Fleiri fréttir Þúsundir mótmæla víða í Evrópu Þúsundir launþega, víða að úr Evrópu, taka þátt í verkföllum og opinberum mótmælum í dag til þess að mótmæla auknu atvinnuleysi og niðurskurði á fjárlögum víða í ríkjum. 14.11.2012 11:45 Fjöldi sykursjúkra muni tvöfaldast Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin telur að 346 milljónir manna um allan heim séu sykursjúkir. Þessi tala mun líklega meir en tvöfaldast fyrir 2030 ef ekki er að gert. Á hverju ári látast 3.4 milljónir manna vegna of hás blóðsykurs. Nærri 80% þeirra sem látast af völdum sykursýki búa í mið- eða lágtekjuríkjum. 14.11.2012 09:35 Rannsaka fjölda óleystra morðmála á ný Dönsk lögregluyfirvöld eru vongóð um að ná að leysa mörg óleyst morðmál frá fyrri árum. Rannsókn hefur verið hafin á ný í tólf málum hið minnsta eftir að ný tækni varpaði ljósi á nothæf lífsýni í málsgögnum í geymslu. Af mörgum þeirra mátti greina erfðaefni sem gæti varpað nýju ljósi á mál, eða sannað sekt grunaðra. 14.11.2012 09:00 Viðamikil verkföll og mótmæli víða í Evrópu í dag Búast má við truflunum á daglegu lífi fólks víða í Evrópu í dag vegna umfangsmikilla verkfalla og mótmæla í álfunni. 14.11.2012 08:13 Flokksþingi kínverska kommúnistaflokksins lokið Vikulöngu flokksþingi Kommúnistaflokks Kína lauk í morgun með kosningu 350 manna miðstjórnar flokksins. Miðstjórnin kýs síðan níu manna stjórnmálaráð. 14.11.2012 06:44 Yfir 100.000 manns vilja aðskilnað ríkja sinna frá Bandaríkjunum Yfir 100.000 manns í einum 20 ríkjum Bandaríkjanna hafa skrifað undir áskorun til Hvíta hússins þess efni að ríkin fái að aðskilja sig frá Bandaríkjunum. 14.11.2012 06:31 Milljónir manna fylgdust með almyrkva á sólu Talið er að milljónir manna hafi fylgst með hinu sjaldgæfa fyrirbrigði almyrkva á sólu í Ástralíu í gærdag. 14.11.2012 06:29 Omnishambles eða allsherjarklúður er nýyrði ársins í ensku Forráðamenn ensku orðabókarinnar í Oxford hafa ákveðið að velja orðið Omnishambles sem nýyrði ársins í enskri tungu. Lauslega mætti þýða þetta orð yfir á íslensku sem allsherjarklúður. 14.11.2012 06:16 Framhjáhald veldur fjaðrafoki í hernum John Allen, yfirmaður bandaríska herliðsins í Afganistan, sætir nú rannsókn í tengslum við framhjáhald Davids Petraeus. Í síðustu viku sagði Petraeus af sér sem yfirmaður CIA vegna framhjáhaldsins. 13.11.2012 23:45 Greiðslu úr neyðarsjóði frestað Fjármálaráðherrar Evrópusambandsins hafa samþykkt að Grikkir fái frest til ársins 2016, eða tveimur árum lengur en áður hafði verið krafist, til þess að gera nauðsynlegar ráðstafanir í efnahagsmálum svo hægt verði að hefjast handa við að draga úr skuldabyrði gríska ríkisins. 13.11.2012 23:45 Undarlegt háttalag hjartardýra vekur furðu Náttúruverndarsamtök í Idaho í Bandaríkjunum standa ráðþrota gagnvart heldur undarlegri hegðun hjartardýra í suðurhluta ríkisins. 13.11.2012 23:19 Líkamsleifar Yasser Arafat grafnar upp í dag Vinna er hafin við að grafa upp líkamsleifar Yasser Arafat fyrrum leiðtoga Palestínu í Ramallah á Vesturbakkanum. Ástæðan fyrir þessu er að mikil vafi leikur á dánarorsök Arafats og raunar hefur hún aldrei fengist á hreint. 13.11.2012 09:36 Hamfaraferðamenn flykkjast til New York og New Jersey Svokallaðir hamfaraferðamenn flykkjast nú til New York og New Jersey íbúum þar til töluverðrar armæðu. 13.11.2012 06:51 Mikill fjöldi atvinnulausra ungra kennara í Danmörku Fjöldi ungra atvinnulausra grunnskólakennara í Danmörku hefur tvöfaldast milli ára. Í fyrrahaust voru 350 af grunnskólakennurum undir þrítugu atvinnulausir í Danmörku en í haust er þessi tala komin upp í 750 kennara. 13.11.2012 06:39 Bíræfinn þjófur stal lyklakippu úr Tower of London Rannsókn er hafin í London á því hvernig bífræfnum þjófi tókst að stela lyklakippu úr Tower of London þar sem bresku krúnudjásnin eru geymd undir lás og slá. 13.11.2012 06:29 Grikkir fá tveggja ára frest í viðbót Fjármálaráðherrar evrusvæðisins hafa samþykkt að gefa Grikkjum tveggja ára frest í viðbót, eða til ársins 2016, til að mæta kröfunum um niðurskurð í rekstri hins opinbera í Grikklandi. 13.11.2012 06:24 Bandaríkin verða aðalolíuveldið 12.11.2012 23:45
Sjá næstu 50 fréttir
Þúsundir mótmæla víða í Evrópu Þúsundir launþega, víða að úr Evrópu, taka þátt í verkföllum og opinberum mótmælum í dag til þess að mótmæla auknu atvinnuleysi og niðurskurði á fjárlögum víða í ríkjum. 14.11.2012 11:45
Fjöldi sykursjúkra muni tvöfaldast Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin telur að 346 milljónir manna um allan heim séu sykursjúkir. Þessi tala mun líklega meir en tvöfaldast fyrir 2030 ef ekki er að gert. Á hverju ári látast 3.4 milljónir manna vegna of hás blóðsykurs. Nærri 80% þeirra sem látast af völdum sykursýki búa í mið- eða lágtekjuríkjum. 14.11.2012 09:35
Rannsaka fjölda óleystra morðmála á ný Dönsk lögregluyfirvöld eru vongóð um að ná að leysa mörg óleyst morðmál frá fyrri árum. Rannsókn hefur verið hafin á ný í tólf málum hið minnsta eftir að ný tækni varpaði ljósi á nothæf lífsýni í málsgögnum í geymslu. Af mörgum þeirra mátti greina erfðaefni sem gæti varpað nýju ljósi á mál, eða sannað sekt grunaðra. 14.11.2012 09:00
Viðamikil verkföll og mótmæli víða í Evrópu í dag Búast má við truflunum á daglegu lífi fólks víða í Evrópu í dag vegna umfangsmikilla verkfalla og mótmæla í álfunni. 14.11.2012 08:13
Flokksþingi kínverska kommúnistaflokksins lokið Vikulöngu flokksþingi Kommúnistaflokks Kína lauk í morgun með kosningu 350 manna miðstjórnar flokksins. Miðstjórnin kýs síðan níu manna stjórnmálaráð. 14.11.2012 06:44
Yfir 100.000 manns vilja aðskilnað ríkja sinna frá Bandaríkjunum Yfir 100.000 manns í einum 20 ríkjum Bandaríkjanna hafa skrifað undir áskorun til Hvíta hússins þess efni að ríkin fái að aðskilja sig frá Bandaríkjunum. 14.11.2012 06:31
Milljónir manna fylgdust með almyrkva á sólu Talið er að milljónir manna hafi fylgst með hinu sjaldgæfa fyrirbrigði almyrkva á sólu í Ástralíu í gærdag. 14.11.2012 06:29
Omnishambles eða allsherjarklúður er nýyrði ársins í ensku Forráðamenn ensku orðabókarinnar í Oxford hafa ákveðið að velja orðið Omnishambles sem nýyrði ársins í enskri tungu. Lauslega mætti þýða þetta orð yfir á íslensku sem allsherjarklúður. 14.11.2012 06:16
Framhjáhald veldur fjaðrafoki í hernum John Allen, yfirmaður bandaríska herliðsins í Afganistan, sætir nú rannsókn í tengslum við framhjáhald Davids Petraeus. Í síðustu viku sagði Petraeus af sér sem yfirmaður CIA vegna framhjáhaldsins. 13.11.2012 23:45
Greiðslu úr neyðarsjóði frestað Fjármálaráðherrar Evrópusambandsins hafa samþykkt að Grikkir fái frest til ársins 2016, eða tveimur árum lengur en áður hafði verið krafist, til þess að gera nauðsynlegar ráðstafanir í efnahagsmálum svo hægt verði að hefjast handa við að draga úr skuldabyrði gríska ríkisins. 13.11.2012 23:45
Undarlegt háttalag hjartardýra vekur furðu Náttúruverndarsamtök í Idaho í Bandaríkjunum standa ráðþrota gagnvart heldur undarlegri hegðun hjartardýra í suðurhluta ríkisins. 13.11.2012 23:19
Líkamsleifar Yasser Arafat grafnar upp í dag Vinna er hafin við að grafa upp líkamsleifar Yasser Arafat fyrrum leiðtoga Palestínu í Ramallah á Vesturbakkanum. Ástæðan fyrir þessu er að mikil vafi leikur á dánarorsök Arafats og raunar hefur hún aldrei fengist á hreint. 13.11.2012 09:36
Hamfaraferðamenn flykkjast til New York og New Jersey Svokallaðir hamfaraferðamenn flykkjast nú til New York og New Jersey íbúum þar til töluverðrar armæðu. 13.11.2012 06:51
Mikill fjöldi atvinnulausra ungra kennara í Danmörku Fjöldi ungra atvinnulausra grunnskólakennara í Danmörku hefur tvöfaldast milli ára. Í fyrrahaust voru 350 af grunnskólakennurum undir þrítugu atvinnulausir í Danmörku en í haust er þessi tala komin upp í 750 kennara. 13.11.2012 06:39
Bíræfinn þjófur stal lyklakippu úr Tower of London Rannsókn er hafin í London á því hvernig bífræfnum þjófi tókst að stela lyklakippu úr Tower of London þar sem bresku krúnudjásnin eru geymd undir lás og slá. 13.11.2012 06:29
Grikkir fá tveggja ára frest í viðbót Fjármálaráðherrar evrusvæðisins hafa samþykkt að gefa Grikkjum tveggja ára frest í viðbót, eða til ársins 2016, til að mæta kröfunum um niðurskurð í rekstri hins opinbera í Grikklandi. 13.11.2012 06:24
Gagnrýni á 92 milljóna starfslokasamning Helen Boaden, fréttastjóri breska ríkisútvarpsins BBC, og Stephen Mitchell, aðstoðarmaður hennar, hafa vikið tímabundið úr starfi vegna mistaka í fréttaflutningi. 12.11.2012 23:45
Mannkynið verður hægt og bítandi heimskara Mannkynið er hægt og bítandi að glata vitsmuna- og tilfinningalegum hæfileikum sínum ef marka má nýlega rannsókn. 12.11.2012 22:43
Erótíska skáldsagan hvetur konur til skilja við eiginmenn sína Metsölubókin Fifty Shades of Grey hvetur konur til að skilja við eiginmenn sína, þetta segir eiginmaður breskrar kaupsýlsukonu sem hefur sótt um skilnað við hann. 12.11.2012 14:38
Ætluðu að ráðast á Karl prins Lögreglan á Nýja Sjálandi hefur handtekið mann sem er grunaður um að hafa verið að skipuleggja árás á Karl Bretaprins og Camillu Parker Bowles eiginkonu hans. 12.11.2012 13:08
Um 70% af Feneyjum eru undir vatni Íbúar í borginni Feneyjum glíma nú við verstu flóð í sögu sinni á undanförnum 150 árum. Um 70% af borginni liggja undir vatni og jafnvel á sjálfu Markúsartorginu er ekki nóg að ganga um í stígvélum til að halda fótunum þurrum. 12.11.2012 10:18
Langvarandi þurrkar lögðu menningu Mayana að velli Vísindamenn hafa komist að því að það var veðurfarið sem lagði hina voldugu menningu Mayanna í Suður Ameríku að velli. 12.11.2012 07:41
Stór jarðskjálfti skók Gvatemala að nýju Jarðskjálfti upp á rúmlega sex stig skók Gvatemala í gærkvöldi aðeins nokkrum dögum eftir að mjög öflugur jarðskjálfti kostaði 52 manns lífið í landinu. 12.11.2012 06:53
Lögreglan í Paragvæ lagði hald á 1.700 kg af kókaíni Fíkniefnalögreglan í Paragvæ lagði hald á 1.700 kíló af kókaíni á litlum flugvelli við landamærin að Brasilíu um helgina. Verið var að undirbúa flutning á kókaíninu með litlum flugvélum yfir landamærin. 12.11.2012 06:46
Stærsta flugeldasýning sögunnar í Kuwait Kuwait er komið í heimsmetabók Guinness vegna þess að þar var haldin stærsta flugeldasýning í sögunni um helgina. 12.11.2012 06:44
Gríska þingið samþykkti ný fjárlög fyrir næsta ár Gríska þingið samþykkti ný fjárlög fyrir næsta ár seint í gærkvöldi en í þeim er að finna gífurlegan niðurskurð í rekstri ríkisins og sparnað á flestum sviðum hins opinbera í Grikklandi. 12.11.2012 06:36
Fundu fornan gullfjársjóð í Búlgaríu Fornleifafræðingar í Búlagaríu hafa fundið stóran sjóð af munum úr gulli við uppgröft í norðurhluta landsins. Í sjóð þessum er m.a. að finna gullhringi, styttur af konum úr gulli og um 100 gullhnappa. 12.11.2012 06:33
Mannskæður skjálfti í Myanmar Tólf hafa fundist látnir á Myanmar eftir að jarðskjálfti upp á 6,8 stig reið yfir norðanvert landið í morgun. Mikil skelfing greip um sig í næst stærstu borg landsin Mandalay og safnaðist fólk saman á götum úti. 11.11.2012 18:58
Öryggisbrestur CIA: Viðhaldið hótaði hinu viðhaldinu Vefsíða breska dagblaðsins Daily Mail greinir frá því í dag að ástæðan fyrir því að bandaríska alríkislögreglan hóf rannsókn á tölvupóstum David Petraeus, fyrrverandi forstjóra CIA, hafi verið sú að ævisöguritari hans, Paula Broadwell notaði póstfangið hans til þess að hóta hinu viðhaldinu Petraues. 11.11.2012 17:49
Viðhaldið grunað um að hafa hótað annarri konu Þingnefnd um bandarísku leyniþjónustuna, CIA, hefur óskað eftir upplýsingum um það hversvegna bandaríska alríkislögreglan hóf rannsókn á póstum David Petraeus sem sagði upp störfum sem forstjóri leyniþjónustunnar síðasta föstudag eftir að í ljós kom að hann var að halda fram hjá eiginkonu sinni til marga ára. 11.11.2012 15:59
Annar karlmaður handtekinn vegna Savile-málsins Annar karlmaðurinn hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn bresku lögreglunnar á því sem virðist vera umfangsmikil kynferðismisnotkun á unglingsstúlkum af hálfu sjónvarpsmannsins Jimmi Savile. 11.11.2012 15:06
Skutu á varðstöð á Gólan hæðinni Ísraelar drógust í dag í fyrsta skiptið inn í átökin í Sýrlandi þegar skotið var á ísraelska varðstöð á Gólan hæðinni með sprengjuvörpu í dag. Hermenn Ísraels skutu viðvörunarskoti til baka en þeim skilst að um mistök hafi verið að ræða. 11.11.2012 15:03
Fituskattur afnuminn Dönsk stjórnvöld ætla að afnema sérstakan skatt sem lagður var á matvæli sem hafa að geyma mettaða fitu yfir 2,3 prósenta mörkum. 11.11.2012 10:18
Hús sprakk í tætlur Gríðarleg sprenging varð í bandarísku borginni Indianapolis í nótt. Einn er látinn hið minnsta og nokkrir slasaðir en svo virðist sem íbúðarhús við friðsæla götu í borginni hafi einfaldlega sprungið í tætlur. 11.11.2012 10:15
Forstjóri BBC segir af sér George Entwistle forstjóri breska ríkisútvarpsins (BBC) hefur sagt af sér. Þetta tilkynnti hann í gær en afsögnin kemur í kjölfar mikillar gagnrýni á fréttaþáttinn Newsnight sem á dögunum fjallaði um kynferðisbrot Jimmi Savile, hins þekkta þáttastjórnanda á BBC sem lést fyrir nokkru. 11.11.2012 10:11
Hundapi tekur flækingskött að sér Bavíani í ísraelskum dýragarði hefur tekið að sér lítinn kettling sem villtist með einhverjum hætti inn í búr hundapans. 10.11.2012 21:30
Hætta við risavopnasamning vegna gruns um spillingu Íraska ríkisstjórnin hefur hætt við að vopnakaupsamning sem ríkið gerði við Rússland í október síðastliðnum að andvirði 4,2 milljarða dollara. Ástæðan er sú að forsætisráðherra Íraks, Nouri Maliki, grunar að spilling eigi í hlut varðandi viðskiptin. 10.11.2012 15:01
Hélt framhjá með ævisöguritaranum Forstjóri öflugustu leyniþjónustu veraldar, CIA, hefur sagt upp störfum eftir að bandaríska alríkislögreglan komst að því að hann hélt framhjá konu sinni. 10.11.2012 13:31
Sér bara hryðjuverk „Það er engin borgarastyrjöld hjá okkur,“ segir Bashar al Assad Sýrlandsforseti í viðtali við rússneska sjónvarpsstöð. Hann segir stjórnarherinn eingöngu eiga í stríði við hryðjuverkamenn sem njóti stuðnings frá útlöndum. 10.11.2012 11:00
Einn fágætasti hvalur heims sást í fyrsta sinn Vísindamenn hafa komist að því að tveir hvalir, sem rak á strönd við Nýja-Sjáland á gamlárskvöld árið 2010, hafi verið af einni fágætustu hvalategund heims. 10.11.2012 07:00
Skírði synina Barack Obama og Mitt Romney Móðir frá Kenía í Afríku eignaðist tvíbura morguninn eftir að úrslit forsetakosninganna í Bandaríkjunum lágu fyrir. Þegar komið var að því að finna nöfn á litlu krílin var fátt annað sem kom upp í hugann á móðurinni en Barack Obama og Mitt Romney. 9.11.2012 22:02
Sonur forsætisráðherrans heima þegar lífvörður svipti sig lífi Sonur Frederiks Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, var staddur í íbúð forsætisráðherrans þegar lífvörður þar svipti sig lífi um hádegisbil að íslenskum tíma í dag. Samkvæmt sænska Aftonbladet var Rinfeldt sjálfur fjarverandi en sonurinn er nú í skýrslutöku hjá lögreglu þar sem hann er spurður út í atvikið. 9.11.2012 15:31
Skaut sig á heimili sænska forsætisráðherrans Karlmaður fannst látinn með alvarleg sár á heimili Fredriks Reinfeldts, forsætisráðherra Svíþjóðar, í dag. Eftir að maðurinn fannst var fjöldi lækna og lögregluþjóna kallaður á staðinn. Í blaðinu Expressen kemur fram að maðurinn sé öryggisvörður og Aftonbladet fullyrðir að maðurinn hafi skotið sjálfan sig. Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra var ekki heima þegar atvikið varð, segir Marcus Friberg, upplýsingaráðherra forsætisráðherrans, í samtali við sænska ríkissjónvarpið. 9.11.2012 14:07
Láku gögnum frá hernum til að hægt væri að búa til tölvuleik Sjö menn úr sjóher Bandaríkjanna hafa verið fundnir sekir um að hafa lekið gögnum frá hernum þegar þeir unnu sem ráðgjafar við hönnun tölvuleikjar. Leikurinn sem þeir veittu ráðgjöf við heitir Warfighter. Einn mannanna vann í því teymi sem myrti Osama bin Laden í fyrra. Leikurinn snýst þó ekkert um endalok ævi bin Ladens, heldur er tilgangurinn með því að fá ráðgjöf frá hermönnunum að gera hann sem allra raunverulegastan. 9.11.2012 13:40