Fleiri fréttir

Tala látinna tvöfaldast

Fjörutíu og tveir hafa látist af völdum eitrunar í áfengum drykk í Kenía um helgina. Talið er að miklu magni af metanóli hafi verið blandað í drykkinn til að auka alkóhólmagn hans. Fólkið mun hafa fengið bruggið á krá í þorpi skammt frá Naíróbí, höfuðborg Kenía, og veiktist í kjölfarið heiftarlega.

Sextán látnir í Mósúl

Sextán hið minnsta fórust í sjálfsmorðsárás í borginni Mósúl í Írak í morgun. Þá ók maður bíl fylltum sprengiefni á höfuðstöðvar lögreglunnar í borginni og sprengdi sig í loft upp. Hluti byggingarinnar hrundi og fimm lögreglumenn fórust. Fjórtán eru sárir.

Enn hörmungarástand á svæðunum

Hörmungarástand er ennþá á hamfarasvæðunum í Asíu þar sem flóðbylgjan annan dag jóla olli gjöreyðileggingu. Uppbygging gengur afar hægt og fórnarlömbin þarfnast enn mikillar hjálpar, hálfu ári síðar. 

Hagsmunir Írana á oddinum

Íranar munu halda áfram kjarnorkuviðræðum við Evrópusambandið með hagsmuni sína að leiðarljósi. Þetta sagði nýkjörinn forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, á blaðamannafundi í dag. Aðspurður sagði forsetinn einnig að hann sæi enga þörf á sérstökum viðræðum við Bandaríkjamenn um kjarnorkuframleiðslu þjóðar sinnar.

STASI-aðferðir í Svíþjóð

Sænsk skattayfirvöld hafa verið sökuð um að beita STASI-aðferðum við að koma höndum yfir þá sem stunda svarta vinnu. Þau ætla að reiða sig á uppljóstrara.

Engar samningaviðræður í gangi

Talsmenn bandarískra og írakskra hersveita segja að þeir eigi í viðræðum við leiðtoga uppreisnarmanna í Írak, klerka og hópa sem tengdir eru súnní-aröbum til að fá fleiri að pólitískri uppbyggingu landsins. Aðspurðir neituðu talsmennirnir hins vegar að þetta séu samningaviðræður hvers konar eins og haldið er fram í <em>Sunday Times</em> í dag.

Saumuðu varir fangans saman

Sjö lögreglumönnum hefur verið sagt upp í Pakistan eftir að upp komst að þeir hafi saumað saman varir á fanga sem var í þeirra vörslu. Skýringin sem gefin var á athæfinu var sú að fanginn hafi mótmælt pyntingum sem lögreglumennirnir hafi verið að beita hann.

Stúlka lést eftir hákarlaárás

Fjórtán ára gömul stúlka lést þegar hákarl réðst á hana undan ströndum Flórída í dag. Stúlkan var komin nokkuð langt út en hún var að renna sér á brimbretti. Karlmaður sem kom með hana að landi segist hafa fundið stúlkuna á floti í sjónum eftir að hafa heyrt skerandi öskur stuttu áður.

Á fjórða tug liggur í valnum

Á fjórða tug manna liggur í valnum eftir röð hryðjuverkaárása í bænum Mósúl í Írak í morgun. Maður sprengdi sig í loft upp við varðstöð við sjúkrahús, annar við aðalstöðvar lögreglunnar og sá þriðji við herbækistöð í borginni.

Fuglaflensa í Japan

Meira en 800 hænsn hafa drepist úr fuglaflensu í Japan síðan í apríl. Flensan kom einnig upp í landinu í fyrra en þá drápust meira en 300 þúsund fuglar. Smit fannst í manni í Japan í fyrra en enginn hefur látist þar.

Óbreytt kjarnorkuáætlun

Mahmoud Ahmadinejad, nýkjörinn forseti Írans, lýsti því yfir á blaðamannafundi í gær að hann hygðist beita sér fyrir því að kjarnorkuáætlun landsins yrði haldið áfram.

Á fjórða tug fórust í Mosul

Ekkert lát er á óöldinni í Írak. Í gær fórst á fjórða tug manna í sprengjuárásum í Bagdad og Mosul. Fyrst var pallbíl hlöðnum sprengiefni ekið inn í lögreglustöð í miðborg Mosul og létust 10 lögreglumenn í sprengingunni. Sprengiefnið var falið í vatnsmelónum sem hlaðið var á pall bílsins.

Ahmadinejad kjörinn forseti Írans

Harðlínumenn báru sigur úr býtum í annarri umferð forsetakosninga í Íran í gær. Mahmoud Ahmadinejad, sem er borgarstjóri í Teheran og mjög íhaldssamur, vann stórsigur á mótframbjóðanda sínum. Ahmadinejad virðist einkum hafa hlotið stuðning fátækari og trúaðri kjósenda en framsæknari, frjálslyndari og auðugri borgarar studdu Akbar Rafsanjani sem boðaði umbætur.

Stór hluti fjárframlaga til ríkra

Stór hluti fjárframlaga og hjálparinnar til handa fórnarlömbum flóðbylgjunnar í Asíu fór til þeirra sem auðugastir eru samkvæmt nýrri skýrslu sem bresku góðgarðarsamtökin Oxfam hafa tekið saman. Fátækir, sem þurftu einna helst á hjálp að halda fengu einna minnst á meðan mest lenti í vasa stóreignafólks, bæði kaupsýslumanna og landeigenda.

Kúariða komin upp í Bandaríkjunum

Kúariða er komin upp í Bandaríkjunum en vísindamenn hafa nú staðfest að annað tilfellið hafi fundist. Fyrsta, sýkta dýrið fannst fyrir sjö mánuðum. Bæði dýrin eru albandarísk og því talið öruggt að ekki sé um innfluttan stofn veikinnar að ræða. Þrátt fyrir þessi tíðindi fullyrða talsmenn bandarísks landbúnaðar að nautakjöt þar í landi sé með öllu hættulaust enda sé þess gætt að kjöt sýktra dýra lendi ekki á markaði.

Harðlínumenn hafa öll valdaembætti

Harðlínumenn unnu óvænt stórsigur í annarri umferð forsetakosninga í Íran í gær. Þeir hafa nú öll valdaembætti í landinu í höndum sér.

Geti ráðist á hryðjuverkamenn ytra

Rússar eru reiðubúnir að ráðast á bækisstöðvar hryðjuverkamanna erlendis. Þetta sagði yfirmaður rússneska flughersins í morgun. Hann segir flugherinn búa yfir hátæknivopnum og getu til þess að ráðast á hryðjuverkamenn hvar sem er.

Uppbygging húsa óvíða hafin

Fátækir fá minnsta aðstoð í kjölfar náttúruhamfaranna í Asíu. Ríkir hafa fengið stærsta hluta aðstoðarinnar. Þá bendir bresk rannsókn til þess að á fáum stöðum sé byrjað að byggja hús fyrir þá sem misstu sín.

Sprengja við teina í Dagestan

Tveir menn á viðhaldslest slösuðust þegar sprengja sprakk við lestarteina í héraðinu Dagestan í Rússlandi skömmu eftir miðnætti. Fréttastofan <em>Interfax</em> hefur eftir lögregluyfirvöldum á svæðinu að um heimatilbúna sprengju hafi verið að ræða en enginn hefur lýst yfir ábyrgð á tilræðinu.

Flóðin í Kína í rénun

Svo virðist sem flóðin í suðurhluta Kína, sem valdið hafa miklum usla undanfarnar vikur, séu í hægri rénun. Alls hafa 567 látist í flóðunum og þá er enn 165 saknað. Flóðin má rekja til árlegra rigninga sem valda því að ár flæða yfir bakka sína en einnig hafa aurskriður fallið á þorp og bæi

Leitað að dularfullu kattardýri

Mikil leit stendur yfir í Hollandi af dularfullu kattardýri sem sést hefur nokkrum sinnum í austurhluta landsins. Ekki er vitað hverrar tegundar dýrið er þrátt fyrir að myndir hafi náðst af því, en talið er líklegt að um stórt frumskógarkattardýr sé að ræða.

Handtóku grunaða uppreisnarmenn

Ísraelskir hermenn handtóku í morgun 14 félaga í palestínsku samtökunum Heilögu stríði á Vesturbakkanum. Handtakan kemur í kjölfar þess að byssumenn drápu íraelskan landnema í gær en þess ber að geta að engin samtök höfðu lýst tilræðinu á hendur sér.

Harðlínumenn með tögl og hagldir

Mahmoud Ahamadinejad er nýr forseti Írans en þar með fara harðlínumenn með flest völd í landinu. Búast má við hann verði erfiður viðureignar í samskiptum sínum við Vesturlönd.

Drukku ólöglegt brugg og létust

Að minnsta kosti 21 Keníamaður er látinn eftir að hafa drukkið ólöglegt brugg í þorpi skammt frá Naíróbí, höfuðborg Kenía, í gær. Þá liggja 36 á spítala vegna drykkjunnar og eru átta þeirra í lífshættu en tíu til viðbótar hafa misst sjónina af völdum drykksins. Fólkið mun hafa fengið bruggið á krá í þorpinu og veiktist í kjölfarið heiftarlega.

Réðust á flóttamannabúðir í Úganda

Rúmlega 100 uppreisnarmenn fóru í dag ránshendi um flóttamannabúðir í norðurhluta Úganda ásamt því að ráðast gegn íbúum búðanna. Ekki er ljóst hvort einhverjir létust eða særðust í árásinni en uppreisnarmennirnir létu greipar sópa í matargeymslum búðanna.

Felldu tæplega 180 talibana

178 talibanar voru felldir og 56 handteknir í átökum í suðurhluta Afganistans sem staðið hafa síðustu þrjá daga. Frá þessu greindi varnarmálaráðuneyti landsins í dag. Um var að ræða samhæfðar aðgerðir afganska hersins og þess bandaríska og létust flestir talibananna í loftárásum Bandaríkjahers. Hins vegar sluppu tveir háttsettir talibanar úr klóm hersveitanna eftir að sveitirnar höfðu umkringt þá, að sögn talsmanns varnarmálaráðuneytisins.

Ellefu drepnir í Samarra í dag

Að minnsta kosti ellefu manns létust og 20 særðust í tveimur árásum í bænum Samarra norður af Bagdad í Írak í dag. Í fyrra skiptið var um að ræða sjálfsmorðsárás þar sem maður sprengdi sig og bíl sinn í loft upp fyrir utan heimili yfirmanns í sérsveit Írakshers. Níu létust í tilræðinu. Stuttu eftir árásina sprakk sprengja við veg í bænum og þar létust tveir auk þess fjögur hús eyðilögðust.

Þingkosningar í Búlgaríu

Búlgarar ganga til þingkosninga í dag. Talið er að sósíalistar, sem eru í stjórnarandstöðu, beri sigurorð af flokki Simeons, fyrrverandi konungs landsins, sem haldið hefur um stjórnartaumana síðustu ár. Kosningarnar snúast að miklu leyti um ýmiss konar umbætur í landinu en þær eru skilyrði fyrir aðildarviðræðum við Evrópusambandið.

Dæmdur fyrir aðild að hryðjuverkum

Einn af helstu leiðtogum íslamskra uppreisnarmanna í Alsír var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir aðild sína að stofnun hryðjuverkahóps. Amari Saifi var næstæðstur í samtökunum GSPC en þau rændu m.a. 32 evrópskum ferðamönnum í eyðimörkinni í Alsír árið 2003 og eru forsvarsmenn þeirra m.a. eftirlýstir í Þýskalandi af þeim sökum. Við réttarhöldin voru tveir samverkamenn Saifis dæmdir í þriggja ára fangelsi en þrír voru sýknaðir.

Óvænt kosningaúrslit í Íran

Harðlínumenn ráða nú öllu í Íran eftir að hinn íhaldssami frambjóðandi, Ahmadinejad, vann óvæntan en afgerandi sigur í forsetakosningum. Þegar hann var skipaður borgarstjóri í Teheran 2003 var hann nánast óþekktur og í upphafi kosningabaráttunnar nú hafði það lítið breyst.

Hálft ár liðið frá flóðbylgju

"Það er ekki mikil uppbygging komin af stað en okkur sýnist sem þetta geti farið að gerast núna," segir Ómar Valdimarsson, starfsmaður Rauða krossins í Indónesíu. Í dag er hálft ár liðið síðan flóðbylgja reið yfir Bengalflóa á annan dag jóla.

Fórnarlamba flóðsins enn leitað

Börn eru meðal helstu fórnarlamba náttúruhamfaranna í Asíu um jólin. Nú, þegar hálft ár er liðið, er ættingja þeirra og fleiri enn leitað. Alþjóðlegar sveitir leita líka þess fólks, m.a. hópur Breta sem minntust landa sinna í dag

Graham segist eiga skammt eftir

Einhver frægasti predíkari Bandaríkjanna býr sig undir lokablessunina. Billy Graham segir dauðann nálgast og heldur sem stendur síðustu samkomur sínar.

Forsetinn gaf górillum nafn

Þrjátíu sjaldgæfum fjallagórillum voru gefin nöfn í þjóðgarði í Rúanda á laugardag og var forseti landsins, Paul Kagame, viðstaddur athöfnina. "Þessi athöfn endurspeglar menningu okkar. Við gerum það sama innan fjölskyldnanna í Rúanda þegar við skírum börnin okkar," sagði yfirmaður dýraverndarstofnunar Rúanda.

Mestu átök í fjögur í ár

Lík 178 skæruliða hafa fundist í Afganistan eftir þriggja daga skærur milli bandarískra og afganskra hersveita við uppreisnarmenn í Miana Shen-héraði í síðustu viku.

Sósíalistar sigra í Búlgaríu

Sósíalistaflokkurinn fékk flest atkvæði í þingkosningunum í Búlgaríu samkvæmt útgönguspám, en náði þó ekki hreinum meirihluta.

Yfir 500 látnir í flóðum í Kína

Yfir fimm hundruð manns hafa látist af völdum sumarflóða í Kína og meira en ein milljón neyðst til þess að yfirgefa heimili sín. Flóðin í ár eru þau mestu í Kína í áratug og í kjölfar þeirra hafa fjölmargar ár flætt yfir bakka sína og aurskriður fallið á íbúðarbyggð. Talið er að fjárhagslegt tjón vegna flóðanna nemi nærri hundrað milljörðum króna.

Sprengjum varpað á uppreisnarmenn

Súdanski herinn varpaði í morgun sprengjum á uppreisnarmenn sem berjast gegn stjórnvöldum í landinu. Talsmaður uppreisnarmannanna segir orustuflugvélar hafa varpað hverri sprengjunni á fætur annarri og verið sé að flytja burt slasaða. Enn hefur ekki frést af mannfalli.

Læknar komi að yfirheyrslum

Læknar í fangelsinu á Guantanamo-flóa á Kúbu hafa aðstoðað fangaverði við útfærslu á grimmdarlegum yfirheyrslum. Í viðtölum bandaríska dagblaðsins <em>New York Times</em> við nokkra fangaverði kemur fram að læknar hafi gefið þeim upplýsingar um hvernig mætti notfæra sér fælni fanganna til þess að fá þá til að leysa frá skjóðunni.

Önnur umferð kosninga í Íran

Önnur umferð forsetakosninga í Íran hófst í morgun. Valið stendur á milli umbótasinnans Akbars Rafsanjani og harðlínumannsins Mahmouds Akmadinsjads. Kosningarnar skipta miklu máli um framtíð Írans enda eru frambjóðendurnir tveir eins og svart og hvítt.

Geti ekki fækkað hermönnum strax

Bandaríkin ættu ekki einu sinni að íhuga að fækka hermönnum í Írak næstu árin. Þetta er haft eftir hershöfðngjum innan Bandaríkjahers í Írak í nýjasta tímariti <em>Economist</em>. George Bush Bandaríkjaforseti og Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra hafa ítrekað talað um að írakski herinn sé vel á veg kominn til að verja land sitt og Bandaríkjamenn geti hafið brottfluttning í áföngum þegar í upphafi næsta árs.

Launamunur skýrist af ýmsum þáttum

Samtök atvinnulífsins í Svíþjóð, SN, segja ítarlegar rannsóknir sínar á launamun kynjanna sýna að hann skýrist að mestu leyti af þáttum á borð við aldur, starfsval, menntun og gerð fyrirtækja. Að teknu tilliti til þessara þátta sé munurinn 4,8 prósent en minnki enn ef skoðuð er ábyrgð, til dæmis fjöldi undirmanna eða fjárhæðir sem ábyrgð er borin á, eða starfsaldur hjá viðkomandi fyrirtæki.

Árekstrum við lögreglubíla fjölgar

Fólki sem ferst eða slasast alvarlega í árekstrum við lögreglubifreiðar sem bruna á vettvang hefur fjölgað um sextíu prósent á einu ári í Bretlandi. Yfir tvö þúsund manns slösuðust í slysum af þessu tagi í Englandi og Wales á milli apríl 2003 og 2004 og fjölgaði þeim um 700 miðað við sama tíma árið áður.

Lítill árangur í Ulsan

Fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Ulsan í Suður-Kóreu lauk í dag með litlum árangri. Hvorki gekk né rak að taka ákvarðanir eða marka nýja stefnu og er staðan því óbreytt.

Sjá næstu 50 fréttir