Sport

Hrakaði mikið í gær og er í lífshættu

NordicPhotos/GettyImages

Heilsu knattspyrnugoðsagnarinnar George Best hrakaði skyndilega mikið í gær og er hann að sögn fyrrum eiginkonu hans í lífshættu vegna innri blæðinga, sem læknar hafa enn ekki komist fyrir. Best hefur verið á spítala í nokkurn tíma, en um helgina var ekki annað að segja af Best en að hann væri á fínum batavegi.

Best hefur verið heilsutæpur í mörg ár vegna ofdrykkju og var ný lifur grædd í hann árið 2002, en líkama hans gengur illa að þola lyfjagjöf í kjölfar þess. Best er 59 ára gamall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×