Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rændu íþróttaminjagripum á hótelherbergi Ruðningskappinn fyrrverandi og kvikmyndaleikarinn O.J. Simpson var færður til yfirheyrslu hjá lögreglunni í Las Vegas í fyrradag, grunaður um aðild að vopnuðu ráni á spilavíti þar í borg. 15.9.2007 12:45
Öldungar takast á um forsætisráðherraembættið í Japan Tveir munu takast á um það sem að verða næsti forsætisráðherra Japans eftir að Shinzo Abe sagði af sér á dögunum. Það verða þeir Taro Aso og Yasuo Fukuda sem berjast munu um leiðtogahlutverkið í Frjálslynda demókrataflokknum sem heldur um stjórnartaumana í landinu. 15.9.2007 11:30
Setur 100 þúsund dollara til höfuðs Lars Vilks Abu Omar al-Baghdadi, leiðtogi al-Qaida í Írak, hefur sett hundrað þúsund dollara, jafnvirði um 6,5 milljónum króna til höfuðs sænska teiknaranum Lars Vilks sem teiknaði á dögunum myndir af Múhameð spámanni í líki hunds. 15.9.2007 10:57
Hermönnum hugsanlega fækkað í 100 þúsund eftir rúmt ár Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir vel koma til greina að kalla enn fleiri hermenn heim frá Írak en Bush Bandaríkjaforseti boðaði í ræðu á fimmtudaginn. Gates segir koma til greina að fækka hermönnum niður í hundrað þúsund fyrir lok næsta árs. 15.9.2007 10:45
Áttatíu látnir eftir flóð í tólf Afríkuríkjum Úrhellisrigningar og mikil flóð hafa orðið minnst áttatíu að bana og hrakið hundruð þúsunda frá heimilum sínum í tólf löndum Afríku sunnan Sahara-eyðimerkurinnar á síðustu vikum. 15.9.2007 10:15
Norðvestursiglingaleiðin opin Norðvestursiglingaleiðin yfir norðurpólinn er greiðfær skipum í fyrsta sinn síðan eftirlit með henni hófst fyrir tæpum þrjátíu árum. Um er að ræða beinustu siglingaleiðina milli Asíu og Evrópu. 15.9.2007 09:53
Trúarleg skylda stúlku að giftast frænda sínum Leiðtogi stærsta sértrúarsafnaðar Bandaríkjanna sem styður fjöldkvæni sagði fjórtán ára stúlku sem hann hafði nýlega gift nítjan ára frænda sínum að það væri trúarleg skylda hennar að gefa eiginmanninum hug sinn, líkama og sál. Þessu héldu saksóknarar í máli stúlkunnar gegn safnaðarleiðtoganum fram fyrir rétti í Utah í dag. 14.9.2007 21:10
Holdafar unglinga hefur áhrif á frjósemi síðar meir Holdafar á unglingsárum hefur áhrif á hve mörg börn fólk eignast síðarmeir. Vísindamenn fylgdust með þrettán hundruð finnskum ungmennum, frá árinu 1980, en þau voru þá á aldrinum 3 - 18 ára. 14.9.2007 19:58
Ekki alveg dauður Maður, sem hafði verið úrskurðaður látinn, vaknaði við nístandi sársauka á skurðarborði í Venesúela eftir að læknar hófu krufningu á honum. 14.9.2007 19:10
Lítill árangur í Írak, segir í skýrslu Hvíta hússins Skýrsla frá Hvíta húsinu í Bandaríkjunum gefur til kynna að lítið hafi áunnist í stríðinu í Írak, þrátt fyrir orð Bush forseta til hins gagnstæða í gærkvöldi. 14.9.2007 18:19
Stöðugleiki og lægri vextir fylgja Evru Fyrrverandi fjármálaráðherra Írlands ráðleggur Íslendingum að skoða upptöku Evru því hún hafi hjálpað Írum að viðhalda stöðugleika á tímum mikillar efnahagsuppbyggingar. 14.9.2007 18:03
Sendiráðið ævareitt yfir ummælunum Bandaríska sendiráðið í Danmörku er langt því frá sátt við ummæli þekkts dansks sjónvarpsmanns um hvernig honum varð innanbrjósts þegar hann frétti af hryðjuverkaárásunum 11. september 2001. 14.9.2007 17:31
Réttarhöld hafin yfir skákborðsmorðingjanum Réttarhöld hófust í dag yfir rússneska fjöldamorðingjanum Alexander Pichushkin, sem er sakaður um að hafa myrt 49 manns. Flest fórnarlöm sín höfuðkúpubraut hann með hamri. 14.9.2007 16:54
Búið að finna gallann í Dash 8 vélunum Framleiðandi Dash 8 vélanna sem SAS flugfélagið kyrrsetti í vikunni segir að búið sé að finna gallann sem olli því að hjólabúnaður vélanna brást ítrekað. Kanadiski framleiðandinn Bombardier segir að viðgerð sé tiltölulega einföld og hægt verði að aflétta farbanninu jafnvel strax á mánudaginn. 14.9.2007 16:40
Minn tími kemur aftur -Putin Vladimir Putin, forseti Rússlands sagði í dag að hann útilokaði ekki að hann myndi sækjast eftir forsetaembættinu á nýjan leik árið 2012. Samkvæmt stjórnarskrá landsins má forseti ekki sitja lengur en tvö kjörtímabil. Síðara kjörtímabili Putins lýkur á næsta ári. Hinsvegar mega menn bjóða sig fram á nýjan leik eftir eitt kjörtímabil utan embættis. 14.9.2007 16:26
Simpson yfirheyrður vegna ráns OJ Simpson hefur verið yfirheyrður vegna ráns í spilavíti í Las Vegas í gær. Lögreglan hefur staðfest að Simpson hafi verið yfirheyrður, en hann hafi ekki verið handtekinn. Fregnir af þessu eru enn mjög af skornum skammti. Ekkert hefur verið gefið upp um ránsfeng eða annað sem málið snertir. 14.9.2007 14:34
Norðmenn senda herþotur gegn rússum Tvær norskar herþotur voru sendar á loft í morgun til að mæta tveimur rússneskum sprengjuvélum sem flugu meðfram strönd Noregs. Rússnesku vélarnar voru af gerðinni Tu-160. Þá rauf rússnesk herflugvél lofthelgi Finnlands í morgun. 14.9.2007 13:35
Hvað varð um Madeleine McCann? Líklega hefur ekki verið fjallað jafn mikið um lítið barn í heimspressunni og bresku telpuna Madeleine McCann. 14.9.2007 12:22
Meintur árásarmaður handtekinn Lögreglan í Frankfurt í Þýskalandi hefur handtekið 22 ára gamlan mann fyrir fólskulega árás á rabbía þar í borg. Maðurinn stakk rabbíann með hníf áður en hann hljóp í burtu. Verknaðurinn vakti mikinn óhug í Þýskalandi og umræðu um gyðingahatur þar í landi. 14.9.2007 12:03
Vilja ekki fleiri erlenda verkamenn Hugmynd framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins um að aðildarlönd opni landamæri sín fyrir erlendu vinnuafli hafa fallið í grýttan jarðveg í Þýskalandi. Haft er eftir Michael Glos, efnhagsráðherra Þýskalands, á vefútgáfu þýska blaðsins Der Spiegel í dag að Þjóðverjar vilji ekki taka við fleiri erlendum verkamönnum í bili. 14.9.2007 11:23
Líkur á vopnahléi í Darfur Forseti Súdans, Omar Hassan al-Bashir sagði á blaðamannafundi í Róm í morgun að súdönsk stjórnvöld hefðu fyrir sitt leyti fallist á vopnahlé í Darfur héraði. 14.9.2007 08:39
Misþyrmdu tvítugri stúlku Sex menn í Logan sýslu í Bandaríkjunum eru grunaðir um að hafa misþyrmt 20 ára gamalli svartri stúlku frá Charleston hrottalega. Henni var haldið nauðugri í hjólhýsi í Logan sýslu í fjölda daga og misþyrmt þar. Samkvæmt ákærum var hún misnotuð kynferðislega, neydd til að borða dýraskít, stunginn í lærið, heitu vatni hellt yfir hana, hún neydd til að drekka salernisvatn og hún lamin. 13.9.2007 23:49
Einmana með ónýtt ónæmiskerfi Einmana fólk er líklegra til að veikjast og deyja ungt. Vísindamenn telja sig nú vita af hverju - ónæmiskerfi þeirra er í rúst. Vísindamenn könnuðu DNA fólk sem var félagslega einangrað og komust að því að erfðaefni sem tengdist ónæmiskerfi þeirra var afbrigðilegt. 13.9.2007 21:19
Lögregla skaut tvo bankaræningja til bana Lögregla í Hampshire skaut tvo menn til bana þegar þeir gerðu tilraun til vopnaðs ráns í banka í morgun. Lögregla beið mannanna þegar þeir komu út úr HSBC bankanum og skaut þá. Annar mannanna lést á staðnum, en hinn var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést skömmu síðar. Vopn sem talin eru tilheyra ræningjunum fundust á vettvangi. 13.9.2007 20:54
Bush hyggst draga 5700 hermenn heim frá Írak George Bush Bandaríkjaforseti hyggst fara að ráðum Petreaus hershöfðingja og draga heim 5700 hermenn fyrir árslok. Í sjónvarpsræðu sem Bush flytur í kvöld mun hann einnig tilkynna um að hann muni fækka hersveitum úr tuttugu í fímmtán. Þetta hefur Reuters fréttastofan eftir háttsettum embættismönnum í Bandaríkjunum. 13.9.2007 19:51
Tíu láta lífið í skjálftum Snarpur eftirskjálfti olli manntjóni og eyðileggingu á eyjunni Súmötru í Indónesíu í morgun. Að minnsta kosti tíu manns létu lífið og fleiri en fimmtíu slösuðust í skjálftunum, þeim sem varð í gær og mældist 8,4 stig og eftirskjálftanum í morgun sem mældist 7,8 stig. 13.9.2007 19:14
Ísland í tísku hjá breskum háskólanemum Á þriðja tug manna skrá sig í íslenskunám við háskólann í Leeds í Bretlandi á hverju ári. Yfirmenn háskólans telja að þeim muni fjölga í ár af því að Ísland sé komið í tísku. 13.9.2007 19:12
Sökktu norskum hvalbáti til að fagna hvalveiðistoppi á Íslandi Samtök hvalveiðiandstæðinga í Bandaríkjunum segjast hafa sökkt hvalbáti í Norður-Noregi í fagnaðarskyni yfir ákvörðun Íslands að hætta hvalveiðum. 13.9.2007 19:04
Tíu prósent ungra í Danmörku smituð af klamidíu Tíu prósent ungra Dana eru með klamidíu, og fjörtíu prósent þeirra nota ekki smokka, að sögn heilbrigðisyfirvalda í Danmörku. Þau hafa nú hafið herferð til að draga úr útbreiðslu kynsjúkdóma, en fleiri en 50 þúsund smitast af kynsjúkdómum á ári hverju í Danmörku. 13.9.2007 18:51
15 látnir eftir sjálfsvígsárás í Pakistan Að minnsta kosti fimmtán pakistanskir hermenn létust og 11 særðust þegar þegar öflug sprengja sprakk í byggingu hersins í bæ í nágrenni höfuðborgarinnar Islamabad. Sjálfsvígsárásarmaður gekk inn í mötuneyti hersins þar sem fjöldi hermanna snæddi kvöldmat og sprengdi sig þar í loft upp. 13.9.2007 18:21
Ný fljóðbylgjuviðvörun í Indónesíu Veðurstofa Indónesíu tilkynnti gaf fyrir stundu út nýja flóðbylgjuviðvörum í kjölfar þess að enn einn öflugur jarðskjálftinn reið yfir eyjuna Súmötru. Stofnunin sagði að skjálftinn hafi orðið á aðeins tíu kílómetra dýpi og verið 6,8 á Richter skala. Fjöldi eftirskjálfta hefur orðið í Indónesíu eftir að gríðaröflugur skjálfti, 8.4 á Richter reið yfir í gær. Tíu létust og fjöldi særðist í skjálftanum, sem fannst í fjórum löndum. 13.9.2007 17:08
Sökktu hvalveiðibát til að halda upp á að Íslendingar hafi hætt veiðum ,,Að kvöldi 30. ágúst ákváðum við að halda upp á það að íslendingar hafi hætt hvalveiðum í atvinnuskyni með því að fjarlægja stóran hluti kælirörs í vélarrúmi norska hvalveiðibátsins Willassen Senior" Þetta sögðu samtök sem kalla sig Agenda 21 á heimasíðu tímaritsins ,,Bite Back" í fyrradag. 13.9.2007 16:44
Þáttastjóri gladdist yfir árásinni á Bandaríkin Þáttastjórnandi við danska ríkissjónvarpið hefur valdið nokkru uppnámi með því að viðurkenna að hann hefði glaðst yfir hryðjuverkaárásinni á Bandaríkin. Ganrýnendur ríkissjónvarpsins segja að þetta sé enn eitt dæmið um að þar ráði rauði liturinn ríkjum. Fleiri starfsmenn sjónvarpsins þykja hafa sýnt sinn rétta lit á undanförnum mánuðum. 13.9.2007 16:20
Augun lesa til skiptis Vísindamenn hafa svipt hulunni af ráðgátunni um hvernig augu lesa setningu. Áður héldu rannsakendur að bæði augun einbeittu sér að sama bókstaf orðs í einu, en breskir vísindamenn hafa komist að raun um að svo sé alls ekki alltaf. 13.9.2007 15:36
Pastalaus dagur á Ítalíu Það verður ekkert pasta á borðum Ítala í kvöld fari þeir eftir tilmælum neytendasamtaka í landinu. Samtökin biðja þjóðina að kaupa ekkert pasta í sólarhring til að mótmæla því sem þau kalla óútskýranlegar verðhækkanir á vörum úr hveiti. Mótmælendur söfnuðust í dag saman fyrir utan ítalska þingið og kröfust þess að stjórnvöld hjálpi til að leysa vandann. Þá funduðu bænda- og neytendasamtök með yfirvöldum, sem þau vilja að rannsaki pastaiðnaðinn. 13.9.2007 15:28
Vlad er slyngur Fréttaskýrendur segja að Vladimir Putin forseti Rússlands hafi sýnt mikil klókindi með því að skipa hinn óþekkta Viktor Subkov í embætti forsætisráðherra og opna honum þarmeð leið að forsetaembættinu þegar síðara kjörtímabil Putins rennur út á næsta ári. Rússneskir forsetar mega ekki sitja nema tvö kjörtímabil né bjóða sig fram eftir sjötugt. Zubkov verður orðinn sjötugur árið 2012 þegar aftur verður kosið til forseta. Það verður þá opin leið fyrir Putin að bjóða sig fram aftur. 13.9.2007 14:47
Bretar verða að lappa upp á gömul kjarnorkuver Forstjóri bresku Orkustofnunarinnar segir að Bretar verði að halda gömlum kjarnorkuverum sínum gangandi eins lengi og hægt er. Ellegar verði orkuskortur í landinu eftir fimm til sjö ár. Stofnunin er nú að athuga möguleika á að halda tveimur gömlum orkuverum gangandi en ætlunin var að loka þeim árið 2011. 13.9.2007 14:27
Kommúnisti verður borgarstjóri í bæ í Suður-Noregi Þrátt fyrir mikla hægrisveiflu í norsku sveitastjórnarkosningunum á mánudaginn hafa íbúar í einu þorpi í Suður-Noregi kosið sér kommúnista sem borgarstjóra. 13.9.2007 13:23
Villepin mætir fyrir rétt í París Dominique de Villepin fyrrum forsætisráðherra Frakklands mætti fyrir rétt í París í dag til að svara spurningum um svokallað Clearstream hneyksli. illepin er grunaður um að hafa reynt að koma höggi á Nicolas Sarkozy núverandi forseta Frakklands, þegar þeir tveir voru keppinautar um forsetaembættið. 13.9.2007 11:58
Abe fluttur á sjúkrahús á barmi taugaáfalls Shinzo Abe forsætisráðherra Japans var færður á sjúkrahús í morgun, sólarhring eftir að hann tilkynnti um afsögn sína. Innlögn forsætisráðherra Japans á sjúkrahús gefur vísbendingu um hvílíkur þrýstingur er búinn að vera á manninn undanfarið. 13.9.2007 11:55
Níu dóu í skjálftum í Indónesíu Harður eftirskjálfti olli mikilli skelfingu í suðaustur-Asíu í dag. Önnur viðvörun um hugsanlega flóðbylgju var gefin út og íbúar nálægt skjálftasvæðinu flúðu í ofboði upp í land. Að minnsta kosti níu manns létu lífið og 49 slösuðust í skjálftunum, þeim sem varð í gær og mældist 8,4 stig og eftirskjálftanum í morgun sem mældist 7,8 stig. 13.9.2007 11:53
Norski herinn í sparnaðaraðgerðum Norski herinn hefur tilkynnt um að hyggist ekki taka þátt í tveimur heræfingum sem NATO ríki taka þátt í á næstunni vegna sparnaðaraðgerða. Tilkynningin hefur vakið nokkuð umtal í Noregi en ráðstefna á vegum NATO verður haldin í höfuðborginni Osló í næstu viku. 13.9.2007 08:40
Putin skipar nýjan forsætisráðherra Vladimir Putin, forseti Rússlands, hefur samþykkt afsökn Mikhail Fradkov forsætisráðherra landsins og skipað Viktor Zubkov í hans stað. Zubkov er tiltölulega óþekktur en hann starfaði sem forstjóri fjármálaeftirlitsins í Rússlandi. Fréttavefur Breska ríkisútvarpsins segir að breytingarnar á ríkisstjórninni sé gerð til að hrista upp fyrir komandi þing- og forsetakosningar. 12.9.2007 22:17
Lítt þekktur embættismaður útnefndur forsætisráðherra Vladimír Pútín, Rússlandsforseti, hefur útnefnt Viktor Zubkov, lítt þekktan embættismann, sem næsta forsætisráðherra Rússlands. Talið er að Pútín ætli Zubkov að taka við af sér eftir hálft á þegar forsetakosningar verða haldnar. Pútín má þá ekki bjóða sig fram aftur. 12.9.2007 18:45
Byrjað að farga nautgripum Gin- og klaufaveiki hefur greinst á nautgripabúi á Englandi - nærri þeim stað þar sem veikin greindist í síðasta mánuði. Varnarsvæði hefur verið afmarkað í kringum býlið og förgun nautgripa hafin. 12.9.2007 18:45