Fleiri
Hóta því að fella stjórnina 12.6.2010 01:45 Breskir hermenn brutu lög Nokkrir fyrrverandi breskir hermenn verða væntanlega dregnir fyrir dómara á Norður-Írlandi vegna atburðanna í borginni Londonderry sunnudaginn 30. janúar árið 1972. Þann dag beittu breskir hermenn skotvopnum á hóp kaþólskra mótmælenda með þeim afleiðingum að þrettán manns létu lífið. 12.6.2010 01:00 Borgarstjóri New York græðir í kreppunni Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, græddi meira á fjárfestingum sínum árið 2009 en árið á undan. 11.6.2010 20:32 Óheilbrigðir lifnaðarhættir landlægir í Skotlandi Ný rannsókn leiðir í ljós að óheilbrigðir lifnarðarhættir eru landlægir í Skotlandi. 11.6.2010 07:53 Olíulekinn á Mexíkóflóa tvöfalt meiri en áður var talið Nýjar mælingar á olíulekanum í Mexíkóflóa gefa til kynna að hann hafi verið allt að tvöfalt meiri en áður var talið. 11.6.2010 07:39 Barnabarnabarn Nelson Mandela fórst í bílslysi Barnabarnabarn Nelson Mandela fyrrum forseta Suður Afríku lést í bílslysi á leið sinni heim eftir eina af opnunartónleikunum fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta síðdegis í gær. 11.6.2010 07:37 Skólastúlka í miklum vandræðum á skútu á Indlandshafi Abby Sunderland sextán ára gömul skólastúlka frá Kaliforníu á í miklum vandræðum á skútu sinni eftir að hafa lent í óveðri á afskekktu svæði á Indlandshafi um 3000 kílómetra austur af Madagaskar. Skip eru á leið til hennar. 11.6.2010 07:30 Lánshæfismat hækkaði við fréttirnar Í kjölfar staðfestingar þess að Eistland muni taka upp evru í janúar næstkomandi hækkaði matsfyrirtækið Standard & Poor‘s (S&P) lánshæfiseinkunn landsins um einn flokk, úr A- í A, í gær. 11.6.2010 04:00 Wilders vill í stjórn en mætir andstöðu „Hið ómögulega gerðist," sagði Geert Wilders, leiðtogi þjóðernissinna í Hollandi. „Við unnum stærsta sigur kosninganna. Við viljum í stjórn." Wilders hefur boðað harða stefnu gegn innflytjendum, einkum þó múslímum, og hefur hvað eftir annað lýst trúarritum múslíma sem fasískum. Ljóst er að aðrir flokkar vilja helst ekki hafa hann með sér í stjórn. 11.6.2010 03:30 Áhrif á Ísland Óvíst er hvaða áhrif kosningaúrslitin hafa á Icesave-málið, sem hefur að mestu verið í biðstöðu frá því að Íslendingar höfnuðu samningnum við Breta og Hollendinga í þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars. 11.6.2010 03:00 Lífstíð fyrir þjóðarmorð Þrír Bosníuserbar hafa verið dæmdir sekir fyrir þjóðarmorð af Stríðsglæpadómstólnum í Haag. Tveir fengu lífstíðarfangelsi og sá þriðji 35 ára dóm. 11.6.2010 02:00 Piltur skotinn við landamæri Mexíkóbúar eru reiðir Bandaríkjamönnum vegna atviks í El Paso á mánudag, þegar fjórtán ára piltur lét lífið eftir að hafa fengið skot í sig frá bandarískum landamæravörðum. 11.6.2010 01:45 Bretum sama um blótsyrði Rannsókn fjölmiðlafyrirtækisins Ofcom í Bretlandi sýnir fram á að flestir Bretar eru tilbúnir til að leiða hjá sér blótsyrði í fjölmiðlum. 11.6.2010 01:30 Jagúar rennur á Calvin Klein Tveir líffræðingar sem starfa að verndun jagúara í þjóðgarði í Gvatemala hafa fundið fullkomna leið til að laða hin tignarlegu kattardýr að myndavélunum sem notaðar eru til að fylgjast með þeim og skrásetja. „Obsession for Men“ rakspíri frá Calvin Klein er allt sem þarf. 11.6.2010 01:15 Norðmenn dæmdir aftur til dauða í Kongó Herdómstóll í Kongó dæmdi tvo Norðmenn til dauða í annað skiptið. Dæma þurfti aftur í málinu vegna tæknilegra atriða, segir í frétt The Guardian. 10.6.2010 20:07 Laumufarþegi faldi sig í hjólastelli Júmbóþotu Tvítugur Rúmeni þykir með heppnari mönnum heimsins en hann lifði af sem laumufarþegi í hjólastelli Júmbóþotu sem flogið var frá Austurríki til Heathrow flugvallar í Bretlandi. 10.6.2010 07:35 Frjálslyndi flokkurinn er sigurvegari kosninganna í Hollandi Frjálslyndi flokkurinn er sigurvegari þingkosninganna í Hollandi nú þegar megnið af atkvæðum hafa verið talin. 10.6.2010 07:30 Sjá næstu 50 fréttir
FBI birtir leyniskjöl um Kennedy Bandaríska alríkislögreglan, FBI, hefur birt fjölmörg leyniskjöl um Edward Kennedy, fyrrum öldungadeildarþingmann. Flest þeirra fjalla um morðhótanir gegn honum en þar er lítið að finna um bílslys þegar Edward varð valdur að dauða vinkonu sinnar í júlímánuði árið 1969. Hann fór af vettvangi án þess að tilkynna slysið, en baðst síðar afsökunar á því. 15.6.2010 07:20
Fullyrða að Pakistanar aðstoði talíbana í Afganistan Leyniþjónusta Pakistans aðstoðar talibana í Afganistan með ýmsum hætti svo þeir geti barist við hermenn NATÓ-ríkjanna og afganska lögreglu- og hermenn. 15.6.2010 07:17
Líkir mengunarslysinu við hryðjuverkin 11. september Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, líkti olíuslysinu í Mexíkóflóa við hryðjuverkin 11. september 2001 í fyrstu opinberu heimsókninni sinni á svæðinu. Obama hefur heimsótt Alabama, Missisippi og Flórída. Í viðtölum vð fjölmiðla á svæðinu hefur hann meðal annars líkt olíuslysinu við hryðjuverkaárásirnar alræmdu. 14.6.2010 19:57
Ban Ki-moon með áhyggjur af ástandinu í Kirgistan Ban Ki-moon framkvæmdastjóri Sameinuðu Þjóðanna hefur lýst miklum áhyggjum af ástandinu í Kirgistan en þar hafa Kirgisar og Úsbekar borist á banaspjót síðustu daga. 14.6.2010 11:03
Friðarsamningur Hells Angels og Bandidos í uppnámi Eftir meira en 12 ár er sögulegum friðarsamningi milli mótorhjólagengjanna Bandidos og Hells Angles í Danmörku nú lokið. 14.6.2010 08:15
Versti kynferðisafbrotamaður Noregs dæmdur í 9 ára fangelsi Versti kynferðisafbrotamaður í sögu Noregs hefur verið dæmdur í níu ára óskilorðsbundið fangelsi. Hann var dæmdur fyrir kynferðisafbrot gegn 66 drengjum undir lögaldri. 14.6.2010 08:09
FIFA íhugar að banna blásturshljóðfærið vuvuzela á HM Forráðamenn FIFA íhuga nú alvarlega að banna háværann hornablásturinn á leikjunum í Heimsmeistarakeppninni í fótbolta (HM) sem nú fer fram í Suður Afríku. 14.6.2010 07:54
Öryggissveitir bjarga tveimur úr haldi Farc Öryggissveitum í Kólómbíu hefur tekist að bjarga tveimur háttsettum meðlimum sínum úr haldi Farc skæruliðasamtakanna. 14.6.2010 07:43
Skipa nefnd til að rannsaka árásina á skipalestina til Gaza Stjórnvöld í Ísrael ætla að skipa sína eigin rannsóknarnefnd til þess að kanna árás ísraelska flotans á skipalestina til Gaza-svæðisins á dögunum þar sem 9 menn létu lífið. 14.6.2010 07:38
Hákarlar þefa uppi bráð sína Vísindamenn í Bandaríkjunum hafa nú staðfest það, sem margir þóttust vita, að hákarlar beita lyktarskyni þegar þeir elta uppi bráð sína í hafinu. 14.6.2010 04:00
Milljónir tunna borist í hafið Bandaríkin, AP Nú er talið að allt frá einni milljón tunna og upp í 2,4 milljónir tunna af olíu hafi lekið út í Mexíkóflóa frá því sprenging varð í borpallinum Deepwater Horizon þann 20. apríl síðastliðinn. 14.6.2010 03:00
Tugþúsundir flýja átök í Kirgisistan Kirgisistan, ap Um 100 manns hafa látið lífið og að minnsta kosti þúsund hafa særst í átökum í Kirgisistan undanfarna daga. Þá hafa um 75 þúsund Úsbeka þurft að flýja yfir landamærin til Úsbekistan, mest eldra fólk, konur og börn. 14.6.2010 02:00
Ætlar að reyna aftur að sigla í kringum hnöttinn Abby Sunderland, 16 ára stúlka frá Bandaríkjunum, ætlar að reyna aftur að sigla hringinn í kringum hnöttinn þrátt fyrir að seglskúta hennar fékk á sig brot á miðju Indlandshafi fyrr í vikunni. Það var fransk veiðiskip sem bjargaði henni í gær. Hún ætlaði að verða yngsta stúlkan til að sigla ein í kringum hnöttinn. 13.6.2010 20:30
Bjórinn rýkur út í Suður-Afríku Það er hátíð hjá eigendum öldurhúsa og veitingastaða í Suður-Afríku því sala á bjór hefur stóraukist í landinu í kjölfar heimsmeistaramótsins í knattspyrnu þar sem tugir þúsunda aðdáenda liðanna sötra mjöðinn á meðan þeir hvetja sína menn áfram. 13.6.2010 18:45
Átján létust í rútuslysi á Filippseyjum Átján létust og að minnsta kosti þrjátíu slösuðust þegar rúta með írönskum læknanemum fór útaf fjallavegi í Cebuhéraði á Filippseyjum í dag. 13.6.2010 18:24
Skotárás í Bretlandi - fjórir á sjúkrahúsi Fjórir, þrír karlar og ein kona, liggja á sjúkrahúsi eftir að hafa orðið fyrir skotárás á næturklúbbi í Birgmingham í Bretlandi. 13.6.2010 16:17
Rændi og nauðgaði 10 ára stúlku Kevin Holmes, frá Crosby nálægt Liverpool, hefur verið handtekinn grunaður um að hafa rænt og nauðgað tíu ára stúlku. 13.6.2010 13:52
Eymdin algjör í Kirgistan Svo virðist sem vopnuð gengi Kirgista gangi um og skjóti allt sem hreyfist, en lýsing sjónarvotta á aðstæðum í suðurhluta landsins er skelfileg. Einn sjónarvottur lýsir því þannig í samtali við Reuters fréttastofuna að gengi Kirgista skjóti Úsbeka eins og dýr. Þá er borgin Osh, sem er þungamiðja átakanna og önnur stærsta borgin, í rúst. 13.6.2010 13:24
Að minnsta kosti 15 látnir eftir sprengju í Bagdad Að minnsta kosti fimmtán eru látnir eftir að sprengja sprakk fyrir framan Seðlabanka Íraks í höfuðborginni Bagdad í dag. Sprengjan sprakk þegar starfsmenn bankans voru að yfirgefa staðinn. 13.6.2010 15:04
Flóðbylgjuviðvörun afturkölluð Öflugur jarðskjálfti varð í gærkvöldi við Nicobar eyjar á Indlandshafi. Skjálftinn mældist 7,5 á richter. Óttast var að skjálftinn myndi koma af stað flóðbylgju og var flóðbylgjuviðvörun gefin út í gærkvöldi. Hún var svo afturkölluð. Upptök skjálftans voru neðansjávar, um 150 kílómetrum vestur af Misha á Nicobar eyjum. 13.6.2010 09:38
Obama ræddi við Cameron um olíulekann Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, ræddu saman í dag um olíulekann á Mexíkóflóa í dag. Obama hefur gagnrýnt breska olíufélagið BP mikið fyrir hvernig staðið var að málum eftir að olían tók að leka úr olíulindinni á botni Mexíkóflóa. 12.6.2010 19:01
Rússar hjálpa ekki Kirgistan Dimitri Medved, forseti Rússlands, sagðist í dag ekki geta sent her til Kirgistan til að kveða niður óeirðir í suðurhluta landsins. Það var bráðabirgðastjórn í Kirgistan sem leitaði til forsetans um aðstoðina. 12.6.2010 15:49
Að minnsta kosti 16 létu lífið í flóðum í Bandaríkjunum Að minnsta kosti 16 manns hafa látið lífið og 73 eru enn saknað eftir flóð á tjaldstæði í Ouachita fjöllum í Arkansas í Bandaríkjunum í morgun. Flóðið skall á tjaldsvæðið meðan fólkið var sofandi en mikil rigning hefur verið á svæðinu undanfarið. 12.6.2010 15:36
Búið að bjarga skútuskvísunni Abby Sunderland, sem lenti í vandræðum með að verða yngsta manneskjan til að sigla í kringum jörðina, var bjargað á Indlandshafi í hádeginu. 12.6.2010 14:01
Fjörutíu manns létu lífið í byssubardögum í Mexíkó Hátt í fjörutíu manns létu lífið í byssubardögum milli glæpagengja í tveimur borgum Mexíkó á fimmtudag. Þá gengu byssumenn berserskgang í borginni Chihuahua þar sem 19 manns létu lífið og fjórir særðust. Tuttugu aðrir létu lífið eftir að vopnaðir menn létu til skara skríða í borginni Ciudad Madero sama dag. 12.6.2010 13:19
Handtóku ísraelskan njósnara í Póllandi Pólsk yfirvöld handtóku mann í byrjun júní sem þau gruna að sé njósnari á vegum Ísraelsmanna. Hann er grunaður um að tengjast morðinu á Hamasliðanum Mahmoud al-Mabhouh í Dubaí í janúar á þessu ári. 12.6.2010 22:15
Franskt veiðiskip skútuskvísu til hjálpar Talið er að hjálpræði muni berast sextán ára stúlku, sem lenti í hremmingum á Indlandshafi, þegar franskt veiðiskip nær til hennar seinnipartinn í dag. Stúlkan, sem heitir Abby Sunderland og er frá Bandaríkjunum, ætlaði sér að verða yngsti siglingakappinn til að sigla ein umhverfis heiminn. 12.6.2010 13:15
Tveir danskir hermenn létust Tveir danskir hermenn létu lífið í gærmorgun þegar óhapp varð á heræfingu á Jótlandi. Tveir aðrir hermenn særðust. 12.6.2010 02:00
Breskir hermenn brutu lög Nokkrir fyrrverandi breskir hermenn verða væntanlega dregnir fyrir dómara á Norður-Írlandi vegna atburðanna í borginni Londonderry sunnudaginn 30. janúar árið 1972. Þann dag beittu breskir hermenn skotvopnum á hóp kaþólskra mótmælenda með þeim afleiðingum að þrettán manns létu lífið. 12.6.2010 01:00
Borgarstjóri New York græðir í kreppunni Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, græddi meira á fjárfestingum sínum árið 2009 en árið á undan. 11.6.2010 20:32
Óheilbrigðir lifnaðarhættir landlægir í Skotlandi Ný rannsókn leiðir í ljós að óheilbrigðir lifnarðarhættir eru landlægir í Skotlandi. 11.6.2010 07:53
Olíulekinn á Mexíkóflóa tvöfalt meiri en áður var talið Nýjar mælingar á olíulekanum í Mexíkóflóa gefa til kynna að hann hafi verið allt að tvöfalt meiri en áður var talið. 11.6.2010 07:39
Barnabarnabarn Nelson Mandela fórst í bílslysi Barnabarnabarn Nelson Mandela fyrrum forseta Suður Afríku lést í bílslysi á leið sinni heim eftir eina af opnunartónleikunum fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta síðdegis í gær. 11.6.2010 07:37
Skólastúlka í miklum vandræðum á skútu á Indlandshafi Abby Sunderland sextán ára gömul skólastúlka frá Kaliforníu á í miklum vandræðum á skútu sinni eftir að hafa lent í óveðri á afskekktu svæði á Indlandshafi um 3000 kílómetra austur af Madagaskar. Skip eru á leið til hennar. 11.6.2010 07:30
Lánshæfismat hækkaði við fréttirnar Í kjölfar staðfestingar þess að Eistland muni taka upp evru í janúar næstkomandi hækkaði matsfyrirtækið Standard & Poor‘s (S&P) lánshæfiseinkunn landsins um einn flokk, úr A- í A, í gær. 11.6.2010 04:00
Wilders vill í stjórn en mætir andstöðu „Hið ómögulega gerðist," sagði Geert Wilders, leiðtogi þjóðernissinna í Hollandi. „Við unnum stærsta sigur kosninganna. Við viljum í stjórn." Wilders hefur boðað harða stefnu gegn innflytjendum, einkum þó múslímum, og hefur hvað eftir annað lýst trúarritum múslíma sem fasískum. Ljóst er að aðrir flokkar vilja helst ekki hafa hann með sér í stjórn. 11.6.2010 03:30
Áhrif á Ísland Óvíst er hvaða áhrif kosningaúrslitin hafa á Icesave-málið, sem hefur að mestu verið í biðstöðu frá því að Íslendingar höfnuðu samningnum við Breta og Hollendinga í þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars. 11.6.2010 03:00
Lífstíð fyrir þjóðarmorð Þrír Bosníuserbar hafa verið dæmdir sekir fyrir þjóðarmorð af Stríðsglæpadómstólnum í Haag. Tveir fengu lífstíðarfangelsi og sá þriðji 35 ára dóm. 11.6.2010 02:00
Piltur skotinn við landamæri Mexíkóbúar eru reiðir Bandaríkjamönnum vegna atviks í El Paso á mánudag, þegar fjórtán ára piltur lét lífið eftir að hafa fengið skot í sig frá bandarískum landamæravörðum. 11.6.2010 01:45
Bretum sama um blótsyrði Rannsókn fjölmiðlafyrirtækisins Ofcom í Bretlandi sýnir fram á að flestir Bretar eru tilbúnir til að leiða hjá sér blótsyrði í fjölmiðlum. 11.6.2010 01:30
Jagúar rennur á Calvin Klein Tveir líffræðingar sem starfa að verndun jagúara í þjóðgarði í Gvatemala hafa fundið fullkomna leið til að laða hin tignarlegu kattardýr að myndavélunum sem notaðar eru til að fylgjast með þeim og skrásetja. „Obsession for Men“ rakspíri frá Calvin Klein er allt sem þarf. 11.6.2010 01:15
Norðmenn dæmdir aftur til dauða í Kongó Herdómstóll í Kongó dæmdi tvo Norðmenn til dauða í annað skiptið. Dæma þurfti aftur í málinu vegna tæknilegra atriða, segir í frétt The Guardian. 10.6.2010 20:07
Laumufarþegi faldi sig í hjólastelli Júmbóþotu Tvítugur Rúmeni þykir með heppnari mönnum heimsins en hann lifði af sem laumufarþegi í hjólastelli Júmbóþotu sem flogið var frá Austurríki til Heathrow flugvallar í Bretlandi. 10.6.2010 07:35
Frjálslyndi flokkurinn er sigurvegari kosninganna í Hollandi Frjálslyndi flokkurinn er sigurvegari þingkosninganna í Hollandi nú þegar megnið af atkvæðum hafa verið talin. 10.6.2010 07:30