Sport

Fulham er ekki til sölu

Chris Coleman segir að ekki standi til að selja Fulham
Chris Coleman segir að ekki standi til að selja Fulham NordicPhotos/GettyImages

Chris Coleman, knattspyrnustjóri Fulham, segir að ekkert sé til í sögusögnum þess efnis að Mohamed al Fayed hafi rætt við annan auðjöfur um helgina með það fyrir augum að selja félagið.

"Ég talaði við stjórnarformanninn eftir að ég heyrði þessa sögu og hann fullvissaði mig um að ekkert væri til í þessu. Þeir kunna að hafa talað saman um helgina, en það er ekkert til í því að Fulham sé til sölu. Það væri líka einkennilegt af manni sem þykir vænt um félagið og hefur komið því þangað sem það er í dag," sagði Coleman, sem fagnaði fræknum sigri á Liverpool um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×