heiðar Þorvaldsson og félagar í eldlínunni, sem og nokkur ensk lið. 20.10.2005 00:01
Halmstad tapaði fyrir Hertha Gunnar Heiðar Þorvaldsson og félagar í sænska liðinu Halmstad, töpuðu 1-0 fyrir þýska liðinu Hertha Berlin í C-riðli Evrópukeppni félagsliða nú áðan. Það var Neuendorf sem skoraði mark þýska liðsins á 67. mínútu. Síðar í kvöld mætast Steua Búkarest og Lens í þessum sama riðli. 20.10.2005 00:01
Cudicini vill framlengja Ítalski markvörðurinn Carlo Cudicini segist vilja framlengja samning sinn við Chelsea til ársins 2009, jafnvel þó hann hafi vermt varamannabekk liðsins allt frá því Petr Cech kom til Chelsea á sínum tíma. 20.10.2005 00:01
Sjáðu langt viðtal við Óskar eftir 6-1 tap: „Nauðsynlegt fyrir íslenskan fótbolta að KR verkefnið sé til“ Sport