Fleiri fréttir

Lögreglan í Paragvæ lagði hald á 1.700 kg af kókaíni

Fíkniefnalögreglan í Paragvæ lagði hald á 1.700 kíló af kókaíni á litlum flugvelli við landamærin að Brasilíu um helgina. Verið var að undirbúa flutning á kókaíninu með litlum flugvélum yfir landamærin.

Fundu fornan gullfjársjóð í Búlgaríu

Fornleifafræðingar í Búlagaríu hafa fundið stóran sjóð af munum úr gulli við uppgröft í norðurhluta landsins. Í sjóð þessum er m.a. að finna gullhringi, styttur af konum úr gulli og um 100 gullhnappa.

Mannskæður skjálfti í Myanmar

Tólf hafa fundist látnir á Myanmar eftir að jarðskjálfti upp á 6,8 stig reið yfir norðanvert landið í morgun. Mikil skelfing greip um sig í næst stærstu borg landsin Mandalay og safnaðist fólk saman á götum úti.

Öryggisbrestur CIA: Viðhaldið hótaði hinu viðhaldinu

Vefsíða breska dagblaðsins Daily Mail greinir frá því í dag að ástæðan fyrir því að bandaríska alríkislögreglan hóf rannsókn á tölvupóstum David Petraeus, fyrrverandi forstjóra CIA, hafi verið sú að ævisöguritari hans, Paula Broadwell notaði póstfangið hans til þess að hóta hinu viðhaldinu Petraues.

Viðhaldið grunað um að hafa hótað annarri konu

Þingnefnd um bandarísku leyniþjónustuna, CIA, hefur óskað eftir upplýsingum um það hversvegna bandaríska alríkislögreglan hóf rannsókn á póstum David Petraeus sem sagði upp störfum sem forstjóri leyniþjónustunnar síðasta föstudag eftir að í ljós kom að hann var að halda fram hjá eiginkonu sinni til marga ára.

Annar karlmaður handtekinn vegna Savile-málsins

Annar karlmaðurinn hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn bresku lögreglunnar á því sem virðist vera umfangsmikil kynferðismisnotkun á unglingsstúlkum af hálfu sjónvarpsmannsins Jimmi Savile.

Skutu á varðstöð á Gólan hæðinni

Ísraelar drógust í dag í fyrsta skiptið inn í átökin í Sýrlandi þegar skotið var á ísraelska varðstöð á Gólan hæðinni með sprengjuvörpu í dag. Hermenn Ísraels skutu viðvörunarskoti til baka en þeim skilst að um mistök hafi verið að ræða.

Fituskattur afnuminn

Dönsk stjórnvöld ætla að afnema sérstakan skatt sem lagður var á matvæli sem hafa að geyma mettaða fitu yfir 2,3 prósenta mörkum.

Hús sprakk í tætlur

Gríðarleg sprenging varð í bandarísku borginni Indianapolis í nótt. Einn er látinn hið minnsta og nokkrir slasaðir en svo virðist sem íbúðarhús við friðsæla götu í borginni hafi einfaldlega sprungið í tætlur.

Forstjóri BBC segir af sér

George Entwistle forstjóri breska ríkisútvarpsins (BBC) hefur sagt af sér. Þetta tilkynnti hann í gær en afsögnin kemur í kjölfar mikillar gagnrýni á fréttaþáttinn Newsnight sem á dögunum fjallaði um kynferðisbrot Jimmi Savile, hins þekkta þáttastjórnanda á BBC sem lést fyrir nokkru.

Hundapi tekur flækingskött að sér

Bavíani í ísraelskum dýragarði hefur tekið að sér lítinn kettling sem villtist með einhverjum hætti inn í búr hundapans.

Hætta við risavopnasamning vegna gruns um spillingu

Íraska ríkisstjórnin hefur hætt við að vopnakaupsamning sem ríkið gerði við Rússland í október síðastliðnum að andvirði 4,2 milljarða dollara. Ástæðan er sú að forsætisráðherra Íraks, Nouri Maliki, grunar að spilling eigi í hlut varðandi viðskiptin.

Hélt framhjá með ævisöguritaranum

Forstjóri öflugustu leyniþjónustu veraldar, CIA, hefur sagt upp störfum eftir að bandaríska alríkislögreglan komst að því að hann hélt framhjá konu sinni.

Sér bara hryðjuverk

„Það er engin borgarastyrjöld hjá okkur,“ segir Bashar al Assad Sýrlandsforseti í viðtali við rússneska sjónvarpsstöð. Hann segir stjórnarherinn eingöngu eiga í stríði við hryðjuverkamenn sem njóti stuðnings frá útlöndum.

Skírði synina Barack Obama og Mitt Romney

Móðir frá Kenía í Afríku eignaðist tvíbura morguninn eftir að úrslit forsetakosninganna í Bandaríkjunum lágu fyrir. Þegar komið var að því að finna nöfn á litlu krílin var fátt annað sem kom upp í hugann á móðurinni en Barack Obama og Mitt Romney.

Sonur forsætisráðherrans heima þegar lífvörður svipti sig lífi

Sonur Frederiks Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, var staddur í íbúð forsætisráðherrans þegar lífvörður þar svipti sig lífi um hádegisbil að íslenskum tíma í dag. Samkvæmt sænska Aftonbladet var Rinfeldt sjálfur fjarverandi en sonurinn er nú í skýrslutöku hjá lögreglu þar sem hann er spurður út í atvikið.

Skaut sig á heimili sænska forsætisráðherrans

Karlmaður fannst látinn með alvarleg sár á heimili Fredriks Reinfeldts, forsætisráðherra Svíþjóðar, í dag. Eftir að maðurinn fannst var fjöldi lækna og lögregluþjóna kallaður á staðinn. Í blaðinu Expressen kemur fram að maðurinn sé öryggisvörður og Aftonbladet fullyrðir að maðurinn hafi skotið sjálfan sig. Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra var ekki heima þegar atvikið varð, segir Marcus Friberg, upplýsingaráðherra forsætisráðherrans, í samtali við sænska ríkissjónvarpið.

Láku gögnum frá hernum til að hægt væri að búa til tölvuleik

Sjö menn úr sjóher Bandaríkjanna hafa verið fundnir sekir um að hafa lekið gögnum frá hernum þegar þeir unnu sem ráðgjafar við hönnun tölvuleikjar. Leikurinn sem þeir veittu ráðgjöf við heitir Warfighter. Einn mannanna vann í því teymi sem myrti Osama bin Laden í fyrra. Leikurinn snýst þó ekkert um endalok ævi bin Ladens, heldur er tilgangurinn með því að fá ráðgjöf frá hermönnunum að gera hann sem allra raunverulegastan.

Búsáhaldabylting hafin í Argentínu

Búsáhaldabylting er hafin í Argentínu á svipuðum nótum og gerðist hér á Íslandi í kjölfar fjármálahrunsins fyrir fjórum árum síðan.

Hu hvetur til atlögu gegn spillingunni

Leiðtogar kínverska Kommúnistaflokksins leggja áherslu á að vinna gegn spillingu ráðamanna, sem virðist hafa grafið eitthvað undan tiltrú landsmanna til flokksins undanfarið.

Fólk leitaði skjóls á sjúkrahúsi

Tugir manna fórust þegar jarðskjálfti reið yfir í Gvatemala í fyrrinótt. Skjálftinn mældist 7,4 stig og olli miklu tjóni, einkum í borginni San Marcos en einnig í mismiklum mæli um allt landið.

Bensín skammtað í New York

Bensín verður skammtað í New York frá og með deginum í dag. Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, tilkynnti þetta í gærkvöldi.

Talningu enn ekki lokið á Flórída

Talningu á atkvæðum í forsetakosningunum vestanhafs s.l. þriðjudag er enn ekki lokið á Flórida. Enn á eftir að ljúka talningu í þremur sýslum af 67 í ríkinu.

Grikkir bíða nú næstu greiðslu

Grikkland, APGrísk stjórnvöld gera sér vonir um að fjármálaráðherrar evruríkjanna sautján ákveði að greiða Grikkjum næstu útborgun úr stöðugleikasjóði ESB. Gríska þingið samþykkti naumlega á miðvikudagskvöld nýjasta niðurskurðarfrumvarp ríkisstjórnarinnar, sem er skilyrði frekari fjárhagsaðstoðar.

Morðinginn í Arizona í lífstíðarfangelsi

Jared Loughner, sem myrti sex og slasaði þrettán, þar á meðal þingkonuna Gabrielle Giffords, í janúar í fyrra, var dæmdur í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Loughner er tuttugu og fjögurra ára gamall.

Fundu tíu þúsund flöskur af einu dýrasta rauðvíni í heimi

Tíu þúsund flöskur af einu dýrasta rauðvíni í heimi fundust í yfirgefnu húsi í Kína á dögunum. Lögreglan rannsakar nú vínfundinn, en ekki er víst hvort að flöskunar séu ekta eða um eftirlíkingu sé að ræða. Vínið er að gerðinni Chateau Lafite Rothschild sem er fransk eðalvín. Ef flöskurnar eru ekta má gera ráð fyrir að flöskurnar séu um tveggja milljarða króna virði.

Yfir 20 þúsund flugferðum frestað vegna Sandy

Rúmlega tuttugu þúsund flug voru felld niður vegna fellibylsins Sandy. Það er aftur á móti aðeins brot af þeim fjölda ferða sem hætt var við vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli á sínum tíma samkvæmt vefsíðunni túristi.is.

Rannsaka hve margir Skotar eru rauðhærðir

Rannsókn er hafin á því hve hátt hlutfall Skota er með erfðaefnið sem litar hár manna rautt. Einnig er vonast til þess að geta svarað spurningunni um afhverju Skotar eru sú þjóð heimsins þar sem rautt hár er algengast meðal manna.

Puerto Rico að verða 51. ríki Bandaríkjanna

Allar líkur eru á því að nýrri stjörnu verði bætt í bandaríska fánann á næsta ári en þá stendur til að taka eyjuna Puerto Rico inn sem 51. ríkið í Bandaríkjunum.

Valdaskiptin eru hafin í Kína

18. flokksþing Kommúnistaflokksins í Kína er hafið í Höll alþýðunnar í Bejing. Á þessu þingi verður skipt um flokksforystuna og mun Xi Jinping varaforseti landsins verða kosinn aðalritari flokksins en hann tekur við stöðunni af Hu Jintao.

Öflugasti jarðskjálfti í 38 ár

Að minnsta kosti 39 eru látnir eftir harður jarðskjálfti skók Gvatemala í kvöld og hrundi skóli meðal annars til grunna. Skjálftinn, sem mældist 7,4 stig, fannst greinilega í Mexíkó, El Salvador og Hondúras.

Mitt Romney tekur lagið fyrir stuðningsmenn sína

Það er margt sem leynist á internetinu enda margir netverjar út um allan heim sem alltaf eru að bralla eitthvað. Nú hefur hópur manna, sem kalla sig The Gregory Brothers, útbúið myndband þar sem Mitt Romney, sem tapaði forsetakosningunum í gær, sést syngja ræðu sína þar sem hann tilkynnir stuðningsmönnum sínum tapið. Þessi útgáfa er þó ekki eins og upprunalega ræðan, heldur syngur hann í þetta skiptið. Mjög skemmtilegt - og ansi vel gert hjá þeim bræðrum Gregorys.

Ætlaði á klósettið en kom aldrei til baka

Lík þrettán ára pilts fannst í skurði í enska þorpinu Edenthorpe, í grennd við Doncaster, í dag. Piltsins hafði verið saknað frá því síðdegis á sunnudag. Hann var að leik með vinum sínum á leikvelli í þorpinu, hann bað vin sinn um að líta eftir farsíma sínum á meðan hann færi á klósettið, en hann snéri aldrei aftur.

Twitter gjörsamlega logaði

Það var nóg um að vera á Twitter í gærkvöldi og í nótt þegar forsetakosningarnar í Bandaríkjunum fóru fram. Barack Obama sigraði kosningarnar nokkuð örugglega en þegar spennan var sem mest var slegið met á samskiptasíðunni. Um klukkan ellefu, að staðartíma, voru sett inn um 330 þúsund skilaboð á síðuna á mínutu! Það er það mesta í sögu síðunnar - aldrei hefur eins mikil umferð verð á síðunni.

Fáir glaðari en Springsteen í dag

Fáir gleðjast meira yfir sigri Baracks Obama en tónlistarmaðurinn Bruce Springsteen. Hann hefur stutt Obama frá því að hann bauð sig fyrst fram árið 2008. "Það kemur ekkert á óvænt að Bruce taki þátt í pólitík, ef maður hlustar á tónlistina hans,“ segir Peter Ames Carlin rithöfundur sem hefur nýlokið við ævisögu hans.

Obama um úrslitin: Það besta er framundan

Barack Obama hélt sigurræðu sína eldsnemma í morgun að íslenskum tíma. Á sigurhátíð hans hljómaði lag Stevie Wonders, Sign Sealed deliverd þegar Barack gekk inn í salinn ásamt Michelle, eiginkonu sinni og dætrum þeirra tveimur. "Takk takk takk,“ sagði Obama og hélt síðan áfram að ræða niðurstöður kosninganna.

Sjá næstu 50 fréttir