Sport

Félagar Beckham hissa á rauða spjaldinu

NordicPhotos/GettyImages

Pablo Garcia hjá Real Madrid sagðist mjög hissa á dómaranum að reka David Beckham af leikvelli fyrir litlar sakir í tapleiknum gegn Valencia á sunnudagskvöldið.

"Mér þótti þetta afar skrítinn dómur, því stundum eru menn að brjóta harkalega hver á öðrum og sleppa við refsingu, en svo er Beckham sendur í bað fyrir að skammast í dómaranum. Ég meina, hann klappaði bara fyrir honum, ég skil ekki hvað er að því," sagði Garcia og sagðist ekki geta ímyndað sér að Beckham hefði getað rifið mikið kjaft við dómarann, því hann væri ekki það sleipur í spænskunni.

"Ég skil oftast ekki einu sinni hvað hann er að reyna að segja," bætti Garcia við og glotti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×