Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bush enn yfir í könnunum George Bush forseti Bandaríkjanna, sem færa má rök fyrir að sé upphafsmaður vandræða kollega síns í Bretlandi, hefur talsvert forskot á John Kerry í nýjustu fylgiskönnunum vestanhafs. Í sameiginlegri könnun New York Times og CBS hefur Bush 51% fylgi en Kerry 42% fylgi. 18.9.2004 00:01
Nader með í Florida Neytendafrömuðurinn Ralph Nader fær að vera með á kjörseðlum í Florida, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Demókrata til að fá hann ókjörgengann. Hæstiréttur Florida hafnaði í dag kröfum Demókrata um að Nader sé ólöglegur þar sem umbótasinnaflokkur hans sé ekki lengur alvöru flokkur. Úrskurður hæstaréttarins er mikið áfall fyrir Demókrata, sem munar um hvert atkvæði í hinu mikilvæga fylki, en Nader er einkum talinn kroppa atkvæði af Demókrötum. Til að mynda hefðu Demókratar aðeins þurft 537 atkvæði í Florida síðast þegar kosið var, en Nader fékk þá heil 97 þúsund atkvæði í fylkinu. 18.9.2004 00:01
Blaðamönnum sleppt? Tveir franskir blaðamenn, sem verið hafa í haldi mannræningja í Írak, losna líklega bráðum. Á Íslamskri heimasíðu segir að mannræningjarnir hafi ákveðið að láta blaðamennina lausa að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, en ekki var nánar tilgreint hver þau væru. 18.9.2004 00:01
Engar sættir Stálinn stinn mættust í Leeds-kastala í Bretlandi þar sem deilendur á Norður-Írlandi reyndu að bjarga friðarsamkomulaginu frá 1998. Tony Blair og Bertie Ahern, forsætisráðherrar Bretlands og Írlands, reyndu hvað þeir gátu, en tortryggni og andúð komu í veg fyrir sættir. 18.9.2004 00:01
Bush enn yfir Bush Bandaríkjaforseti virðist enn þá hafa töluvert forskot á keppinaut sinn, John Kerry. Könnunum ber þó ekki saman og ýmislegt bendir til þess að óvissan sé í raun meiri en þær gefa til kynna. 18.9.2004 00:01
Al-Zarqawi enn með hótanir Hryðjuverkamaðurinn Abu Musab al Zarqawi hefur hótað að drepa breskan mann og tvo Bandaríkjamenn innan tveggja sólarhringa, verði ekki öllum írökskum kvenföngum sleppt. Á myndinni sést grímuklæddur maður lesa af blaði yfir gíslunum þrem, sem búið er að binda fyrir augun á. 18.9.2004 00:01
Blair var varaður við Tony Blair var varaður við því fyrir stríðið í Írak, að hersveitir yrðu að vera þar árum saman til að tryggja einhverskonar stöðugleika. Sérfræðingar breskra stjórnvalda töldu engar líkur á gereyðingarvopnum í Írak, og að ástæða stríðsáhuga Bandaríkjamanna væri vilji Bush forseta til að ljúka verki föður síns. 18.9.2004 00:01
Vöruðu Blair við upplausninni Ári áður en innrásin í Írak hófst var búið að vara Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, við því að ekki væri hægt að tryggja stöðugleika í stjórnarfari Íraks öðru vísi en að hafa fjölmennt herlið í landinu í mörg ár eftir að innrás lyki. Frá þessu greindi breska dagblaðið Daily Telegraph sem komst yfir leyniskjöl um aðdraganda innrásarinnar. 18.9.2004 00:01
Viðræður fóru út um þúfur Vonir um að takast mætti að ná samkomulagi um starfhæfa heimastjórn á Norður-Írlandi í viðræðum sem lauk í gær gengu ekki eftir en Bertie Ahern og Tony Blair, forsætisráðherrar Írlands og Bretlands, sögðu þó að árangur hefði náðst. Þeir virkuðu þó þreytulegir og vonsviknir á blaðamannafundi. 18.9.2004 00:01
Segja Írönum að hætta auðgun úrans Íranar verða að hætta starfsemi sinni sem miðar að því að auðga úran fyrir haustið ef þeir vilja vera öruggir um að máli þeirra verði ekki vísað til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna samkvæmt samþykkt Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar. 18.9.2004 00:01
Októberhátíð sett í 171. skipti Íklæddur hinum hefðbundnu hnésíðu leðurbuxum setti Christian Ude, borgarstjóri í München, októberhátíðina sem er nú haldin í 171. skipti. Um hálf milljón manna var við setningu hátíðarinnar og viðburði fyrsta dags þessarar hálfs mánaðar löngu uppákomu en alls er gert ráð fyrir að sex milljónir gesta víðs vegar að úr heiminum sæki hátíðina. 18.9.2004 00:01
Keppa um völdin Harðlínuþjóðernissinnar og umbótasinnar sem vilja aukin samskipti við Vesturlönd takast á um völdin í sveitarstjórnarkosningum sem fara fram í Serbíu í dag. Umbótasinnar eru taldir líklegir til að halda völdum í höfuðborginni Belgrad en þjóðernissinnum er spáð sigri á landsbyggðinni. 18.9.2004 00:01
Hringdi í eigin útför Dóttir Dane Squires fékk taugaáfall þegar faðir hennar hringdi í hana. Hún var þá stödd í útför þar sem ættingjarnir töldu sig vera að kveðja Squires í hinsta sinn. 18.9.2004 00:01
Í fallhlífastökk á níræðisaldri Á annan tug fyrrverandi fallhlífahermanna, sem flestir eru komnir á níræðisaldurinn, stökk úr flugvél og sveif til jarðar nærri Arnhem í Hollandi í fallhlíf til að minnast þess að sextíu ár eru liðin frá orrustunni um Arnhem. Orrustan var hluti af tilraun Breta til að ná nokkrum brúm yfir fljótin Maas, Rín og Waal á sitt vald. Tilraunin mistókst. 18.9.2004 00:01
Refsiaðgerðum hótað Súdönsk stjórnvöld verða að binda enda á árásir arabískra vígasveita á þeldökka íbúa Darfur-héraðs í Súdan eða vera viðbúin því að vera beitt refsiaðgerðum. Þannig hljómar samþykkt öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem samþykkt var með ellefu atkvæðum, en fjögur ríki sátu hjá við afgreiðsluna. 18.9.2004 00:01
Danska þjóðin undrandi Danska þjóðin er undrandi á fréttum um skilnað Jóakims Danaprins og Alexöndru, eiginkonu hans. Danir hafa tekið Alexöndru opnum örmum og hjónabandið, sem varað hefur í níu ár, hefur þótt vera hamingjuríkt. 17.9.2004 00:01
Basayev ber ábyrgðina Tétésneski skæruliðaforinginn, Shamil Basayev, hefur lýst ábyrgð á hendur sér á hryðjuverkunum í skólanum Beslan í Rússlandi, þar sem 320 fórust. Þetta kemur fram á heimasíðu hóps téténeskra uppreisnarmanna. 17.9.2004 00:01
20 látnir eftir Ivan Að minnsta kosti tuttugu manns létust þegar fellibylurinn Ivan gekk yfir suðurströnd Bandaríkjanna í gær. Fellibylurinn olli þó minni skaða en óttast hafði verið. Vindhraði Ivans var tvö hundruð og níu kílómetrar á klukkustund. Til samanburðar komst vindhraðinn í kviðum upp í 180 kílómetra þegar illviðrið gekk yfir sunnanvert Ísland í fyrrinótt. 17.9.2004 00:01
Öryggi breska þingsins í molum Enn eitt örygishneykslið skekur nú breska þingið, aðeins sólarhring eftir að nokkrir andmælendur refaveiðibannsins, sem samþykkt var á þinginu í gær, tókst að ryðjast þar alveg inn á gafl í mótmælaskyni. Nú upplýsir hasarblaðið Sun að það hafi laumað þjóni inn í þjónalið þingsins á fölsuðum pappírum. 17.9.2004 00:01
13 fórust í Írak í morgun Þrettán fórust í sjálfsmorðsárás í Bagdad í morgun og tuttugu særðust. Talsmaður heilbrigðisráðuneytisins í Bagdad segir ástæðu til að óttast að talan muni hækka, þar sem sprengjan hafi verið mjög öflug. Bíl var ekið upp að eftirlitsstöð lögreglunnar í miðborg Bagdad-borgar og bifreiðin sprengd í loft upp með fyrrgreindum afleiðingum. 17.9.2004 00:01
Svíar óhræddir við veikindafrí Svíar telja það í góðu lagi að taka sér veikindafrí frá vinnu vakni þeir þreyttir og leiðir, samkvæmt nýrri rannsókn. Sextíu og fimm prósent þeirra telja streytu í vinnu góða ástæðu og fjörutíu og eitt prósent telur deilur við yfirmann eða samstarfsfélaga nægja til að taka sér veikindafrí. Félagsmálayfirvöld eru ekki á sama máli og hyggjast því hefja herferð til að fræða almenning um hvenær megi, lögum og reglum samkvæmt, taka sér veikindafrí 17.9.2004 00:01
Hrópað á Lauru Móðir bandarísks hermanns sem lést í átökum í Írak var handtekin í gær fyrir að trufla ræðu Lauru Bush, eiginkonu Georgs Bandaríkjaforseta. Konan, íklædd stuttermabol með áletruninni: „Bush forseti: Þú drapst son minn," hrópaði spurningum að Lauru þar sem hélt ræðu á kosningafundi í New Yersey. 17.9.2004 00:01
Harry heldur uppi merkjum Díönu Harry Bretaprins segist vilja halda áfram góðgerðastarfinu sem móðir hans lagði mikla áherslu á. Hann segist ekki vilja reyna að fylla skarðið sem brotthvarf hennar olli, það geti enginn gert. Hann vill hins vegar gera sitt í von um að móðir hans geti verið stollt af honum. 17.9.2004 00:01
Ólgunni linnir ekki í Írak Blóðsúthellingarnar halda áfram í Írak. Undanfarinn sólarhring hafa um hundrað manns fallið í bardögum og hryðjuverkaárásum. Í skýrslu Bandaríkjastjórnar, sem hulunni hefur verið svipt af, er varað við hættunni á borgarastríði og dregið í efa að lýðræði í Írak sé raunhæft á næstunni. . 17.9.2004 00:01
Enn einn fellibylurinn af stað Enn einn fellibylurinn veldur nú usla í Karíbahafinu. Fellibylurinn Jeanne hefur þegar valdið dauðsföllum í Dóminíska lýðveldinu, og bylurinn Ívan kostaði tuttugu manns lífið á suðurströnd Bandaríkjanna. 17.9.2004 00:01
Breska þingið er skotmark Talsmaður breska þingsins upplýsti í morgun að leyniþjónustan hefði vitneskju um það að breska þignið væri skotmark Al Qaeda hryðjuverkasamtakanna. Þessi yfirlýsing kemur á afar viðkvæmum tímapunkti þar sem nú er áþreifanlega ljóst að öryggismál þingsins eru í rusli. 17.9.2004 00:01
Svíar oft veikir Svíar taka sér veikindafrí, vakni þeir þreyttir og leiðir. Raunar virðist þeim finnast hvaða afsökun sem er duga, samkvæmt nýrri rannsókn. Yfirvöld telja rétt að bregðast við þessum með fræðsluherferð. 17.9.2004 00:01
Bush gagnrýnir heilbrigðisáform George Bush, Bandaríkjaforseti hefur gagnrýnt hugmyndir John Kerrys í heilbrigðismálum, sem hann segir þunglamalegar og allt of miðstýrðar. Hann segir að sjálfur búi hann yfir einföldum hugmyndum sem eigi að gera það að verkum að hágæða heilbrigðisþjóunsta verði viðráðanleg fyrir alla 17.9.2004 00:01
Símaviðtöl lækna þunglyndi Símaviðtöl geta bætt líðan þunglyndra samkvæmt nýrri rannsókn lækna í Seattle í Bandaríkjunum. Í rannsókninni, sem náði til 600 þunglyndra einstaklinga af báðum kynjum, var staðalaðri hugrænni atferlismeðferð beitt í 30-40 mínútur með reglulegu millibili í 18 mánuði. 17.9.2004 00:01
Nýr fellibylur Hver fellibylurinn rekur nú annan í Karíbahafi. Ívan grimmi lék Bandaríkjamenn grátt í nótt og fast á hæla honum bylurinn Jeanne, sem olli mannfalli á sama tíma. 17.9.2004 00:01
Ólgan í Írak heldur áfram Það er útilokað að halda frjálsar kosningar í Írak að óbreyttu, segir Colin Powell. Skálmöldin í landinu fer versnandi, mannfall eykst og ringulreiðin líka. Fleiri en tvö hundruð Írakar hafa fallið í sprengjuregni og hryðjuverkaárásum undanfarna sólarhringa, þar af á sjötta tug í dag. 17.9.2004 00:01
Þreyta sama og veikindi Þreyta í morgunsárið er nægjanlega góð ástæða til að tilkynna veikindi í vinnunni að mati 40 prósenta Svía, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Þar kemur einnig fram að tveir af hverjum þremur aðspurðum segja fyllilega eðlilegt að tilkynna veikindi ef þeir vinna við streituvaldandi aðstæður. 17.9.2004 00:01
Íraksstríðið ólöglegt segir Annan Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, segir stríðið í Írak hafa verið ólöglegt en Annan sagði í viðtali á BBC að sú ákvörðun Bandaríkjamanna að fara í stríð í Írak án samþykkis Sameinuðu þjóðanna hafi verið ólögleg. 16.9.2004 00:01
Jóakim og Alexandra að skilja Jóakim Danaprins og eiginkona hans, Alexandra, ætla að skilja að skiptum eftir níu ára hjónaband. Þetta var formlega tilkynnt á blaðamannafundi í dönsku konungshöllinni í morgun. Jóakim og Alexandra giftust árið 1995 og eiga tvo syni, Nikolai og Felix. 16.9.2004 00:01
Ívan að ganga á land í Alabama Fellibylurinn Ívan er í þessum töluðu orðum að ganga á land í Alabama-ríki í Bandaríkjunum. Þegar hafa tveir látið lífið. Veðurbauja á Mexíkóflóa mældi 16 metra háa öldu í miðju fellibylsins snemma í morgun og sérfræðingar óttast að slík flóðbylgja valdi gríðarlegu tjóni þegar hún nær ströndinni. 16.9.2004 00:01
Skilnaðurinn reiðarslag fyrir Dani Jóakim Danaprins og eiginkona hans Alexandra ætla að skilja eftir níu ára hjónaband. Fréttirnar eru reiðarslag fyrir dönsku þjóðina. Formlega var tilkynnt um skilnaðinn á blaðamannafundi í dönsku konungshöllinni í morgun. 16.9.2004 00:01
Tveir hafa látið lífið Þegar hafa tveir látið lífið í Bandaríkjunum af völdum fellibylsins Ívans sem nú hefur náð landi í Alabama-ríki. Enn einn fellibylurinn er að sækja í sig veðrið á Karíbahafinu. 16.9.2004 00:01
800.000 ríkisstarfsmenn í verkfall Átta hundruð þúsund ríkisstarfsmenn í Suður-Afríku lögðu niður vinnu í nokkrum borgum landsins dag og krefjast nú launahækkunar og aukinna fríðinda. 16.9.2004 00:01
Tólf hafa látist í Bandaríkjunum Tólf manns hafa látið lífið í áhlaupi Ívans grimma á Bandaríkin. Mikið hefur dregið úr styrk fellibylsins sem nú gengur norður eftir Alabama-ríki. 16.9.2004 00:01
Voru með stolin vopn Vopnin sem gíslatökumennirnir í skólanum í Beslan notuðu áttu uppruna sinn að rekja í vopnabúr lögreglunnar. Ríkissaksóknari Rússlands, Vladimir Ustinov, sagði að gíslatökumennirnir hefðu stolið vopnunum í nokkrum árásum á lögreglustöðvar í júní. 16.9.2004 00:01
Neita öllum viðræðum Norður-Kóreumenn segjast ekki til viðræðu um kjarnorkuáætlun sína fyrr en Suður-Kóreumenn hefðu sagt allan sannleikann um leynilegar tilraunir sínar með kjarnorku. 16.9.2004 00:01
Berjast um völdin Útlit er fyrir að valdadagar Megawati Sukarnoputri, forseta Indónesíu, séu taldir. Fyrstu almennu forsetakosningarnar fara fram á mánudag og er andstæðingur Sukarnoputri, Susilo Bambang Yudhoyono, talinn sigurstranglegri. 16.9.2004 00:01
Austur-Tímorbúum fjölgar mikið Eftir mikinn fólksflótta frá Austur-Tímor, meðan á aldarfjórðungslöngu og ofbeldisfullu hernámi Indónesa stóð, er landsmönnum farið að fjölga mikið í kjölfar þess að Indónesar hurfu á braut. 16.9.2004 00:01
Kennari klippti í eyru nemenda Kennari klippti í eyrun á sautján sex til níu ára gömlum nemendum sínum þar sem hann var ósáttur við að þau hættu að lesa upphátt þegar hann gekk út úr kennslustofunni. Sauma þurfti í eyru tveggja barnanna til að gera að sárum þeirra en í flestum tilfellum dugði að setja plástur á sárin. 16.9.2004 00:01
Taylor veldur enn vanda Erfiðlega mun ganga að byggja Líberíu upp á nýjan leik eftir langt borgarastríð svo lengi sem Charles Taylor, fyrrum forseti og stríðsherra, gengur laus, sagði Jacques Klein, sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna í málefnum Líberíu. 16.9.2004 00:01