Fleiri fréttir

Lokatilraun til að elta uppi Nasista

Hafin er lokatilraun til að elta uppi og lögsækja fyrrverandi stríðsglæpamenn Nasista úr síðari heimsstyrjöldinni. Verkefnið er kallað "Lokatækifærið" og er skipulagt af stofnun Símons Wiesenthal. Barátta þeirra er háð með auglýsingum og með því að bjóða þeim peningaverðlaun sem veita gagnlegar upplýsingar um Nasista. Lokatilraunin er háð í Chile, Úrugvæ, Argentínu og Brasilíu en talið er að fjölmargir Nasistar hafi flúið þangað eftir seinni heimsstyrjöldina.

Handritshöfundar snúa aftur að samningaborðinu

Handritshöfundar í Hollywood sneru að samningaborði með fulltrúum helstu kvikmynda- og sjónvarpsþáttaframleiðendanna í gær í fyrsta sinn síðan að verkfall þeirra hófst fyrir þremur vikum.

Þrjú hundruð sérfræðingar á HIV ráðstefnu

Yfir þrjú hundruð sérfræðingar í heilbrigðisvísindum eru saman komnir á ráðstefnu um HIV veiruna í Brussel. Þeir vilja að HIV próf séu bætt svo hægt sé að berjast gegn aukinni útbreiðslu veirunnar.

Sextíu franskir lögreglumenn slösuðust í átökum

Til átaka kom á milli franskra ungmenna og lögreglunnar í úthverfi Parísar aðra nóttina í röð. Lögreglan er sökuð um að bera ábyrgð á því að tvö ungmenni létust þegar vélhjól sem þau óku skall saman við lögreglubíl um helgina.

Vongóðir um árangur í friðarviðræðum

George Bush forseti Bandaríkjanna, Olmert forsætisráðherra Ísrael og Abbas leiðtogi Palestínumanna, segjast allir vera vongóður um að fundur sem þeir áttu saman í Maryland í Bandaríkjunum í gær geti skilað árangri í friðarviðræðum.

Ný kenning um hvarf Madelaine

Samkvæmt portúgalska dagblaðinu Publico er lögreglan þar í landi nú sannfærð um að Madelaine McCann hafi verið myrt af barnaníðing á hótelherbergi foreldra hennar.

Ekkja Pavarottis krefst skaðabóta

Ekkja Lucianos Pavarottis krefst tæplega þriggja milljarða króna skaðabóta af vinum óperusöngvarans fyrir særandi ummæli um sig.

Vilja hafa ólympíueldinn umhverfisvænni

Skipuleggjendur Ólympíuleikanna í Lundúnum 2012 leita nú orkugjafa sem nota á í ólympíueldinn þannig að hann gefi frá sér eins lítið af koltvísýringi og mögulegt er.

Musharraf mun láta af embætti hershöfðingja

Pervez Musharraf mun sverja embættiseið sem forseti Pakistan í þriðja skipti á fimmtudag. Þetta hefur BBC fréttastofan eftir Rashid Qureshi talsmanni Musharrafs. Qureshi sagði jafnframt að Musharraf myndi segja af sér embætti hershöfðingja í landinu áður en hann myndi sverja forsetaeiðinn.

Díana var ekki með barni

Lík Díönu prinsessu af Wales, sýndi engin merki þess að hún hefði verið ófrísk. Þetta fullyrti meinafræðingurinn Dr. Robert Chapman fyrir rétti í dag. Dr. Chapman krufði lík Díönu. Hann sagði að kviður hennar og móðurlíf hefðu ekki tekið þeim breytingum sem það myndi gera í ófrískri konu. Chapman viðurkenndi þó að þessar breytingar þyrftu ekki endilega að vera ljósar á fyrstu þremur vikum meðgöngunnar.

Pútín sakar ÖSE um að ganga erinda Bandaríkjamanna

Vladímír Pútín Rússlandsforseti segir Bandaríkjamenn reyna að grafa undan þingkosningum í Rússlandi um næstu helgi með því að þrýsta á vestræna kosningaeftirlitsmenn að sniðganga kosningarnar.

Við erum í góðum málum.....

Hvernig heldur maður eftirminnilega upp á þrítugsafmæli sitt? Morgunþáttastjórnandi við dönsku svæðisútvarpsstöðina Radio Globus mætti nú bara samviskusamlega í sína vinnu.

Kínverjar kaupa kjarnorkuver af Frökkum

Kínverjar ætla að kaupa tvö kjarnorkuver af Frökkum. Forsetar landanna tilkynntu um þetta í Peking í morgun, en Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, er í opinberri heimsókn í Kína.

Rússnesku kafbátarnir komnir aftur

Rússneskir kafbátar eru aftur komnir á kreik á Norður-Atlantshafi. Norska varnarmálaráðuneytið hefur staðfest við fjölmiðla að ferðum rússneskra kafbáta undan ströndum Noregs hafi fjölgað.

Endurgerð af Help kemur út fyrir jólin

Ein af jólamyndunum í ár verður endurbætt útgáfa af Help, Bítlamyndinni vinsælu sem frumsýnd var 1965. Að sögn framleiðenda verksins heldur litur og áferð myndarinnar sér fullkomnlega en tónlistin hefur öll verið endurblönduð. Að því verki komu bestu hljóðmennirnir í Abby Road hljóðverinu í London. Myndin er gerð frá febrúar til apríl 1965 en á því tímabili héldu Bítlarnir í tvær stórar hljómleikaferðir beggja megin Atlantshafsins og gáfu út tvö stór albúm.

Chavez frystir öll samskipti við Kólumbíu

Chavez forseti Venesúela hefur fryst tengsli landsins við Kólumbíu. Kemur þetta í kjölfar þess að Uribe forseti Kólumbíu sagði Chavez að hætta samingum við vinstrisinnuðu uppreisnarhreyfinguna FARC. Chavez hafði áður fallist á að miðla málum þar sem FARC ætlaði að láta af hendi gísla í sta'ðinn fyrir meðlimi FARC sem nú sitja í fangelsi í Kólambíu. Chavez sagði að fyrirskipun forseta Kolimbíu hefði verið eins og hrákur í andlit hans og hann sakaði Uribe um óheilindi.

Stálu dauðri kanínu

Göturæningjar sem hrifsuðu handtösku af rúmlega fertugri konu í Ástralíu höfðu ekkert annað en dauða kanínu upp úr krafsinu. Konan stóð ásamt ungri dóttur sinni á lestarstöð í bænum Baden og var á leið með kanínuna, uppáhaldsgæludýr dótturinnar í dýrakirkjugarð. Konan segir að þessir náungar hafi sparað henni ferðina en dóttur sinni sagði hún að tveir englar hefðu komið og tekið kanínuna.

Tvísýnar kosningar í Króatíu

Króatar kusu nýtt þjóðþing í gær. Tveir flokkar hafa yfirburðastöðu, en Lýðveldisbandalag Króatíu, sem nú fer með völd í landinu, hefur örlítið forskot á sólsíaldemokrata, samkvæmt nýjustu tölum.

Krefst vitnisburðar ljósmyndara við Díönurannsókn

Dánardómstjóri í réttarrannsókninni á dauða Díönu prinsessu hefur áfrýjað úrskurði Hæstaréttar í Bretlandi um að hann megi ekki nota skýrslur sem teknar voru af paparazzi ljósmyndurum í París við rannsóknina.

Keníska lögreglan drap þúsundir

Mannréttindasamtök halda því fram að keníska lögreglan hafi tekið allt að 8,040 manns af lífi eða pyntað til dauða í áhlaupi gegn ættbálkaklíku sem bönnuð hefur verið í landinu. Skýrsla samtakanna segir að 4,070 manns til viðbótar sé saknað eftir að öryggissveitir reyndu að þurrka Mungiki flokkinn út.

Jól án Madeleine eins og hver annar dagur

Kate og Gerry McCann hafa ekki gert nein plön fyrir jólin, þrátt fyrir fréttir af því að þau hafi keypt gjafir fyrir Madeleine. Hjónin sögðu Sky fréttastofunni að jólin yrðu eins og hver annar dagur án Madeleine og fókus þeirra sé á að finna s

Fleiri stjórnarandstöðuleiðtogar handteknir

Boris Nemtsov, stjórnarnadstöðuleiðtogi í Rússlandi og líklegur forsetaframbjóðandi á næsta ári, var handtekinn ásamt um 200 stjórnarandstæðinum í Sánkti Pétursborg í dag.

Stefnir í uppgjör

Útlit er fyrir uppgjör milli fornra fjandvina í Pakistan eftir að Nawaz Sharif, fyrrverandi forsætisráðherra, sneri heim úr átta ára útlegð í dag. Hann ætlar sér að koma Pervez Musharraf, forseta, frá völdum.

Jarðskjálfti reið yfir Sumötru á Indónesíu

Jarðskjálfti sem mældist 6,0 á Richter reið yfir strönd Sumötrueyju í Indonesíu fyrr í dag. Upptök skjálftans eru 107 km suðvestur af Mukomuko í Bengkulu um 20 km undir yfirborði jarðar. Engin flóðbylgjuviðvörun fylgdi í kjölfar skjálftans. Fyrr í dag varð jarðskjálfti á svæðinu upp á 6,2 á Richter.

Sýrlendingar tilkynna þátttöku á friðarfundi

Sýrlendingar tilkynntu í dag að þeir ætluðu að senda fulltrúa á ráðstefnu um frið fyrir botni Miðjarðahafs sem hefst í Maryland-ríki í Bandaríkjunum á þriðjudaginn. Forseti Palestínumanna og forsætisráðherra Ísraels eru komnir til Annapolis - þar sem fundurinn er haldinn.

Rændu gesti í jarðaför

Sorg breyttist í vantrú þegar gestir í jarðaför í Bandaríkjunum komust að því að brotist hafði verið inn í sex bíla á meðan athöfninni stóð. Bílarnir voru allir á bílastæðum kirkju í Vancouver í Washington. Samkvæmt bandarísku fréttastöðinni KPTV sögðu sumir gestanna að þeir teldu þjófa fylgjast með auglýsingum um jarðafarir í blöðum og á netinu.

Lést eftir skot úr rafstuðsbyssu

Kanadískur maður lést í gær, fjórum dögum eftir að lögregla notaði Taser rafstuðsbyssu á hann. Maðurinn mun hafa látið illa í verslun samkvæmt upplýsingum lögreglu. Hann er þriðja manneskjan sem deyr á nokkrum vikum í Kanada eftir að verða fyrir skoti úr vopninu.

Neyðarástandi lýst yfir í Kaliforníu

Sex slökkviliðsmenn eru slasaðir eftir að berjast við skógarelda sem nú geisa í Malibu í Kaliforníu og hafa eyðilagt tæplega 19 ferkílómetra lands. Slökkviliðsmönnum hefur tekist að hemja 25 próesnt eldanna. Arnold Schwarzenegger hefur aftur lýst yfir neyðarástandi eftir að því var aflétt eftir eldana í síðasta mánuði.

Kasparov dæmdur í fangelsi

Gary Kasparov, fyrrverandi heimsmeistari í skák og einn leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Rússlandi, var í gærkvöldi dæmdur í fimm daga fangelsi fyrir mótþróa við handtöku og að hafa skipulagt ólögleg mótmæli í Moskvu í gær.

10 þúsund íbúar Malibu snúa aftur

Um tíu þúsund íbúar í Malibú í Kaliforníu-ríki í Bandaríkjunum fengu að snúa aftur heim í morgun eftir að þeim varð gert að flýja undan skógareldum í gær. Engar fregnir hafa borist af slysum á fólki en um 35 heimili hafa orðið eldinum að bráð. Rúmlega átján ferkílómetra landsvæði hefur brunnið.

Handtóku 2000 stuðningsmenn Sharifs

Nærri tvö þúsund stuðningmenn Nawaz Sharifs, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, voru handtekinir í Lahore í morgun. Sharif er væntanlegur aftur til heimalands síns fyrir hádegi í dag. Hann hefur verið í útlegð í Sádí Arabíu síðan 2000. Ári áður rændi Pervez Musharraf, núverandi forseti og yfirmaður pakistanska hersins, völdum í landinu og bolaði Sharif úr forsætisráðherraembættinu.

Skóli utan Gautaborgar brann til kaldra kola

Grunnskóli í Gråbo í Lerum - rétt utan við Gautaborg í Svíþjóð - brann til kaldra kola í morgun. Talið er að kveikt hafi verið í skólahúsinu. Eldurinn kviknaði á fimmta tímanum í morgun og réðu slökkvuliðsmenn ekki við neitt. Enn logar í rústum skólabyggingarinnar og er óttast að eldtungurnar teygi sig í nærliggjandi hús. Allt er gert til að koma í veg fyrir það.

Rudd tekur við sem forsætisráðherra Ástralíu

Kevin Rudd og Verkamannaflokkur Ástralíu sem hefur verið í stjórnarandstöðu vann þingkosningar í landinu með miklum yfirburðum í dag. John Howard sem verið hefur forsætisráðherra í 11 ár hverfur úr embætti og á einnig á hættu að missa þingsæti sitt.

Hafna kínverskum friðargæsluliðum í Darfur

Uppreisnarmenn í Darfur í Súdan hafa krafist þess að friðargæsluliðar frá Kína yfirgefi héraðið aðeins klukkutímum eftir komu 135 kínverskra verkfræðinga. Þeir komu til Darfur í dag til að undirbúa komu 26 þúsund friðargæsluliða á vegum Sameinuðu þjóðanna og Afríkubandalagsins.

Bandaríkjamenn kaupóðir á kauplausa deginum

Kaupum ekkert dagurinn, er í dag. Þessum alþjóðlega baráttudegi er stefnt til höfuðs neysluhyggju og hann haldinn í 65 löndum, þar á meðal á Íslandi. Reyndar var hann í Bandaríkjunum í gær - á einum mesta verslunardegi ársins þar í landi. Bandaríkjamenn höfðu þessi alþjóðlegu tilmæli að engu og keyptu sem aldrei fyrr. Fyrsta stóra verslunarhelgin fyrir jól byrjaði þá fyrir dögun og stendur nú sem hæst.

Sjá næstu 50 fréttir