Átján létust og að minnsta kosti þrjátíu slösuðust þegar rúta með írönskum læknanemum fór útaf fjallavegi í Cebuhéraði á Filippseyjum í dag.
Bremsubúnaður rútunnar bilaði með þeim afleiðingum að hún steyptist niður í þrjátíu metra djúpt gljúfur. Illa hefur gengið að ná fólki af slysstað en nokkrir eru enn fastir í braki rútunnar.
Þyrlur frá nálægri herstöð voru notaðar til að flytja slasaða af vettvangi en ástand vega er afar slæmt þar sem slysið átti sér stað.
Átján létust í rútuslysi á Filippseyjum
