Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Uppbyggingarstarf geti tekið 10 ár Þrátt fyrir að framlög til uppbyggingar hafi aldrei verið meiri en eftir fljóðbylgjuna í Suðaustur-Asíu annan dag jóla í fyrra mun það taka allt að tíu ár að ljúka uppbyggingarstarfinu. Þetta segir Jan Egeland sem fer fyrir neyðarhjálp Sameinuðu þjóðanna á svæðinu við Indlandshaf. 24.6.2005 00:01
Gerðu 4,2 tonn af kókaíni upptæk Lögregla í Portúgal greindi frá því í dag að hún hefði lagt hald á 4,2 tonn af kókaíni á dögunum. Efnið fannst í vörugeymslu í bænum Almeirim austur af höfuðborginni Lissabon og voru tveir Portúgalir og tveir Kólubíumenn handteknir í tengslum við aðgerðirnar. Þetta er mesta magn eiturlyfja sem Europol, lögreglustofnun Evrópusambandsins, hefur lagt hald í ár en samkvæmt portúgölsku lögreglunni var kókaínið ætlað fyrir Spánarmarkað. 24.6.2005 00:01
Flugvöllur lokaður vegna verkfalls Flug til og frá flugvellinum í Bagdad í Írak liggur nú niðri eftir að verktakar á vegum bresks öryggisfyrirtækis fóru í verkfall um hádegisbil vegna deilna fyrirtækisins og Íraksstjórnar um greiðslur. Breskar fyrirtækið Global Risk Strategies hefur um 500 starfsmenn á flugvellinum sem ætlað er að gæta öryggis á flugvellinum. Þeir hafa nú allir lagt niður vinnu, að sögn breska fyrirtækisins vegna þess að Íraksstjórn hefur ekki staðið við gerða samninga. 24.6.2005 00:01
Útflutningur kvikasilfurs bannaður Umhverfisráðherrar Evrópusambandsríkjanna sömdu um það á fundi sínum í dag að banna útflutning á kvikasilfri fyrir árslok 2010. Þá vilja þeir einnig draga úr notkun málmsins í hitamælum og vinna að því á alþjóðavettvangi að draga úr losun þessa fljótandi málms í náttúrunni. 24.6.2005 00:01
Bandarískir hermenn felldir í Írak Talið er að sex bandarískir hermenn hafi látist í bílsprengjuárás á herlest þeirra í Fallujah í Írak í dag. Lík af tveimur mannanna hafa fundist en samkvæmt talsmanni Bandaríkjahers er hinna fjögurra saknað. Árásin var gerð síðla dags að írökskum tíma, en árásir þar hafa verið fátíðar eftir að hersveitir Íraka og Bandaríkjamanna sóttu þar hart fram gegn andspyrnumönnum fyrir nokkrum mánuðum. 24.6.2005 00:01
Fæðingarþunglyndi geti hrjáð feður Feður geta líka þjáðst af fæðingarþunglyndi og það sem meira er - börn feðra sem kljást við fæðingarþunglyndi eru margfalt líklegri til að eiga við ýmiss konar hegðunarvandamál að stríða á ævinni. Þetta eru niðurstöður rannsóknar nokkurra lækna við Bristol og Oxford-háskóla í Bretlandi. 8.340 feður voru rannsakaðir og kom í ljós að þrjú og hálft prósent þeirra greindust með einhvers konar fæðingarþunglyndi. 24.6.2005 00:01
Kjörfundur lengdur aftur Yfirvöld í Íran framlengdu í annað sinn opnunartíma kjörstaða í seinni umferð forsetakosninga í landinu í dag vegna langra biðraða við kjörstaði. Upphaflega stóð til að loka kjörstöðum klukkan hálfþrjú að íslenskum tíma en þeir verða nú opnir til hálfsex. 24.6.2005 00:01
Blettatígrum fjölgar í Washington Fimm blettatígurshvolpar voru í fyrsta sinn í dag leiddir fyrir sjónir almennings í dýragarðinum í Washington í Bandaríkjunum. Hvolparnir fæddust í garðinum fyrir 10 vikum og eru aðeins annar hvolpahópurinn sem kemur þar í heiminn í 116 ára sögu dýragarðsins. 24.6.2005 00:01
Hvalveiðisinnar guldu afhroð Hvalveiðisinnar guldu afhroð á fundi alþjóðahvalveiðiráðsins sem lauk í Suður-Kóreu í morgun. Þó að nafnið gefi til kynna að þar sé á ferðinni ráð sem hafi umsjón með veiðum, er meirihluti aðildarríkjanna á því að friða hvali með öllu. 24.6.2005 00:01
Boðið upp á hvalkjötsborgara Japönsk skyndibitakeðja hefur ekki áhyggjur af því þótt Japanar séu harðlega gagnrýndir fyrir hvalveiðar og áform um að auka þær. Hefur skyndibitakeðjan, sem er á eynni Hokkaido, tekið upp á því að bjóða upp á hrefnukjötsborgara á 240 krónur og segja forsvarsmenn hennar að með þessari nýjung gefist tækifæri til að nýta hvalkjötsbirgðir landsmanna sem séu allverulegar. 24.6.2005 00:01
Berlusconi orðhákur Finnska sendiráðið á Ítalíu hefur sent formlega kvörtun til Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, vegna ummæla sem hann lét falla um Tarju Halonen, forseta Finnlands. 24.6.2005 00:01
Kúariðusmit staðfest Prófanir hafa staðfest að kýr sem drapst í Bandaríkjunum fyrir skemmstu var sýkt af kúariðu. Þetta er annað kúariðutilfellið sem kemur upp þar vestanhafs en hið fyrra kom upp í desember árið 2003. 24.6.2005 00:01
Fundað í Washington George W. Bush Bandaríkjaforseti og Ibrahim al-Jaafari, forsætisráðherra Íraks, hittust í Washington í gær og ræddu stöðu og horfur í landi hins síðarnefnda. 24.6.2005 00:01
Mannskæð flóð í Kína Í það minnsta 536 manns fórust í árlegum sumarflóðum í suðurhluta Kína. Nauðsynlegt hefur verið að flytja hundruð þúsunda manna frá heimilum sínum. 24.6.2005 00:01
Klofin þjóð gengur að kjörborðinu Íranar gengu að kjörborðinu í gær í annað sinn á einni viku. Hashemi Rafsanjani og Mamhoud Ahmadinejad tókust á um forsetaembættið en vitað var að mjótt yrði á mununum. Endanleg úrslit liggja fyrir í dag. 24.6.2005 00:01
Sjö bílsprengjur í Bagdad í nótt Minnst þrjátíu og átta eru látnir og um það bil eitt hundrað særðir eftir sjö bílsprengingar í Bagdad, höfuðborg Íraks, í nótt. Rétt fyrir miðnætti sprungu fjórar bílsprengjur í íbúðahverfi sjíta í höfuðborginni með þeim afleiðingum að tuttugu og þrír létust. Al-Qaida hefur lýst ábyrgð á þeim árásum. 23.6.2005 00:01
Blair: ESB verði endurskilgreint Það verður að endurskilgreina Evrópusambandið í grundvallaratriðum. Þetta sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, á fundi með Evrópuþinginu í morgun. 23.6.2005 00:01
Skotið á hjálparstarfsmann Skotið var á hjálparstarfsmann á hamfarasvæðunum í Inónesíu í gær. Starfsmaðurinn er ekki í lífshættu en vegarspotta í nágrenninu hefur verið lokað til öryggis, enda er þetta í fyrsta sinn sem atvik af þessu tagi á sér stað í alla þá sex mánuði sem hjálparstarfið hefur staðið yfir. Ekki liggur enn fyrir hver var að verki eða hvers vegna. 23.6.2005 00:01
Hitabylgja í París Íbúar Parísar fara ekki varhluta af sumrinu. Hitabylgja hefur verið í borginni undanfarna daga og hefur hitinn vart farið undir þrjátíu gráður þegar sólin er hæst á lofti. Bæði túristar og heimamenn nýta sér gosbrunna borgarinnar til hins ítrasta til að kæla sig niður, enda líklega fullheitt til þess að standa í stórtækum skoðunarferðum. 23.6.2005 00:01
Engin skömm fyrir ESB Tony Blair segir enga skömm felast í því fyrir Evrópusambandið að fara í gegnum endurnýjun, nú þegar nærri fimmtíu ár séu liðin frá stofnun þess. Forsætisráðherrann sagði í morgun að endurskilgreina verði sambandið í grundvallaratriðum. 23.6.2005 00:01
Krefjast afsagnar Lahouds forseta Sigurvegarar nýafstaðinna þingkosninga í Líbanon krefjast þess að Emile Lahoud, forseti landsins, segi starfi sínu lausu. Flokkurinn er andsnúinn Sýrlendingum og forsvarsmenn hans segja Sýrlendinga bera ábyrgð á morðinu á fyrrum leiðtoga kommúnista nú í vikunni. 23.6.2005 00:01
Grunaðir um brot á kosningalögum Nærri þrjátíu Íranar hafa verið handteknir vegna gruns um brot á kosningalögum í síðustu viku. Mönnunum er flestum gefið að sök að hafa dreift áróðri á geisladiskum og á öðru tölvutæku formi en það er ólöglegt í Íran að hafa uppi órökstuddar dylgjur í pólitískum tilgangi í aðdraganda kosninga. Síðari umferð kosninganna fer fram á morgun. 23.6.2005 00:01
Fæðingarþunglyndi hjá báðum kynjum Fæðingarþunglyndi er ekki einungis bundið við konur. Ný bresk rannsókn bendir til þess að karlmenn geti þjáðst af fæðingarþunglyndi, en þó mun sjaldnar en konur. Börn karla sem þjást af slíku þunglyndi eru helmingi líklegri en önnur börn til þess að eiga við hegðunarvanda að stríða. 23.6.2005 00:01
Dæmdur fyrir 40 ára gamalt morð Fyrrverandi aðili að Ku Klux Klan samtökunum var dæmdur í sextíu ára fangelsi í dag fyrir að hafa skipulagt morð á þremur mönnum, sem skráðu svarta kjósendur í Missisippi, fyrir fjörutíu árum. Málið vakti gríðarlega athygli á sínum tíma og var umfjöllunarefni myndarinnar <em>Mississippi Burning</em> sem kom út árið 1988. 23.6.2005 00:01
Stríðið ekki að tapast Stríðið í Írak er ekki að tapast og Bandaríkjamenn munu halda áfram að berjast gegn uppreisnarmönnum eins lengi og til þarf. Þetta sagði Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra í yfirheyrslum þingnefndar öldungadeildar um stríðið í Írak sem staðið hafa yfir í dag. 23.6.2005 00:01
Hitabylgja á Ítalíu Hitabylgja geisar á Ítalíu. Í höfuðborginni Róm hafa sveittir ferðamenn og heimamenn flykkst að hinum fræga Trevi-gosbrunni í þeim tilgangi að kæla sig niður og busla í vatninu. Undanfarna daga hefur hitinn í Róm farið vel yfir 30 gráður og spá veðurfræðingar því að hitabylgjan vari fram í næstu viku. Ungu kynslóðinni finnst gaman að nota tækifærið og busla á meðan þeir eldri kjósa að halda sig í skugganum. 23.6.2005 00:01
Sýndi enga iðrun Edgar Ray Killen fékk í gær sextíu ára fangelsisdóm, tuttugu ár fyrir hvert mannsdrápanna þriggja sem hann var sakfelldur fyrir á þriðjudag. Killen var talinn hafa leitt hóp Klu Klux Klan-manna sem myrtu þrjá baráttumenn fyrir mannréttindum árið 1964. 23.6.2005 00:01
Vill endurnýja ESB frá grunni Forsætisráðherra Bretlands vill láta endurnýja Evrópusambandið frá grunni. Hann segir slíka endurnýjun tækifæri fyrir ESB til að mæta áskorunum í breyttu alþjóðasamfélagi. 23.6.2005 00:01
Vildi deyja í haldi mannræningja Svíinn Ulf Hjertström sem er á sjötugsaldri lenti í klóm mannræningja í Írak og var haldið í tvo mánuði. Hann segir lífsreynsluna hafa verið ömurlega og vildi helst deyja meðan hann var í gíslingu. 23.6.2005 00:01
Segja fanga pyntaða í Guantanamo Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna í mannréttindamálum gagnrýna Bandaríkjastjórn harðlega fyrir að hleypa sér ekki inn í fangelsið við Guantanamo-flóa á Kúbu. Sérfræðingarnir segjast nær fullvissir um að þar séu stundaðar pyntingar á föngum. Þetta kom fram á fundi sem mannréttindastofnun SÞ hélt í Genf í gær. 23.6.2005 00:01
Bandaríkjastjórn óvinsæl Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur beðið hnekki undanfarin ár, sérstaklega augum Mið-Austurlandabúa. Stríðsreksturinn í Írak er ástæða þessarar andúðar. 23.6.2005 00:01
Dæmdur fyrir fjöldamorð Edgar Ray Killen, fyrrverandi meðlimur kynþáttahaturssamtakanna Ku Klux Klan, var í gær dæmdur í sextíu ára langt fangelsi fyrir að hafa skipulagt morð á þremur baráttumönnum fyrir réttindum svartra fyrir meira en fjörutíu árum. 23.6.2005 00:01
Þriðjungur ólöglegur Hópur tónlistarútgefenda hefur gefið út skýrslu þar sem því er haldið fram að einn af hverjum þremur tónlistargeisladiskum sem seldust í heiminum á síðasta ári hafi verið útgefinn í trássi við lög um höfundarrétt. 23.6.2005 00:01
Óslökkvandi ófriðarbál Ekkert lát er á vargöldinni í Írak en síðastliðinn hálfan annan sólarhring hafa tæplega fjörutíu manns beðið þar bana. Setið er um líf þeirra súnnía sem vilja taka þátt í stjórnmálauppbyggingu landsins. 23.6.2005 00:01
Evrópusambandið verður að breytast Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, brýndi fyrir Evrópuþingmönnum í gær nauðsyn þess að Evrópusambandið tæki róttækum breytingum, ella myndi það líða undir lok. 23.6.2005 00:01
Verkfalli afstýrt á elleftu stundu Samningamönnum fimm hundruð tæknimanna hjá norska olíurisanum Statoil og stjórnendum fyrirtækisins tókst á elleftu stundu í gærkvöldi að afstýra verkfalli tæknimannanna sem átti að hefjast á miðnætti. 22.6.2005 00:01
Írak: Fá borgað fyrir hverja árás Það er græðgi en ekki hugsjón sem knýr uppreisnarmenn í Írak til ódæðisverka. Þetta er álit hershöfðingja Bandaríkjamanna í Írak sem segir fyrrverandi stjórnarmenn úr Baath-flokki Saddams Hussein borga uppreisnarmönnum á bilinu sjö til tíu þúsund krónur fyrir hverja árás. 22.6.2005 00:01
Skuldir Íraka felldar niður? Stjórnmálamenn frá áttatíu löndum eru samankomnir í Brussel til þess að ræða framtíð Íraks. Meðal þess sem búist er við að lagt verði til er að skuldir Íraka verði að miklu leyti felldar niður og þeim boðið að taka þátt í starfi alþjóðastofnana. 22.6.2005 00:01
44 látnir í flóðunum Minnst fjörutíu og fjórir hafa látist og hundrað þúsund yfirgefið heimili sín í suðurhluta Kína í kjölfar gríðarlegra flóða og aurskriða. Ár hafa flætt yfir bakka sína og í gærkvöldi hafði áin Shi Jiang náð nærri tuttugu og fimm metra hæð sem er meira en sjö metrum yfir hættumörkum. 22.6.2005 00:01
Tekið illa í auknar vísindaveiðar Áform Japana um að auka vísindaveiðar við Suðurskautslandið og stækka veiðisvæðið mættu mikilli andstöðu þegar Alþjóðahvalveiðiráðið samþykkti í atkvæðagreiðslu, á fundi sínum í Ulsan í Suður-Kóreu í morgun, að skora á þá að draga úr vísindaveiðum. 22.6.2005 00:01
Uppbygging gengur hægt Uppbygging í Aceh-héraði í kjölfar jarðskjálftans annan í jólum gengur afar hægt. Þetta kemur fram í skýrslu Alþjóðaþróunarstofnunar Bandaríkjanna um ástandið í Indónesíu sem birtist í gær. 22.6.2005 00:01
Nektarmótmæli í Washington Hópur fólks í Washington fletti sig klæðum fyrir utan spænska sendiráðið í gær til þess að mótmæla nautaati. Mótmælendurnir klæddust skóm, rauðum treflum og plasthornum einum fata en höfðu auk þess mótmælaspjöld fyrir framan það allra heilagasta. 22.6.2005 00:01
40 uppreisnarmenn hafa fallið Meira en fjörutíu uppreisnarmenn hafa fallið í bardögum við hermenn í suðurhluta Afganistans undanfarinn sólarhring. Þá lést einn hermaður og sjö slösuðust í skotbardögum sem stóðu yfir í ellefu klukkustundir í gær. 22.6.2005 00:01
Sagt upp vegna barnakláms Yfirmenn sænska dagblaðsins Aftonbladet kærðu í dag blaðamann á blaðinu til lögreglu vegna gruns um að hann hefði náð í barnaklámefni á Netinu. Honum var jafnframt sagt upp störfum fyrir brot á innanhússreglum og siðareglum blaðsins. Innra eftirlit blaðsins kom upp um athafnir blaðamannsins. 22.6.2005 00:01
Konur í 40% stjórnarsæta Sænsk yfirvöld íhuga nú að fylgja í fótspor Norðmanna og setja lög sem kveða á um að konur eigi að skipa minnst 40% stjórnarsæta í fyrirtækjum. Norðmenn hafa gefið frest til ársins 2007. Svíar telja þróunina ganga alltof hægt en sem stendur eru tæp 15% stjórnarmanna konur. 22.6.2005 00:01