Allt kapp lagt á kjörsókn 31. október 2004 00:01
Svo mjótt er á mununum í forsetakosningunum í Bandaríkjunum að kosningaþátttakan er talin skipta sköpum. Flokkarnir leggja allt í sölurnar til að tryggja að fólk mæti á kjörstaði. Óteljandi fylgiskannanir birtast á hverjum degi í Bandaríkjunum en að öllu jöfnu er mest mark tekið á þremur til fjórum óháðum könnunum sem stærstu fjölmiðlar og skoðanafyrirtæki landsins standa fyrir. Þegar þessar kannanir eru skoðaðar kemur í ljós nokkuð mismunandi niðurstaða. Ein segir að Kerry sé með meira fylgi en Bush, önnur að fylgið mælist jafnt og sú þriðja að Bush sé með forskot á Kerry. Þegar allar óháðar kannanir sem birtust í Bandaríkjunum í dag eru teknar saman hefur Bush forskot í kjörmannaráðinu með 263 kjörmenn á móti 248 kjörmönnum sem fylgja Kerry. Bush mælist hins vegar ekki með nægan fjölda kjörmanna til að vinna, því atkvæði tuttugu og sjö kjörmanna eru enn óráðin. Yfirvöld í Bandaríkjunum segja að þrátt fyrir nýtt myndband Osama bin Ladens, þurfi fólk ekki að óttast að hryðjuverkahópar láti til skarar skríða á kosningadaginn. Bandaríkjamenn eru því hvattir til að mæta á kjörstaði. Það er svo sem ekki að furða að lögð sé áhersla á mætingu, því kosningaþátttakan getur skipt sköpum þegar fylgið mælist svona jafnt. Úrslitin geta því hreinlega ráðist af því hversu góðir flokkarnir eru að smala sínum mönnum á kjörstaði. Reyndar hafa aldrei fleiri Bandaríkjamenn nýtt sér tækifærið til að kjósa utankjörfundar og búist er við að allt að 25% verði þegar búnir að kjósa þegar kosningadagurinn rennur upp á þriðjudag.
Erlent Fréttir Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira