Erlent

Héldu að foreldrarnir hefðu selt Madeleine

Óli Tynes skrifar
Madeleine McCann er nú fjögurra ára gömul.
Madeleine McCann er nú fjögurra ára gömul.
Portúgölsku lögregluna grunaði um tíma að foreldrar Madeleine McCann hefðu selt hana barnaníðingum til þess að losna úr fjárhagskröggum.

Var unnið út frá því í allnokkra daga, að sögn portúgalska blaðsins 24 stundir.

Lögreglumennirnir féllu þó frá þessari ályktun þegar þeir fóru að kanna fjárhag hjónanna. Þau eru bæði læknar og vel stæð.

Gerry og Kate McCann hafa alla tíð harðneitað því að hafa nokkuð með hvarf dóttur sinnar að gera.

Portúgalska lögreglan gengur hinsvegar út frá því að Madeleine hafi látist af slysförum og að foreldrarnir hafi komið líki hennar undan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×