Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fljúgandi furðuský herja á Breta Margir Bretar hafa talið sig sjá geimför frá öðrum hnöttum undanfarna daga og hefur því jafnvel heyrst fleygt að dularfullt loftfar hafi rekist með ljósagangi og hávaða á vindmyllu í Lincolnskíri. 20.1.2009 07:23
Ísraelar ætla frá Gasa í dag „Fólk er svo sannarlega ánægt að sjá okkur,“ sagði Ahmed, einn af lögreglumönnum Hamas-hreyfingarinnar, sem nú eru komnir aftur út á götur Gasaborgar eftir þriggja vikna stanslausar árásir Ísraelsmanna. 20.1.2009 06:30
Búist við milljónum gesta á innsetningarathöfn Obama Sannkölluð hátíðarstemning er í höfuðborg Bandaríkjanna, nú þegar Barack Obama tekur við forsetaembættinu af George W. Bush. 20.1.2009 06:15
Samningurinn um gasdeilu undirritaður Forsætisráðherrar Rússlands og Úkraínu, þau Vladimír Pútín og Júlía Tímosjenko, fylgdust í gær með undirritun samnings um lausn á gasdeilunni, sem hefur orðið til þess að íbúar víða í Evrópu hafa ekki fengið gas til húshitunar. 20.1.2009 03:30
Svellkaldur Obama Fjölmiðlar vestanhafs hafa tekið eftir því hversu yfirvegaður Barack Obama hefur verið í dag þrátt fyrir að einungis fáeinar klukkustundir séu þangað til að hann tekur við einu ábyrgðarmesta starfi heims. 19.1.2009 23:25
Gasdeilunni lokið Rússar og Úkrínumenn hafa gert með sér samkomulag til næstu 10 ára og því er gasdeilunni sem hófst 1. janúar lokið. Júlía Tymosjenko, forsætisráðherra Úkraínu, og Vladimir Pútin, forsætisráðherra Rússlands, skrifuðu undir samkomulagið í dag. 19.1.2009 16:23
Stjörnur hylltu Obama Stjörnurnar hylltu Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseta, á tónleikum í Washington í gærkvöldi. Obama tekur fyrstur blökkumanna við embættinu á morgun. Búist er við að tvær milljónir manna mæti og fylgist með. 19.1.2009 20:25
Ban Ki-moon heimsækir Gaza Ban Ki-moon framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna ætlar að heimsækja Gaza svæðið á morgun að því er fram kemur hjá fréttastofu Reuters. Þetta er haft eftir heimildum innan úr ísraelsku ríkisstjórninni og búist er við því að hann heimsæki einni suðurhluta Ísraels í sömu ferð. 19.1.2009 15:09
Abbas hvetur Palestínumenn til að sýna samstöðu Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna og leiðtogi Fatha-hreyfingarinnar á Vesturbakkanum, hvetur öll samtök Palstínumanna til að senda fulltrúa til viðræðna í Egyptalandi hið fyrsta. Á þeim fundi verði tekið á deilumálum hreyfinganna og reynt að koma á sáttum fyrir fullt og fast. Abbas segir að fundað verði eins lengi og þurfa þyki. 19.1.2009 13:52
Bretum verr við samkynhneigða en fólk af öðrum kynþáttum Hópur sálfræðinga frá Shire Professional-ráðgjafarstofunni, undir stjórn dr. Pete Jones, hefur reiknað það út að meira en þriðjungi Breta sé illa við samkynhneigða en það er stærri hópur en sá sem leggur fæð á fólk af ólíkum kynþáttum en þar er um að ræða einn fjórða. 19.1.2009 08:13
Trjábolum stolið eftir skipsstrand í Noregi Nokkru magni af trjábolum, sem fóru í sjóinn þegar norska flutningaskipið Mirabelle strandaði við Bømlo syðst í Noregi á föstudag, hefur verið stolið. 19.1.2009 08:08
Vopnahlé á Gaza heldur Vopnahléið á Gaza, sem Ísraelsmenn lýstu yfir á laugardagskvöld, heldur enn sem komið er. Palestínumenn fóru um svæðið í gær og notuðu berar hendur og jarðýtur til að grafa lík upp úr rústum víða um borgina. 19.1.2009 07:57
Ummerki um metangas á yfirborði Mars Ummerki um metangas hafa fundist á yfirborði Mars og getur það gefið til kynna einhvers konar líffræðilega virkni. Meira en 90 prósent af metangasi hér á jörðinni á rætur sínar að rekja til einhvers konar lífrænna vistkerfa og því þykir Michael Mumma og rannsóknarhópi hans hjá bandarísku geimferðastofnuninni NASA það sæta miklum tíðindum að finna merki um metangas á Mars. 19.1.2009 07:55
Myndir af stríðsföngum á Facebook brot á Genfarsáttmála Myndir, sem danskir hermenn tóku af stríðsföngum í Írak árið 2003 og einn Dananna birti á Facebook-síðu sinni, hafa vakið mikinn úlfaþyt innan danska hersins enda brjóta slíkar myndbirtingar í bága við Genfarsáttmálann. 19.1.2009 07:31
Fjöldi Bandaríkjamanna kemst ekki á eftirlaun Bandaríkjamenn sem nálgast eftirlaunaaldurinn hætta nú í æ ríkari mæli við að setjast í helgan stein en vinna þess í stað áfram vegna lífeyrissparnaðar sem hvarf í svarthol efnahagshrunsins. 19.1.2009 07:26
Nýtt gjald fyrir óendurvinnanlegt sorp í Bretlandi Nú styttist í að sveitarstjórnum í Bretlandi verði kleift að rukka þegna sína um allt að 9.500 krónur fyrir að henda óendurvinnanlegum úrgangi í heimilissorptunnur sínar. Upplýsingar um þetta munu berast yfirvöldum gegnum örflögur sem komið verður fyrir í tunnunum. 19.1.2009 07:23
Reykingamaður lést þegar hann kveikti í súrefniskút Velskur hjartasjúklingur á áttræðisaldri lést þegar hann kveikti í súrefniskút sem hann notaði til öndunaraðstoðar en maðurinn var þá að kveikja sér í vindli með kútinn sér við hlið. 19.1.2009 07:20
Segir Íra eiga að hóta að draga sig út úr evrusvæðinu Einn af fyrrverandi stjórnendum írska seðlabankans, David Mc Williams, segir að ef Evrópusambandið komi Írum ekki til hjálpar í efnahagskreppunni eigi Írar að hóta því að draga sig út úr evrusvæðinu. 19.1.2009 07:16
Landhelgisgæsla sjóræningja Sjóránum fjölgaði mjög á síðasta ári. Samtals var ráðist á 293 skip á árinu, en af þeim var 49 skipum rænt og nærri 900 skipverjum haldið í gíslingu víðs vegar um heim. 19.1.2009 06:00
Obama kominn í forsetagír Barack Obama, verðandi forseti Bandaríkjanna, og Joe Biden, verðandi varaforseti, komu ásamt fjölskyldum sínum til Washington-borgar með lest á laugardag til að undirbúa sig fyrir embættistöku Obama á þriðjudag. 19.1.2009 04:00
Leiðtogi Hamas segir Palestínumenn óhrædda Einn af leiðtogum Hamas samtakanna sagði í dag að þriggja vikna árásir Ísraelsmanna á Gaza ströndinni væru misheppnaðar og hefðu ekki orðið til þess að skelfa Palestínumenn. 18.1.2009 20:39
Gaza ströndin í rúst Ísraelar boðuðu einhliða vopnahlé á miðnætti. Hamas samtökin segja að þau muni hætta öllum hernaðaraðgerðum og gefa ísraelum vikufrest til þess að flytja hermenn sína frá ströndinni. 18.1.2009 18:12
Ég flýg ekki yfir íbúðasvæði Rannsóknarnefnd flugslysa í Bandaríkjunum segir að annar hreyfill vélarinnar sem nauðlenti á Hudson fljóti sé enn á sínum stað, en í fyrstu var talið að þeir hefðu báðir brotnað af í lendingunni. 18.1.2009 18:03
Obama þræddi slóð Lincolns Barack Obama hóf daginn í Fíladelfíu þar sem hann fór um borð í járnbrautarlest sem flutti hann og fjölskyldu hans 219 kílómetra leiðina til Washington. 18.1.2009 17:52
Hamas ætla að hætta hernaðaraðgerðum Hamas samtökin tilkynntu í dag að þau myndu hætta öllum hernaðaraðgerðum og gefa Ísraelum vikufrest til þess að flytja hermenn sína frá Gaza ströndinni. 18.1.2009 15:27
Obama styður Geithner þrátt fyrir undanskot hans frá skatti Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseti, stendur þétt að baki Timothy Geithner, sem hann hefur valið í embætti fjármálaráðherra, þrátt fyrir að honum hafi orðið á mikil mistök þegar að hann sveikst undan því að greiða skatta. Þetta segir verðandi starfsmannastjóri í Hvíta húsinu. 18.1.2009 15:10
Ísraelar lýstu yfir vopnahléi Ísraelar lýstu í nótt yfir einhliða vopnahléi á Gaza ströndinni. Ekki eru þó byssurnar þagnaðar. Vopnahléð tók gildi á miðnætti. Skömmu síðar skutu Hamas liðar eldflaugahrinu á Ísrael. Því var svarað með loftárás sem Ísraelar segja að hafi hitt bæði skotpalla og skotmennina. Þótt Ísraelar hafi lýst yfir vopnahléi eru hermenn þeirra enn á ströndinni og verða þar áfram enn um sinn. 18.1.2009 09:32
Eiga nóg í fjórar til fimm bombur Bandarískur sérfræðingur Selig Harrison hefur verið í Norður-Kóreu síðan á þriðjudag og rætt við háttsetta embættismenn þar í landi. 17.1.2009 11:51
Armstrong hjólar á ný Hjólreiðakeppinn Lance Armstrong hefur keppni á nýjan leik á morgun í vikulangri hjólreiðakeppni í Ástralíu. Á fundi með fréttamönnum í dag kvaðst hann hafa litla möguleika á sigri eftir að hafa setið á rassinum í þrjú og hálft ár og drukkið bjór, eins og hann orðaði það. 17.1.2009 10:18
Talibanar banna skólagöngu kvenna Talibanar hafa bannað skólagöngu kvenna í dalnum Swat í norðvesturhluta landsins. Þar ráða þeir lögum og lofum. Bannið við skólagöngu kemur niður á fjörutíu þúsund stúlkun og ungum konum. Talibanar halda því fram að menntun kvenna sé ó-islömsk. 17.1.2009 09:59
Vill að sonur sinn taki við Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur ákveðið að yngsti sonur sinn taki við af sér, að því er fréttastofa í Suður-Kóreu heldur fram. Hins vegar bárust einnig fréttir af því að elsti sonur hans sé tilbúinn að taka við af föður sínum. 17.1.2009 06:45
Vopnahlé hugsanlega undirritað á sunnudaginn Yfirvöld í Ísrael eru farin að hafa orð á því að sókn þeirra á Gaza ströndinni ljúki brátt með vopnahléi. Sagt er að Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels, Mahmoud Abbas forseti Palestínumanna og Hosni Mubarak forseti Egyptalands geti þegar á sunnudag undirritað samkomulag sem yrði grunnur að eins árs vopnahléi á milli Ísraela og Hamas samtakanna. Yfir 1100 Palestínumenn hafa farist í innrás Ísraela á Gaza ströndina. 16.1.2009 20:48
Lík 1800 Þjóðverja finnast í fjöldagröf Fjöldagröf fannst þegar verið var að grafa fyrir hóteli í bænum Malbork í Norður-Póllandi. Í síðari heimsstyrjöldinni hét bærinn Marienburg og tilheyrði Þýskalandi. Í gröfinni eru lík um átjánhundruð Þjóðverja sem týndust í framsókn rússneska hersins í lok stríðsins. Talið er að rússnesku hermennirnir hafi drepið fólkið. Milljónir óbreyttra borgara týndust í stríðinu og ekki er enn vitað um örlög þeirra. 16.1.2009 19:24
Tíu bjargað af flutningaskipi við Noreg Tíu skipverjum var í dag bjargað af flutningaskipi frá Möltu sem strandaði í Harðangursfirði í Noregi. Mikill leki kom að skipinu og þótti vissast að áhöfnin yfirgæfi það. Farþegaskip sem var skammt undan Harðangursfirði heyrði neyðarkall frá maltneska skipinu og kom fljótt á vettvang. Tvö norsk strandgæsluskip og þyrla voru einnig send á vettvang. Maltneska skipið var með timburfarm og ekki talið að það sökkvi í bili. Norska strandgæslan mun reyna að gera við það til bráðabirgða og koma því til hafnar. 16.1.2009 19:14
Flugstjórinn var síðastur frá borði Flugstjórinn sem nauðlenti farþegaþotu sinni á Hudson fljótinu í New York fór síðastur frá borði eftir að hafa fullvissað sig um að enginn farþegi væri eftir. 16.1.2009 18:39
Bush segist hafa fylgt samvisku sinni George Bush fráfarandi Bandaríkjaforseti sagði í kveðjuræðu sinni til bandarísku þjóðarinnar að hann hafi alltaf fylgt sinni bestu samvisku í embættisverkum sínum. 16.1.2009 12:06
Lögreglumenn selja nærföt og snyrta grafir Dæmi eru um að breskir lögreglumenn selji nærfatnað, snyrti grafir og dáleiði fólk til að ná sér í nokkur pund aukalega. 16.1.2009 07:58
Segist hafa verið valinn af Hitler til ævisagnaritunar Breskur sagnfræðingur, sem eyddi rúmu ári í fangelsi fyrir að neita því að helför gyðinga hafi átt sér stað, heldur því fram að Adolf Hitler hafi valið hann til að rita ævisögu sína. 16.1.2009 07:54
Nýstárlegt „flughótel“ í Svíþjóð Sænskur frumkvöðull að nafni Oscar Dios hefur opnað hótel sem ætlað er að losa þá, sem finnst óbærilegt að sofa í flugvélum, við óþægindin. 16.1.2009 07:36
Drápu sjötugan mann fyrir tvær rauðvínsflöskur Þrír ungir menn sitja nú í gæsluvarðhaldi í hafnarbænum Kragenæs í Danmörku grunaðir um að hafa orðið rúmlega sjötugum manni að bana til þess að komast yfir tvær rauðvínsflöskur. Þetta gerðist á heimili mannsins á þriðjudaginn. 16.1.2009 07:32
Myndband af lögreglumorði á Netinu Myndband sem sýnir lögreglumann skjóta handtekinn mann til bana í Oakland í Kaliforníu á nýársdag fer nú sem eldur í sinu um vefinn og hefur meðal annars birst á myndskeiðavefnum YouTube. 16.1.2009 07:27
Pakistanar handtaka 124 aðila vegna Mumbai-árása Yfirvöld í Pakistan hafa handtekið 124 aðila sem grunaðir eru um að tengjast árásunum á indversku borgina Mumbai í nóvember þar sem tæplega 200 manns biðu bana og fjölmargir særðust. 16.1.2009 07:24
Innanríkisráðherra Hamas felldur ásamt syni Said Siyam, innanríkisráðherra Hamas á Gaza-svæðinu var felldur í dag í loftárás Ísraela. Hann er einn æðsti forystumaður samtakanna sem fallið hefur frá því að árásirnar hófust fyrir rúmlega 20 dögum. Siaym var yfirmaður nokkur þúsund Palestínumanna í öryggissveit Hamas-liða á svæðinu. 15.1.2009 21:30
Flugvél hrapaði við New York - 135 um borð Flugvél frá flugfélaginu US Airways hrapaði í Hudson-ánna í New York fylki fyrir stundu. Á vef BBC kemur fram að björgunarbátar séu komnir að vélinni og reyna björgunarmenn að koma farþegunum til bjargar. 15.1.2009 20:58
Árás á flóttamannahjálp SÞ: Vorum að verja okkur Forsætisráðherra Ísraels segir höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í Gaza verið notaðar til árása á ísraelska hermenn. Þeir hafi einfaldlega verið að svara fyrir sig þegar þeir hafi gert árás á þær í dag. Sameinuðu þjóðirnar vísa þessu á bug og hefur flóttamannahjálp samtakanna hætt störfum á Gaza um stundarsakir. 15.1.2009 19:06