Lítill árangur í Írak, segir í skýrslu Hvíta hússins 14. september 2007 18:19
Skýrsla frá Hvíta húsinu í Bandaríkjunum gefur til kynna að lítið hafi áunnist í stríðinu í Írak, þrátt fyrir orð Bush forseta til hins gagnstæða í gærkvöldi. Ef bandarískir hermenn í Írak, sem fylgdust með sjónvarpsræðu Bush í gærkvöldi, áttu von á skjótri heimkvaðningu þá urðu þeir fyrir vonbrigðum. Forsetinn boðaði að í júlí á næsta ári yrði fjöldi hermanna í Írak sá sami og áður en fjölgað var í liðinu fyrr á þessu ári. Bush segir að brottflutningur hermanna verði í takt við velgengni í Írak.En velgengni er vart orðið til að lýsa árangri Bandaríkjamanna í Írak. Í nýrri skýrslu, sem Hvíta húsið þurfti samkvæmt lögum að skila Bandaríkjaþingi í dag, kemur fram að af átján formlegum markmiðum sem sett voru í sumar hefur einungis tekist að uppfylla átta. Það eru ekki einu slæmu fréttirnar. Í dag var borinn til grafar súnníaforingi sem var myrtur einungis nokkrum dögum eftir að eiga fund með Bush þegar Bandaríkjaforseti heimsótti Írak í síðustu viku. Demokratar vilja snúa baki við herleiðangrinum í Írak. John Edwards, sem keppir að útnefningu demokrata í forsetakosningum á næsta ári, segir að þingið verði að setja Bush stólinn fyrir dyrnar. Binda verði enda á stríðið. Demokratar líta svo á að stríðið í Íran hafi staðið í fjögur og hálft ár, kostað óheyrilega fjármuni og líf 3.800 bandarískra hermanna. Þeir hafa samt ekki næg atkvæði í öldungadeildinni til að stríðsreksturinn og því hefur Bush forseti ennþá undirtökin í glímunni um framhaldið.
Mest lesið Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Innlent Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Innlent Hegðun Trumps vonbrigði Innlent Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Innlent Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Innlent Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Innlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Sjá meira