Sport

Rétt að dæma Eið rangstæðan

David Moyes var sáttur við sína menn
NordicPhotos/GettyImages

David Moyes, stjóri Everton, var ánægður með stigið gegn Chelsea í gær og vonar að það verði til þess að hleypa lífi í sína menn. Hann segir ákvörðun dómarans að dæma mark Didier Drogba af vegna rangstöðu hafa verið hárrétta.

"Frammistaða strákanna var til fyrirmyndar og við lékum vel gegn frábæru liði. Ég er ekki sammála því að mark Drogba hefði átt að standa, því Eiður stóð inni í miðjum teignum og hafði því klárlega áhrif á framvindu mála. Leikmenn mínir verða nú að bíta í skjaldarrendur og byggja á þessum úrslitum og ég vona að þessi úrslit verði til þess að stappa í þá stálinu í komandi leikjum," sagði Moyes, en Everton skoraði aðeins sitt annað mark á leiktíðinni í leiknum í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×