Fleiri fréttir

Barcelona heldur Real fjarri

Barcelona sigraði Albacete í spænsku úrvalsdeildinni í gær, 2-0, og hefur því enn á ný sex stiga forskot á Real Madrid þegar fjórar umferðir eru eftir. Samuel Eto´o og Leo Messi skoruðu mörk Börsunga.

Aðstæður hentuðu Ferrari best

Fernando Alonso hjá Renault, sem er efstur í stigakeppni ökumanna í formúlu 1, hefur lýst yfir áhyggjum sínum yfir skyndilega bættu gengi Ferrari í síðustu keppni.

Íslendingaliðið Weibern féll

Íslendingaliðið Weibern féll úr þýsku úrvaldeildinni í kvennahandbolta í gær. Þrjár íslenskar landsliðskonur leika með og Aðalsteinn Eyjólfsson er þjálfari.

Robinson heill

Paul Robinson, markvörður Tottenham Hotspurs, hefur gengist undir læknisskoðun eftir mikið samstuð við Darius Vassell í leiknum við Aston Villa á sunnudaginn.

Benitez segir að Chelsea muni tapa

Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, virðist ekki ætla að vera með neina hógværð þegar kemur að leiknum við Chelsea í meistaradeild Evrópu annað kvöld.

Loeb sigraði á Ítalíu

Franski ökuþórinn Sebastien Loeb tryggði sér í dag sigur í Ítalíurallinu, eftir að hafa verið í forystu alla keppnina og hefur nú eins stigs forskot á Norðmanninn Petter Solberg í stigakeppni ökumanna.

Lampard bestur í apríl

Frank Lampard, miðjumaðurinn hjá Chelsea var í dag útnefndur leikmaður aprílmánaðar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu af tölfræðitalningu Opta. Lampard hlaut 1672 stig eftir frammistöðu sína í mánuðinum en næstur á eftir honum kom hinn orðljóti sóknarmaður Man Utd, Wayne Rooney með 1442 stig en rauðu djöflarnir eiga tvo leikmenn á topp 5.

Markalaust í hálfleik hjá Arsenal

Staðan í hálfleik hjá W.B.A. og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er 0-0 en leikurinn sem er sá síðasti í 35. umferð hófst kl. 19:00. Leikið er á The Hawthorns, heimavelli Westbrom.

Arsenal yfir gegn W.B.A.

Robin Van Persie hefur skorað fyrir Arsenal sem er 0-1 yfir gegn W.B.A. í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Leikið er á The Hawthorns, heimavelli Westbrom. Arsenal getur með sigri komist í 77 stig og náð þar sem 4 stiga forystu á Man Utd.

Arsenal í 4 stiga forskot á ManUtd

Arsenal vann 2-0 sigur á W.B.A. í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og hefur nú 4 stiga forystu á Man Utd í 2. sæti deildarinnar þegar 9 stig eru eftir í pottinum á tímabilinu. Robin Van Persie kom Arsenal yfir 0-1 á 66. mínútu og Edu tryggði 2-0 sigur með marki á 90. mínútu.

"Prinsinn" handtekinn

Þær fréttir eru að berast frá Sheffield á Englandi að fyrrverandi fjaðurvigtarheimsmeistarinn í boxi, "Prinsinn" Naseem Hamed hafi verið handtekinn í dag í tengslum við bílslys þar sem maður meiddist lífshættulega "Prinsinn" er grunaður um að hafa flúið af vetvangi.

Heiðar bestur í öllu hjá Watford

Dalvíkingurinn Heiðar Helguson var maður kvöldsins í Watford í gærkvöldi á kvöldverðarsamkomu knattspyrnufélagsins þar sem hann hrifsaði þrjú stærstu verðlaunin sem í boði voru fyrir leikmenn liðsins á tímabilinu. Dagblaðið Watford Observer verðlaunaðar Heiðar sérstaklega fyrir að vera fyrsti leikmaðurinn í sögu félagsins sem hrifsar öll þrjú stærstu verðlaunin.

Chicago 2 - Washington 1

Washington Wizards þurftu á vítamínssprautu að halda fyrir þriðja leikinn við Chicago Bulls í nótt og fengu hana frá stóru strákunum sínum sem fram að þessu höfðu haft hægt um sig í einvíginu. Washington sigraði 117-99, ekki síst fyrir óvænt framlag Etan Thomas í sóknarleiknum, og hefur nú minnkað muninn í 2-1 í seríunni.

Fá bikarinn á Brúnni eftir viku

Eiður Smári Guðjohnsen náði í gær þeim frábæra árangri að verða Englandsmeistari í knattspyrnu með liði sínu Chelsea sem lagði Bolton 2-0 á útivelli. Eiður er fyrstur íslenskra knattspyrnumanna til að hampa þessum titli en bikarinn verður afhentur næsta laugardag þegar Chelsea mætir Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Charlton á heimavelli.

Kristín með heimsmet í skriðsundi

Kristín Rós Hákonardóttir setti um helgina heimsmet í 50 metra skriðsundi fatlaðra á Landsbanakamóti Ármanns sem fram fer í Laugardalnum. Kristín kom í mark á 35,50 sekúndum en hún setti einnig Íslandsmet í 200 metra skriðsundi.

Real sigraði Sociedad

Real Madrid sigraði Real Sociedad 2-0 á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld, en Ronaldo skoraði bæði mörk Madrídinga. Liðið er nú í öðru sæti deildarinnar með 72 stig, þremur stigum á eftir Barcelona sem mæti Albacete í dag og getur aukið forskot sitt í deildinni í sex stig með sigri.

AC Milan með þriggja stiga forskot

AC Milan náði í gær þriggja stiga forskoti í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu með góðum sigri á Fiorentina, 2-1. Það var Andryi Shevchenko sem skoraði bæði mörk Milan sem er með 76 stig en Juventus getur náð Mílanónliðinu að stigum í dag sigri það Bologna í leik sem nú stendur yfir og er sýndur beint á Sýn.

Guðmundur og Tryggvi töpuðu saman

Guðmundur E. Stephensen, Íslandsmeistari í borðtennis, og Tryggvi Áki Pétursson féllu í morgun úr leik í tvíliðaleik á heimsmeistaramótinu í borðtennis sem fram fer í Shanghai í Kína. Guðmundur heldur hins vegar áfram keppni í einliðaleik karla þar sem hann hefur tryggt sér sæti í fyrstu umferð heimsmeistaramótsins.

Lék á fjórum yfir pari í gær

Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, er í 20.-26. sæti á áskorendamóti sem fram fer á Spáni. Hann er á sex höggum yfir pari að loknum þremur hringjum en hann lék þriðja hringinn í gær á fjórum höggum yfir pari. Birgir Leifur lýkur svo keppni í dag.

Kiel aftur á toppinn í Þýskalandi

Düsseldorf sigraði Wilhelmshavener 24-22 í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Alexander Petterson skoraði þrjú mörk fyrir Düsseldorf en Gylfi Gylfason tvö fyrir Wilhelmshavener. Þá endurheimti Kiel efsta sæti deildarinnar með sigri á Lubecke 41-33 á útivelli og Nordhorn lagði Pfullingen 39-34.

Bayern meistari í Þýsklandi

Bayern München varð í gær þýskur meistari í knattspyrnu í 19. sinn þegar liðið burstaði Kaiserslautern 4-0. Í Belgíu töpuðu Arnar Grétarsson, Arnar Viðarsson og Rúnar Kristinsson og félagar í Lokeren fyrir Gent 0-1 en Lokeren er í 9. sæti deildarinnar. Þá var Indriði Sigurðsson í liði Genk sem gerði jafntefli, 2-2, við Ostende, en Genk er í 4. sæti deildarinnar.

Loeb á nánast sigurinn vísan

Frakkinn Sebastien Loeb er nánast búinn að tryggja sér sigur í Ítalíurallinu á Sardiníu sem lýkur í dag. Þegar þrjár sérleiðir eru eftir hefur hann rúmlega mínútuforskot á Norðmanninn Petter Solberg sem er í öðru sæti.

San Antonio 2 - Denver 1

Það var ekki spilaður sérstaklega fallegur körfuknattleikur í Denver í gærkvöldi, þegar San Antonio Spurs náðu aftur heimavallarréttinum í einvígi liðanna með 86-78 sigri. Liði San Antonio er þó alveg sama og þeir eru nú komnir í ökumannssætið í seríunni.

Dallas 2 - Houston 2

Í furðulegasta einvígi fyrstu umferðar úrslitakeppninnar, eru Dallas Mavericks búnir að jafna metin í 2-2 gegn Houston Rockets, þar sem allir leikirnir hafa unnist á útivelli. Jason Terry var hetja Dallas í nótt, þegar hann bætti upp fyrir enn einn slakan leikinn frá Dirk Nowitzki, skoraði 32 stig og tryggði Dallas sigur, 97-93.

Boston 2 - Indiana 2

Það tók Doc Rivers, þjálfara Boston Celtics, þrjá leiki að kveikja á perunni, en þegar hann loksins gerði það lét árangurinn ekki á sér standa. Rivers nýtti sér loksins styrkleika liðs síns gegn Indiana Pacers í fjórða leiknum í nótt og niðurstaðan var 110-79 burst gestanna, sem hafa jafnað metin í envíginu.

New Jersey-Miami á Sýn í kvöld

Fjórði leikur New Jersey Nets og Miami Heat verður í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld, klukkan 19:30. Miami getur með sigri orðið fyrsta liðið til að tryggja sig í aðra umferð úrslitakeppninnar, en staðan í einvíginu er 3-0 fyrir Heat.

Pippen veitir skrifleg verðlaun

 Scottie Pippen, fyrrum leikmaður í NBA-körfuboltanum, valdi á dögunum þá leikmenn sem hann taldi eiga rétt á þeim verðlaunum sem veitt eru á ári hverju NBA-deildinni.

Fækkun erlendra leikmanna

Ársþing Körfuknattleikssambands Íslands fór fram á Ísafirði um helgina þar sem ýmsar breytingar litu dagsins ljós.

HM í íshokkíi hófst um helgina

Heimsmeistaramótið í íshokkíi hófst á laugardaginn í Vín í Austurríki. Kanadamenn, sem eru tvöfaldir heimsmeistarar, unnu Litháa, 5-4, og Rússland vann Austurríki, 4-2.

Þjálfar Jackson LeBron James?

Forráðamenn Cleveland Cavaliers í NBA-körfuboltanum staðfestu um helgina að þeir hefðu sett sig í samband við Phil Jackson, einn sigursælasta þjálfara í sögu NBA.

James Toney WBA-meistari

Hnefaleikakappinn James Toney varð WBA-meistari í þungavigt um helgina þegar hann lagði John Ruiz að velli.

Jol í sjöunda himni

Leikmenn Tottenham fóru á kostum þegar þeir tóku á móti Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni á White Hart Lane í gær.

Sjá næstu 50 fréttir