Sport

Þurfum að breyta hugarfarinu

Benitez segir leikmenn sína þurfa að breyta um hugarfar
Benitez segir leikmenn sína þurfa að breyta um hugarfar NordicPhotos/GettyImages

Knattspyrnustjóri Liverpool gaf leikmönnum sínum litla hvíld eftir tapið gegn Fulham um helgina og skipaði þeim á erfiða æfingu innan við sólarhring eftir leikinn. Hann segir að þeir þurfi að temja sér ný viðhorf ef þeir ætli sér að ná árangri og ætlar að tefla fram nánast sama liði gegn Crystal Palace annað kvöld til að reyna að slípa leik liðsins betur saman.

Benitez notaði mestmegnis varamenn og ungliða á fyrstu stigum bikarkeppninnar í fyrra, en nú hefur hann haldið fund með leikmönnum sínum og ætlar að reyna nýja hluti gegn Palace.

"Þegar við horfðum á myndband af leiknum við Fulham, sáum við greinilega hvað við þurfum að laga, sérstaklega í deildarleikjum eftir að við spilum Evrópuleiki. Það eru ekki aðeins leikmennirnir sem þurfa að bæta sig, við þurfum allir að bæta okkur. Það er hægt að sætta sig við að tapa ef maður spilar vel, en ég sætti mig ekki við tap gegn liði eins og Fulham, því við eigum að vera með betra lið," sagði Benitez.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×