Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
15 ára stúlka í fangaklefa með karlmönnum Fimmtán ára stúlku var nauðgað ítrekað í fangelsi í Brasilíu þar sem hún var í haldi í margar vikur fyrir þjófnað. Henni var komið fyrir í klefa með tuttugu og einum manni. Yfirmenn í fangelsinu munu hafa vitað af misnotkuninni en ekki gert neitt í málinu. 24.11.2007 12:50
Fjarvistarsönnun kærustu Murats stenst ekki Fjarvistarsönnun Michaelu Walczuch kærustu Robert Murats sem fyrstur var grunaður í Madeleine-málinu reyndist ekki á rökum reist samkvæmt nýjustu upplýsingum. Hún hefur sagst hafa verið á fundi Votta Jehóva þegar Madeleine hvarf en nú segir meðlimur söfnuðarins að svo hafi ekki verið. 24.11.2007 11:33
35 létust í sprengjuárás í Pakistan Minnst 35 týndu lífi og fjölmargir særðust í tveimur sjálfsvígssprengjuárásum í Ravalpindí nærri höfuðborginni Íslamabad í Pakistan í morgun. Höfuðstöðvar pakistanska hersins eru í Ravalpindí. Önnur árásin var gerð á rútu sem var að flytja sérsveitarmenn og hin á varðstöð hersins. 24.11.2007 10:28
Forsetalaust í Líbanon Líbanar eru nú án forseta en kjörtímabili Emils Lahouds, bandamanns Sýrlendinga, lauk skömmu fyrir miðnætti í gærkvöldi. Hann yfirgaf því forsetahöllina í nótt. Stríðandi fylkingum á þingi tókst ekki að velja arftaka hans í gær og því var kjöri frestað um viku. 24.11.2007 10:21
Útlit fyrir forsætisráðherraskipti í Ástralíu Útlit er fyrir að forsætisráðherraskipti verði í Ástralíu í dag. Talning atkvæða í þingkosningum þar í landi er langt komin og benda fyrstu tölur til þess að dagar Johns Howards í embætti séu taldir. Hann og Frjálslyndi flokkur hans hafa verið við völd í ellefu ár. 24.11.2007 10:16
Sex afgönsk skólabörn féllu í sjálfsvígsárás Sex skólabörn týndu lífi og níu særðust, þar af þrír ítalskir starfsmenn mannúðarsamtaka, í sjálfsvígssprengjuárás í úthverfi Kabúl, höfuðborgar Afganistans, í morgun. Börnin voru að ganga út úr skólabyggingu nærri brú sem Ítölsku hjálparstarfsmennirnir aðstoðuðu við byggingu á. Árásarmaðurinn sprengdi sig í loft upp rétt við brúnna. 24.11.2007 10:05
Byssumaður myrti fyrrverandi eiginkonu og þrjú börn sín Fertugur byssumaður myrti fyrrverandi eiginkonu sína og þrjú börn þeirra í almenningsgarði í Maryland í Bandaríkjunum í gær. Lögregluþjónar fundu líkin í gærkvöld við eftirlit í garðinum. Börnin voru á leið til föður síns þegar hann framdi voðaverkið og ætluðu að dvelja hjá honum um stund. Hjónin skildu árið 2005 eftir stormasamt hjónaband og mikið heimilisofbeldi. 23.11.2007 22:10
Líbönum mistekst að kjósa forseta Líbönskum þingmönnum mistókst í dag að kalla saman fund til að kjósa nýjan forseta. Kjörtímabili Emile Lahoud núverandi forseta lýkur á miðnætti í kvöld. Þingmenn stjórnarflokkanna höfðu vonað að hægt yrði að kjósa, en stjórnarandstaðan sem er höll undir Sýrland varð til þess að ekki náðist tilskilinn meyrihluti til að kjósa. 23.11.2007 19:29
Rafstuð fyrir hraðakstur Það er heitt undir löggæsluyfirvöldum í Utah í Bandaríkjunum eftir að lögreglumaður þar varð uppvís af því að nota rafstuðbyssu á ökumann sem tekinn var fyrir of hraðan akstur. Myndband af atvikinu - sem varð í september síðastliðnum - var birt á netsíðunni YouTube í vikunni og hefur valdið fjaðrafoki. 23.11.2007 19:15
Varað við bjartsýni Ísraelar og Palestínumenn hafa ekki náð samkomulagi um dagskrá friðarráðstefnu í Maryland í Bandaríkjunum í næstu viku. Ríki Arababandalagsins boðuðu flest komu sína í dag og allt er nú reynt til að tryggja að Sýrlendingar mæti. 23.11.2007 19:00
Sagður þurfa kraftaverk John Howard - næst þaulsetnasti forsætisráðherra Ástralíu - berst nú fyrir pólitísku lífi sínu daginn fyrir þingkosningar í landinu. Því er spáð að Verkamannaflokkur Kevins Rudds fari með sigur af hólmi. 23.11.2007 19:00
Óttast að borgarastyrjöld brjótist út Óttast er að borgarastyrjöld brjótist aftur út í Líbanon. Andstæðum fylkingum á þingi tókst ekki að velja forseta í dag og landið því forsetalaust frá miðnætti. Her landsins er í viðbragðsstöðu. 23.11.2007 18:45
IKEA innkallar eitraðar dýnur IKEA í Þýskalandi hefur innkallað tvær eitraðar dýnutegundir í fjórum löndum. Sams konar dýnur eru seldar hér á landi en þær munu ekki vera eitraðar. 23.11.2007 18:45
Sádi-Arabar taka þátt í friðarráðstefnu Sádi-Arabar segjast munu taka þátt í friðarráðstefnu Miðausturlanda sem fram fer í Annapolis í Bandaríkjunum í næstu viku. Saud al-Faisal prins og utanríkisráðherra Sádi-Arabíu sagði að hann myndi fara á ráðstefnuna í Maryland, en að það yrðu engar „leiksýningar“ með ísraelskum embættismönnum. 23.11.2007 18:28
Þrír sakfelldir fyrir að leggja á ráðin um hryðjuverk Þrír menn voru í Eystri landsrétti í dag sakfelldir fyrir að leggja á ráðin um hryðjuverk í svokölluðu Vollsmose-máli í Danmörku. 23.11.2007 15:35
Brúðkaup blásið af vegna skalla Indverskur maður var laminn af tilvonandi eiginkonu sinni og tengdafjölskyldu eftir að þau komust að því að hann hafði fallið skalla með hárkollu. Prabir Das frá Assam á Indlandi sagði lögreglu að kærastan hefði rifið hárkolluna af honum eftir kvöldverð og ráðist á hann fyrir að fela kollinn. 23.11.2007 14:39
Asíuríki reyna að ná samkomulagi í loftlagsmálum Leiðtogar Asíuríkja reyna að stilla saman strengi sína fyrir ráðstefnu um loftslagsmál sem hefst á Balí í Indónesíu í næsta mánuði. Sérlegur sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna í loftslagsmálum segir mikilvægt að ríki álfunnar taki þátt í umræðunum á Balí af fulltri alvöru svo árangur náist. 23.11.2007 12:59
Tíu látnir í sprengjuárásum á Indlandi Að minnsta kosti tíu týndu lífi og fjölmargir særðust þegar þrjár sprengjur sprungu nær samtímis í dómshúsum í þremur borgum í norðurhluta Indlands í morgun. 23.11.2007 12:53
Öllum bjargað af sökkvandi skipi Búið er að bjarga meira en 150 farþegum og áhöfn skemmtiferðaskips eftir að það sigldi á ísjaka við suðurheimskautssvæðið í morgun. Um borð voru 100 farþegar og 54 áhafnarmeðlimir sem voru ferjaðir með björgunarbátum í annað skip. 23.11.2007 11:19
Ár frá andláti Litvinenkos Ár er í dag frá því að fyrrverrandi njósnari KGB, Alexander Litvinenko, lést á sjúkrahúsi eftir að hafa verið byrlað geislavirkt efni. 23.11.2007 10:28
Skemmtiferðaskip að sökkva nærri suðurskautinu Björgunarsveitir frá Argentínu og Bandaríkjunum og breska strandgæslan reyna nú að bjarga rúmlega 150 manns af skemmtiferðaskipi sem er að sökkva nærri suðurskautinu. 23.11.2007 08:57
Danski ráðherrakapallinn liggur fyrir Karen Jespersen, fyrrverandi þingmaður Jafnaðarmannaflokksins og nú þingmaður Venstre, verður ráðherra velferðarmála í nýrri ríkisstjórn Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, sem kynnt var í dag. 23.11.2007 08:40
Unglingsstúlka vistuð í karlafangelsi Brasíliska þjóðin er slegin yfir fréttum þess efnis að aðeins 15 ára stúlka þar í landi var sett í fangaklefa með yfir 20 karlmönnum og haldið þar í mánuð. 23.11.2007 08:06
Í fullri vinnu við bjórsmökkun Helen Moores starfsmaður Tesco stórmarkaðakeðjunnar í Bretlandi segir að hún hafi besta starf í heimi en hún er aðalbjórsmakkari Tesco. 23.11.2007 07:56
Hollywoodrisar í mál við kínverska vefsíðu Fimm af stærstu kvikmyndaverunum í Hollywood standa nú í málaferlum við eigendur vefsíðna í Kína sem þeir saka um ólöglegt niðurhal á kvikmyndum frá Hollywood. 23.11.2007 07:47
Danir greiða atkvæði um upptöku evrunnar Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur hefur ákveðið að halda aðra þjóðaratkvæðagreiðslu í landinu um hvort Danir vilji taka upp evruna sem gjaldmiðil eða ekki. 23.11.2007 07:42
Pakistan hefur verið vikið úr Samveldinu Pakistan hefur verið vikið úr Samveldinu, sambandi ríkja sem heyra undir eða hafa tilheyrt bresku krúnunni. Þær 53 þjóðir sem aðild eiga að Samveldinu höfðu gefið Pervez Musharraf frest fram á fimmtudag til þess að aflétta neyðarlögum sem eru í gildi í landinu og að segja af sér sem yfirmaður hersins. 22.11.2007 21:35
Skattar lækkaðir og kosið um evruna Ný ríkisstjórn Danmerkur hyggst lækka tekjuskatta umtalsvert og þá á að kjósa um evruna. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Speglasalnum í forsætisráðuneyti Danmerkur í dag þar sem ný ríkisstjórn Venstre Íhaldsflokksins, Danska þjóðarflokksins og Nýja bandalagsins kynnti stefnumál sín. 22.11.2007 15:55
Gáfu sjúkrabíl til Nikargva Rauði krossinn í Camoapa í Nikargva fékk afhentan glænýjan sjúkrabíl frá Þróunarsamvinnustofnun Íslands nú á dögunum. 22.11.2007 14:39
Vaxandi kókaínneysla í Evrópu Fíkniefnastofnun Evrópusambandsins, EMCDDA, telur að meiri stöðugleiki sé að komast á í fíkniefnanotkun í Evrópu eftir áratug sem hefur einkennst af stöðugri fjölgun fíkniefnaneytenda. 22.11.2007 12:59
Tvær milljónir fá mat í fjóra mánuði vegna hamfara Stjórnvöld í Bangladess sögðust í dag mundu útvega rúmlega tveimur milljónum manna matvæli næstu fjóra mánuði. 22.11.2007 12:34
Segja Musharraf ekki löglega kjörinn forseta Andstæðingar Musharrafs, forseta Pakistans, gengu um götur höfuðborgarinnar Islamabad í morgun og mótmæltu ákvörðun hæstaréttar að heimila honum að taka við embætti sem löglega kjörinn forseti landsins. 22.11.2007 12:30
Samgöngur lamaðar níunda daginn í röð Frakkar horfa nú fram á lamaðar almenningssamgöngur níunda daginn í röð vegna verkfalls sem ríkir þar í öllu landinu. Forystumenn stéttarfélaga starfsmanna í almenningssamgöngum sögðu í dag að töluverður árangur hafi náðst í viðræðum við stjórnvöld og aðra atvinnurekendur. 22.11.2007 11:14
Dönsk stjórnvöld vilja að ESB mótmæli dómi í Sádi-Arabíu Dönsk stjórnvöld hyggjast hafa forystu um það innan ESB að brugðist verði við dómi í Sádi-Arabíu yfir 19 ára stúlku sem var nauðgað. 22.11.2007 11:05
Grafhýsi Rómúlusar og Remusar fundið Ítalskir fornleifafræðingar hafa fundið grafhýsi Rómúlusar og Remusar, stofnenda Rómarborgar. Það er í hvelfingu undir höll Ágústusar, fyrsta keisara Rómaveldis. 22.11.2007 10:12
Hillary krefst aðgerða vegna hópnauðgunarmálsins Hillary Clinton og fleiri frambjóðendur demókrataflokksins í Bandaríkjunum hafa fordæmt dóminn yfir 19 ára fórnarlambi hópnauðgunnar í Saudi-Arabíu. Hillary krefst þess að Bush Bandaríkjaforseti beiti áhrifum sínum til að fá dóminum aflétt. 22.11.2007 08:21
Danska lögreglan ræðst gegn vændi og mansali Lögreglan í Kaupmannahöfn lét til skarar skríða á Vestrbrú seint í gærkvöldi gegn skipulagðri vændisstarfsemi og mannsali með konur. Alls voru 53 handteknir. 22.11.2007 07:43
Risastór marglyttutorfa eyðilagði laxeldisstöð Innrás risastórrar torfu af marglyttum hefur þurrkað út eina laxeldi Norður-Írlands en marglytturnar drápu yfir 100.000 laxa í sjóeldiskvíum undan strönd landsins. 22.11.2007 06:43
Marglyttur útrýmdu laxeldi á Norður Írlandi Milljónir marglyttna lögðu laxeldisstöð á Norður Írlandi í rúst í síðustu viku. Allir laxarnir í stöðinni drápust þegar marglytturnar réðust á fiskana sem gátu sig hvergi hreyft í kvíunum. 100 þúsund laxar drápust og er tapið talið nema hundruðum milljóna króna. 21.11.2007 21:49
Hillary Clinton krefst þess að Bush mótmæli nauðgunardómi Hillary Clinton hefur bæst í hóp þeirra sem gagnrýnt hafa yfirvöld í Sádí Arabíu í kjölfar þess að 19 ára stúlka var dæmd í fangelsi og til þess að þola 200 svipuhögg. Stúlkunni var nauðgað af hópi karlmanna en hún var dæmd fyrir að farið út úr húsi sínu án þess að vera í fylgd með karlmanni. 21.11.2007 21:45
Barði fréttamann með hljóðnemanum Það má telja víst að íslenskir stjórnmálamenn hafi oft hugsað okkur sjónvarpsmönnum þegjandi þörfina. Þeir teljast þó varla jafn blóðheitir og starfsbræður þeirra í Suður-Ameríku. Ein þingkona í Venesúela varð svo reið í gær að hún barði sjónvarpsmann með hljóðnemanum hans. 21.11.2007 19:00
Brown baðst afsökunar Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, segir landa sína ekkert þurfa að óttast þó diskar frá skattinum með persónuupplýsingar um hálfa þjóðina hafi horfið fyrir þremur vikum. Hann baðst afsökunar á atvikinu og þeim áhyggjum sem það hefði valdið hjá 25 milljón Bretum. 21.11.2007 17:45
Chirak sætir spillingarrannsókn Jacques Chirac, fyrrverandi forseta Frakklands var í dag formlega tilkynnt að hann sætti rannsókn vegna meintra spillingamála í tíð hans sem borgarstjóri Parísar. 21.11.2007 15:59
Taserbyssur sagðar hættulitlar Rannsóknir á Taser byssunum svokölluðu sem lama fólk í stutta stund með rafstuði, benda til að þær séu hættulitlar. 21.11.2007 14:58
Kærasta Murats hótar lögsókn Kærasta Roberts Murats segist hafa verið á fundi Votta Jehóva 16 kílómetra frá íbúð McCann fjölskyldunnar þegar Madeleine var rænt. Michaela Walczuch hótar lögsókn vegna ásakana um að hún hafi sést með stúlkuna tveimur dögum eftir að hún hvarf 3. maí síðastliðinn. Sviðsljósið hefur nú aftur beinst að Walczuch og kærasta hennar Robert Murat sem var fyrstur opinberlega grunaður í málinu. 21.11.2007 14:38