Sport

Allt eftir bókinni

NordicPhotos/GettyImages

16-liða úrslitunum í Hópbílabikar karla í körfubolta lauk í kvöld með átta leikjum og segja má að úrslitin hafi verið eftir bókinni í flestum tilfellum.

Keflavík burstaði Stjörnuna öðru sinni 119-54, Skallagrímur vann Þór frá Akureyri 103-85, Valur og Snæfell skildu jöfn 84-84, en Snæfell fer áfram eftir góðan sigur í fyrri leiknum. Fjölnir vann auðveldan sigur á KFÍ 107-51 og ÍR lagði Tindastól 97-55. Njarðvík fór létt með Hött og sigraði 96-71. KR lagði Hamar/Selfoss 82-65 og Grindavík sigraði Hauka 98-76.

Liðin sem eru komin í átta liða úrslitin eru því Keflavík, Skallagrímur, Snæfell, Fjölnir, ÍR, Njarðvík, KR og Grindavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×