Erlent

Milljónir tunna borist í hafið

Fjaran hreinsuð Verkamenn tína upp olíuklepra.nordicphotos/AFP
Fjaran hreinsuð Verkamenn tína upp olíuklepra.nordicphotos/AFP

Bandaríkin, AP Nú er talið að allt frá einni milljón tunna og upp í 2,4 milljónir tunna af olíu hafi lekið út í Mexíkóflóa frá því sprenging varð í borpallinum Deepwater Horizon þann 20. apríl síðastliðinn.

Til samanburðar má nefna að þá tíu mánuði sem olía lak út í Mexíkóflóa í versta olíuslysi sögunnar til þessa árið 1979 streymdu alls um þrjár milljónir tunna út í hafið, en lekinn í ár hefur aðeins staðið í tvo mánuði.

Eftir því sem vísindamenn skoða lekann betur versnar mat þeirra á ástandinu. Svo virðist sem allt að 500 þúsund tunnur af olíu hafi lekið út í hafið á degi hverjum, en þetta er tvöfalt meira magn en versta mat manna hingað til hafði miðast við.

Þegar olíuskipið Exxon Valdes strandaði við Alaska árið 1989 bárust „aðeins“ 261 þúsund tunnur út í hafið, eða álíka magn og nú hefur borist út í hafið á hverju fimm til þrettán daga tímabili.

Þessar nýju tölur eiga ekki við um það magn sem borist hefur út í hafið síðan starfsmönnum BP tókst að setja eins konar tappa á olíubrunninn og dæla þaðan hluta olíunnar upp á yfirborð sjávar. - gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×