Fleiri fréttir

Kerry einu prósenti yfir

John Kerry mælist nú með eins prósentustigs forskot á George Bush í forsetaslagnum í Bandaríkjunum, samkvæmt nýrri fylgiskönnun Reuters og Zogby sem birtist í morgun. Þegar allar kannanir eru teknar saman hefur Bush hins vegar enn forskot í kjörmannaráðinu með 263 kjörmenn á móti 248 kjörmönnum Kerrys.

Hóta að drepa starfsmennina

Mannræningjar sem halda þremur starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna í gíslingu í Afganistan segjast drepa þá verði öllum al-Qaeda- og talibana föngum Bandaríkjamanna ekki sleppt fyrir hádegi á miðvikudag. Talsmaður Hers Muslíma, sem er hreyfing mannræningjanna, segir að gíslarnir verði drepnir á þann hátt sem kæta mun Múslimi.

Japani tekinn af lífi

Enn einn gíslinn hefur verið tekinn af lífi í Írak. Lík 24 ára Japana fannst í Bagdad í gær. Hann var á bakpokaferðalagi og var talinn hafa tekið rútu frá Jórdaníu til Íraks í síðustu viku. Átta bandarískir hermenn létu lífið í árás í Írak gær en þetta er eitthvert mesta mannfall meðal bandaríska setuliðsins í langan tíma.

Allt kapp lagt á kjörsókn

Svo mjótt er á mununum í forsetakosningunum í Bandaríkjunum að kosningaþátttakan er talin skipta sköpum. Flokkarnir leggja allt í sölurnar til að tryggja að fólk mæti á kjörstaði.

Krefjast þess að her fari á brott

Mannræningjar sem halda þremur starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna í gíslingu í Afganistan krefjast þess að allur erlendur her í landinu hverfi á brott og Sameinuðu þjóðirnar hætti starfsemi sinni.

Cherie Blair á móti Bush?

Cherie Blair, eiginkona Tony Blair, hefur verið ásökuð fyrir að halda úti áróðri gegn George Bush í fyrirlestrum sem hún hefur haldið í Bandaríkjunum upp á síðkastið. Í fyrirlestrum sínum hefur Cherie meðal annars fagnað úrskurði Hæstaréttar Bandaríkjanna um að hafna beiðni Hvíta Hússins um að ekki mætti hleypa mannréttindasamtökum í fangelsið á Guantanamo flóa.

Styttist í árás á Fallujah

Iyad Allawi, forsætisráðherra bráðabirgðarstjórnarinnar í Írak, segir mjög styttast í allsherjarárás í borginn Fallujah. Allawi segir að ekki sé hægt að bíða lengur með að losa borgina undan heljargreipum hryðjuverkamanna og þar eð friðsamar viðræður hafi engu skilað hingað til, liði ekki á löngu uns gripið verði til annarra og harkalegri aðgerða.

Verða að hætta hótunum

Yfirvöld í Íran segja að sigurvegari forsetakosninganna í Bandaríkjunum verðin að láta af hótunum gegn Íran. Talsmaður Utanríkisráðuneytis Írans segir að Bandaríkjamenn ættu að reyna að læra af sögunni og átta sig á því í eitt skipti fyrir öll að hótanir og fordómar í garð Íran skili engu.

Japanar láta ekki hræða sig

Japanar ætla ekki að draga her sinn burt frá Írak þó að japanskur ferðamaður hafi verið afhöfðaður í Írak í gær. Koizumi, forsætisráðherra, Japan segir að ekki þýði að láta óttann við ómannlegar grimmdaraðgerðir hryðjuverkamanna yfirvinna baráttuna gegn hryðjuverkum.

Arafat segist vel stemmdur

Jasser Arafat segist vera í góðu standi eftir ferðina til Parísar, að sögn fjármálaráðherra Palestínu, sem fékk símtal frá Arafat fyrr í dag. Fyrstu rannsóknir á Arafat benda til þess að veikindin sem hrjái hann séu ekki lífshættuleg og þau megi lækna, þó að ekki liggi enn fyrir hvað það er nákvæmlega sem hrjáir leiðtogann aldna.

Allt í járnum

Mjög jafn er komið á með þeim John Kerry og George Bush samkvæmt flestum könnunum sem birst hafa í dag. Í könnun Í könnunum Reuters og Zogby og ABC og Washington post er fylgið hnífjafnt, en hins vegar sker könnun Newsweek sig nokkuð úr, því samkvæmt henni hefur Bush sex prósentustiga forskot.

Engar hótanir hafa borist

Þrátt fyrir óvænta innkomu Osama Bin Laden í kosningabaráttuna í gær, segir ráðherra Heimavarnarmála í Bandaríkjunum að engar hótanir hafi borist um hryðjuverk á kjördag. Hann hvetur því Bandaríkjamenn til þess að ganga ósmeykir til kjörklefa á þriðjudaginn.

Stál í stál

Forsetaslagurinn í Bandaríkjunum er æsispennandi og ljóst að allt getur gerst á þriðjudag þegar gengið verður til kosninga. Fylgiskannanir Vestanhafs sýna að afar mjótt er á mununum hjá frambjóðendunum tveimur.

Myndband bin Ladens tvíeggjað sverð

Hér er aðalmálið nýja myndbandið frá Usama bin Laden. Á Fox news, sem heldur málstað Bush á lofti, er því nánast haldið fram blákalt að bin Laden hafi verið að hvetja Bandaríkjamenn til að kjósa Kerry.........

Afganistan er stríðssvæði

Yfirmaður upplýsingasviðs alþjóða rauða krossins segir samtökin líta á Kabúl og Afhanistan sem stríðssvæði og að íbúar þar geri engan greinarmun á friðargæsluliðum og hermönnum. Yves Daccord, yfirmaður upplýsingasviðs alþjóða rauða krossins, segir Afganistan allt stríðssvæði. Þar sé hættulegt að vera og starfsmenn rauða krossins fari mjög varlega.

Öryggið minnkar

Öryggisaðstæður í Kabúl í Afganistan hafa versnað til mikilla muna síðustu vikurnar og útlendingar í borginni eru slegnir. Mannræningjar sem halda þremur gíslum krefjast þess að allar erlendar hersveitir hverfi á brott. Að öðrum kosti verði gíslarnir myrtir.

Júshtsjenko fékk flest atkvæði

Stjórnarandstæðingurinn Viktor Júshtsjenko hlaut flest atkvæði allra frambjóðenda í úkraínsku forsetakosningunum samkvæmt útgönguspám. Hann náði þó ekki helmingsfylgi og því þarf að kjósa aftur á milli tveggja efstu.

Arafat á batavegi

Jasser Arafat, forseti heimastjórnar Palestínumanna, er á batavegi að sögn talsmanns hans en ekkert hefur þó verið gefið út um hvað það var sem hrjáði forsetann að öðru leyti en því að staðhæft er að hann er ekki með hvítblæði. Í gær hringdi hann í samstarfsmenn sína í Palestínu, las skeyti sem þjóðarleiðtogar sendu honum og mataðist.

Íranar herða baráttuna

Írönsk stjórnvöld verða að hefja auðgun úraníums á nýjan leik samkvæmt þingsályktunartillögu sem þingmenn á íranska þinginu samþykktu einróma. Auðgað úraníum má nota til framleiðslu kjarnorkuvopna en Íranar segjast aðeins ætla að nota það til friðsamlegra nota.

Stjórnin á hálum ís

Spænska stjórnin kann að brjóta gegn stjórnarskrá landsins með því að bera stjórnarskrá Evrópusambandsins undir þjóðaratkvæði án þess að athuga fyrst hvort samþykkt hennar samræmist spænsku stjórnarskránni. Þannig hljómar viðvörun ráðgjafarnefndar sem hvetur stjórnvöld til að kanna stöðuna áður en lengra er haldið.

Mikilvægustu kosningar ævinnar

Þrír af hverjum fjórum Bandaríkjamönnum álíta forsetakosningarnar á morgun þær mikilvægustu sem þeir hafa tekið þátt í á ævinni. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem unnin var fyrir fréttastofuna ABC.

Hundrað þúsund Írakar látnir

Um hundrað þúsund Írakar hafa látist af völdum innrásarinnar í Írak og eftirleiks hennar samkvæmt rannsókn vísindamanna sem læknaritið Lancet greinir frá.

Hlýnun jarðar eykst mikið

Loftslagsbreytingar eru að mestu af völdum manna samkvæmt nýrri rannsókn sem 300 vísindamenn frá átta ríkjum tóku þátt í. Frá þessu greindi bandaríska dagblaðið The New York Times sem komst yfir skýrsluna sem átti ekki að birta fyrr en í næstu viku, að sögn vegna þess að bandarísk stjórnvöld vildu ekki að hún birtist fyrr en eftir kosningar.

Mikilvægustu kosningar ævinnar

Þrír af hverjum fjórum Bandaríkjamönnum álíta forsetakosningarnar á morgun þær mikilvægustu sem þeir hafa tekið þátt í á ævinni. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem unnin var fyrir fréttastofuna ABC.

Gæti vart verið jafnara

Fjórar kannanir á fylgi forsetaefnanna George W. Bush og John Kerry sem birtar voru í gær sýna þá hnífjafna, þar af þrjár sem allar mæla þá báða með 48 prósenta fylgi. Það er því ljóst að það stefnir í einhverjar mest spennandi forsetakosningar í sögu Bandaríkjanna enda gæti staðan vart verið jafnari.

Viljum heim til fjölskyldna okkar

"Við viljum öll fara heim til fjölskyldna okkar," sagði Angelito Nayan, sendimaður Filippseyja í Afganistan, í myndbandi sem afganskir gíslatökumenn sendu til fjölmiðla í gær. Nayan er einn þriggja starfsmanna Sameinuðu þjóðanna sem gíslatökumenn hnepptu í gíslingu. Hinir eru Annetta Flanigan frá Norður-Írlandi og Shqipe Habibi frá Kosovo.

Segja Shell vera óvin fólksins

Olíurisinn Royal Dutch/Shell er óvinur nígerískrar alþýðu sögðu forystumenn verkalýðsfélaga þegar þeir boðuðu allsherjarverkfall um miðjan mánuðinn. Þeir sögðu að markmiðið nú væri að stöðva olíuútflutning.

Dýrasta kosningabarátta sögunnar

Stóru flokkarnir hafa slegið öll fyrri met í fjárútlátum í aðdraganda kosninganna sem fara fram á morgun. Þeir hafa þegar varið meira en fjörutíu milljörðum króna í auglýsingar einar sér og er það þrefalt hærri fjárhæð en flokkarnir notuðu til að kaupa auglýsingar í forsetakosningunum fyrir fjórum árum.

Rifist um Osama?

Myndband með Osama bin Laden, þar sem hann hótar frekari hryðjuverkaárásum, hefur valdið uppnámi í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum. John Kerry sakaði George Bush um að eiga sök á því að bin Laden gengur enn laus, þar sem hann hafi falið afgönskum hermönnum að hafa uppi á honum.

Danir gegn veggjakroti

Dönsku ríkisjarnbrautirnar eru að opna nýja þjónustumiðstöð, meðal annars til þess að reyna að hafa við veggjakroturum, sem virðast hafa sérstakt dálæti á járnbrautarvögnum. Að meðaltali ná starfsmenn járnbrautanna að hreinsa 455 vagna af veggjakroti á mánuði, en það dugar ekki til.

Myrtir verði Talibönum ekki sleppt

Hópur afganskra öfgamanna, sem segist halda þrem starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna í gíslingu, segja að þeir séu heilir á húfi, en verði myrtir ef öllum Talibönum sem sitja í fangelsi, verði ekki sleppt. Mannræningjarnir kalla sig Her múslima, og þeir gáfu fréttamanni Reuter fréttastofunnar upp númer sem þeir sögðu vera af starfsmannakortum tveggja gíslanna.

Osama setur strik í reikninginn

Öryggismál eru aftur komin efst á listann, í Bandarísku forsetakosningunum, eftir að birt var myndband með Osama bin Laden, þar sem hann hótar fleiri árásum á Bandaríkin. Myndbandið með Osama bin Laden, hefur valdið uppnámi í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum.

Ísraelar afskrifa Arafat

Ísraelar hafa afskrifað Arafat sem leiðtoga Palestínumanna, vegna veikinda hans. Arafat segir hinsvegar að ef Guð leyfi, muni hann snúa aftur. Þótt ekki sé enn vitað hvaða sjúkdómur hrjáir Yasser Arafat, er ljóst að hann er fárveikur.

Buttigglione hættur við

Ítalski stjórnmálamaðurinn Rocco Buttiglione hefur lýst því yfir að hann sé hættur við að gefa kost á sér sem ráðherra dóms- og öryggismála hjá Evrópusambandinu. Buttiglione er kaþólikki og mikill trúmaður. Hann olli miklu uppnámi þegar hann lýsti því yfir að samkvæmt hans trúarbrögðum væri samkynhneigð synd.

Innrás í Fallujah?

Her Bandaríkjamanna og þjóðvarnarlið Íraka undirbúa nú meiriháttar árásir á borgina Fallujah, þar sem mikil óöld ríkir. Yfir 5 þúsund hermenn eru í viðbragðsstöðu, en ákvörðun um að láta til skarar skríða er í höndum forsætisráðherra bráðabirgðarstjórnarinnar, Iyad Allawi.

Arafat líklega búinn að vera

Nánir samstarfsmenn Jassers Arafats segja að tíð hans sem leiðtoga Palestínumanna sé lokið vegna veikindanna sem nú hrjá hann. Fréttastofa CNN-sjónvarpsstöðvarinnar hefur það eftir hátt settum embættismönnum í Palestínu að Arafat sé ekki lengur andlega heill og sé því ekki í ástandi til þess að taka mikilvægar ákvarðanir.

Sjö létust

Hið minnsta sjö létust og sextán slösuðust í sprengjuárás á skrifstofur Al-Arabiya sjónvarpstöðvarinnar í miðborg Baghdad fyrir stundu. Sprengingin átti sér stað rétt utan við skrifstofur sjónvarpsstöðvarinnar og skemmdi þær verulega. Flestir þeirra sem fyrir árásinni urðu voru tæknimenn og bílstjórar sjónvarpsstöðvarinnar.

Átta hermenn létust

Átta bandarískir hermenn létust og níu slösuðust í bardögum í vesturhluta Baghdad í dag. Þar með hafa 858 hermenn Bandaríkjahers látið lífið í átökum í Írak, síðan ráðist var inn í landið í fyrra. Þrjú hundruð til viðbótar hafa látist af öðrum orsökum og alls hafa því yfir 1100 bandarískir hermenn látist í Írak á tæpu einu og hálfu ári.

Pútín vill byggja upp Tjéténíu

Pútín rússlandsforseti hvatti ríkisstjórn sína í gær til að hraða afgreiðslu bótagreiðslna til Tjéténa sem misst hafa heimili sín vegna óeirða.

Mikil óvissa

Óvissa er lykilorðið þessa síðustu daga kosningabaráttunnar í Bandaríkjunum. Ótryggur kosningabúnaður, kosningaþátttaka og afskipti hryðjuverkaleiðtoga eru meðal þátta sem gætu haft áhrif á úrslit kosninganna.

Pólitísk handsprengja

Sérfræðingar víða um heim hafa lýst því yfir að myndbandsupptakan af Osama bin Laden sem send var út á Al Jazeera sjónvarpsstöðinni á föstudagskvöld væri til þess ætluð að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. Því hefur verið líkt við pólitíska handsprengju.

Páfagarður ósáttur við höfnun ESB

Páfagarður sakar Evrópusambandið um hræsni og nornaveiðar, fyrir að hafna Rocco Buttiglione í embætti dóms- og öryggismálastjóra sambandsins.

Forsetakosningar í Úkraínu

Í dag ganga íbúar Úkraínu á kjörstaði og kjósa sér nýjan forseta. Forsetaframbjóðendurnir sem líklegastir eru til sigurs eru forsætisráðherrann Viktor Yanukovych og fyrrum forsætisráðherra Viktor Yushchenko.

Falin sprengiefni í Írak

Peter Bouckaert, Starfsmaður mannréttindasamtakanna Human Rights Watch sagði frá því í gær í samtali við fréttastofu AP að hann hafi tilkynnt bandarískum hermönnum um falinn geymslustað í borginni Baqouba, 55 kílómetrum norðaustur af Baghdad, í maí á síðasta ári.

Sjá næstu 50 fréttir