Sport

Spjald Beckham dregið til baka

David Beckham sleppur við leikbann og verður því með gegn Deportivo annað kvöld
David Beckham sleppur við leikbann og verður því með gegn Deportivo annað kvöld NordicPhotos/GettyImages

David Beckham verður klár í slaginn með Real Madrid í spænska boltanum annað kvöld eftir að rauða spjaldið sem hann fékk gegn Valencia um helgina var dregið til baka nú rétt áðan.

Real gerði athugasemd við brottreksturinn og biðlaði til spænska knattspyrnusambandsins um að síðara gula spjaldið sem hann fékk í leiknum yrði dregið til baka og var sú beiðni samþykkt í dag, enda þótti brottvísunin ansi strangur dómur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×