Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mannskæð sprengjuárás í Bagdad Að minnsta kosti 22 létust og 54 særðust í morgun þegar sprengja sem komið hafði verið fyrir í bifreið sprakk á strætisvagnastöð í Bagdad, höfuðborg Íraks. Árásin var gerð í norðvesturhlusta borgarinnar en þar eru shía-múslimar fjölmennir. 27.12.2008 13:15
Á rangri plánetu Fylkisstjóri Illinois, Rod Blagojevich, sem grunaður er um að hafa ætlað að selja öldungardeildarsæti Barack Obama, segir að ef hann hafi gert eitthvað rangt, sé hann á rangri plánetu. 27.12.2008 12:15
Þúsundir minnast Benazir Bhutto Meira en 150.000 Pakistanar eru saman komnir í borginni Garhi Khuda Bakhsh við grafhýsi Benazir Bhutto, fyrrum forsætisráðherra Pakistans, sem var myrt fyrir ári síðan í borginni. Lögreglan hefur gert umtalsverðar öryggisráðstafanir við grafhýsið til að koma í veg fyrir óeirðir. 27.12.2008 11:21
120 látnir eftir loftárásir Ísraela Rúmlega 120 Palestínumenn eru látnir og yfir 200 særðir eftir að Ísraelar hófu röð loftárása á Gaza-ströndina í morgun. Tugum flugskeyta hefur verið skotið á skotmörk á svæðinu, þar á meðal lögreglustöð. Gaza-svæðið hefur verið á yfirráðasvæði Hamas-samtakanna frá í júní 2007. 27.12.2008 10:47
Saknað eftir hákarlaárás í Ástralíu Óttast er að karlmaður á sextugsaldri hafi orðið fyrir hákarlaárás við vesturströnd Ástralíu í morgun. Maðurinn var í sjónum með 24 ára gömlum syni sínum þegar hann hvarf skyndilega og sjórinn varð rauður á litinn. Skömmu áður hafði sést til hákarls á sveimi í kringum fiskibáta. 27.12.2008 10:41
Sprengja sprakk á flugvelli í Nepal Einn særðist þegar öflug sprengja sprakk nærri Tribhuvan alþjóðaflugvellinum í Kathamandu í Nepal í gær. Mikil umferð vestrænna ferðamanna hefur verið um flugvöllinn yfir hátíðarnar og þykir mikil mildir að enginn hafi látist. 27.12.2008 10:30
Íhaldssamir fá frekar framgang Hófsamir tyrkneskir múslimar eru nú undir auknum þrýstingi til að ganga með höfuðklúta, ganga til bæna á föstudögum og fasta í Ramadan-mánuði ef þeir vilja framgang í starfi innan stjórnsýslunnar. 27.12.2008 03:30
Nytsömustu síðurnar á Netinu Breska dagblaðið Telegraph hefur, líkt og Vísir, birt lista yfir mest lesnu fréttirnar á vefútgáfu blaðsins, www.telegraph.co.uk. Þar eru fréttir af Barack Obama og bandarísku kosningunum fyrirferðarmiklar auk kreppufrétta og frétta frá Ólympíuleikunum í Peking sem haldnir voru í sumar. Mest lesna fréttin er hinsvegar "gagnleg", en þar er um að ræða lista yfir 101 nytsamar síður á Internetinu. 26.12.2008 21:10
Morðóði jólasveinninn myrti níu Níunda fórnarlamb Bruce Pardo, sem hóf skothríð í jólaboði íklæddur jólasveinabúningi á aðfangadag er fundið. Líkið fannst í dag í rústum hússins sem Pardo kveikti í eftir að hafa skotið á veislugestina. 26.12.2008 19:31
Jarðskjálftar í Kína Þúsundum manna hefur verið gert að yfirgefa heimili sín í suðvestur Kína í kjölfar þess að þrír jarðskjálftar riðu yfir svæðið í dag. Stærsti skjálftinn var 4,9 á Richter kvarðanum og slösuðust að minnsta kosti nítján. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi látið lífið í skjálftunum. Kínverjar eru enn að takast á við hamfarirnar sem riðu yfir þann tólfta maí í ár þegar jarðskjálfti í Sichuan héraði varð áttatíu þúsund manns að bana. 26.12.2008 19:41
Barack Obama er dáðasti maður Bandaríkjanna Barack Obama, verðandi forseti Bandaríkjanna, er dáðasti maður landsins ef marka má könnun á vegum dagblaðsins USA Today og Gallup. Könnunin er árlegur viðburður og er ávallt sagt frá niðurstöðum hennar á öðrum degi jóla. Könnunin nær til allra ríkja Bandaríkjanna og er spurt hvaða karlmann og hvaða konu menn dáist mest að. Obama sigraði karlahópinn með miklum yfirburðum, en 32 prósent þeirra sem svöruðu nefndu hann. 26.12.2008 16:39
Indverjum ráðið frá að ferðast til Pakistans Yfirvöld á Indlandi ráða Indverjum frá því að ferðast til nágrannaríksins Pakistans. Spenna hefur magnast milli kjarnorkuveldanna frá morðárásinni í Múmbaí á Indlandi í síðasta mánuði. 26.12.2008 14:59
Forseti Gíneu borinn til grafar Lansana Conté, fyrrverandi forseti Vestur-Afríkuríkisins Gíneu, var borinn til grafar með viðhöfn í höfuðborginni Conakry í dag. Conté, sem var forseti Gíneu í nær aldarfjórðung lést á mánudaginn eftir langvinn veikindi. Herforingjar hrifsuðu þegar til sín völd í landinu. 26.12.2008 14:47
Palestínskar stúlkur féllu í flugskeytaárás Tvær palestínskar stúlkur týndu lífi þegar flugskeyti herskárra Palestínumanna skall fyrir mistök á húsi þeirra á Gaza-svæðinu í dag. Stúlkurnar voru 5 og 13 ára. Flugskeytin áttu að springa handan landamæranna í Ísrael. 26.12.2008 14:24
Ísraelar opna landamærin að Gaza Ísraelar opnuðu í morgun landamærin að Gaza þannig að hægt væri að flytja hjálpargögn þangað. Landamærin hafa verið lokuð um nokkurt skeið. 26.12.2008 13:30
Þjóðarsorg í Úkraínu Björgunarmenn í Jev-pa-tóríu í suðurhluta Úkraínu leita enn eftirlifenda í rústum fjölbýlishúss sem sprakk aðfaranótt jóladags. Tuttugu manns er enn saknað en vitað er að tuttugu og tveir týndu lífi. 26.12.2008 10:05
Kínversk herskip verjast sómölskum sjóræningjum Þrjú kínversk herskip sigldu af stað frá Kína til Sómalíu í morgun. Verkefni hermanna um borð er að halda til undan strönd Afríkuríkisins og verja kínversk skip sem fara þar hjá gegn árásum sjóræningja. 26.12.2008 09:48
Maður í jólasveinabúning drap átta í skothríð Að minnsta kosti átta eru látnir eftir að maður klæddur í jólasveinabúning hóf skotrhríð í jólaboði á aðfangadagskvöld í Suður Karólínu. 26.12.2008 09:39
Eartha Kitt er látin Söng- og leikkonan Eartha Kitt er látin 81 árs að aldri. Hún lést úr ristilkrabbameini á sjúkrahúsi í New York. 26.12.2008 09:25
Hjálpargögn til Gaza þrátt fyrir bann Ísraela Hjálparsamtökin Rauði hálfmáninn hafa sent hjálpargögn af stað til Gaza-strandarinnar þrátt fyrir að Ísraelar hafi bannað nánast alla flutninga á hjálpargögnum á svæðið. Hjálparfarmur skips á vegum samtakanna inniheldur meðal annars lyf og mat fyrir nauðstadda á svæðinu. 25.12.2008 21:45
Árásarmaðurinn í Stokkhólmi er ófundinn Þrír særðust mikið þegar karlmaður hóf skothríð í spilavíti í Svíþjóð í gær. Árásarmaðurinn er enn ófundinn. Árásin átti sér stað við Cosmopol spilavítið í miðborg Stokkhólms í gær. Mikil hræðsla greip um sig meðal gesta spilavítisins. 25.12.2008 19:45
Þjóðarsorg í Úkraínu - Rússar bjóða fram aðstoð Að minnsta kosti 20 létu lífið þegar fjölbýlishús á í suðurhluta Úkraínu sprakk í loft upp í gær. Talið er að 24 séu enn grafnir í rústunum. Lýst hefur verið yfir þjóðarsorg í landinu og þá hafa Rússar boðið fram aðstoð sína. 25.12.2008 18:58
Abbas í Hebron í fyrsta sinn sem forseti Mahmoud Abbas forseti Palestínumanna fór í sína fyrstu opinberu heimsókn frá því að hann tók við embætti árið 2005 til Hebron sem er stærsta borgin á Vesturbakkanum. 25.12.2008 17:15
Elísabet drottning dauf í jóladagsávarpi Áhyggjur af efnahagsástandinu og ofbeldi í heiminum hafa dregið úr jólagleðinni, að mati Elísabetar Englandsdrottningar. Samkvæmt Reuters-fréttastöðinni var heldur dauflegur tónn í ávarpi hennar í þetta sinn. 25.12.2008 16:09
Ísraelar aðvara Hamas-samtökin Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels segist ekki hika við að beita hernum gegn liðsmönnum Hamas-samtakanna og öðrum herskáum samtökum Palestínumanna á Gaza-svæðinu. Tzipi Livni utanríkisráðherra segir að ísraelsk stjórnvöld geti ekki umborið árásir samtakanna sem beinast gegn ísraelskum þegnum. 25.12.2008 15:43
Nóbelsverðlaunahafinn Harold Pinter látinn Breska leikskáldið og nóbelsverðlaunarhafinn Harold Pinter er látinn 78 ára að aldri. Pinter lést í gær á aðfangadagskvöld eftir að hafa barist við krabbamein undanfarin ár. Hans hefur verið minnst víða í Bretlandi í dag. 25.12.2008 14:35
Þúsundir fögnuðu fæðingu Krists í Bethlehem Þúsundir manna fögnuðu fæðingu Krists í Bethlehem í gær. Hátíðarhöld fóru fram í skugga eldflaugaárása Hamas samtakanna á Ísrael. 25.12.2008 13:00
Ellefu létust í sprengingu í Úkraníu Að minnsta kosti ellefu létu lífið þegar fjölbýlishús í suðurhluta Úkraínu sprakk í loft upp í gær. Talið er að 24 séu enn grafnir í rústunum. 25.12.2008 12:06
Mexíkönsk fegurðardrotting gripin í för með glæpagengi Mexíkanska fegurðardrottningin Laura Zuniga var handtekin í upphafi vikunnarí för með sjö meðlimum glæpagengis og bílum fullum af vopnum og skotfærum. 25.12.2008 11:43
Mikil snjókoma veldur vandræðum vestanhafs Mikil snjókoma og slæm vetrarveður hafa sett stirk í reikinginn hjá þúsundum Bandaríkjamanna og Kanadabúa þessi jólin. Margir sitja fastir í flugstöðum og á járnbrautarstöðvum víða um landið. 25.12.2008 11:17
Ölvaður skaut þrjá á spilavíti í Stokkhólmi Ölvaður maður skaut þrjá á spilavíti í Stokkhólmi í Svíþjóð í gærkvöldi. Mildi þykir að enginn fórst í þessari skotárás. 25.12.2008 10:50
Gaf ríflega hálfan milljarð kr. af lottóvinningi til fátækra Belgar kalla hann Jólasveininn en það er maður sem gaf ríflega hálfan milljarð króna af lóttóvinningi sínum til fátækra nú um jólin. 25.12.2008 09:35
Hundruðir innbrota í Danmörku á aðfangadagskvöld Hin árlega jólaplága í Danmörku, innbrot á aðfangadagskvöld, lét sig ekki vanta í ár fremur en fyrri ár. Hundruðir innbrota voru fram um allt landið. 25.12.2008 09:21
Bað fyrir endalokum haturs og ofbeldis í Miðausturlöndum Benedict páfi bað fyrir endalokum haturs og ofbeldisí Miðausturlöndum í miðnæturmessu sinni í Vatikaninu í gærkvöldi. 25.12.2008 09:02
Páfinn hræðist samkynhneigð Jafnmikilvægt er að bjarga mannkyninu frá sam- og tvíkynhneigð og að forða regnskógunum frá eyðileggingu. Þetta sagði Benedikt páfi XVI. í árlegu ávarpi sínu til kardínála og preláta í Vatíkaninu í gær. Hvort tveggja væri liður í að verja sköpunarverk Guðs. 24.12.2008 04:00
Bush undirbýr flutning úr Hvíta húsinu George Bush, forseti Bandaríkjanna, er í óða önn að undirbúa brotthvarf sitt úr Hvíta Húsinu. Hann flytur út í janúar en í dag tæmdi hann fataskápinn sinn og fór með gamlar yfirhafnir til góðgerðarsamtaka sem sjá svo um að koma þeim áfram til þeirra sem minna mega sín. 23.12.2008 22:05
Viðhorf kvenna hefur áhrif á líkama þeirra á meðgöngu Viðhorf eða skynjun kvenna á líkama þeirra fyrir fæðingu getur aukið líkur á að þær þyngist mikið á meðgöngu. Þetta kemur fram í nýrri amerískri rannsókn sem hefur verið gerð opinber. Rannsóknin, sem tók til 15 hundruð ófrískra kvenna, leiddi í ljós að þær sem skynjuðu líkamsþyngd sína rangt voru líklegri til þess að þyngjast á meðgöngu. 23.12.2008 21:10
Jarðskjálfti reið yfir N-Ítalíu Snarpur jarðskjálfti reið yfir norðurhluta Ítalíu í dag í grennd við borgina Parma. Skjálftinn mældist 5,2 á Richter. Enn sem komið er hafa engar fréttir borist af slysum á fólki eða tjóni. Jarðskjálftans var vart í borgunum Mílan, Flórens og Trieste. 23.12.2008 17:03
Allir vilja vinna hjá Obama Barack Obama, sem vann sögulegan sigur í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í nóvember er eftirsóttur atvinnuveitandi. Nú er verið að ráða í störf í Hvíta húsinu og eru átta þúsund stöður á lausu. Við fyrstu sýn ætti að reynast erfitt að að manna allar þær stöður í Washington en umsóknum rignir inn og nú þegar hafa þrjú hundruð þúsund manns sótt um vinnu hjá Obama, sem eins og fréttastofan CBS bendir réttilega á, jafnast á við að allir Íslendingar hafi sótt um starf hjá nýja forsetanum. 23.12.2008 15:03
Kínverjar gefa pöndur Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að færa vinum sínum í Taívan fallega gjöf fyrir jólin. Þeir hafa látið flytja tvær pöndur frá Kína til Taívan sem vott um vináttu þjóðanna. 23.12.2008 12:40
Ríkisstjórn Gíneu sett af í kjölfar andláts forseta Lansana Conte, forseti Gíneu er látinn. Aðeins fáeinum klukkutímum eftir að andlát hans var tilkynnt var yfrlýsing lesin í ríkisútvarpinu þar í landi þar sem það var tilkynnt að stjórnarskráin væri ekki lengur í gildi og að ríkisstjórnin hefði verið sett af. 23.12.2008 12:24
Allt að 70 prósenta afsláttur í breskum verslunum fyrir jólin Breskir verslunareigendur veita allt að 70 prósenta afslátt síðustu klukkustundir jólaverslunarinnar og berjast hart um hylli neytenda. 23.12.2008 08:51
Er farmiðinn til tunglsins að verða of dýr? NASA fagnar nú 40 ára afmæli fyrstu hringferðarinnar um tunglið en kostnaður setur spurningarmerki við geimferðir framtíðarinnar. 23.12.2008 08:43
Norðmenn vilja örmerkja ketti Norsk heilbrigðisyfirvöld krefjast þess kettir verði örmerktir til að veita nákvæmar upplýsingar um sjúkdóma sem þeir kunni að bera. 23.12.2008 08:40
Danir ósáttir við tölvur og farsíma Danir kvarta mest yfir tölvum og farsímum af öllum neytendavarningi þar í landi. Þetta kemur fram í ársskýrslu dönsku neytendasamtakanna en símalínur þeirra eru rauðglóandi þessa dagana vegna kvartana yfir göllum í þessum búnaði. 23.12.2008 08:36