Sport

Ekki hrifin af uppátækjum Beckham

David Beckham lét skapið hlaupa með sig í gönur
NordicPhotos/GettyImages

Íþróttasíður bresku blaðanna eru yfirfullar af myndum af David Beckham í dag, eftir að hann lét reka sig af leikvelli fyrir fíflagang í leik Real Madrid og Valencia í spænska boltanum í gærkvöldi og dálkahöfundar spyrja sig hvort Beckham sé í raun fyrirliðaefni enska landsliðsins eftir svona framkomu.

Beckham fékk að líta tvö gul spjöld með skömmu millibili í gær, hið fyrra fyrir kjaftbrúk og það síðara fyrir að klappa kaldhæðnislega fyrir dómara leiksins eftir að hann fékk spjaldið. Hann var því sendur af leikvelli umsvifalaust og breskir blaðamenn voru fljótir að koma auga á samhengið milli brottvísunar Wayne Rooney fyrir sömu stæla í Meistaradeildinni fyrir skömmu.

Beckham hefur til þessa verið að reyna að siða Rooney til hjá enska landsliðinu og hefur beðið hann að stilla skap sitt á vellinum, en eftir atburði gærkvöldsins er ljóst að Beckham er ekki barnanna bestur í þessum efnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×